Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 29

Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 29
Sóðaskapur var komin á svið. Það er pönktríó úr Reykjavík; þrjár stelpur sem spila frumstæða pönktónlist með ádeilutextum. Þær skipta um hljóðfæri sín á milli og syngja til skiptis og þeim tekst að skapa mikla og góða stemmningu á sviðinu. Nýja lagið þeirra heitir „Ef þú átt prent- ara þá kýstu Sjálfstæðisflokkinn“ og inniheldur meðal annars textalín- una: „Það þarf talsvert meiri köku til að ég skipti um lið.“ Textinn í loka- laginu, Gróðurhúsaáhrifin, er svo al- veg meiri háttar. Í viðlaginu er góð vísa endurtekin og hún er sko ekki of oft kveðin: „Gróðurhúsaáhrif eru þér að kenna, gróðurhúsaáhrif eru mér að kenna. Þú ert að drepa plán- etuna, ekki gleyma að muna!“ Þetta er ekki flókið. KRÍSA var næstsíðust á svið og sannarlega eitt allra áhugaverðasta band Músiktilrauna í ár. Í miðjulag- inu gerði gæsahúðin aftur vart við sig svo um munaði þegar strákarnir fóru á flug, svo mikil var tilfinningin í tónlistinni. Hinn 15 ára Kormákur Valdimarsson er einfaldlega fram- úrskarandi gítarleikari sem verður gaman að fylgjast með í framtíðinni. Lögin þeirra þrjú runnu saman í eitt og upplifunin var eins og maður væri dottinn inn á gigg með sjóaðri hljóm- sveit sem hefur gert lítið annað en að spila svo árum skiptir en þessi sveit er samt bara nokkurra mánaða gömul. Lokahljómsveit kvöldsins var Dóra og döðlurnar sem fluttu óvenjuþroskaðar lagasmíðar miðað við það sem gengur og gerist fyrir 16 ára stúlkur. Þær buðu upp á kántr- ískotið popp og fluttu af miklu ör- yggi og settu fínan endapunkt á ald- eilis framúrskarandi og fjölbreytt úrslitakvöld. Nú var komið að æsispennandi bið eftir úrslitum og dómnefnd hefur að öllum líkindum haft verk að vinna, því svo mörg góð tónlistaratriði voru á dagskrá í ár. Þegar upp var staðið var Bí Bí og Joð kosin hljómsveit fólksins. Í þriðja sæti varð skógláps- sveitin Sameheads og annað sætið vermdi rapparinn Gunni Karls. Það var svo KUSK sem sigraði Músiktil- raunir í ár og er hún vel að þeim sigri komin. Hún hreppti einnig raf- heilaverðlaun Músiktilrauna og fékk viðurkenningu fyrir íslenska texta- gerð. Músiktilraunir hafa enn og aftur töfrað mig upp úr skónum og ég val- hoppa út í vorrigninguna, sannfærð- ari en nokkru sinni fyrr um að tón- list er flóknasti galdurinn. Til hamingju, elsku unga tónlistarfólk, sem með æfingum og eljusemi sýnir okkur öllum að hugurinn ber mann hálfa leið og allt er hægt ef einbeit- ingin og sköpunargleðin fær að njóta sín. Sjáumst að ári. Kabarett Bí Bí og Joð var kjörin Hljómsveit fólksins. Svanhildur Guðný Hjördísardóttir hlaut líka verðlaun sem söngkona Músiktilrauna 2022. Efnilegur KRÍSA var eitt allra áhugaverðasta band Músiktil- rauna í ár með Kormák Valdimarsson gítarleikara fremstan. Algleymi Ókindarhjarta leikur einhvers konar ljóðrænt indí með sakleysislegri nálgun en dularfyllri undirtón. Sviðsvanar Dóra og döðlurnar buðu upp á óvenjuþroskaðar lagasmíðar og á kántrískotið popp sem þær fluttu af öryggi . Frumflutningur Hjá Helgu Rún Guðmundsdóttur, HáRún, héldust gítarplokk og skemmtileg sönglína í hendur. Pólitískar Sóðaskapur flutti frumstæða pönktónlist með beitt- um ádeilutextum og tókst að skapa mikla og góða stemmningu. Gleði Dusilmenni skiluðu gargandi rokki og gleði. Sveitin er þétt og vel smurð og mjög flottur og pönkaður tónn í söngnum. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.