Morgunblaðið - 13.04.2022, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022
Undankeppni HM kvenna
C-riðill:
Tékkland – Ísland..................................... 0:1
Staðan:
Ísland 6 5 0 1 19:2 15
Holland 6 4 2 0 27:3 14
Tékkland 5 1 2 2 11:8 5
Hvíta-Rússland 4 1 1 2 5:9 4
Kýpur 7 0 1 6 2:42 1
Leikir sem eftir eru:
Óvíst: Holland – Hvíta-Rússland
28.6. Tékkland – Hvíta-Rússland
1.9. Kýpur – Tékkland
2.9. Ísland – Hvíta-Rússland
6.9. Hvíta-Rússland – Tékkland
6.9. Holland – Ísland
A-riðill:
Finnland – Georgía .................................. 6:0
Svíþjóð – Írland ........................................ 1:1
_ Svíþjóð 19, Finnland 10, Írland 8, Sló-
vakía 5, Georgía 0.
B-riðill:
Skotland – Spánn...................................... 0:2
_ Spánn 18, Skotland 10, Ungverjaland 9,
Úkraína 4, Færeyjar 0.
D-riðill:
Norður-Írland – England........................ 0:5
Austurríki – Lettland............................... 8:0
Lúxemborg – Norður-Makedónía .......... 2:1
_ England 24, Austurríki 19, Norður-Ír-
land 13, Lúxemborg 9, Norður-Makedónía
3, Lettland 0.
E-riðill:
Svartfjallaland – Bosnía .......................... 0:2
Danmörk – Aserbaídsjan......................... 2:0
_ Danmörk 24, Bosnía 10, Svartfjallaland
9, Malta 4, Aserbaídsjan 3. Rússland er
með 15 stig en var vísað úr keppni.
F-riðill:
Armenía – Albanía.................................... 0:4
Noregur – Pólland.................................... 2:1
Kósóvó – Belgía ........................................ 1:6
_ Noregur 22, Belgía 19, Pólland 14, Alb-
anía 10, Kósóvó 4, Armenía 0.
G-riðill:
Sviss – Ítalía.............................................. 0:1
Króatía – Rúmenía ................................... 0:1
Litháen – Moldóva ................................... 4:0
_ Ítalía 21, Sviss 19, Rúmenía 13, Króatía
7, Litháen 4, Moldóva 0.
H-riðill:
Serbía – Þýskaland................................... 3:2
Ísrael – Tyrkland...................................... 1:0
Portúgal – Búlgaría.................................. 3:0
_ Þýskaland 21, Serbía 18, Portúgal 16,
Tyrkland 10, Ísrael 3, Búlgaría 0.
I-riðill:
Kasakstan – Wales ................................... 0:3
Grikkland – Eistland................................ 3:0
Frakkland – Slóvenía............................... 1:0
_ Frakkland 24, Wales 16, Slóvenía 14,
Grikkland 13, Kasakstan 0, Eistland 0.
_ Svíþjóð, Spánn og Frakkland hafa tryggt
sér sæti á HM 2023. Evrópa á ellefu örugg
sæti í keppninni, níu sigurvegarar riðla
fara þangað og tvö lið úr umspili, en eitt lið í
viðbót á möguleika á komast á HM í gegn-
um umspilsleiki á milli heimsálfa.
Vináttulandsleikir kvenna
Holland – Suður-Afríka ........................... 5:1
Ástralía – Nýja-Sjáland........................... 3:1
EM U19 kvenna
Milliriðill A-deildar á Englandi:
Wales – Ísland .......................................... 1:0
Phoebie Poole 68.
England – Belgía...................................... 3:0
_ Lokastaðan: England 9 stig, Belgía 4,
Wales 4, Ísland 0.
Meistaradeild karla
8-liða úrslit:
Real Madrid – Chelsea.................... (frl.) 2:3
_ Real Madrid áfram, 5:4 samanlagt, og
mætir Manch. City eða Atlético Madrid.
Bayern München – Villarreal.................. 1:1
_ Villarreal áfram, 2:1 samanlagt, og mæt-
ir Liverpool eða Benfica.
Svíþjóð
B-deild:
Örebro – Jönköping ................................ 3:1
- Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn
með Örebro.
Mexíkó
Santos Laguna – Club América ............. 0:3
- Andrea Rán Hauksdóttir var varamaður
hjá América og kom ekki við sögu.
4.$--3795.$
Subway-deild karla
8-liða úrslit, þriðji leikur:
Njarðvík – KR ...................................... 91:63
_ Njarðvík vann einvígið 3:0.
Þór Þ. – Grindavík .............................. 102:79
_ Staðan er 2:1 fyrir Þór.
Spánn
Real Betis – Valencia .......................... 75:68
- Martin Hermannsson skoraði 2 stig, átti
7 stoðsendingar og tók 2 fráköst fyrir Val-
encia á 23 mínútum. Valencia er í þriðja
sæti þegar liðið á sex leiki eftir.
