Morgunblaðið - 04.04.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 04.04.2022, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022 ✝ Örn Hall- dórsson fædd- ist 3. febrúar 1964. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 23. mars 2022. Foreldrar Arn- ar voru Halldór Hjálmarsson raf- virkjameistari, f. 29. ágúst 1931, d. 9. maí 2018, og Sigþrúður Guðbjörg Pálsdóttir, ljós- móðir, f. 19. desember 1928, d. 9. september 2007. Systkini Arnar eru: 1) Stein- unn, f. 9. maí 1953, gift Einari Steingrímssyni, f. 15. janúar Örn útskrifaðist með B.Ed.- gráðu frá Kennaraháskóla Ís- lands árið 1989 og með M.Ed.- meistaragráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands árið 2019. Örn hóf starfsferil sinn sem kennari við Grandaskóla strax að kennaranámi loknu og árið 1991 tók hann við stöðu að- stoðarskólastjóra sama skóla og gegndi því starfi til ársins 1997 eða þar til hann tók við stöðu skólastjóra Grandaskóla í afleysingum einn vetur. Árið 2001 tók Örn við stöðu skóla- stjóra Selásskóla og gegndi því starfi til ársins 2012, en það ár tók hann við stöðu skólastjóra Grandaskóla og gegndi því starfi alla tíð síðan. Útför Arnar fer fram frá Neskirkju við Hagatorg í dag, 4. apríl 2022, klukkan 13. 1950; 2) Sigmar Júlían, f. 25. júlí 1953, kvæntur Sól- eyju Björgvins- dóttur, f. 29. júlí 1954; 3) Hjálmar, f. 10. apríl 1954, 4) Rún, f. 28. maí 1957; 5) Páll, f. 4. nóvember 1958, kvæntur Stellu Arnlaugu Óladótt- ur, f. 20. maí 1959. Eiginkona Arnar er Ingi- björg Bryndís Sigurðardóttir, f. 21. nóvember 1966. Þau gift- ust 2. júlí 1994. Börn Arnar og Ingibjargar eru: 1) Sif, f. 12. október 1993; 2) Halldór Smári, f. 28. október 1996. Elsku Örn. Hvernig kemur maður heilli ævi af minningum fyrir í nokkr- um orðum? Þegar ég hugsa um þig koma óteljandi hlutir upp í hugann. Sú minning sem er hvað sterk- ust af þér er þegar ég kom upp á spítala að heimsækja Ingibjörgu þegar Sif var nýfædd og fékk svo far með þér heim. Þú varst á litla rauða bílnum ykkar sem ég skildi aldrei alveg hvernig þú náðir að komast inn í. Þú varst með átekna kókflösku í bílnum og fékkst þér sopa, réttir svo flöskuna til mín og spurðir: „Viltu slef?“ Ég var svo heppin að vera í Grandaskóla meðan þú varst að aðstoðarskólastjóri þar. Þar var í fyrsta og eina skiptið sem ég heyrði þig æsa þig. Þegar bekkj- arbróðir minn hafði gert einhvern óskunda og þú komst inn í stofuna og baðst um að fá að ræða við hann. Stofan var ofan í kjallara og fyrir framan dyrnar lágu tröppur upp. Þið fóruð fram og þú lokaðir hurðinni, svo heyrðust hljóð sem ég trúði ekki að kæmu frá þér. En bekkjarbróðir minn hefur greini- lega brotið mjög illa af sér því þú reiddist ekki auðveldlega. Nokkrum dögum seinna kem- ur þú aftur inn í stofuna og biður um að fá að tala við mig. Hjartað í mér sökk! Ég hugsaði Ó nei, hvað gerði ég af mér? Ekki mundi ég nú eftir neinu og það kom kliður um bekkinn, allir héldu að nú ætti að skamma mig líka. Ég kom fram með öndina í hálsinum og beið örlaga minna. En svo spurðir þú mig hvort ég vildi koma með ykkur Ingibjörgu í ungbarnasund um kvöldið! Þegar ég kom aftur inn í stofuna voru allir mjög for- vitnir hvað hefði átt sér stað. Ég er þakklát fyrir allar minn- ingarnar