Morgunblaðið - 04.04.2022, Side 21

Morgunblaðið - 04.04.2022, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022 ✝ Gerður Bernd- sen fæddist í Reykjavík 23. mars 1948. Hún lést á taugalækninga- deild Landspít- alans 26. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru Áslaug Pálsdóttir og Pét- ur Berndsen. Syst- ur hennar eru Þrúður Páls- dóttir, Anika Berndsen sem er látin, Margrét Berndsen, Sólveig Berndsen og Jóhanna Sigríður Berndsen. Gerður ólst upp á Smára- götu 8a og árið 1962 flutti fjölskyldan í Skaftahlíðina þar sem hún bjó til ársins 1967. Gerður giftist Kristjóni Gerður var listræn og skapandi. Eftir hana liggja fjórar barna- og unglinga- bækur sem hún skrifaði og myndskreytti. Margt býr í sjónum, Benni og Binni – óþekkustu strákar í heimi, Rúna – trúnaðarmál og Fun- hildur. Árið 2001 myndskreytti Gerður og gaf út ljóðabókina Ljóðaperlur með ljóðum eft- ir dóttur hennar, Áslaugu Perlu, sem var myrt árið 2000. Lát hennar varð Gerði óbærilegt og hún varð aldrei aftur söm. Þrátt fyrir það leitaði hún áfram í sköpun og myndir hennar prýða veggi margra heimila. Hún hélt einnig fjölmargar mynd- listarsýningar með ýmist ak- ríl- eða vatnslitamyndum auk þess sem hún vann með leir, við og mósaík. Gerður verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, 4. apríl 2022, klukkan 15. Haraldssyni sama ár og árið 1972 eignuðust þau eldri dóttur sína, Ragnheiði Mar- gréti. Sjö árum síðar fæddist Ás- laug Perla en þá hafði fjölskyldan hafði komið sér fyrir á Ægisíðu. Gerður og Krist- jón skildu árið 1990 og þá flutti hún með dætur sínar á Hjarðarhaga. Gerður útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1978 og starfaði í kjölfarið sem grafískur hönn- uður á auglýsingastofunni Argus og fleiri auglýs- ingastofum. Síðar starfaði hún sem meðferðarfulltrúi við iðjuþjálfun á Kleppi. Elsku besta mamma mín er dáin og það kremur í mér hjartað. Hæfileikaríka og margslungna mamma mín sem fékk svo rosalega erfið verk- efni í lífinu að þau buguðu hana á endanum. Ólíkt því þegar ég missti systur mína og pabba fékk ég svolítinn tíma til að verja með henni í lokin og kveðja. Það var ofboðslega erfitt en jafnframt svo einstaklega dýrmætt að fá að halda í höndina á henni og strjúka henni um hárið síðustu daga hennar á þessu tilveru- stigi. Ég spjallaði við hana, las vel valin ljóð eftir systur mína og spilaði Queen, Edith Piaf og Neol Einsteiger. Mamma mín var svo ótal margt. Hún var hæfileikarík, eldklár, skemmtileg, fyndin, listræn og skapandi en hún var líka reið, bitur, friðlaus og sorgmædd. Dauði systur minn- ar árið 2000 var henni svo óbærilegur að hún varð aldrei söm og fórnarkostnaðurinn var gríðarlegur. Á þessum árum gat verið erfitt að vera dóttir hennar en til allrar hamingju náðum við mörgum góðum og fallegum samverustundum síð- ustu árin. Þegar ég var lítil lék mamma með mér í bíló, bjó til Barbie- hús úr pappakassa, kenndi mér að lesa þegar ég var fimm ára og fór með mér sund í hvaða veðri sem var. Sem ung stelpa leit ég upp til og dáðist að mömmu minni sem var svo glæsileg með síða ljósa hárið sitt og hendur og heila sem sköpuðu bækur, myndlist, leir- muni og mósaíkverk. Ég á yndislegar minningar frá því þegar mamma var í Myndlista- og handíðaskólanum og ég fékk undanþágu frá því að vera á myndlistanámskeiði í skól- anum þó svo að ég væri ekki orðin sex ára. Ég man enn lyktina sem getur flutt mig á einu andartaki 45 ár aftur í tímann. Ég á margar góðar minn- ingar um mömmu og með mömmu og með þær í fartesk- inu kveð ég þennan hluta sögu minnar. Af litlu fjölskyldunni á Ægisíðunni er ég ein eftir og held áfram