Morgunblaðið - 04.04.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Hafðu í huga að á þessum tíma ævi
þinnar hentar þér best að sinna fjölskyldu
þinni og nánasta umhverfi. Aðeins þannig
geturðu haldið þér síungum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú hefur verið svolítil eyðslukló ný-
verið. Notaðu daginn til þess að meta eigin-
fjárstöðuna, hann er frábær til þess.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þolinmæðin er ekki þín sterka hlið
en nú er nauðsynlegt að þú temjir þér hana.
Sýndu vinum þínum umbeðinn trúnað.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert að ganga í gegnum undar-
legt tímabil. Láttu ekki deigan síga við að fá
fram þau úrslit mála, sem þér eru mest að
skapi.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Gefðu þér tíma til að njóta rólegrar
stundar með sjálfum þér í dag. Þú hefðir
gott af því að breyta til á einhvern hátt
hvort sem er heima fyrir eða í vinnunni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Láttu það ekki hvarfla að þér að láta
aðra um að leysa þín mál. Notaðu daginn til
þess að losa þig við þessa hamslausu hrifn-
ingu fyrir fullt og allt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft að afkasta miklu í dag og þá
ríður á að vera skipulagður í vinnubrögðum
og láta ekki aðra eyða fyrir sér tíma að
óþörfu. Láttu ekkert trufla þig.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú átt hægt um vik með að
sýna öðrum góðvild og örlæti í dag. Mundu
að verður er verkamaður launa sinna og
það á við um þig sem aðra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þér vinnst ekki tími til þess að
framkvæma allar þínar hugmyndir. Einhver
er að reyna að leyna þig einhverju og þú
færð ekki rétta mynd af stöðu mála.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er langt því frá að allt sé úti,
þótt þú þurfir að breyta um áherslur í starfi.
Aðrir gætu nú reynst þér rausnarlegir og þú
átt að grípa tækifærið.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þér finnst allir vera í andstöðu
við þig en láttu það ekki brjóta þig niður.
Það er ekki nóg að sýna áhuga í orði ef
hann er ekki á borði líka.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er mikið að gera í dag og þér
finnst eins og allir þurfi á þér að halda.
Fylgdu engum að málum fyrr en þú ert viss
um að þínum hag sé borgið.
Hann var formaður Framsóknar-
félags Grýtubakkahrepps í mörg ár
og var lengi formaður Lands-
sambands kartöflubænda sem síðar
gekk inn í Félag garðyrkjubænda.
Bergvin sat í stjórn Garðyrkju-
bænda um árabil. Bergvin var í
byrjuðu svo Anna Bára dóttir Berg-
vins og maðurinn hennar Sveinn
Sigtryggsson félagsbúskap með
Bergvin og Sigurlaugu.
Bergvin var einn af stofnendum
hestamannafélagsins Þráins og
stundaði hestamennsku sín yngri ár.
B
ergvin Jóhannsson
fæddist 4. apríl 1947 í
Bergi á Svalbarðseyri.
Hann bjó þar til 8 ára
aldurs og flutti þá með
foreldrum sínum og systkinum á ný-
býlið Áshól í Grýtubakkahreppi. Þar
hófu foreldrar hans að rækta upp
land fyrir kartöflur, kýr og sauðfé og
varð Bergvin strax áhugasamur um
búskapinn.
Bergvin gekk í barnaskóla á
Grenivík ásamt því að hjálpa til við
búskapinn. Því næst fór hann í tvo
vetur í undirbúning fyrir gagnfræð-
ing hjá séra Jóni og Jóhönnu í Lauf-
ási. Þá lá leiðin í Laugaskóla í smíð-
anám. Árið 1966 fór Bergvin í
bændaskólann á Hvanneyri í tvo vet-
ur og á þeim tíma hóf hann félags-
búskap með foreldrum sínum. Hann
útskrifaðist frá Hvanneyri sem bú-
fræðingur árið 1968 og kvæntist
sinni heittelskuðu Sigurlaugu Önnu
Eggertsdóttur 22. júní það ár.
