Morgunblaðið - 13.04.2022, Síða 17

Morgunblaðið - 13.04.2022, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 ✝ Eyjólfur Steinn Ágústsson fæddist á heimili foreldra sinna í Há- teigi við Eyjafjarð- arbraut 31. ágúst 1951. Hann lést eft- ir erfið veikindi á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 3. apríl 2022. Foreldrar hans voru Helga Jó- hanna Ágústsdóttir, f. 15. maí 1912 í Bakkagerði í Desjarmýr- arsókn, d. 28. nóvember 1996, og Ágúst Georg Steinsson, f. 5. desember 1912 á Fremri- Fitjum, d. 21. desember 1998. Eyjólfur var yngstur í fimm bræðra hópi. Elstur er Baldur, f. 13. febrúar 1933, d. 1. maí 2019, Vilhelm, f. 30. október 1937, Birgir, f. 10. október 1939, og Skúli f. 23. febrúar 1943. Þann 4. febrúar 1984 giftist Eyjólfur eftirlifandi eiginkonu Eyjólfur hóf starfsferil sinn 17 ára gamall, árið 1968, hjá Prent- smiðju Odds Björnssonar og tók þar sveinspróf í prentiðn. Hann lauk námi í októberlok árið 1974. Eyjólfur starfaði við prent- iðn þar til hann færði sig um set til bræðra sinna sem höfðu stofn- að Höld árið 1974. Þar tók Eyj- ólfur árið 1979 að sér sölu nýrra bíla og sem bílasali á bílasölu Hölds starfaði hann óslitið til ársins 2019. Eyjólfur var bílaáhugamaður og átti marga fallega bíla í gegnum tíðina. Eyjólfur var mikill íþrótta- maður á yngri árum og spilaði knattspyrnu með KA og ÍBA. Hann varð bikarmeistari með ÍBA árið 1969 og spilaði meðal annars gestaleik á móti Man- chester United þar sem hann skoraði eina mark KA í 1-7 tapi. Þegar takkaskórnir voru lagðir á hilluna tók golfið og veiði- mennskan við og átti hug hans allan. Eyjólfur gekk í Frímúr- araregluna árið 1982 og var mjög virkur í starfi hennar fyrstu árin. Útför Eyjólfs fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 13. apríl 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. sinni, Sigríði Sig- urþórsdóttur, f. 17. mars 1955. Sigríður er dóttir hjónanna Hallveigar Ólafs- dóttur, f. 19. júlí 1929, d. 15. júní 2019, og Sigurþórs Sigurðssonar, f. 18. desember 1926, d. 21. september 2009. Sonur Sigríðar og Eyjólfs er Sig- urður Skúli Eyjólfsson, f. 30. ágúst 1983, sambýliskona hans er Hulda Frímannsdóttir, f. 1983. Börn Skúla og Huldu eru Manúela, f. 2008, Birnir, f. 2011, og Rúrik, f. 2020. Eyjólfur bjó alla tíð á Akur- eyri, fyrsta árið í Háteigi en árið 1952 flutti fjölskyldan í Rán- argötu 10. Eyjólfur og Sigríður stofnuðu heimili að Reykjasíðu 3 og bjuggu þar í rúma fjóra ára- tugi en árið 2020 fluttu þau í Geirþrúðarhaga 2. Við vissum í hvað stefndi. Gerðum okkur vel grein fyrir að bróðir okkar þyrfti að lokum að lúta í lægra haldi fyrir þeim óvægna sjúkdómi sem krabba- meinið er. Baráttan var snörp en háð af æðruleysi og dreng- lyndi, að hætti Eyfa. Þegar kall- ið kemur er það alltaf jafn sárt og þungbært. Eyfi átti svo mikið eftir, að lokinni farsælli starfs- ævi. En að því er ekki spurt, það er gömul saga og ný að við stórum spurningum fást ekki svör æðri máttarvalda. Eyfi var yngstur okkar fimm bræðra og var skírður í höfuðið á Eyjólfi föðurbróður og Steini föðurafa okkar. Hann fæddist í Háteigi í innbænum en var á öðru ári þegar við fluttum með foreldrum okkar í Ránargötu 10. Uppvaxtar- og þroskaárin voru því á Eyrinni. Stutt var á mold- arvöllinn