Morgunblaðið - 13.04.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.04.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali, leigumiðlari og viðskiptafræðingur BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is VILTU SELJA? Allar tegundir eigna Hafðu samband og fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingi á fasteigna- og fjármálamarkaði. Frí ráðgjöf og söluverðmat – PANTAÐU VIÐTAL Traust og persónuleg þjónusta. Hagstæð söluþóknun. FRÍTT SÖLUVERÐMAT. 766 6633 Lilja Hrun Ava Lúðvíksdóttir Sólrún Ragnarsdóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir Jóhann Ólafsson Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, telur ákvörðun stjórnar fé- lagsins um að samþykkja tillögu sem lýtur að því að segja upp öllu starfs- fólki félagsins ekki vera slæmt for- dæmi fyrir vinnumarkaðinn. Greint var frá því á mánudag að ákvörðun þess efnis hefði verið samþykkt, en Sólveig sagði í samtali við mbl.is á þriðjudag að uppsagnirnar væru í samræmi við kosningaloforð Bar- áttulistans, sem Sólveig leiddi til sig- urs í síðustu kosningum innan stétt- arfélagsins. Sólveig telur sig ekki hafa misst stuðning félagsfólks Eflingar og ef eitthvað er sé verið að efla þjónustu við það. Þá hafi ekki verið brotið á réttindum starfsfólks við uppsagnar- ferlið. Telur félagsfólk styðja breytingar Spurð hvort hún teldi ákvörðunina rýra trú félagsfólks á Eflingu, sagði Sólveig: „Alls ekki. Að sjálfsögðu ekki. Af hverju í ósköpunum ætti hún að gera það? Félagsmenn í Eflingu kusu Baráttulistann. Við hlutum umboð félagsfólks í Eflingu í lýðræðislegum kosningum til þess auðvitað að halda áfram að leiða okkar árangursríku og markvissu stéttabaráttu sem fólk sannarlega kann að meta. Og félags- fólk vill auðvitað að öll þjónusta fé- lagsins sé til fyrirmyndar fyrir það og ég tel að félagsfólk Eflingar muni að sjálfsögðu styðja allar skipulags- breytingar sem snúast um nauðsyn- lega umbótavinnu á skrifstofum fé- lagsins.“ Taka gildi 1. maí Uppsagnirnar eiga að taka gildi um næstu mánaðamót og verða öll störfin auglýst. Þá er gerð krafa um að starfsmenn vinni uppsagnarfrest- inn. Starfsfólk Eflingar fundaði í gær- morgun um ákvörðunina án Sólveig- ar en samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins var fundurinn afar tilfinningaþrunginn. Óvíst er hve margir hafa hug á því að sækja um aftur hjá stéttarfélag- inu þegar störfin verða auglýst að nýju, en það hugnast ekki mörgum eins og staðan er í dag, að sögn Ragnheiðar Valgarðsdóttur, starfs- manns á skrifstofu Eflingar og fyrr- verandi trúnaðarmanns. „Það hefði enginn getað ímyndað sér þessa at- burðarás,“ segir hún í samtali við mbl.is í gær. Þá kallaði Ragnheiður eftir því að félagsfólk Eflingar tæki ábyrgð á atburða- rásinni: „Við verðum að halda opnu og veita þjónustu, en félagsmenn skulda okkur. Félagsmenn sem eru því sam- þykkir að hún sé að beita þessu of- beldi. Við köllum eftir því að fé- lagsmenn taki ábyrgð á þeirri stöðu sem komin er upp í félaginu. Sólveig verður þá bara að tryggja að það verði full þjónusta til félagsmanna.“ Fordæmir ákvörðunina Drífa Snædal, forseti ASÍ, for- dæmdi ákvörðun stjórnar Eflingar í gær og sagðist vona að hægt yrði að snúa ákvörðuninni við áður en hún raungerist. „Ég held að ég sé bara í ákveðnu áfalli eins og allir aðrir. Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa það að verkalýðshreyfing myndi fara í það sem mér sýnist tilefnislausar hóp- uppsagnir. Þetta er slæmt gagnvart starfsfólkinu, afkomu og atvinnuör- yggi, þetta er slæmt gagnvart fé- lagsmönnum í Eflingu vegna þess að þetta þýðir skerta þjónustu og þetta er slæmt fyrir verkalýðsbar- áttuna,“ sagði Drífa í samtali við mbl.is. Hópuppsögn hafi verið lofað fyrir kosningar - Forseti ASÍ fordæmir uppsagnir allra starfsmanna Eflingar Morgunblaðið/Eggert ASÍ Drífa Snædal, forseti ASÍ, í húsnæði verkalýðsfélaganna í gær. Íþróttahreyf- ingin fær 500 milljóna króna fjárframlag frá stjórnvöldum sem mótvægis- aðgerð gegn tekjutapi af völd- um kórónu- veirufaraldurs- ins. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar sl. föstudag. Útfærsla úthlutunar og fram- kvæmdar verður unnin í samstarfi við Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands. ÍSÍ verður falið að óska eftir umsóknum um stuðning vegna fjár- hagslegra afleiðinga kórónuveir- unnar á einingar íþróttahreyfing- arinnar. Sérsambönd, héraðs- sambönd og íþróttabandalög, íþróttafélög með aðild að ÍSÍ og UMFÍ og deildir innan íþrótta- félaga geta sótt um stuðning. Hálfur milljarður í íþróttahreyfinguna Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landsvirkjun vinnur að undirbúningi og þróun tveggja rafeldsneytisverk- efna vegna orkuskipta í samgöngum. Annars vegar framleiðslu vetnis til notkunar á stór ökutæki og hins veg- ar framleiðslu metanóls á flutn- ingaskip. Vetnisstöð við Ljósafossstöð er í samþykktu aðalskipulagi Grímsness- og Grafnings- hrepps og deili- skipulag er í vinnslu. Ríkarður Rík- arðsson, fram- kvæmdastjóri við- skiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun, sagði að fyrsta skref fyrirhugaðs vetnisverkefnis gæti t.d. framleitt eldsneyti til að knýja 35 vöruflutningabíla og 3-6 rút- ur eða strætisvagna. Miðað er við að setja upp tvær vetnisverksmiðjur til að byrja með, aðra mögulega við Ljósafoss og hina nálægt öðrum enda fjölfarinnar leiðar flutningabíla. Staðsetningin verður væntanlega ákveðin í samráði við samstarfsaðila í þungaflutningum og aðra hagaðila. Umfang rafgreiningar á hvorum stað gæti verið um 2 MW til að byrja með og fjárfesting þá um tveir milljarðar. Gert verður ráð fyrir möguleikum til stækkunar. Á ársfundi Landsvirkjunar 24. mars sl. kom fram að undirbúnings- tími vetnisverkefnisins gæti verið 12- 18 mánuðir þannig að því gæti lokið á næsta ári. Ríkarður sagði að eftir það yrði tilkynnt um mögulega fjárfest- ingaákvörðun í framkvæmdum og rekstri. Landsvirkjun og þýska fjárfest- ingafélagið PCC SE ætla að rann- saka möguleika á að fanga koldíoxíð (CO2) í útblæstri frá kísilmálmverk- smiðju PCC á Bakka við Húsavík. Einnig verður skoðuð framleiðsla á vetni með rafgreiningu. Vetnið og koldíoxíðið má nota til að framleiða grænt metanól með endurnýjanlegri raforku. Rafeldsneytið mætti t.d. nota til að knýja tvö stór flutn- ingaskip. Mögulegt umfang fjárfest- ingar yrði um eða yfir níu milljarðar króna og aflþörfin a.m.k. 20 MW. Hugað verður að möguleikum og þörf á stærðarhagkvæmni bæði í upphafi og þróun hennar með tímanum. „Með verkefni af þessu tagi væri hægt að fara í orkuskipti á tveimur flutningaskipum,“ sagði Ríkarður. Hann segir að takist vel til sé hægt að víkka út umfang slíkrar framleiðslu rafeldsneytis fyrir stærri flota og jafnvel fiskveiðiskip með tímanum. Undirbúningstími þessa verkefnis er einnig 12-18 mánuðir. Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhaldið. Með þessari aðferð eru slegnar tvær flugur í einu höggi. Fangað verður koldíoxíð í útblæstri verk- smiðjunnar, sem jafnvel getur verið kolefnishlutlaust ef lífræn viðarkol verða notuð eins og stefnt er að. Í stað þess að knýja flutningaskipin með olíu með tilheyrandi útblæstri verður notað umhverfisvænt met- anól. Verði ákveðið að halda áfram með framkvæmd þessara verkefna gæti tekið tiltölulega skamman tíma að hrinda vetnisframleiðslu af stað. Það er ef hagkvæmir rafgreinar og af réttri stærð fást afgreiddir sem og samgöngutækin sem nýta vetnið. Mikil eftirspurn er eftir slíkum tækj- um um þessar mundir og framboð að byggjast upp, að sögn Ríkarðs. Við Ljósafoss yrði væntanlega vatn úr Þingvallavatni og Soginu rafgreint. Miðað við upphaflega stærð verk- smiðjunnar gæti vatnsþörfin verið innan við hálfur lítri á sekúndu. Í framtíðinni gæti vetnis- og raf- eldsneytisframleiðsla nýst til að jafna orkunotkun í raforkukerfinu, bætt nýtingu þess og geymt umfram- raforku í formi rafeldsneytis. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavík Landsvirkjun og PCC kanna framleiðslu rafeldsneytis. Eldsneyti fyrir skip og vörubíla - Landsvirkjun skoðar rafeldsneyti Ríkarður Ríkarðsson Sólveig lagði fram tillögu til lagabreytingar þar sem embætti gjaldkera og ritara yrði lagt niður hjá félaginu á aðalfundi þess um helgina. Í tillögunum er gert ráð fyrir að fjárreiður félagsins verði fluttar yfir á stjórn þess en að ábyrgð ritara í stjórninni myndi alfarið heyra undir formanninn. Þannig yrði formaður sá eini sem mætti undirrita gerðabækur félagsins. Í rökstuðningi fyrir tillögunum segir að áralöng hefð sé fyrir að starfsmaður sinni fundarritun á stjórnar- fundum og sömuleiðis sé áralöng hefð fyrir að fram- kvæmd á störfum gjaldkera sé falin stjórn. Allar tillögur til lagabreytinga voru dregnar til baka að lokum. Vildi leggja niður tvö embætti LAGÐI TIL AÐ HLUTVERK RITARA FÆRÐIST UNDIR FORMANN Sólveig Anna Jónsdóttir Ragnheiður Valgarðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.