og tímann sem við átt- um saman. Mikið vildi ég óska að hann hefði verið mun lengri. Það er mikill missir að eins góðum manni og þér og harmur fjöl- skyldunnar er mikill. Sárið mun aldrei gróa en við munum því miður þurfa að læra að lifa með því. Vonandi er allt morandi í veiði- ám og Bruce Springsteen hjá þér núna. Þar til næst. Þín Arnrún. Sumarsólin skín inn um glugga. Borðin eru dúklögð og veitingar bíða. Skólaslit eru að baki og skólastjórnendur tínast inn á vorfögnuð sinn með kolleg- um og fá sér sæti. Margir eru úr- vinda en flestir þó sælir eftir enn einn viðburðaríkan vetur með börnunum. Einn okkar er þó upp- fullur orku, boðinn og búinn til að létta okkur hinum lundina. Bón- góður sem ávallt. Þetta er stundin hans og verðskulduð stundin okk- ar. Enn og aftur var Örn vinur okkar tilbúinn til stíga á svið og gleðja okkur hin með gítarleik og söng. „Viljið þið hljómsveit? Þá koma Keli og strákarnir bara líka.“ Smátt og smátt byrjar sal- urinn að iða, því allir lifna við þeg- ar Örn hendir sér í hvert lagið á fætur öðru. Einbeittur og glað- beittur í senn, rjóður í kinnum. Smátt og smátt hafa allir orku til að dansa við glaðværa tónlist og sífellt lengri skugga. Okkur vinum og kollegum þyk- ir vænt um að fá tækifæri til að draga hér upp mynd af skemmti- legum og traustum manni og ein- stökum félaga. Örn Halldórsson var skólamaður af guðs náð, barn- góður, þolinmóður og hlýr. Undir það síðasta deildi hann því með okkur hve stoltur og þakklátur hann var fyrir að fá að vera kenn- ari og skólastjóri. Og hann mátti vera svo sannarlega vera stoltur af sínu starfi, við hefðum öll viljað hafa börnin okkar í skóla hjá hon- um. Hann var líka traustur banda- maður okkar hinna í faginu og sérlega hjálpfús þegar til hans var leitað. Við fundum það sterkt hversu mikilvægt honum fannst að styðja okkur hin með ráði og dáð. Við sem skrifum þessa grein kynntumst því vel þegar við sát- um með honum í stjórn félagsins okkar. Í því samstarfi skapaðist líka vinátta milli okkar sem hélt allt til enda og lifir nú áfram með góðum minningum. Við munum einlæglega sakna Arnar um ókomna tíð. Við sendum Ingibjörgu og fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Hann var allra stoltastur af ykkur. Guðlaug Erla, Hanna Bubba, Margrét og Jón Páll. Fyrir um það bil þrjátíu árum störfuðu sjö karlkennarar við Grandaskóla í vesturbæ Reykja- víkur. Það þótti nokkuð gott því karlkennarar voru heldur fáliðað- ir í barnaskólunum. Næsta ára- tuginn störfuðu fimm þeirra sam- an við skólann í þágu menntunar barna í Grandahverfinu. Um aldamótin lítur út fyrir að hóp- urinn sé að flosna upp því þrír karlanna hætta störfum við skól- ann. Leiðir skilja samt ekki alveg því þá var Smíðaklúbburinn Grandi stofnaður. Næstu tuttugu árin hittist smíðaklúbburinn reglulega yfir vetrartímann í veglegum matar- veislum þar sem skólamál, menn og málefni voru skeggrædd fram eftir nóttu. Eins og gengur og gerist var það ekkert endilega alltaf þannig að menn væru sam- mála en það gerði þessar kvöld- stundir bara skemmtilegri. Góðir vinir þurfa ekki alltaf að vera sammála. Það einkenndi Örn að hann vildi ávallt sjá styrkleikana í hverjum manni og vildi ætíð reyna að greiða götu samferða- manna