Morgunblaðið - 04.04.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
DENGSI VISSI EKKI HVAÐAN ALLAR
HUGMYNDIRNAR KOMU – OG HANN VILDI
EKKI VITA ÞAÐ.
„SVONA… ÞÚ VERÐUR ALDREI VARÐHUNDUR
EF ÞÚ STARIR BARA Á ÞETTA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sakna þess að
hittast ekki bara á
Zoom.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG SPYR ALDREI…
HVERNIG VAR
DAGURINN HJÁ ÞER?
ÆÐI!
ÉG ÁT ROTTU Í HÁDEGISMAT
OG SKOTTIÐ FESTIST Á
MILLI TANNANNA Á MÉR…
OG SVO FANN ÉG
GRÆNA STÖFFIÐ
SEM VEX Í NIÐUR-
SUÐUDÓSUNUM Í
RUSLAGÁMINUM…
NÁTTÚRAN ER
STÓRFENGLEG!
HRÓLFUR, EIGUM VIÐ AÐ
TÍNA BER?
NAHH, ÉG ER GÓÐUR!
ÉG VARÐ
AÐ SPYRJA
á Grenilundi, sambýli fyrir aldraða á
Grenivík. Silla í Áshóli eins og hún
er alltaf kölluð söng með kirkjukór
Laufáskirkju í 50 ár. Foreldrar Sig-
urlaugar voru Eggert Ólafsson sjó-
maður og Sigríður Stefánsdóttir frá
Hvammi í Grýtubakkahreppi.
Börn Bergvins og Sigurlaugar eru
1) Sigríður Valdís Bergvinsdóttir, f.
4.12. 1970, hársnyrtimeistari, gift
Svani Stefánssyni húsasmíðameist-
ara. Þau eiga þrjá syni, Bergvin,
Svan Berg og Stefán Berg. 2) Anna
Bára Bergvinsdóttir, f. 2.5. 1972,
leik- og grunnskólakennari, bóndi,
skólabílstjóri og ferðaþjónustu-
bóndi, gift Sveini Sigtryggssyni bú-
fræðingi. Þau eiga þrjár dætur, Guð-
björgu Ósk en sambýlismaður
hennar er Arnór Reyr Rúnarsson og
eiga þau dótturina Alexöndru Ósk,
Rakel Lind og Sigurlaugu Önnu; 3)
Berglind Bergvinsdóttir, f. 18.3.
1977, leik- og grunnskólakennari,
gift Sveini Fannari Ármannssyni
viðskiptafræðingi. Eiga þau þrjár
dætur, Marín Elvu, Önnu Guðnýju
og Júlíu Margréti; 4) Ásdís Hanna
Bergvinsdóttir, f. 7.7. 1987, leik-
skólakennari, gift Hjalta Má Guð-
mundssyni bifvélavirkja. Eiga þau
þrjá syni, Friðrik Má, Birgi Má og
Mikael Má. Fyrir á Hjalti tvö börn,
Nikolai og Emilíu.
Systkini Bergvins eru Fjóla Krist-
ín, f. 22.9. 1937, d. 31.8. 1990, Reynir,
f. 18.1. 1940, Guðrún, f. 4.8. 1943,
Guðbrandur, f. 23.5. 1949, d. 20.8.
2005, og Freygarður, f. 7.8. 1955.
Foreldrar Bergvins voru Jóhann
Friðberg Bergvinsson, f. 2.1. 1913, d.
7.11. 1974, og Sigrún Sigríður Guð-
brandsdóttir, f. 1.1. 1917, d. 24.3.
2007, bændur í Áshóli.
Bergvin
Jóhannsson
Jóhann Friðberg Bergvinsson
bóndi á Hallanda og Gautsstöðum
á Svalbarðsströnd
Elín Sesselja Jónadóttir
húsmóðir, f. á Illugastöðum
í Fnjóskadal
Bergvin Jóhannsson
barnakennari, vann við síldveiðar
og síldarverksmiðju, bjó á Bergi
Sumarrós Magnúsdóttir
húsmóðir á Bergi á Svalbarðseyri
Jóhann Friðberg Bergvinsson
bóndi og bifreiðarstjóri í Áshóli
Magnús Oddsson
bóndi á Efri-Vindheimum
á Þelamörk
Sigríður Jónasdóttir
húsmóðir, fædd á Gili í Fjörðum
Sigurður Hallsson
bóndi í Hringveri í Hjaltadal
Sigríður Einarsdóttir
vinnukona víða í Hjaltadal,
frá Hrafnsstöðum
Guðbrandur Sigurðsson
búfræðingur og bóndi í Litla-Árskógi
Kristín Jóhannsdóttir
húsmóðir í Litla-Árskógi á Árskógsströnd
Jóhann Magnússon
bóndi á Hellu á Árskógsströnd
Freygerður Árnadóttir
húsmóðir, frá Hólakoti í Fljótum
Ætt Bergvins Jóhannssonar
Sigrún Sigríður Guðbrandsdóttir
húsmóðir og bóndi í Áshóli í
Grýtubakkahreppi, S-Þing.
Á fimmtudaginn sendi Ingólfur
Ómar mér póst, sagði „kominn
er vorhugur í mig og að því tilefni
langar mig að gauka þessari vísu að
þér“:
Svellin þána, sólin hlær,
seiðir þrána vorsins blær.
Fjöllin blána, grundin grær,
glitrar ránarflötur skær.
Ármann Þorgrímsson spyr á fés-
bók: „Ætli sé samband þarna á
milli?“
Hausinn tapar hárunum,
hopar lífsins gaman;
montið eykst með árunum
oft fer þetta saman.
Jón Karl Einarsson svaraði:
„Þessi er snilld. Þú kannast kannski
við þessa?“
Áður helst minn hróður jók
hárið þykkt og mikið.
En Drottinn gaf og Drottinn tók
og Drottinn fór yfir strikið.
Ingólfur Ómar Ármannsson:
Fjörið dvínar, fölnar skart
fljótt til þurrðar gengur.
Það sem áður þótti smart
þykir ekki lengur.
Dagbjartur Dagbjartsson segir á
Boðnarmiði: „Öllu fer aftur sem er
fullfarið fram.“
Af mér bæði ljóst og leynt
lekur sálarforðinn
og skrokkurinn er skelfing hreint
skjátulegur orðinn.
Stefán Jónasson yrkir „Án skýr-
ingar“:
Ábyrgð sýna öllum ber
eins fyrir smáa og stóra
hversu leitt sem lífið er
lengur vilt helst tóra.
Hörður Björgvinsson tekur „úr
neðstu skúffunni“:
Trúlega hefur hent oss flest
í hvössu orðaskaki
að setja sig á háan hest
- og hrynja svo af baki.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Sjálfstæðing“:
Hann Bjartur var baráttuglaður
og blés á allt samvinnuþvaður,
ei studdist við staf,
en standandi svaf,
hann var sannur sjálfstæðismaður.
Páll Jónasson í Hlíð leggur fyrir
„Guðfræðilega spurningu“:
Eru englarnir fuglar sem fljúga
og fylgja þeim sem að trúa
um fjarlæga geima
til fegurri heima?
spurði talsmaður kristinna kúa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorhugur og ort
án skýringar
Góð heyrn glæðir samskipti
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Pantaðu tíma í
HEYRNAR
GREININGU
Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki
fást í vefverslun heyrn.is