Morgunblaðið - 13.04.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.04.2022, Blaðsíða 14
14 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 ✝ Kristín Gunn- arsóttir fædd- ist í Reykjavík 18. desember 1948. Hún lést á Land- spítalanum 2. apríl 2022. Foreldrar henn- ar voru Jónína Guðrún Egils- dóttir Thor- arensen snyrti- fræðingur og húsmóðir, f. 15. mars 1928, d. 26. mars 1997, og m.h. Gunnar Pálsson síldarplanseigandi og síðar skrifstofustjóri, f. 29. mars 1924, d. 12. nóvember 1998. Foreldrar Jónínu voru Kristín Daníelsdóttir húsmóðir og m.h. Egill Gr. Thorarensen, kaupfélagsstjóri á Selfossi, „Sigtúnajarlinn“. Foreldrar Gunnars voru Ráðhildur Ingv- arsdóttur húsmóðir og m.h. Páll Friðvin Friðfinnsson frá Hrafnsstöðum í Svarfaðardal, síldarplanseigandi á Dalvík. Systur Kristínar eru Hrafnhild- ur, fyrrverandi læknaritari og listakona, f. 23. júlí 1947, og Ragnheiður hjúkrunarfræð- Seinni maður hennar er Cornel- is Wilhelmus Van der Aa (Wim) forstjóri, f. 16. mars 1941. Dæt- ur hans af fyrra hjónabandi eru Caroline, f. 16. febrúar 1965, og Belinda, f. 14. júni 1970. Kristín ólst upp á Dalvík í sveitasælu og Dalvíkurljóma til unglinsára þegar fjölskyldan fluttist aftur til Reykjavíkur. Hún gekk í barnaskóla Dalvík- ur, heimavistarskólann á Núpi og síðar Verslunarskóla Ís- lands. Hún starfaði á Borgar- spítalanum sem læknaritari og upplýsingafulltrúi sem og á Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins. Síðar rak hún ásamt fyrri eiginmanni sínum bóka- búðina Grímu í Garðabæ þar til þau hjónin hófu innflutning og ráku flísaverslun í Reykjavík. Með seinni eiginmanni sín- um, Wim, bjó Kristín í Hollandi um 15 ára skeið þar sem hún starfaði hjá Samskipum. Þau hjónin fluttu til Íslands árið 2009 og settust að í Hafnarfirði en fluttust svo um árabil til Sel- foss, nálægt æskustöðvum móð- ur Kristínar, þar til þau fluttu í Garðabæ árið 2020. Síðustu æviár Kristínar ein- kenndust af langvarandi lungna- og hjartaveikindum sem hún barðist hetjulega við. Útför Kristínar fer fram í Garðakirkju í dag, 13. apríl 2022, klukkan 15. ingur, f. 29. mars 1958. Kristín giftist 5. október 1968 Erni Ármanni Sigurðs- syni forstjóra og verslunareiganda, f. 12. nóvember 1948. Foreldrar Arnar voru Guðrún Lilja Halldórsdóttir fimleikakona, íþróttakennari og húsmóðir og m.h. Sigurður Ár- mann Magnússon frá Ketu á Skaga, stórkaupmaður í Reykjavík og síðast á Seltjarn- arnesi. Börn Kristínar og Arn- ar: 1) Jónína Guðrún viðskipta- fræðingur í Tel Aviv í Ísrael, f. 16. febrúar 1968, gift Jakob Ohayon umboðssala. Börn þeirra eru Daníel, f. 14. júlí 1996, og Keren Lilja, f. 3. júní 2000. 2) Kristín Arna Arn- ardóttir, f. 5. desember 1978, d. 19. ágúst 2007. 