sinna. Hann gætti alltaf hófs í orðum í þessu kvöldspjalli okkar og dempaði jafnvel um- ræðuna ef honum þótti aðrir klúbbfélagar kveða of fast að orði. Á fyrstu árum samstarfs meðlima smíðaklúbbsins var tölvutæknin að hefja innreið sína inn í skólana. Áður var krítin og kjafturinn helsta verkfæri kennarans til að miðla námsefninu til nemendanna en með nýrri tækni voru að opn- ast nýjar leiðir. Örn var sérlega áhugasamur um að flétta tölvu- tæknina inn í námsefni grunn- skólans og reyndi með ráðum og dáð að styðja alla viðleitni til að þróa þessa nýju tækni áfram inn- an skólans. Kennsla í náttúruvís- indum var honum einnig mjög hugleikin. Fljótlega eftir stofnun Smíða- klúbbsins Granda var veiðideild klúbbsins stofnuð og fór deildin í eina veiðiferð á sumri. Mottó veiðiferðanna var að finna nýja veiðistaði sem klúbburinn hafði ekki veitt í áður. Þá var farið í Selá, Hítarvatn, Þórisvatn, Skagaheiði, Arnarvatnsheiði, Steinsmýrarvötn og ónefndu draumavötnin okkar. Örn var ein- staklega lunkinn í laxveiðinni og má segja að hann hafi kennt öðr- um meðlimum klúbbsins að veiða lax. Það var með hreinum ólíkind- um hve fundvís hann var á fisk- inn. Þau eru ótal skiptin þar sem hann stóð ásamt einhverjum okk- ar við fallegan hyl til að skyggna hann eftir fiski. Yfirleitt var það þannig að Örn sá fiskinn og við hinir bara þóttumst sjá hann. Það var okkur hinum óskiljanlegt hvernig hann fór að þessu og hann átti það til að slá okkur hin- um algerlega við í veiðinni. Í þess- um veiðiferðum landaði Örn sam- tals 181 fiski og að sjálfsögðu landaði hann einnig stærsta fisk- inum, fjórtán punda hæng úr Sel- hyl í Selá í Steingrímsfirði. Alls fór veiðideildin fimm sinnum í Selá og dvaldist þá í húsi Arnar á Hólmavík þar sem rætur hans liggja. Með þessum orðum kveður Smíðaklúbburinn Grandi kæran vin. Minningar um ævintýri á ýmsum veiðislóðum, um stóra fiska, um marga fiska, um þann stóra sem slapp og um fjölmörg ánægjuleg vetrarkvöld yfir góð- um mat og drykk lifa. Ingibjörgu, Sif og Halldóri sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Björn Sigurðsson, Valgeir Gestsson og Hörður Grétar Gunnarsson. Kæri vinur, félagi og sam- starfsmaður. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að þú sért fallinn frá, það var svo mikið sem við áttum eftir að gera saman sem búið var að skipuleggja. En svona er lífið hverfult, engin veit sína ævina fyrr en á enda er. Kynni okkar hófust haustið 1991 þegar ég hóf störf í Granda- skóla og þá varst þú aðstoðar- skólastjóri. Þvílíkt ljúfmenni sem þú varst, skapgóður og alltaf tilbúinn til að- stoðar ef þess var þörf eða bara í smá spjall um daginn og veginn. Þú skiptir um skóla um tíma þegar þú varðst skólastjóri Sel- ásskóla, en heima er alltaf best og mér til mikillar gleði komstu til baka og varðst skólastjóri í Grandaskóla. Margt skemmtilegt er hægt að tína til öll þessi ár í Grandaskóla en það er ekki er hægt að sleppa því að minnast á ferð okkar til Grikklands í tengslum við Eras- mus-verkefnið Stand By Me og Smíðaklúbbinn Granda. Í þessari ferð okkar til Grikklands kynnt- umst við enn betur þremur Grikkjum sem höfðu áður komið í heimsókn í Grandaskóla og mynduðust órjúfanleg bönd milli okkar og þeirra sem hafa