með mitt líf og mína sögu. Ég treysti því að núverandi tilverustig mömmu umvefji hana með allri þeirri ást, um- hyggju og frið sem hún á svo innilega skilið því annars er mér að mæta. Þín elskandi dóttir, Ragnheiður. Mögnuð kona er fallin frá. Lífið fór ekki mildum höndum um Gerði og það lagði svo sannarlega meira á hana og hennar nánustu en nokkur get- ur þolað. Gerður var mikil listakona og skarpgreind. Hún var sú mamma vinkvenna minna sem ég tengdist mest og var stór hluti af lífi mínu þegar ég var að stíga mín fyrstu spor inn á fullorðinsárin. Ég var heimagangur á Hjarðarhagan- um og Kapló og alltaf velkom- in. Hún vildi alltaf spjalla og sýndi manni einlægan áhuga og umhyggju. Hún var kona sem ég leit upp til og hafði mótandi áhrif á mig. Hún var hluti af menningaruppeldi mínu og hjálpaði án efa til við að ýta feimnu stelpunni sem ég var aðeins út úr skelinni. Ég er þakklát fyrir að hafa haft Gerði í lífi mínu og vona að hún hafi nú fundið frið. Elsku Ragga og Andri Pét- ur, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Hildur. Þrautseigja Gerðar Bernd- sen í verkefninu sem hún helg- aði líf sitt síðustu tvo áratug- ina var alla tíð aðdáunarverð. Hún barðist fyrir réttlæti til að heiðra og verja minningu dótt- ur sinnar. Af illskiljanlegum lagatæknilegum ástæðum dauf- heyrðist kerfið við endurtekn- um óskum hennar og sendi hana margsinnis bónleiða til búðar. Vonandi er að skyndi- legt og ótímabært andlát Gerð- ar marki ekki þau þáttaskil að lokatakmarkið náist aldrei. Þrotlaus barátta Gerðar fyrir því að dæmt yrði fyrir allt það ofbeldi sem dóttir hennar varð fyrir áður en hún lést tók sinn toll bæði andlega og líkamlega. Þegar fundum okkar bar fyrst saman fyrir nokkrum mánuðum og Gerður bað mig um að veita henni liðsinni leyfði ég mér að gera það sem e.t.v. þykir ekki fullkomlega fagmannlegt af lög- manni: Að hrífast með frá fyrstu mínútu – bæði með mál- staðnum og móðurinni. Annað var einfaldlega ekki hægt. Væntanlega er samkomulagið sem við gerðum með okkur fyr- ir vikið nokkuð óvenjulegt. Líf Gerðar varð aldrei samt eftir þann voðaverknað sem framinn var. Saga hennar um eyðimerkurgönguna frá einu embættinu til annars er sér- staklega átakanleg þegar hún snýst í raun ekki um annað en að fá hið augljósa viðurkennt; að dóttur hennar var fyrst nauðgað og síðan myrt. Kerfið lét sér nægja að dæma fyrir seinni glæpinn. Það gat móðirin aldrei sætt sig við. Þau stuttu kynni sem ég hafði af Gerði Berndsen, og nú þetta ótímabæra andlát hennar, hafa vakið mig til umhugsunar um björgunarnet íslensks velferðar- samfélags. Fjölmargir í fjöl- skyldu Gerðar hafa átt um sárt að binda og kannski aldrei borið þess bætur að missa ástvin sinn með jafn skyndilegum og voveif- legum hætti og raun ber vitni. Hið sama á eflaust við í nær- samfélagi þess sem verknaðinn framdi. Kerfinu er í öllum aðal- atriðum sama enda þótt tjón samfélagsins sé mikið. Ég votta fjölskyldu og ástvin- um Gerðar Berndsen samúð mína. Ef kerfið fagnar frelsinu er það hlutverk okkar hinna að halda á lofti sannleikanum sem Gerði var svo annt um að koma á framfæri. Steinbergur Finnbogason. Gerður Berndsen Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HÁKON VIÐAR SÓFUSSON, Bleiksárhlíð 63, Eskifirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað á afmælisdaginn sinn 31. mars. Útförin fer fram föstudaginn 8. apríl kl. 13.00 í Eskifjarðarkirkju. Sigrún Valgeirsdóttir María Hákonard. Benedikt Jóhannss. Rúnar Hákonars. Petra Sveinsd. Sófus Hákonars. Lilja Halldórsd. Svava H. Hákonard. Hilmir Ásbjörnss. barnabörn og barnabarnabörn Kær vinur og félagi, KNÚTUR JÓHANNESSON frá Haga í Þjórsárdal, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi sunnudaginn 20. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jóhanna Haraldsdóttir Guðrún Haraldsdóttir Sigrún Guðlaugsdóttir Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, ELÍN PÁLMADÓTTIR, blaðamaður og rithöfundur, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Brúnaveg aðfaranótt 2. apríl sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sólveig Pálmadóttir Helga Pálmadóttir Helgi Samúelsson systkinabörn og fjölskyldur þeirra Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, prófessor emeritus og myndlistarmaður, Hvassaleiti 40, Reykjavík, lést á Landakotsspítala laugardaginn 26. mars. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 7. apríl. Brjánn Árni Bjarnason Steinunn Gunnlaugsdóttir Bolli Bjarnason Ellen Flosadóttir Gunnlaugur Bollason Unnur Þorgeirsdóttir Unnur Hólmfríður Brjánsd. Gauti Þormóðsson Elva Bergþóra Brjánsdóttir Dagur Hilmarsson Fannar Bollason Fjalar Bollason og barnabarnabörn Elsku afi minn. Að missa ein- hvern er aldrei ein- falt og að vita af því að þú ert ei lengur hérna hjá okkur er mér erfið tilhugs- un. Ég spyr mig; hvern get ég nú spilað ólsen ólsen við sem hefur jafn gaman af því og þú? Spilamennskan þín er eitt af því sem kemur fyrst í huga mér þegar ég hugsa um þig. Þegar þú bjóst í göngufæri við okkur fjölskylduna var það í þinni daglegu rútínu að fá þér göngu- túr og stoppa við hjá okkur. Fá þér eitt vatnsglas og taka í spil. Þótt heimsóknir þínir væru ekki vanalega í lengri kantinum þá þótti mér mjög vænt um þennan tíma sem við eyddum saman. Við brölluðum margt saman yfir ævina mína og mörgu get ég sagt frá. Sundlaugaferðirnar eru í miklu uppáhaldi, hvort sem það var ferð í Kópavogs- laugina eða Grænu laugina í Kelduhverfi. Leikhúsferðunum sem við höfðum bæði gaman af, tökum ekki Litla prinsinn með. Síðan ferðirnar á þínar heima- slóðir eða vestur á land. Síðasta ferðin vestur með þér stendur ofarlega í minningunni. Þegar faðir minn þurfti að bera þig (og mig) yfir ána. Upp á fjallið þar sem þú gekkst eins og fæt- ur toguðu, í leitinni að síma- sambandi eða þegar þú komst fram hálfsofandi og byrjaðir að tala um allt fólkið sem væri þarna með okkur. Mér var smá brugðið enda langt frá öllum Þórarinn Björnsson ✝ Þórarinn Björnsson fæddist 11. júlí 1940. Hann lést 23. mars 2022. Útför Þórarins fór fram 2. apríl 2022. bæjum. Þá rétti ég þér suðusúkkulaði og þá var fólkið farið. Það sem ég sakna húmors þíns, hvernig þú náðir að halda uppi sam- ræðum við hvern sem er og finna tengingu við ein- staklinginn sem samræðurnar voru við. Ég er ánægð að hafa haft þig sem afa minn, því betri afa getur enginn beðið um. Elsku afi Tóti, þín verður ávallt saknað. P.s. Þú munt alltaf eiga litlu tána mína á vinstri fæti. Þitt barnabarn, Bríet. Í dag kveð ég frænda minn Tóta í Austurgörðum. Fyrstu kynni okkar Tóta voru, þó ég mun vart eftir þeim, þegar ég kom í heiminn. Þá var hann ræstur um miðja nótt til að hringja í ljósmóður en í þá daga var síminn fyrir Kelduhverfið í Lindarbrekku, og sagði hann mér síðar að aldrei hvorki fyrr né síðar hefði hann verið svona snar í snúningum. Ég ólst upp á Austurgarðatorfunni þar sem Tóti var með hænsnabú og hafði því not fyrir okkur krakk- ana í hina og þessa snúninga. Tóti var einstaklega skapgóður og reiddist ekki okkur krökk- unum þó oft hefði hann átt full- an rétt á því, það kom stundum fyrir að ég og stundum líka nafni hans og nágranni úr Krossdal tækjum dagsfram- leiðsluna alla og æfðum okkur í eggjakasti og þá gjarnan á veggjum hænsnahússins eða í fjárhúsum