3) Benedikt Ár- mann, f. 14. maí 1980. Synir hans eru Theódór Fannar, f. 30. júní 1998, og Viktor Máni, f. 5. mars 2013. Kristín og Örn skildu 1993. Mamma var einstök kona sem gleymist seint. Það er sagt að við mannfólkið munum betur hvern- ig fólk lét okkur líða heldur en hvað það sagði við okkur og hafði mamma einstakt lag á að láta börnum, fullorðnum og dýrum líða vel í sinni návist. Hún var hlý og góð, áhugasöm og fróð, en líka glettin og bráðskemmtileg. Mamma og pabbi áttu mig ung. Við urðum fljótt bestu vinkonur og hefur sú djúpa vinátta hlýjað okkur alla tíð heimshornanna á milli. Mamma var hrifnæm sveita- og Dalvíkurstelpa inni við beinið sem elskaði æskustöðvarnar og Svarfaðardalinn fagra. Þaðan sagði hún mér litríkar og skemmtilegar sögur úr sinni barnæsku sem innihéldu matar- og sjávarlykt, veðurfar, klæðnað fólksins og margt fleira sem gaf sögunum ævintýraljóma og líf. Ef kom fyrir að ég gréti þegar ég var lítil, þá var nóg fyrir mömmu að segja „veistu hvað …?“ og þá flýtti ég mér að þurrka tárin til að líta á hana stóreygð og hlusta, því þá var alltaf von á skemmtilegri sögu um börn og dýr. Mamma var létt í lund og hafði jákvæða orku sem smitaði út frá sér. Hún lýsti upp heimilið og gaman var heima þegar gestir og fjölskylda komu í heimsókn, sér- staklega þegar frændsystkin mín gistu hjá okkur í skólafríum. Mamma var einstaklega góð í að kalla það besta fram í fólki og láta því líða vel og finna sitt virði. Þá var sama hvort um var að ræða vini, starfsfélaga, hjúkrunarfólk eða kaupmanninn á horninu, mamma var ætíð vel liðin og í uppáhaldi. Þeir auðguðust sem kynntust mömmu, hún var hjálpsöm, gest- risin og gjafmild á hlýju, bros og hrós sem og á sinn litla auð sem hún vildi ætíð deila með öðrum hvort sem það var með fjölskyldu og vinum eða betlurum í útlönd- um. Hún var kát og vinaleg, elsk- aði söng og íslenskar sumarnæt- ur í tjaldi, ensku sveitirnar grænu, hollensku þorpsmark- aðina og sumarkvöld með sjó- sundi hjá okkur í Ísrael. Alltaf var glatt á hjalla þegar mamma heimsótti okkur og þótti fjöl- skyldunni gaman að og mjög vænt um mömmu. Hún kom ávallt full tilhlökkunar, hlaðin gjöfum og alls kyns íslensku góð- gæti til að dekra við okkur. Mamma elskaði okkur börnin sín endalaust og óbilandi ást hennar, traust og trú voru ætíð sá styrkur sem gaf mér byr undir mína vængi. Þótt lífið væri ekki alltaf auðvelt var mamma ein- staklega geðgóð og valdi ætíð gleði og bjartsýni. Hún var í dag- legu sambandi við Guð og engl- ana sína og gleymdi aldrei að biðja bænirnar og vera þakklát fyrir allt það góða sem hún átti, þetta gerði hana að einni trúuð- ustu manneskju sem ég hef kynnst. Síðustu æviár mömmu ein- kenndust af miklum veikindum og tíðum spítalainnlögnum. Alltaf stóð hún sig þó sem höfuð fjöl- skyldunnar okkar litlu, hélt jól og hátíðir án þess að gefa nokkuð eftir eða láta bilbug á sér finna. Wim, maðurinn hennar, var hennar hægri hönd síðustu árin. Margir hefðu látið deigan síga en mamma var mikil baráttukona og hetja og hún barðist fyrir líf- inu með öllum sínum krafti, fann lífsgleði í litlu hlutunum og yfir- gaf okkur fjölskylduna sína ekki fyrr en í fulla hnefana. Takk fyrir það elsku mamma, takk fyrir þig. Jónína Guðrún Arnardóttir. Ég kynntist Kristínu þegar ég kom fyrst til Íslands í janúar 1991. Ég varð strax mjög hrifinn af henni. Ég var að koma í heim- sókn til kærustu minnar Jónínu Arnardóttur, í dag eiginkonu minnar og móður barnanna okk- ar, Daníels og Kerenar Lilju. Kristín tók á móti mér með opnu hjarta og mikilli gestrisni; hún var með stórt hjarta