austan Akureyrarvall- ar, þar sem sparkað var í bolta frá morgni til kvölds. Teningn- um var kastað og fátt komst annað að en fótboltinn. Snemma komu í ljós hæfileikar Eyfa í boltanum, mikill leikskilningur og dugnaður. Hann spilaði ófáa leikina með KA á ferlinum og einnig var hann í ÍBA-liðinu, m.a. þegar bikarinn vannst árið 1969. Ann- ar ekki síður eftirminnilegur leikur sem Eyfi tók þátt í var á Akureyrarvelli 5. ágúst 1982 þegar KA tók á móti stórveldinu Manchester United. Eyfi fór fyrir sínum mönnum sem fyr- irliði en Ray Wilkins leiddi sína menn til leiks. KA fékk að vísu sjö mörk á sig en skoraði eitt gegn Rauðu djöflunum, það gerði Eyfi úr vítaspyrnu undir lok leiksins. Þessi leikur var honum að vonum eftirminnilegur enda heimsfrægir leikmenn í hverri stöðu í liði United. Þegar ferlinum í KA og ÍBA sleppti var þó ekki nema hálf sagan sögð. Þá tók við alvöru knattspyrna í hinu goðsagna- kennda liði Early Sunrise, sem heldur betur markaði sín spor í knattspyrnusögu norðan heiða. Til þess að halda góðu líkamlegu atgervi yfir vetrarmánuðina voru stífar skallaboltaæfingar. Síðar heillaðist Eyfi af golfinu og átti margar ánægjustundir á golfvöllum hér á landi og erlend- is. Hann var náttúrubarn og naut þess einnig að stunda lax- veiðar í góðra vina hópi í Skjálf- andafljóti og Blöndu. Eyfi lærði prentverk í POB og starfaði í því fagi í nokkur ár. Fljótlega eftir að við eldri bræð- urnir hófum rekstur Hölds leit- uðum við til Eyfa um að taka að sér sölu nýrra bíla. Sala nýrra og notaðra bíla var síðan hans starfsvettvangur allt þar til hann lét af störfum hjá Höldi árið 2019. Eyfi leysti sín störf af mikilli trúmennsku og var ómet- anlegur hlekkur í okkar fyrir- tæki, sem við fáum seint full- þakkað. Sárt er að kveðja en góðu minningarnar ylja. Að leiðarlok- um þökkum við Eyfa bróður fyr- ir allt sem hann var okkur öll- um. Siggu mágkonu, Skúla syni þeirra og fjölskyldu og öllum öðrum ástvinum vottum við inni- lega samúð okkar. Vilhelm, Birgir og Skúli. Í dag kveðjum við elsku, besta, fallega og góða mág okk- ar og svila Eyjólf Stein Ágústs- son (Eyfa). Nú er langri þrautagöngu þinni lokið og þú kominn í sum- arlandið þar sem allt góða fólkið okkar tekur á móti þér. Það er mikill tómleiki í hjarta okkar og minningarnar hrannast upp. Það er efni í heila bók allar þær minningar sem hlaðast nú upp í kollinum á okkur enda spanna þær yfir 40 ár. Allt frá kynnum ykkar Siggu, þegar hún lét mig keyra fyrir utan Þrótt- aravöllinn í Reykjavík svo hún gæti bent mér á þennan sæta í KA-treyjunni á vellinum, og til kveðjudags. Allar ferðir okkar norður um páska á skíði, þar sem við nut- um höfðinglegra veisluhalda öll kvöld og tala nú ekki um Sjalla- ferðirnar. Samveran í hjólhýsinu ykkar og svo sumarbústaðnum. Ekki má gleyma ferðunum á Fiski- daginn mikla á Dalvík, þar var alltaf gaman. Svo tóku við ferðir ykkar til okkar í Húsafell, sumarhöllina eins og þú kallaðir bústaðinn okkar. Þar hlóðstu batteríin. Maríuerlan þín mætti alltaf á pallinn og þú muldir fyrir hana ritzkex sem hún gerði alltaf góð skil og mýsnar fengu afganginn. Húsafell átti alltaf stóran sess í hjarta þínu og ekki síður Borg- arfjörðurinn þar sem Steinn afi þinn á sinn legstað í Reykholti. Síðasta eina