sem stóðu þar nærri og svo sat ég oftast upp með að þrífa dammið en aldrei varð Tóti reiður en eigendur nær- liggjandi fjárhúsa voru ekki eins spakir. Tóti var mikil fé- lagsvera og stóð fyrir allskonar félagsstarfi í Kelduhverfi, t.d kom hann upp hringsjá sem sjálf frú Vigdís forseti afhjúp- aði og var svo um skeið hús- vörður í Skúlagarði og er það sennilega eitt litskrúðugasta tímabil Kelduhverfis. Hann stóð þar fyrir mörgum skemmt- unum og dansleikjum með mörgum frægum sveitum, en samstarf við hina opinberu lög- gæslu gekk ekkert sérlega vel og sat hann um stund innan rimlanna vegna þeirra. Dag- blöðin voru oft með fyrirsagnir tengdar þessum samskiptum sem svo enduðu fyrir dómi þar sem Tóti frændi stóð teinréttur eftir þó ekki væri hann hávax- inn og er sennilega einn fræg- asti Keldhverfingurinn. Ég stóð með frænda í þessum slag þó ungur væri og kom því til skila milliliðalaust við yfirvaldið þeg- ar þeir voru við hraðamælingar á torfunni hjá okkur. En annars held ég að rekstur hans á Skúlagarði hefði gengið betur fjárhagslega ef við krakkarnir hefðum ekki verið svona nærri lagernum fyrir sjoppu Skúla- garðs, þetta vissi frændi en var alveg pollrólegur yfir svona smotteríi. Seinna meir stundaði Tóti frændi ýmiskonar störf suður um höfin og land allt og oftar en ekki kom Kári heitinn í Laufási með mér þegar ég var á leið til Reykjavíkur og þá stoppuðum við hjá Tóta á Mel- stað eða annars staðar á leið- inni, en þeir frændur náðu mjög vel saman og gaman á að hlusta. Ég gæti skrifað margar sögur af Tóta en læt hér staðar numið. Takk fyrir samfylgdina, kæri vinur og frændi. Tóti, þú litaðir sannarlega lífið. Kveðja, Birkir Þór Jónasson. Fyrstu kynni okkar Tóta voru sumarið 1966 þegar Rauða skikkjan var kvikmynduð í Kelduhverfi – aðallega í og við Hljóðakletta, en þó víðar vestan og austan Jökulsár á Fjöllum. Við vorum báðir í hlutverkum, við vinnu á uppsetningu leik- myndar en einnig í nokkrum at- riðum sem menn konungs. Þetta ævintýri, ásamt enn frekari kynnum okkar er Tóti var við starfskynningu hjá Jóni bónda á Reykjum í Mosfells- sveit um hænsnarækt og upp- eldi unga, varð síðan til þess að Tóti, þá orðinn hænsnabóndi í Austurgörðum og í skólanefnd sveitarinnar, réð undirritaðan til starfa við skólann í Skúla- garði. Þessi ár, en þau urðu þrjú, voru gefandi og skemmti- leg. Oft kom maður í Austur- garð í spjall og spil við fjöl- skyldurnar sem þar bjuggu. Þessi ár varð vinátta okkar að góðum samskiptum, þó svo lengra væri á milli. Eftir að Tóti lagði niður bú- skap og tók sér annað fyrir hendur kom hann við í hverri ferð, á Hvammstanga og Varmalandi, þegar hann starf- aði við t.d. þáttagerð fyrir RÚV, seldi tryggingar og fleira. Það var gaman og gott að hafa félag í gistingu og mat. Þá var rifjað upp ýmislegt sem á daga okkar hafði drifið, sagðar frétt- ir úr Kelduhverfi – nauðsynlegt að fylgjast með – og að sjálf- sögðu af okkur sjálfum. Eftir því sem árin liðu urðu samskiptin minni en alltaf vissi maður hvar Tóti var og bjó. Mér er sérstaklega í minni þáttagerð hans við RÚV, en þeir nefndust Þjóðlíf. Hann lifði fyrir að ná upptökum af sem flestum til þess að segja frá því sem á dagana hafði drifið og helst frá fyrri hluta tuttugustu aldar. Eins og Tóti sagði sjálf- ur: „Að hljóðrita er galdur, leyndardómur við að fanga tím- ann.“ Þetta voru vandaðir og góðir þættir sem Tóti lagði allt sitt í. En þannig var Tóti, góður og notalegur vinur. Börnum, ættingjum og vin- um og sendum við Kristín Ingi- björg okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Flemming Jessen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.