haldið alla tíð síðan. Vá, hvað þetta var ógleymanleg og skemmtileg ferð. Smíðaklúbburinn Grandi var stofnaður eitt árið þegar ég var einn eftir af okkur karlkennurum skólans og ákváðum við að hittast heima hjá einum okkar góða kvöldstund í mat og drykk til að fá fréttir af hver öðrum. Í ljós kom að það var endalaust hægt að tala saman, reyndar svo mikið að kvöldið og nóttin dugðu ekki til. Í framhaldinu ákváðum við að halda áfram að hittast og skipt- umst á að bjóða heim til hver ann- ars í mat og drykk. Þetta var dýr- mætur tími og ógleymanlegur. Til stóð að þið félagarnir kæm- uð til mín í mat og drykk ásamt því að skoða nýju íbúðina mína stuttu fyrir andlát þitt og vorum við búnir að skipuleggja allt svo þú gætir komist, en svo fór að Co- vid-19 varð þess valdandi að ekk- ert varð af matarboðinu. Á hverju sumri reyndi Smíða- klúbburinn að fara saman í veiði- ferðir vítt og breitt um landið og eru þær hluti af þeim mörgu ógleymanlegu stundum saman. Hólmavík, þvílík dásemdar paradís sem þessi staður er. Í hvert skipti sem Smíðaklúbbur- inn fór saman til Hólmavíkur í laxveiði í Selá fannst mér eins og ég væri kominn heim í minn gamla heimabæ sem ég ólst upp í. Ekkert stress, bara gleði, af- slöppun og Boney M á vínilfón- inum. Vá, hvað það var gaman. Hvað er hægt að segja meira. Það var ótrúlegt hvað þú varst alltaf glöggur að sjá fisk í ánni þegar við hinir sáum ekki neitt. Einnig var ógleymanleg ferðin sem ég og Ingibjörg fórum í norð- ur til þín í berjamó, út á sjó að veiða á sjóstöng og sjá alla hval- ina. Þetta var sannkallað ævin- týri. Kæri vinur, takk fyrir allar ómetanlegu stundirnar saman og allt sem þú hefur gefið mér. Hörður Grétar Gunnarsson. Elsku Örn, minn kæri vinur! Það var heiður að hafa kynnst þér. Mikill heiður! Ég hafði fyrst samband við þig í nóvember 2016 til að biðja þig formlega um leyfi til að heim- sækja Grandaskóla. Ekkert svar barst. Ég hafði aftur samband. Ekkert svar. Ég sendi skilaboð gegnum Messenger. Ekkert svar enn og aftur. Ég hugsaði með mér „oh þetta Norðurlandalið, þau eru svo snobbuð“. Ég hætti að skrifa og hafa samband og gleymdi þessu. Mánuði seinna fékk ég svo sendar myndir í pósti af glöðu andliti, brosandi risa. Risinn að veiða með sínum „amigos“, risinn í jólasveinabúningi eða að spila á gítar fyrir krakkana í skólanum. Síðan þá höfum við talað sam- an aftur og aftur. Við deildum svo mörgum hlutum. Þegar við hitt- umst loks í persónu í ágúst 2017 þá varstu kominn inn í líf mitt til að vera. Minningin sem mér þykir kær- ust er frá ferð okkar til Hólmavík- ur. Sögurnar um álfana, þjóðsög- urnar, persónulegu hlutirnir sem við deildum. Hver steinn hafði sögu sem þú gast sagt okkur frá. Hver bátur og hvert tré. Þú varst svo stoltur af því að geta sýnt okkur fæðing- arstað þinn. Það var eins og þú gætir snúið aftur í tíma og kynnt okkur fyrir 4 ára gömlum Erni, 8 ára og 10 ára. Allt þitt líf var fyrir framan augu okkar. Því næst heimsóttir þú okkur á Grikklandi. Við vorum gott teymi. „Þegar ruglaðir Íslendingar hitta ruglaða Grikki.