sem var fullt af gæsku og gleði. Fjölskyldan bjó þá á Álftanesi á fallegu heim- ili umkringt hrauni og mátti sjá hlýjan blæ Kristínar í hverju horni hússins. Við áttum frábær- ar stundir saman þá og alltaf þar eftir þegar Kristín kom í kær- komnar heimsóknir til okkar til Ísrael. Fjölskylda mín þar varð strax ástfangin af henni. Kristín var einstaklega gjaf- mild, elskaði lífið og hafði góðan húmor, hún elskaði að syngja, spila á píanó, ferðast og skemmta sér. Hún hafði frábært minni, var fróð og skemmtileg sögukona og alltaf var gaman að spjalla við hana tímunum saman. Hún mundi vel æsku sína á Dalvík og nutum við frásagna hennar í gegnum tíðina. Kristín var vin- gjarnleg við alla sem hún kynnt- ist og var elskuð af flestum þeim sem urðu á hennar vegi. Hún bjó í Hollandi með Wim, eiginmanni sínum, í 15 ár og nutum við sum- arfríanna þar með börnunum okkar þar sem við söfnuðum ótal góðum minningum sem við mun- um ávallt varðveita. Ég dáðist alltaf að sambandinu sem Kristín átti við dóttur sína Nínu, eiginkonu mína. Alltaf gat hún veitt henni huggun, styrk, aðstoð og góð ráð í gegnum öll ár- in, jafnvel þegar heilsan var farin að bregðast henni. Þótt ég skildi ekki mikið þá naut ég þess ávallt að heyra spjall þeirra á íslensku í þeirra daglegu símtölum þegar Kristin og Nína töluðu oft saman tímunum saman. Ég mun mikið sakna þessarar daglegu hefðar. Það veitti mér ætíð huggun að vita að þótt við byggjum langt í burtu þá gátum við samt fundið fyrir nálægð við Kristínu í gegn- um þessi símtöl og heyrt um hana og fjölskylduna sem hluta af okk- ar daglega lífi. Kristín unni börnum sínum og barnabörnum mjög, það sást í öllu sem hún sagði og gerði í gegnum árin. Það er svo erfitt að tala um Kristínu í þátíð; hún var okkar stoð og stytta í svo mörg ár. Fráfall hennar er okkur öllum mikill missir. Við munum öll sakna hennar sárt og minning hennar mun lifa í hjörtum okkar að eilífu. Jakob Ohayon. Kristín Gunnarsdóttir - Fleiri minningargreinar um Kristínu Gunn- arsdóttiur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ásta Ólafs- dóttir fæddist 8. janúar 1939 í Syðstu-Mörk í Vest- ur-Eyjafjallahr. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Lundi á Hellu 30. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru Halla Guð- jónsdóttir frá Hamragörðum í Vestur-Eyjafjalla- hreppi, f. 7. ágúst 1892, d. 7. apr- íl 1970, og Ólafur Ólafsson frá Eyvindarholti í sömu sveit, f. 24. maí 1891, d. 13. júlí 1973. Ásta var yngst í hópi átta systkina, þau voru Sigríður, f. 26. sept- ember 1921, Guðjón, f. 23. sept- ember 1922, Ólafur, f. 5. maí 1924, Sigurveig, f. 14. júní 1925, Sigurjón, f. 3. júlí 1927, Jóhanna, f. 2. ágúst 1928, og Árni, f. 12. júlí 1931. Þau eru öll látin nema Ólafur sem lifir systkini sín. Ásta giftist Eiríki Magnússyni 24. júlí 1963, bónda á Skúfslæk í Flóa, f. 22. desember 1931, d. 1. nóvember 1982. Foreldrar hans voru Magnús Eiríksson, f. 6. júlí 1894, d. 2. október 1992, og Guð- ríður Ingibjörg Gísladóttir, f. 31. desember 1899, d. 9. júní 1973, bændur á Skúfslæk. Ásta og Ei- Austurkoti í Hraungerð- ishreppi, f. 4. júní 1939. For- eldrar hans voru Anna