Morgunblaðið - 11.05.2022, Blaðsíða 15
UMRÆÐAN
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022
OSMANTHUS EAUDE TOILETTE
Umvefðu þig blómum
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Enn eina ferðina
byrjar fjörið hér í bæ og
fólk byrjar að velta því
fyrir sér hvað það á að
kjósa. Það er stór og
jafnframt mikilvæg
ákvörðun hvað þú kýst,
því fólkinu sem þú kýst
gefurðu möguleika á að
tryggja lífsgæði, loft-
gæði og umhverfið fyrir
þig og komandi kyn-
slóðir hér í Reykjanes-
bæ. Allt snýst þetta um
traust til frambjóðenda.
Vissulega eru kosninga-
loforðin eins misjöfn og
þau eru mörg en yfir-
leitt eiga þau það öll
sameiginlegt að þau eru
„gylliboð“ til að ná til
kjósenda. Stundum er
jafnvel gengið það langt
að fyrir fram er vitað að
engin innistæða er fyrir
þeim hjá veikum bæjarsjóði, engu að
síður er haldið áfram á sömu braut í
að telja kjósendum trú um annað, það
er bæði gömul saga og ný hér í bæ.
Það merkilega við kosningar er sú
staðreynd að sömu kosningaloforðin
eru gefin aftur og aftur, stundum
finnst fólki eins og „copy paste“ sé
viðloðandi eða fast í kerfi ljósrit-
unarvélarinnar góðu þegar snepl-
arnir með fögru fyrirheitunum fara
þar í gegn. Vissulega eru mörkuð
spor og áherslur og innviðir hafa ver-
ið og verða áfram lagaðir, en stóra
spurningin þegar inn í kjörklefann er
komið verður alltaf á endanum:
Hverjar voru efndirnar fyrir mig sem
íbúa og skattgreiðenda? Hverjar eru
líkurnar á því að nýtt fólk í brúnni
muni gera betur en þeir sem fyrir
voru?
Ég fyrir mitt leyti er mjög ánægð-
ur með að mitt baráttumál og fleiri til
fjölda ára sé loksins komið í góðan
farveg, en í nýlegri frétt í fjölmiðlum
og pósti, sem mér barst 28. apríl sl.
frá Krabbameinsfélagi Íslands, segir
orðrétt að samstarf hafi náðst milli
Krabbameinsfélagsins og bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar um að
Reykjanesbær leggi Krabbameins-
félaginu til fé til rannsóknar á því
hverju hið mikla nýgengi krabba-
meins hér um slóðir veldur. Það kom
líka fram í sömu frétt að mikill áhugi
væri í Reykjanesbæ á að fá þessi mál
öll á hreint og vitnað í lýðheilsufull-
trúa bæjarins og því ber sérstaklega
að fagna þótt málið hafi tekið tíma í
kerfinu. Sagt er að góðir hlutir gerist
hægt, en ef þeir skila sér þótt síðar sé
þá má fyrirgefa og fagna hverju sinni.
Einmitt þetta tel ég vissan áfanga-
sigur fyrir okkur íbúa sveitarfélags-
ins í því að fá öll þessi mál á hreint og
hefur Krabbameinsfélagið upplýst að
það hafi fengið sér til aðstoðar er-
lenda aðila eins og opinbert er orðið.
Svo er bara að bíða og sjá hvert um-
rædd rannsókn kann að leiða okkur,
en hvað sem öðru líður er það opin-
bert að rannsóknin mun eiga sér stað
og niðurstaðna úr henni að vænta
með haustinu 2022.
Mín skoðun í dag er sú að hætta að
horfa til hægri eða vinstri en þess í
stað horfa eingöngu til framtíðar fyr-
ir mitt sveitarfélag. Það vilja allir
flokkar og allir á listunum sem bjóða
fram gera bæinn okkar betri, þetta er
bara spurning um hverjum þú treyst-
ir til að leiða verkefnið hverju sinni. Í
hreinskilni sagt er valið erfitt í dag,
því það er flott og frambærilegt fólk á
öllum listum, í sumum tilvikum skyld-
menni, vinir og félagar, erfitt að gera
upp á milli fólks skiljanlega.
Ástæða þess að ég nýti alltaf kosn-
ingarétt minn er aðallega svo ég hafi
rétt á að tjá mig um hlutina, þ.e.a.s.
hvernig fólk hefur staðið sig í að efna
það sem lofað var. Nú ef það fór ekki
eins og ég vildi þá hef ég alltaf val um
hvar X skal setja.
Verum stolt af því að
vera íbúar Reykjanes-
bæjar og verum stolt af
því að hafa eitthvað um
mannanna verk að
segja hverju sinni. Ver-
um þess vel meðvituð
að bæjarfulltrúar og
þeir sem bjóða fram
krafta sína næstu fjög-
ur árin hér í bæ eru
bara fólk eins og við hin
og ekki yfir neina hafn-
ir. Sama á við um okkar
góða bæjarstjóra, sem
ég nota bene vil hafa
áfram enda Kjartan
Már Kjartansson kom-
ið sterkur inn sem slík-
ur sl. tvö kjörtímabil og
fyrir það ber að þakka.