Þýskaland
Braunschweig – Crailsheim............... 84:87
- Jón Axel Guðmundsson skoraði 4 stig á 6
mínútum með Crailsheim sem er í níunda
sæti deildarinnar.
4"5'*2)0-#
BESTA DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Eins og fram kom í blaðinu í gær spá
sérfræðingar okkar því að Leiknir,
Fram og Keflavík verði í þremur
neðstu sætum bestu deildar karla í
fótbolta í ár.
Spáin gerir hinsvegar ráð fyrir því
að fleiri lið geti dregist niður í fallbar-
áttuna því ÍA og ÍBV, sem enduðu í
áttunda og níunda sæti í spánni, voru
aðeins örfáum stigum fyrir ofan
Leikni og Fram. Ef þessir spádómar
ganga eftir gæti því hæglega orðið
um harðan fimm liða fallslag að ræða
í deildinni á komandi tímabili.
KA er hinsvegar langt fyrir ofan
neðstu fimm liðin, og þótt Akureyr-
arliðinu sé spáð sjöunda sætinu virð-
ist mun líklegra að það verði í barátt-
unni um að komast í sex liða
úrslitakeppnina á lokaspretti tíma-
bilsins en að KA dragist niður í ein-
hverja fallhættu.
Litlar breytingar hjá KA
En hvers vegna er KA spáð sjö-
unda sæti í ár, í kjölfarið á næstbesta
árangri félagsins í sögunni? KA hafn-
aði í fjórða sæti í fyrra og missti
naumlega af Evrópusæti. Arnar
Grétarsson er með mjög svipaðan
leikmannahóp en það er væntanlega
helsta ástæðan fyrir því að liðið er
ekki sett ofar. Hin sex liðin hafa öll
styrkt sig meira á milli ára og þar
liggur munurinn á KA og þeim á
þessari stundu.
Af fastamönnum síðasta árs er að-
eins Mikkel Qvist, Daninn hávaxni,
horfinn á braut en hann fór til Breiða-
bliks. Dusan Brkovic missir reyndar
af þremur fyrstu leikjunum vegna
leikbanns. Bryan van den Bogaert er
nýr bakvörður frá Belgíu og miðvörð-
urinn Oleksiy Bykov kemur í láni frá
Mariupol í Úkraínu.
Meiðsli hafa eitthvað truflað KA að
undanförnu en liðið á að vera komið
með það gott jafnvægi og þokkalega
breidd að það geri mun meira tilkall
til þess að enda í efri hluta deild-
arinnar en í þeim neðri.
Mikið breytt Skagalið
Skagamenn héldu sér í deildinni á
ótrúlegan hátt síðasta haust en fóru
jafnframt í bikarúrslitin. Endasprett-
ur liðsins 2021 ætti að gefa því gott
sjálfstraust og kraft inn í byrjun
mótsins 2022.
Óvænt þjálfaraskipti urðu í vetur
þegar Jóhannes Karl Guðjónsson
hætti til að gerast aðstoðarþjálfari
karlalandsliðsins og Jón Þór Hauks-
son kom í staðinn. Eins er liðið tals-
vert breytt á milli ára. Kaj Leo i Bar-
talsstovu, Christian Köhler og
Johannes Vall komu allir frá Val og
Kaj Leo hefur burði til að vera leið-
togi liðsins og hættulegasti sóknar-
maður þess í ár. Þá er KR-ingurinn
reyndi Aron Bjarki Jósepsson kom-
inn í vörnina.
Ísak Snær Þorvaldsson, Óttar
Bjarni Guðmundsson, Sindri Snær
Magnússon, Aron Kristófer Lárus-
son, Hákon Ingi Jónsson og Elias
Tamburini fóru allir. Hvort Skaga-
menn séu orðnir nægilega sterkir til
að koma sér af hættusvæði deild-
arinnar verður erfitt að meta fyrr en
eftir fyrstu leikina í vor.
ÍBV þarf mörk frá Andra
Eyjamenn eru aftur á meðal þeirra
bestu eftir tveggja ára fjarveru og
þeirra aðalmarkmið er án efa að lifa
af fyrsta árið og festa sig í sessi á ný.
Þeir eru með nánast allan þann
mannskap sem fór með ÍBV upp í
fyrra og í hópinn hafa bæst Andri
Rúnar Bjarnason, Alex Freyr Hilm-
arsson og Halldór J.S. Þórðarson.
Hvort Eyjamenn séu með næga
breidd til að halda sér frá hættusvæði
deildarinnar er óvíst en Hermann
Hreiðarsson er öllu vanur í slíkum
barningi og er mættur aftur til Eyja
með mun meiri þjálfarareynslu en
síðast. Hann tók við af Helga Sig-
urðssyni eftir síðasta tímabil. ÍBV
þarf á því að halda að Eiður Aron Sig-
urbjörnsson og Guðjón Pétur Lýðs-
son eigi mjög gott tímabil í vörn og á
miðju, og að Andri Rúnar verði heill
heilsu og skori mörkin sem Eyja-
menn þurfa til að halda velli.
