Morgunblaðið - 13.04.2022, Side 6

Morgunblaðið - 13.04.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 Dagskrá: Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins Önnur mál Við bjóðum sjóðfélaga velkomna á fundinn. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 28. apríl kl. 17:00 Gildi-lífeyrissjóður Ársfundur 2022 ▪ ▪ ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is „Gistipláss í bænum er uppurið og all- ir sem ég þekki eru með húsfylli hjá sér. Ég held að það verði fullt af fólki hér,“ segir Anna Sigríður Ólafsdóttir, stjórnandi Skíðavikunnar á Ísafirði, sem sett verður í dag. Setningin verður klukkan 17 og fyrsti viðburðurinn er svo hin vinsæla sprettganga Aurora Arktika í Hafn- arstræti. Hver viðburðurinn rekur annan næstu daga og samhliða fer fram hin vinsæla tónlistarhátíð Aldrei fór ég suður. „Þetta verður fullkomin Skíðavika. Það er autt í bænum en hellingur af snjó á skíðasvæðunum og spáin fyrir helgina er fín,“ segir Anna. Skíðavikunni hefur verið aflýst síð- ustu tvö ár vegna samkomutakmark- ana. „Við vitnum til Skíðavikunnar í fyrra þegar aflýst var með litlum fyr- irvara. Nú má búast við að íbúafjöldi á svæðinu tvöfaldist. Það eru komnir á sjöunda tug viðburða á dagskrána og enn að bætast við,“ segir Anna. hdm@mbl.is Fullkomin Skíða- vika sett síðdegis Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Sprettganga Upphaf Skíðaviku. - Gisting upp- bókuð - Tónlist og fjöldi viðburða Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta eru fáránlegar reglur og al- gjört klúður að þeir sem áttu að líta yfir frumvarpið skyldu láta þetta fara í gegn hjá sér,“ segir Davíð Pétursson, bóndi og fv. hreppstjóri á Grund í Skorradal, sem hefur ver- ið í kjörstjórn frá árinu 1961 og ann- ast allar kosningar í sveitarfélaginu frá þeim tíma, utan fimm þingkosn- inga þegar hann var sjálfur á fram- boðslista. Með klúðri vísar hann til þess að Samband íslenskra sveitar- félaga hafi ekki gert athugasemdir við nýjar hæfisreglur fyrir kjör- stjórnir. Davíð var um árabil í hrepps- nefnd og oddviti Skorradalshrepps og var jafnframt í kjörstjórn við all- ar sveitarstjórnarkosningar. Segir hann að ekki hafi reynt á hæfisskil- yrði því umboð hreppsnefnda hafi fallið niður daginn fyrir kosningar og þess vegna hafi hreppsnefnd- armenn getað setið í kjörstjórn. Davíð var jafnframt hreppstjóri og annaðist utankjörfundaratkvæða- greiðslu á heimili sínu á Grund, sem jafnframt var lengi vel kjörstaður sveitarinnar. Fleiri hreppstjórar hafa lengi starfað að kosningum. Þannig sá Bjarni Magnússon hreppstjóri um allar kosningar í Grímsey frá árinu 1969 en hann lést á síðasta ári. Allir íbúar væru vanhæfir Allir eru í kjöri þar sem óhlut- bundnar kosningar eru nema þeir sem verið hafa í hreppsnefnd og til- kynnt hafa að þeir gefi ekki kost á sér. Engin undantekning er gerð um að hæfisskilyrðin gildi ekki þar sem óhlutbundnar kosningar eru viðhafðar. Ef lögin eru tekin bókstaflega væru allir hreppsbúar vanhæfir til setu í kjörstjórn. Því væri ekki hægt að framkvæma kosninguna, að minnsta kosti ekki með heimafólki. Raunar telur lands- kjörstjórn að túlka beri lögin þannig að hæfisskilyrðin gildi ekki við þess- ar aðstæður með þeim augljósu rök- um að annars væri ekki hægt að við- hafa óhlutbundnar kosningar. Pétur Davíðsson, bóndi á Grund og hreppsnefndarmaður, hefur ósk- að eftir því að fá þessa túlkun lands- kjörstjórnar skriflega, á bréfsefni og með stimpli stofnunarinnar. Tel- ur hann öruggast að breyta lög- unum strax til að girða fyrir vafa um hæfi kjörstjórnar. Hann nefnir að þar sem deilur eru og mjótt á mun- um milli fylkinga geti sá sem tapar kært kosninguna á þeim grundvelli að kjörstjórnarmaður eða -menn uppfylli ekki hæfisskilyrði laganna. Málið gæti endað fyrir dómstólum og þvælst þar í langan tíma. „Þetta eru fá- ránlegar reglur“ - Davíð hefur setið í kjörstjórn í rúm 60 ár og annast ótalmargar kosningar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bjargsig Grímseyingar mega varla vera að því að sjá um kosningar. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ferðahugur er í fólki fyrir páskana og margir verða á ferð og flugi til og frá landinu. Þær upplýsingar feng- ust hjá Isavia að um páskana í fyrra hafi komur og brottfarir farþega- flugvéla í millilandaflugi verið innan við 100 um páskana en stefni í að verða 600-700 nú. Páskatímabilið telst vera frá laugardegi fyrir pálma- sunnudag og til annars dags páska að báðum dögum meðtöldum. Ólíkar ferðatakmarkanir Ferðatakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins hefur víða verið aflétt eða dregið mjög úr þeim. Mismunandi reglur gilda í ein- stökum löndum og getur skipt máli hvaðan farþegi er að koma hvaða skilyrði hann þarf að uppfylla til að vera hleypt inn í landið. Icelandair hefur útbúið upplýs- ingasíðu á heimasíðu sinni (iceland- air.is) um hvaða kröfur eru gerðar á hverjum áfangastað. Stuðst er við opinberar upplýsingar frá hverjum áfangastað. Síðan er uppfærð mjög reglulega. Ferðamenn geta nýtt sér hana, hvort sem þeir ætla að fljúga til áfangastaða Icelandair eða ekki. Hægt er að færa inn upplýsingar um stöðu bólusetninga gegn Covid-19, hvaðan er ferðast og hvert og hvar vegabréf viðkomandi var gefið út. Svo er hægt að sækja lista yfir gögn sem þarf að hafa handbær. Samkvæmt upplýsingum frá Ice- landair eru kröfur mismunandi eftir áfangastöðum og bólusetningar- stöðu. Fáir áfangastaðir í Evrópu krefja bólusetta um neikvætt Co- vid-19-próf en t.d. Spánn, Frakk- land, Þýskaland, Ítalía og Austurríki krefja óbólusetta um próf. Óbólusettir farþegar komast hvorki til Bandaríkjanna né Kanada. Bólusettir þurfa að framvísa þar ný- legu og neikvæðu Covid-19-prófi. Yf- irleitt þarf að fylla út eyðublað með upplýsingum um viðkomandi far- þega og hafa bólusetningarvottorð. Flugfélagið Play (flyplay.com) veitir einnig upplýsingar um hvaða skilyrði eru sett á hverjum áfanga- stað vegna kórónuveirufaraldursins. Þær er t.d. hægt að nálgast í gegnum gagnvirka svarþjónustu (Playfin) og eru upplýsingarnar uppfærðar jafn- óðum og breytingar verða. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Flugstöðin Mun fleiri ferðast um páskana nú en í fyrra. Mikið hefur verið dregið úr ferðatakmörkunum í Evrópu. Sexfalt fleiri flug um Keflavík um páskana - Ferðatakmarkanir enn í gildi en mismunandi eftir löndum Páskahald verður með eðlilegri hætti nú en undanfarin tvö ár. „Þessir páskar eru öðruvísi en flestir aðrir. Fólk hópast ekki saman til að renna sér á skíðum eða hitta ættingja og vini,“ sagði Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, í páskapredikun 2020 sem var flutt fyrir tómum kirkjubekkjum en útvarpað. Segja má að öllu hafi verið skellt í lás viku fyrir skírdag í fyrra. Almennt máttu aðeins tíu koma saman, tveggja metra nándarreglan gilti og grímu- skylda. Í verslunum máttu vera fimm á hverja tíu fermetra, að hámarki 50 manns. Öllum skól- um var lokað viku fyrir skírdag, svo nokkuð sé nefnt. Litlar tak- markanir PÁSKAR 2022 „Það er aðallega tíminn sem vefst fyrir okkur. Kosningarnar eru á eggja- tímanum og enginn hefur tíma til að annast þetta,“ segir Anna María Sig- valdadóttir, formaður kjörstjórnar í Grímsey. Hún segir að einn fulltrúi í kjörstjórninni hafi fallist á það að taka sæti neðarlega á lista við bæjar- stjórnarkosningarnar á Akureyri og ekki áttað sig á því að með því yrði hún vanhæf til setu í kjörstjórninni. „Við erum að reyna að finna einhvern sem ekki fer á bjarg og er ekki bundinn af því,“ segir Anna María. Bjargsig er hefð í hennar fjölskyldu og vonast hún til þess að hægt verði að ljúka kosningunni snemma á kjördag, þannig að allir sem hugs- uðu sér að kjósa væru búnir. Þá væri hægt að senda atkvæðakassa tím- anlega í land og þeir sem vildu gætu farið að tína svartfuglsegg. Allir vilja út á bjarg að tína egg GRÍMSEYINGAR Í VANDA Á KOSNINGADEGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.