Setjum okkur í kosn-
ingagírinn, tökum fram
góða skapið og skund-
um á kjörstað 14. maí
næstkomandi.
Gerum Reykja-
nesbæ að frábæru bæj-
arfélagi að búa í nú sem endranær,
um það snýst málið og ekki neitt ann-
að.
Góðar stundir.
Eftir Sigurjón
Hafsteinsson
Sigurjón
Hafsteinsson
»Gylliboð eða
innihaldslaus
kosningaloforð?
Þitt, kjósandi
góður, er að
vega og meta
hvort innistæða
sé fyrir slíku.
Höfundur er umhverfissinni
og íbúi í Reykjanesbæ.
Enn eina ferðina
byrjar fjörið í
Reykjanesbæ
Hann er í rauninni
að slá vindhögg,
fulltrúi Viðreisnar í
Reykjavík sem ætt-
aður er frá Póllandi,
Pavel að nafni og talar
prýðilega íslensku. Vill
ef endurkjörinn verður
troða niður heilu
íbúðahverfi innan vall-
arsvæðis Reykjavík-
urflugvallar þótt
Isavia og flugmenn al-
mennt gjaldi varhug við því. Vilji
sem sagt ekki sjá þetta fremur en
íbúar Skerjafjarðar, rótgróins
hverfis í grennd. Liggur einnig í
augum uppi meðal alls almennilegs
fólks.
Ekki þó hjá Viðreisn né hinum
furðuflokkunum í borgarstjórn höf-
uðborgar einnar framsæknustu
þjóðar jarðar – svo blessunarlega
eru það allt önnur yfirvöld en borg-
arstjórnin sem ráða munu örlögum
flugvallarins og þessa nýja ágæta
hverfis – sem hæglega ætti að vera
hægt að færa í heilu lagi yfir á ann-
að hentugt svæði í eigu borgarinnar.
Vitaskuld flatlent, ekki má öll þessi
skipulagsvinna fara forgörðum.
Ónýtast!
Alvörufólk á auðvitað að stjórna
höfuðborginni. Ekki draumórafólk
með sósíalískar ranghugmyndir og
firrur í kollinum. Og þá kemur Sjálf-
stæðisflokkurinn ósjálfrátt strax
upp í hugann. Þar er
að finna raunsæja fólk-
ið með þekkinguna og
reynsluna. Fólk á öll-
um aldri sem áttar sig
á samhengi hlutanna
og er víðsýnt. Ólíkt
vinstriflokkunum sem
sjá ekki skóginn fyrir
trjánum. Hörmuleg
óstjórn höfuðborg-
arinnar á núverandi
kjörtímabili er til vitnis
um það.
Konur virðast hafa
yfirtekið Sjálfstæð-
isflokkinn í Reykjavík, má nánast
segja fullum fetum. Þrjár rosaflott-
ar konur og þrír karlkyns reynslu-
boltar í sex efstu sætum framboðs-
ins ættu að vera uppskrift að
ágætum árangri í kosningunum í
vor. Vel við hæfi á „öld vatnsber-
ans“ – sem þýðir víst í rauninni „öld
konunnar“ og kvað hafa gengið í
garð fyrir tveimur eða þremur ára-
tugum. Segir sig eiginlega sjálft;
konurnar eru traustara kynið og
bera jafnan vatnið (vökvana marga
og misjafna) í hús.
Íslendingar almennt eru skyn-
samt og gott fólk. Ég fullyrði það af
öryggi atvinnumannsins. Það kæmi
manni því illilega á óvart ef Píratar
eða Sósíalistar næðu einhverju flugi.
Niðurrifsöfl sýnist manni sem ekki
hafa mikið álit á uppbyggingu for-
feðranna, jafnvel þótt þar sé oft um
að ræða stórvirki á mörgum sviðum.
Ekki er þó líklegt að þetta ágæta
Eftir Pál Pálmar
Daníelsson » Falsfréttaflutningur
og hálfsannleikur er
sérgrein vinstrisins, auk
beinna lyga og fals-
vináttu. Því ber að hafa
allan vara á sér og trúa
varlega ýmsum stað-
hæfingum.
Páll Pálmar
Daníelsson
Höfundur er leigubílstjóri.
Kjósum af varkárni í vor
fólk sé endilega með betri úrræði á
hraðbergi – upphrópanirnar á Al-
þingi bergmála í Reykjavík.
Vel skipulagðar árásir á formann
Sjálfstæðisflokksins að undanförnu
vegna sölunnar á hlut í Íslands-
banka gætu ruglað fólk og afvega-
leitt, eins og að er stefnt. Fals-
fréttaflutningur og hálfsannleikur
er sérgrein vinstrisins, auk beinna
lyga og falsvináttu. Því ber að hafa
allan vara á sér og trúa varlega
ýmsum staðhæfingum.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, Hildur Björnsdóttir,
kemur svo sannarlega sterk inn í
myndina sem slík. Eftir að hafa
heyrt í henni á öldum ljósvakans
nokkrum sinnum í viðtölum, þar
sem hún hefur farið yfir málin með
óvenju snaggaralegum og skýrum
hætti, get ég með góðri samvisku
gefið henni mína hæstu einkunn
(9,5) og hvet borgarbúa og auðvitað
alla Íslendinga til að kjósa XD.