“ Við skemmtum okkur, ferðuðumst og hlógum. Þú varðst hluti af fjölskyldunni. Hluti af okkar lífsspili. Fallegur og litríkur hluti. Minn kæri Örn, þú ert nú þar sem þú átt heima. Jörðin er of lítil fyrir risa, of lítil fyrir erni, of lítil fyrir vængi þína, of lítil fyrir þinn anda, draumana og þína sýn. Þín sýn var að gera Granda- skóla heimsfrægan. Gera hann opinn og ögrandi, skóla án að- greiningar. Það vantar fleira fólk eins og þig, sem fer út fyrir þæginda- ramma sinn til að ferðast til Kóreu, Ítalíu, Bandaríkjanna og Grikklands til að verða betri kennarar. Aðeins þeir sem geta flogið hátt geta haft sömu sýn og þú hafðir. Einhvern daginn, fyrr eða síð- ar, þegar við hittumst aftur minn kæri vinur þá máttu geyma blá- ber fyrir mig í vasa þínum, æv- intýri, tröll… geymdu fyrir mig mitt uppáhaldslag, „Stand by me“, þar sem það var síðasta lagið sem við sungum saman í afmæl- isveislu hjá einum af þínum „amigos“. Stattu við hlið fjölskyldu þinn- ar, sem þú munt skilja eftir. Það var mikill heiður að hafa kynnst þér! Mikill heiður minn kæri rugl- aði Íslendingur! Katerina Karkali, Lamia, Grikklandi. Okkar kæri vinur Örn! Við erum í molum og þykir svo leitt hvað þú féllst frá snögglega. Lífið getur stundum verið ósann- gjarnt. Við munum ennþá eftir okkar fyrstu ferð til Íslands sem var í ágúst 2017. Þú tókst á móti okkur í skólanum þínum með öllu vinalega starfsfólkinu og bauðst okkur í ferðalag um landið í frí- tíma þínum. Þú bauðst okkur meira að segja að gista í sum- arbústaðnum þínum við sjóinn. En eins og við segjum í Grikk- landi: „Guð elskar gott fólk og tekur það snemma til sín.“ Megi þú hvílast í friði í Paradís, nálægt englunum, þar sem fyrir- finnst hvorki sársauki né sorg. Við munum ávallt minnast þín með ást og fallegum minningum. Þínir grísku vinir, Katerina og Christos, Lamia, Greece. Þegar Lóan kom gerði Örninn sig ferðbúinn og flaug í sumar- landið. Táknrænt fyrir okkur starfsfólk Grandaskóla þar sem Örn hafði mikið yndi af nátt- úrunni og náttúrufræðikennslu. Hann hafði sérhæft sig á því sviði og hafði mikinn metnað fyrir góðri náttúrufræðikennslu. Sjó- búr, útungunarvél og vindstiga- mælar hafa verið staðalbúnaður í langan tíma, allt fyrir tilstilli Arn- ar. Örn var farsæll skólastjóri Grandaskóla. Hann var leiðtog- inn okkar, hugsjónarmaður, drif- kraftur og skemmtanastjóri. Það skipti ekki máli hvert hann setti hug sinn í skólanum alltaf kom það vel út. Hann smíðaði hillur á kaffistofuna, fyrstur til að taka upp kústinn ef honum þótti skól- inn ekki nógu snyrtilegur, var með puttann á púlsinum varðandi menntamál og tók svo upp gítar- inn í gleðskap. Hugsjón hans í starfi var mikil og var hann sífellt að finna nýjar leiðir til að bæta skólastarfið. Alltaf margt í gangi en aldrei neinn æsingur. Yfirvegaður og rólegur í öllum verkum. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera hans staðgengill. Hans nákvæmni, útsjónarsemi, næmni og fagþekking var mikil. Hann dvaldi ekki í smáatriðum, horfði heldur á heildarmyndina og fannst lykilatriði að öllum liði vel. Þegar veikindi hans gerðu vart við sig og kom að því að stað- gengillinn tæki við lagði hann sig fram við að aðstoða mig í starfi. Ómetanleg eru samtölin og ráð- leggingarnar og stuðningur hans til síðasta dags eitthvað sem ég gleymi aldrei. Stórt högg hefur verið hoggið í skólasamfélag Grandaskóla. Hans hugsjónir lifa áfram og munum við sem