Árið 1969 hóf Bergvin að byggja
sér íbúð sem efri hæð ofan á hús for-
eldra sinna og árið 1972 gerðist
Bergvin skólabílstjóri við Stóru-
tjarnarskóla. Aukið var við kartöflu-
rækt í búskapnum og hætt með
kúabúskap, fjósi var breytt í kart-
öflugeymslu, byggt við hlöðuna og
fjárhús stækkuð.
Bergvin hefur alltaf verið mikill
áhugamaður um skógrækt og byrjar
snemma að gróðursetja tré í órækt-
anlegt land. Skógrækt einkennir Ás-
hólslandið í dag. Fljótlega eftir að
faðir Bergvins dó hóf bróðir hans
Guðbrandur og fjölskylda hans fé-
lagsbúskap með Bergvin og móðir
hans fluttir til Akureyrar. Félags-
búskapur þeirra bræðra stóð til 1985
en þá flutti Guðbrandur á Svalbarðs-
eyri og Bergvin og fjölskylda héldu
áfram búskap á Áshóli. Árið 1986
hófst loðdýrarækt í Áshóli sem stóð í
nokkur ár.
Bergvin fór svo á sjó á Víkur-
bergið GK sem átti einungis að vera
yfir eina vertíð en sjómennskan stóð
yfir í 10 ár samhliða búskapnum.
Eftir að Bergvin hætti á sjónum og
vatt sér aftur alfarið að búskapnum
byrjaði hann einnig sem skólabíl-
stjóri í Grenivíkurskóla. Árið 1996
nokkur ár landvörður í Fjörðum og
hafði aðsetur í húsbíl við Gil í Fjörð-
um. Árið 2018 heiðraði Samband
garðyrkjubænda Bergvin fyrir
framúrskarandi störf til fjölda ára
fyrir íslenska garðyrkju. Þau hjónin
höfðu þá staðið vaktina í áratugi sem
kartöflubændur. „Þótt ég sé að
mestu hættur sem kartöflubóndi og
yngra fólkið tekið við þá er ég alltaf
kallaður kartöflubóndinn, meira að
segja þegar ég var til sjós.“
Bú þeirra hjóna hefur alltaf verið
þekkt fyrir fegurð og góða um-
gengni. „Ég er mikill náttúruunn-
andi og hef alltaf verið iðinn við að
planta trjám og reynt að rækta land
mitt vel. Ég hef haft mikinn áhuga á
að varðveita gamlar minjar og unnið
að því að gera upp traktora og önnur
landbúnaðartæki. Svo sækja barna-
börnin dálítið í mig og það er mér
mjög kærkomið að þau vilji knúsast
með afa, bæði þegar þau eru mjög
ung og svo fram eftir aldri.“
Fjölskylda
Bergvin er kvæntur Sigurlaugu
Önnu Eggertsdóttur, f. 25.6. 1949,
húsmóður í Áshóli, vann við af-
greiðslu í gamla bænum í Laufási og
Bergvin Jóhannsson kartöflubóndi – 75 ára
Stórfjölskyldan 70 ára afmæli Sigurlaugar. Á myndina vantar yngsta
barnabarnið, Mikael Má, og langafastelpuna Alexöndru Ósk.
Alltaf kallaður kartöflubóndinn
Áshóll Bergvin ólst þar upp frá 8 ára aldri og hefur búið þar síðan.
Bústörf Bergvin við kartöflu-
niðursetningu síðasta vor.
Bjarni Sævar Eyjólfsson, Friðrik Már Hjaltason, Hilmar Marinó Arnarsson, Sig-
mundur Ævar Ármannsson og Stefán Berg Jóhannsson gengu í hús og söfnuðu
peningum, ásamt því að leggja hver og einn hluta af eigin sparifé í söfnun fyrir
Úkraínu, alls 54.577 krónur. Söfnunin fór fram á Akureyri. Rauði krossinn þakkar
þeim kærlega fyrir rausnarlegt framlag til mannúðarmála.
Hlutavelta
Þorlákshöfn Dagur Blær Diego fædd-
ist 9. ágúst 2021 kl. 21.44. Hann vó
3.988 g og var 52 cm langur. Foreldrar
hans eru Tinna og Brynjar Máni.
Nýr borgari