og hálfa árið er búið að vera eitt stórt verkefni hjá þér og hefur Sigga þín stað- ið eins og klettur þér við hlið, staðið vaktina 24/7. Það er gott að hafa getið stutt við bakið á ykkur þennan erfiða tíma og munum við halda utan um Siggu þína, Skúla og fjöl- skyldu. Ljós þitt mun lifa með okkur elsku brókarlallinn okkar. Elsku Sigga, Skúli og fjöl- skylda, aðrir aðstandendur og vinir, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Minningin lifir. Kveðja Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin, sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljóss lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós, tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd. Og slökk þú hjartans harmabál, slít sundur dauðans bönd. (Bubbi Morthens) Sólveig (Solla), Eggert (Eddi) og fjölskylda. Eyjólfur Steinn Ágústsson, eða Eyfi eins og hann var alltaf kallaður, er eitt mesta gæðablóð sem ég hef kynnst og aldrei sá ég hann skipta skapi, nema kannski ef Liverpool var að tapa, þá gat hann orðið verulega illur svo ekki sé meira sagt. Eyfi spilaði knattspyrnu með ÍBA og KA um árabil og ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá sem 17 ára kjúklingur að spila með Eyfa, Elmari Geirs, Donna, Steina Þórarins, Halla Haralds o.fl. Þessir strákar höfðu verið kjarninn í ÍBA og síðar KA og spilað saman í mörg ár og átt margar skemmtilegar stundir saman. Þarna naut hann sín svo sannarlega. Eyfi lék oftast vinstra megin á miðjunni og var einstaklega teknískur leikmaður og frábær á boltann, en gat varla brotið á öðrum leikmanni svo góðhjartaður var hann. Einn eftirminnilegasti leikur Eyfa var klárlega árið 1982 þeg- ar við KA-menn mættum Man- chester United á Akureyrarvelli. Þar var Eyfi fyrirliði og skoraði eina mark okkar í reyndar 1-7 tapi gegn firnasterku liði rauðu djöflanna og í þeim leik var Eyfi reyndar lengstum eins og vinstri bakvörður sakir mikils sóknar- þunga andstæðinganna. Það sama má segja af Eyfa hvað vinnuna varðaði. Eyfi tók við starfi bílasala hjá bræðrum sínum hjá Höldi árið 1979 og var sölustjóri þar um langt árabil. Þar fór hann fram með slíkri lipurð og þjónustulund að aðdá- unarvert var. Vandamál voru ekki til staðar, bara lausnir. Óskir viðskiptavina ætíð hafðar í hávegum og tekið á móti öllum með brosi á vör. Þannig var Eyfi langoftast, brosmildur, jákvæður og þjón- ustulundaður fram í fingurgóma. Starfsferillinn hjá Höldi varði í hvorki meira né minna en 40 ár en Eyfi lét af störfum árið 2019 þegar erfið veikindi voru farin að banka upp á alltof snemma. Við samstarfsfólk Eyfa hjá Höldi þökkum honum fyrir sam- ferðina og sendum Siggu, Skúla syni hans, Huldu og börnum þeirra sem og bræðrum hans og öðrum ættingjum og vinum inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Eyfa. F.h. Hölds, Steingrímur Birgisson. Eyjólfur Steinn Ágústsson ✝ Guðrún Jens- dóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 13. sept- ember 1936. Hún lést 1. apríl 2022 á dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Jens Ólafsson vöru- bifreiðastjóri og Kristný Valdadóttir húsmóðir. Þau eignuðust einn son og fjór- ar dætur. Guðrún eignaðist fimm börn: Með Antoni Óskarssyni eign- aðist hún Guðnýju Lindu, gift Bjarna Valtýssyni og eiga þau