Ólafs- dóttir, f. 21. maí 1909, d. 8. júlí 2002, og Einar Sigurðsson, f. 2. júní 1897, d. 20. mars 1980. Ásta og Sigurður eignuðust ekki börn saman en ólu upp frá 9 ára aldri Einar Karl Héðinsson, f. 19. des- ember 1985, eiginkona hans er Auður Andrea Ingibjargardótt- ir. Ásta ólst upp í Syðstu-Mörk og gekk í farskóla í sveitinni, einn vetur í Skógaskóla og fór loks á Húsmæðraskólann á Stað- arfelli. Hún vann í fiski og við ráðskonustörf áður en hún gerð- ist bóndi á Skúfslæk árið 1962. Þar bjó hún og starfaði til ársins 2000 er þau Sigurður fluttu í Miðengi 15 á Selfossi. Eftir kom- una á Selfoss vann hún fyrir Fé- lagsþjónustu Árborgar allt til ársins 2016. Ásta var félagsmálakona og var m.a. meðhjálpari í Vill- ingaholtskirkju, í sóknarnefnd- inni, formaður og gjaldkeri Kvenfélags Villingaholtshrepps og í ýmsum nefndum í hesta- mannafél. Sleipni. Þá var hún ein af stofnendum og formaður Félags vistforeldra í sveitum og sat á vegum þess á Búnaðar- þingi í nokkur ár. Útför Ástu fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 13. apríl 2022, klukkan 13. ríkur eignuðust fjögur börn: 1) Magnús Eiríksson, f. 3. september 1964, kvæntur Önnu Magdalenu Lindén, f. 29. maí 1970. Börn þeirra eru: Eiríkur, f. 19. ágúst 1992, Elvira, f. 17. mars 1997, unnusti hennar er Fredrik Johansson, Elsa, f. 21. júní 2006, og Emanuel, f. 28. sept- ember 2011. 2) Árni Eiríksson, f. 8. september 1966, kvæntur Sól- veigu Þórðardóttur, f. 2. júlí 1967. Börn þeirra eru: Eiríkur, f. 21. maí 2002, og Laufey, f. 7. júní 2006. Sólveig átti fyrir börnin: Erling Snæ Loftsson, f. 29. janúar 1991, hann er kvænt- ur Hlín Magnúsdóttur, eiga þau þrjú börn, og Ásrúnu Höllu Loftsdóttur, f. 4. maí 1996, unn- usti hennar er Magnús Þór Ing- ólfsson og eiga þau einn son. 3) Ólafur Eiríksson, f. 3. september 1968. 4) Halla Eiríksdóttir, f. 10. ágúst 1977, gift Erling Val Frið- rikssyni, f. 18. desember 1980, dóttir þeirra er Valdís Ásta, f. 7. júlí 2014. Þann 31. desember 1986 gift- ist Ásta Sigurði Einarssyni frá Í dag fylgi ég kjarnakonunni móður minni síðasta spölinn. Margs er að minnast frá langri ævi og mamma lifði svo sannar- lega tímana tvenna. Hennar fyrstu minningar eru frá stríðs- árunum og stórgosinu í Heklu 1947. Í kjölfar gossins kom fyrsti Willys-jeppinn í Syðstu-Mörk og fór mamma ung að keyra hann. Eftirminnilegt þótti henni þegar hún tók bílprófið, þá keyrði hún auðvitað einsömul frá Syðstu- Mörk og yfir gömlu Markar- fljótsbrúna að hitta prófdómar- ann til að taka prófið, sem hún stóðst auðvitað með glans enda þaulvanur bílstjóri. Sennilega gengi þetta fyrirkomulag nú ekki upp í dag. Mögulega skóp Willys- inn bílaáhugann sem blundaði í mömmu alla tíð. Hún var löngum vakin og sofin yfir smáauglýsing- um blaðanna til að fylgjast með ýmsum auglýsingum. Eftir að tölvuöld brast á þá voru vefsíður eins og bilasolur.is og bland.is teknar við af smáauglýsingunum og keypti hún bæði bíla, hest og hjólhýsi í gegnum slíkar netaug- lýsingar komin á áttræðisaldur. Þegar ég fer almennilega að muna eftir mömmu þá er hún á besta aldri og stendur fyrir búi heima á Skúfslæk, fyrst ein með okkur krökkunum og