eftir stöndum gera okkar besta í að halda þeim á lofti. Við sendum Ingibjörgu, Sif, Halldóri Smára og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Minning um góðan sam- starfsfélaga og vin lifir. Fyrir hönd starfsfólks Granda- skóla. Anna Sigríður Guðnadóttir. Látinn er langt fyrir aldur fram mannvinurinn og skólamað- urinn Örn Halldórsson, skóla- stjóri í Grandaskóla í Reykjavík. Örn stýrði grunnskólanum í borg- inni sem er vestast í Vesturbæn- um hvar vorskólin fegurst skín eins og skáldið kvað. Skugga ber nú á skin vorsólarinnar vegna andláts góðs skólamanns og ljúfs félaga. Skólasamfélagið í Granda- skóla og skólafólk í Reykjavík saknar sárt skólastjórans og góðs vinar. Örn hóf starfsferil sinn við grunnskóla Reykjavíkur sem kennari við Grandaskóla og síðan aðstoðarskólastjóri og skólastjóri í afleysingum 1989-2001. Örn var síðar skólastjóri í Selásskóla í Reykjavík en Vesturbærinn tog- aði fast í hann og fór hann í „heimahagana“ og tók við stöðu skólastjóra Grandaskóla árið 2012. Örn var góður skólamaður, með þá sýn að nemendum hans liði vel og þeir næðu góðum ár- angri í náminu. Hann var farsæll leiðtogi, átti gott með að vinna með samstarfsfólki sínu, hvatti þau til góðra verka en umfram allt treysti hann fagmennsku þeirra og hæfni. Hann var vinsæll meðal nemenda sinna og vel lát- inn af foreldrum. Örn tók mikinn þátt í starfi með skólastjórum borgarinnar. Hann var öflugur liðsmaður bæði er kom að skólaþróun og umræðu um stöðu skólastjóra. Örn var tal- naglöggur, enda maður náttúru- vísindanna og sérlega vandvirkur og nákvæmur þegar kom að rekstri skólanna sem hann stýrði. Hann tók þátt í ýmsum hópum varðandi rekstur grunnskólanna og veitti skólayfirvöldum og koll- egum jafnan góð ráð í tengslum við þann málaflokk. Framkoma hans einkenndist af hógværð, já- kvæðni og trausti. Hann var alltaf til í að leggja góðum málum lið og styðja við félagana hvenær sem til hans var leitað. Hann var traustur vinur vina sinna. Í hópi samstarfsmanna sinna gat Örn verið hrókur alls fagnaðar og þá var oft stutt í hláturinn og gleði- gjafann í honum. Það voru ekki örfáar stundirnar sem hann létti mönnum lífið eftir fundi eða í lok vinnudags með því að taka upp gítarinn og skella í lag. Um leið og við þökkum Erni fyrir frábært samstarf í rúma tvo áratugi þá viljum við fyrir hönd menntayfirvalda í Reykjavík, þakka fyrir öll þau ár sem hann helgaði starfskrafta sína börnum og ungmennum í borginni. Með Erni er fallinn frá einstak- ur mannvinur, frábær skólamað- ur og einlægur talsmaður barna. Við kveðjum þig kæri vinur með orðum Bólu-Hjálmars: Far svo til æðri farsældar úr félagi voru blessaður, önd þinni héðan álengdar andi vor fylgir þakklátur. Við sendum fjölskyldu Arnar, samstarfsfólki og félögum inni- legar samúðarkveðjur. Helgi Grímsson, Ragnar Þorsteinsson. Með sorg í hjarta höfum við fylgst með baráttu Arnar vinar okkar við þann sjúkdóm sem á skömmum tíma hefur lagt hann að velli, langt um aldur fram. Og nú þegar fallinn er sá dómur sem enginn getur áfrýjað hvarflar hugurinn til fjölda ánægjulegra samverustunda, bæði á vettvangi starfa okkar en ekki síður þegar við litum upp úr amstri dagsins. Örn Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.