fjögur börn, ellefu barnabörn og tvö langömmubörn. Með Þorsteini Kr. Þorsteins- syni eignaðist hún Jens Kristin, giftur Hrafnhildi Hafnfjörð Þór- isdóttur og eiga þau tvö börn og fimm barnabörn. Guðrún giftist Þorbirni Ás- geirssyni og eignuðust þau sam- an þrjú börn: Sigríði Katrínu, látin, eignaðist hún fjögur börn og tíu barnabörn; Ásgeir, giftur Guðrúnu Maronsdóttur. Ásgeir á tvö börn og fjögur barnabörn úr fyrra hjónabandi; Hugin Svan, látinn. Guðrún sleit barnsskónum í Vest- mannaeyjum en fluttist ung til meg- inlandsins. Guðrún og Þor- björn bjuggu á ýms- um stöðum, þar á meðal Dalsmynni á Kjalarnesi, Vill- ingaholtshreppi, Vestmannaeyjum, Svíþjóð, Ak- ureyri og síðast Keflavík. Guðrún vann ýmis störf, með- al annars við fiskvinnslu, á barnaheimilum og í ræstingum. Síðustu árin var hún við þjón- ustustörf hjá hernum á Kefla- víkurvelli. Á efri árum flutti hún á dval- arheimilið Hlévang í Keflavík en árið 2019 flutti hún á dval- arheimilið Hraunbúðir í Vest- mannaeyjum, þar sem hún eyddi síðustu æviárunum. Útförin fer fram frá Landa- kirkju, Vestmannaeyjum, í dag 13. apríl 2022, klukkan 14. Athöfninni verður streymt á www.landakirkja.is. Hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Kveðja frá börnum og fjölskyldum, Jens Kristinn Þorsteinsson. Guðrún Jensdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR húsasmíðameistara. Við sendum einnig okkar hlýjustu þakkir til starfsfólks Skjólgarðs fyrir einstaka umönnun og viðmót síðastliðin ár. Svava Kr. Guðmundsdóttir Ásta H. Guðmundsdóttir Jón Guðmundsson Eiríkur Guðmundsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR KRISTINS ÞÓRMUNDSSONAR vélfræðings, Brekkubyggð 8, Garðabæ. Katla Kristinsdóttir Kristinn Jón Guðmundsson Arnar Þór Guðmundsson Jórunn Viðar Valgarðsdóttir Guðm. Njáll Guðmundsson Steinunn Björk Halldórsdóttir Kolbrún Ýr Guðmundsdóttir Árni Jónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, TRAUSTI ADAMSSON, Jaðarsíðu 9, Akureyri, lést miðvikudaginn 6. apríl. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 29. apríl klukkan 13. Monika Margrét Stefánsdóttir og fjölskylda Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, HILMAR TRAUSTI HARÐARSON, Akureyri, varð bráðkvaddur á heimili sínu miðvikudaginn 6. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 20. apríl klukkan 13. Thelma Björk, Andri Dan, Hörður Martin og Eydís María Hörður Óskarsson Valborg Þorvaldsdóttir systkini, fjölskyldur og aðrir ástvinir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN GUNNAR EGGERTSSON, lést á Landspítalanum laugardaginn 9. apríl. Útför verður auglýst síðar. Ágústa Birna Árnadóttir Lovísa Sigrún Svavarsdóttir Anton Antonsson Bjarni Svavarsson Herdís Wöhler Sigurlaug Þorsteinsdóttir Arnar Hannesson Árni Þorsteinsson Ragna Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, DORIS J. TÓMASSON, Miðleiti 3, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 5. apríl, verður jarðsungin frá Grensáskirkju miðvikudaginn 20. apríl klukkan 13. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Edda Gunnarsdóttir Bárður Hafsteinsson Karl Gunnarsson Ása Helga Proppé Ragnarsd. Rúna Gunnarsdóttir Ása Gunnarsdóttir Anders Oppheim barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.