Fimm liða fallbarátta?
- KA er spáð sjöunda sætinu en er langt fyrir ofan fimm neðstu liðin
- Ná Skagamenn og Eyjamenn að halda sér frá hættusvæði deildarinnar?
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
7 Hallgrímur Mar Steingrímsson er
lykilmaður í sóknarleik KA.
Í öðrum hlutanum af spá Morgunblaðsins fyrir Bestu deild karla í fót-
bolta 2022, þar sem tuttugu sérfræðingar og aðrir áhugasamir um fót-
bolta sem starfa hjá eða skrifa fyrir miðla Árvakurs greiddu atkvæði,
birtum við liðin sem enduðu í sjöunda til níunda sæti.
KA hafnaði í sjöunda sæti með 127 stig, ÍA í áttunda með 77 stig og
ÍBV í níunda með 69 stig. Þar fyrir neðan voru Leiknir R. með 65 stig,
Fram með 64 stig og Keflavík með 46 stig, eins og fjallað var um í
blaðinu í gær.
Lið 7-9 í Bestu deild karla
þarf að taka til hjá sér, gera heima-
vinnuna betur þegar kemur að því
að fá erlenda leikmenn og mæta
öflugra til leiks á næstu leiktíð.
Njarðvík er á meðal sigur-
stranglegustu liða úrslitakeppn-
innar, enda liðið gríðarlega vel
mannað. Ef einhverjir leikmenn ná
sér ekki á strik er ljóst að 3-4 leik-
menn eru til í að taka við keflinu. Í
gær voru það Veigar Páll Alexand-
ersson, Dedrick Basile og reynslu-
boltinn Fotios Lampropoulos.
Sterkir leikmenn eins og Haukur
Helgi Pálsson, Nicolas Richotti og
Mario Matasovic þurftu ekki að
eiga sinn besta leik í gær og það
sýnir styrk Njarðvíkinga.
Stórsigur Þórsara
Íslandsmeistarar Þórs frá Þor-
lákshöfn unnu sömuleiðis afar sann-
færandi sigur í gær er Grindavík
kom í heimsókn. Urðu lokatölur
102:79 þar sem meistararnir sýndu
allar sínar bestu hliðar og komust í
2:1 í einvíginu.
Þórsarar voru sterkir á báðum
endum vallarins; skoruðu 100 stig í
sókninni og neyddu Grindvíkinga
hvað eftir annað í erfið skot með
flottum varnarleik. Kyle Johnson
átti sinn besta leik fyrir Þór og
Glynn Watson lék einnig vel. Ís-
lenskir leikmenn meistaranna eiga
þó nokkuð inni. Elbert Matthews
átti stórleik fyrir Grindavík í sigr-
inum í öðrum leik en hann náði sér
ekki almennilega á strik í gær. Na-
or Sharabani var góður í fyrri hálf-
leik en fáir Grindvíkingar geta ver-
ið ánægðir með frammistöðuna í
gær. Ljóst er að Grindavík er á
leiðinni í sumarfrí með annarri
frammistöðu eins og í gær. Þórs-
arar eru hinsvegar komnir í úr-
slitakeppnisgírinn.
Auðvelt hjá
Njarðvíkingum
- Sannfærandi heimasigur Þórsara
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Þorlákshöfn Danski Þórsarinn Daniel Mortensen sækir að spænska Grind-
víkingnum Ivan Aurrecoechea í þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum í gær.
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Deildarmeistarar Njarðvíkur urðu í
gærkvöldi annað liðið til að tryggja
sér sæti í undanúrslitum Íslands-
móts karla í körfubolta með sann-
færandi 91:63-heimasigri á KR.
Njarðvíkingar þurftu að hafa fyrir
sigrunum í fyrstu tveimur leikj-
unum en leikurinn í gær var aldrei
spennandi. Njarðvík var yfir frá
upphafi til enda og vann að lokum
þægilegan sigur.
Ekki þarf að koma á óvart að ein-
vígið endaði með 3:0-sigri Njarðvík-
ur enda varð liðið deildarmeistari á
meðan KR rétt skreið inn í úrslita-
keppnina. Að lokum áttu KR-ingar
í raun lítið erindi í deildarmeist-
arana og úrslitakeppnina.
Erlendir leikmenn KR eru ein-
faldlega ekki nógu góðir og ungir
og óreyndir leikmenn fengið stór
hlutverk. Þorvaldur Orri Árnason á
mikið hrós skilið fyrir að taka
ábyrgð og spila vel í vetur en KR
Ljósmynd/Guðmundur Bjarki
8 Steinar Þorsteinsson er orðinn
einn af reyndari leikmönnum ÍA.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
9 Eiður Aron Sigurbjörnsson
stjórnar varnarleik Eyjamanna.