síðar með Sigga. Á sumrin var heimilið lík- ara félagsmiðstöð en venjulegu heimili, enda gjarnan 10-15 manns í heimili. Og þá var mamma í essinu sínu í eldhúsinu að elda og baka ofan í allan þenn- an skara og fór létt með. Enda fannst henni varla taka því að setja í pottana þegar færri voru í heimili. Gestagangur var líka töluverður og oft glatt á hjalla. Þó eldhús- og húsverk hafi verið tímafrek hjá húsfreyjunni þá gekk hún í öll störf sem þurfti á bænum, t.a.m. kom það oft í hennar hlut að raka saman og tók hún síðast þátt í heyskap á „Nall- anum“ sumarið 2019. Mamma gaf sig töluvert að félagsmálum og má segja að þau hafi verið hluti af hennar áhuga- málum. Félagsmálin gátu verið tímafrek og fyrir tíma gsm-sím- anna var grái síminn í Litla her- berginu æði oft upptekinn og einnig mátti ég stundum dúsa inni að „passa símann“ ef mamma var í útiverkunum og átti von á símtali. Af öðrum áhugamálum má nefna lestur en mamma var alltaf með bók á náttborðinu, hins vegar er það mér til efs að hún hafi nokkurn tímann setið nógu lengi kyrr til að horfa á heila bíó- mynd, hugsanlega þó ef hún var með eitthvað á prjónunum. Dýr, og þá aðallega hestar, voru í miklu uppáhaldi hjá henni og átti hún alla tíð ágætis reiðhesta og fór í margar hestaferðir ásamt því að ríða mikið út á veturna eft- ir að þau Siggi fluttu á Selfoss. Naut ég þess að fara með í flestar hestaferðirnar og á ég margar ógleymanlegar minningar tengd- ar þeim og reyndar líka ferðalög- um á bíl, t.a.m. nánast árlegar ferðir í Þórsmörk og inn á afrétt og margar ferðir auðvitað í bú- staðinn í Syðstu-Mörk. Mamma naut sín í ömmuhlut- verkinu eftir að barnabörnin komu í heiminn og naut Valdís Ásta mín góðs af því og var mikið hjá ömmu sinni og afa þar til heilsubrestur fór að gera vart við sig hjá mömmu fyrir nokkrum árum. En núna er hún mamma laus úr fjötrum hans og komin í sumarlandið. Takk fyrir allt, mamma. Halla. Að fá hvíldina getur verið lausn og tel ég að svo hafi verið í mömmu tilfelli. Hún var fyrir það að drífa verkin af og það gerði hún á lokasprettinum. Mamma var af þeirri kynslóð að lífið var vinna, að kvarta yfir álagi eða eymslum var ekki í boði. Hún ólst upp í Syðstu-Mörk, yngst 8 systkina og tók snemma þátt í öll- um verkum. Á unglingsaldri fer hún að vinna sem ráðskona hjá rafveitunum sem ég tel að hafi ásamt vertíðarvinnu verkakonu mótað hana til lífstíðar. Hún stóð alltaf á sínu og lét ekki vaða yfir sig. Hún tók upp hanskann fyrir þann sem hún taldi á hallað, bar fyrir brjósti réttindi kvenna, tók virkan þátt í félagsmálum og sat í stjórnum ýmissa félaga, var einn stofnenda Félags vistforeldra og formaður þess og fulltrúi á Bún- aðarþingi um árabil. Að loknu skyldunámi fór mamma í Hús- mæðraskólann á Staðarfelli, fyrir utan þekkingu sem hún aflaði sér þar eignaðist hún vinkonur til lífstíðar sem hún minntist oft seinni árin. Foreldrar mínir tóku saman og komu inn í búskap með afa og ömmu upp úr 1960. Mamma þá rúmlega tvítug tekur við húsmóðurhlutverkinu þar sem amma var heilsulítil. For- eldrar mínir voru samhent hjón í öllum sínum verkum en búið var ekki stórt, fjölskyldan fór stækk- andi og