Morgunblaðið - 11.05.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.05.2022, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Umræða um breytingar í Reykjavík er áhugaverð þar sem borgin er nú þegar í miklum breytingafasa sem íbúar munu m.a. verða varir við á næsta kjörtímabili, segir Dagur B. Eggertsson borgarastjóri í oddvi- taumræðu Dagmála fyrir Reykja- vík. Hann segir úthald og seiglu nauðsynleg til að ná fram veigamikl- um breytingum en tímabil óvissu gæti tekið við ef ekki er skýr forysta í borginni. Aðrir efa að hann sé maðurinn til að leiða breytingar eftir áratugaferil í borgarstjórn. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir fögur fyrirheit ekki af skornum skammti hjá meiri- hlutanum þótt kosningaloforðum þeirra sé sjaldan fylgt eftir. Lengi hafa sömu öfl stýrt borginni sem hafi komið niður á rekstri hennar og þörf sé á breytingum. Eins og hjónaband Ófremdarástand á húsnæðis- markaði, snjómokstur í borginni, stafræn þróun, mygla í Fossvogs- skóla og mæting á borgarstjórnar- fundi voru meðal þeirra málefna sem voru til umræðu þegar oddvitar framboðslista í Reykjavík tókust á í oddvitaumræðu Dagmála. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, tekur undir orð Hildar um að nauðsynlegt sé að bæta þjónustu við íbúa, mikilvægt sé að ferskir vindar fái að blása. Þá lagði hann mikla áherslu á mikil- vægi þess að draga úr hatrömmum átökum milli flokka í borgarstjórn og skautaðri umræðu. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista, gerði stéttskipt- ingu í íslensku samfélagi að umtals- efni og skaut einnig föstum skotum að meirihlutanum sem hún sagði ekki vera vinstrisinnaðan. Taldi hún veru Viðreisnar skipta þar sköpum. „Ég sé ekkert vinstri við þennan meirihluta.“ Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri- grænna, kvaðst ekki vera sammála þessum ummælum þótt meirihlut- inn hafi ekki getað fallist á tillögur Sósíalista í ýmsum málum, til að mynda húsnæðismálum. „Þetta er bara eins og að vera í hjónabandi, þú færð ekki allt sem þú vilt.“ Hún gaf þó í skyn að mikill vilji væri fyrir hendi meðal Vinstri-grænna að vinna með Sósíalistaflokknum enda væru oddvitar flokkanna á sömu línu. Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins, tók einnig þátt í þessari umræðu og kvaðst vilja taka þátt í því samstarfi. „Við eigum að vera saman, og Sanna,“ segir Kol- brún og beinir orðum sínum að Líf. Orðin endurtekin Mæting Hildar á fundi borgar- stjórnar hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum en nýlega var vakin at- hygli á því að hún hefði ekki verið viðstödd slíkan fund frá því í febrúar. Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata og forseti borgarstjórnar, bendir á að ekki hafi vafist fyrir öðr- um borgarfulltrúum að mæta á fund- ina í miðri kosningabaráttu. „Sem forseti borgarstjórnar verð ég að segja að mér finnst þetta ekki alveg nógu gott.“ Hildur segir gagnrýnina ómak- lega, ekki síst vegna þess að hún hafi verið með eitt hæsta mætingarhlut- fallið á fundina þegar allt kjörtíma- bilið er skoðað. Þá segir hún um- ræðuna endurspegla áherslumun milli meiri- og minnihlutans og gaf í skyn að litlu væri afkastað á fund- unum, þeir væru fyrst og fremst um- ræðuvettvangur. „Pólitík núverandi meirihlutans hefur falist svolítið í þessu; í löngum fundum þar sem fólk skiptist á að taka til máls og endurtaka hvert annað og það gerist ekki neitt.“ Dags saknað í Kastljósi Mygla í húsakynnum Fossvogs- skóla og atburðarásin sem henni hef- ur fylgt hefur verið eins og heit kart- afla sem fáir í borgarstjórn vilja kannast við að bera ábyrgð á. Alexandra Briem segir málið vissulega leiðinlegt en lýsir því jafn- framt að borgin hafi brugðist við og vandamálið hafi fyrst og fremst legið í skorti á reglum um hvernig mæla eigi myglu í húsum og hvernig bregðast eigi við slíkum tilfellum. Hildur gaf lítið fyrir þau svör og sagði foreldra nemenda skólans hafa talað fyrir daufum eyrum í mörg ár áður en borgaryfirvöld tóku málið föstum tökum, sem var þó ekki fyrr en það var orðið að umfjöllunarefni fjölmiðla. Kastljósinu var síðar beint að borgarstjóranum og viðbrögðum hans en fjölmiðlar komu ítrekað að tómum kofunum þegar óskað var eftir viðtali við hann í tengslum við mygluna í skólanum. Dagur þvertók fyrir þær ásakanir og kvaðst hafa svarað öllum símtölum sem hann fékk. Þá tók Einar Þorsteinsson til máls en á þeim tíma sem umfjöllun um mygluna í Fossvogsskóla fór sem hæst var hann fréttamaður á Rík- isútvarpinu. „Ég man eftir því þegar ég var í Kastljósinu að reyna að fá þig [Dag] í viðtal um þetta mál, þá kom Þórdís Lóa [oddviti Viðreisnar] í viðtal og ég saknaði þín þá.“ Húsnæðismál í brennidepli Mikil hækkun á fasteigna- og leigumarkaði er eitt af þeim stóru málum sem frambjóðendur standa frammi fyrir. Oddvitar flokkanna eru með misjafna sýn á hvernig borgin hefur staðið sig í að koma til Umbreyting eða stöðnun í boði - Skautuð umræða í borgarstjórn runnið sitt skeið - Vinstri-græn sækjast eftir samstarfi við Sósíalista - Leiguþak nauðsynlegt segir Miðflokkurinn - Sjálfstæðismenn vilja frysta fasteignagjöld Morgunblaðið/Ágúst Ólíver Borgarstjórnarkosningar Um helgina kemur í ljós hvort kjósendur í Reykjavík vilja halda sama meirihluta í borginni undir forystu Dags B. Eggertssonar eða hvort ákall sé eftir breytingum í þeim efnum. Oddvitar Ekki eru allir á sama máli um hvernig bregðast eigi við hækkun á fasteigna- og leigumarkaði. Flestir virðast þó hlynntir því að hrinda af stað framkvæmdum á þeim lóðum sem búið er að skipuleggja. 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.