leituðu þau leiða til að bæta afkomu sína en liður í því var að taka börn í vist. Þessu fóst- ureðli sleppti mamma ekki fyrr en síðasta barnið fór frá henni 77 ára gamalli árið 2016. Auk þess- ara barna var á sumrin bærinn fullur af fólki skyldu og óskyldu auk þess sem ekki var tiltökumál að hýsa þá sem í hlað komu og vantaði gistingu. Þrátt fyrir mikl- ar annir heima við og þátttöku í félagsmálum var reynt að gefa sér stundir til að líta upp, fara á hestbak í ferðalög og rækta tengsl við ættingja og vini víða um land. Metnaður foreldra minna var að við systkinin fengj- um tækifæri til þess náms sem við óskuðum. Mamma missti pabba eftir rúmlega 20 ára sam- vistir, sem var mikið högg fyrir hana með sinn barnahóp og bú að reka. En mamma var ákveðin í að slá ekki af í neinu og naut við það stuðnings og góðvildar margra, bæði skyldmanna og annarra, lét úrtöluraddir ekki á sig fá og barðist áfram með sinn hóp. Eftir nokkurra ára einveru varð henni til láns að hún reið til fjalls með þeim árangri að heilla fjallkóng- inn sem fljótlega fór að venja komur sínar að Skúfslæk og end- aði með því að setjast í búið með henni árið 1986 og bjuggu þau þar til ársins 2000 þegar þau fluttu á Selfoss. Þá hófst nýr kafli í lífi þeirra sem þau nýttu vel og áttu margar ánægjulegar stund- ir, ferðuðust bæði innan lands og utan. Sinntu hestamennsku og ræktuðu sambönd við ættingja og vini en erfitt reyndist henni að sleppa hendinni af því að hafa eitthvað fyrir stafni og vann hún fram yfir sjötugt í hlutastörfum fyrir félagsþjónustu sveitarfé- lagsins auk þess að vera með fósturbörn fram á síðustu ár. Um leið og ég votta Sigga mína dýpstu samúð þakka ég mömmu fyrir að hafa gert mig að þeim manni sem ég er og ávallt staðið með mér og mínum. Megi guð geyma þig. Þinn sonur. Árni. Er ég sest niður til að minnast Ástu þá stendur upp úr kraftur- inn og dugnaðurinn í henni. Ég kynntist henni fyrir 22 árum er við Árni sonur hennar felldum hugi saman. Þá voru Ásta og Siggi nýhætt búskap á Skúfslæk og flutt á Selfoss. Hún var ein- staklega drífandi og dugleg, og fann kröftum sínum farveg í vinnu fyrir félagsþjónustuna í Árborg, með heimsóknum inn á heimili og með komu barna og unglinga inn á heimili þeirra Sigga sem þurftu þess með, sem og að taka börn í fóstur, mörg börnin hafa komið til hennar til lengri eða skemmri tíma og mætt þar góðu atlæti og góðum skiln- ingi. Hún var mjög orkumikil og ekki sat hún oft lengi í einu, alltaf fann hún sér eitthvað til að sýsla með, var dugleg að fara í göngu- ferðir og halda sér við og síðustu árin kom Sigrún vinkona hennar við alla morgna og tók hana með sér í gönguferðir, það er þakk- arvert. Hún naut þess mjög að fara á útreiðar og í hestaferðir og eign- uðust þau þar góða vini sem og í hesthúsinu. Heyskapurinn á Skúfslæk síðustu árin hefur alltaf verið skemmtilegur, þá komu Ásta og Siggi með hjólhýsið hing- að niður úr til að geta hvílst á milli verka og eldað pulsur í mannskapinn, en fjölskyldan kom öll að heyskapnum með ein- um eða öðrum hætti. Ásta var mikil kvenréttinda- kona, barðist fyrir réttindum Ásta Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.