Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 12
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is B orgarráð samþykkti á fundi sínum 7. apríl sl. að bjóða til sölu byggingarrétt á fjórum íbúðarhúsalóðum í fyrsta áfanga Skerjafjarðar. Áætlað er að byggingarréttur lóðarinnar verði auglýstur fljótlega. Úthlutunar- og útboðsskilmálar verða með hefð- bundnum hætti og útbúnir af skrif- stofu borgarstjóra og borgarritara, segir í samþykkt borgarráðs. Þá var á sama fundi samþykkt að úthluta Bjargi íbúðafélagi lóð og byggingarrétti fyrir 95 íbúðir í Skerjafirði og Félagsstofnun stúd- enta lóð fyrir 110 íbúðir. Eins og fram hefur komið í frétt- um er fyrirhuguð íbúðabyggð í Skerjafirði umdeild. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók það skýrt fram á dögunum að Reykjavík- urborg væri ekki heimilt að fara í uppbyggingu í grennd við Reykjavík- urflugvöll þar til ný staðsetning væri fundin fyrir flugvöll. Ráðherra vísaði þar sérstaklega til skýrslu frá hol- lensku loft- og geimferðastofnuninni þar sem segir að loka þyrfti vellinum einstaka sinnum ef til uppbyggingar kæmi, sem myndi þá ógna flugöryggi. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri sagði á Stöð 2 að byggingarnar séu ásættanlegar út frá flugöryggi. Í bréfi hans og borgarritara til borg- arráðs segir að lóðirnar verði bygg- ingahæfar í lok þessa árs. Harðorðar bókanir Þegar tillögur um sölu bygg- ingaréttar í Skerjafirði komu til af- greiðslu á fundinum 7. apríl sl. voru þær samþykktar af fulltrúum meiri- hlutaflokkanna. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við af- greiðslu málsins og lögðu fram svo- hljóðandi bókun: „Mikil óvissa er um uppbygginu í Skerjafirði enda er þar gert ráð fyr- ir að koma fyrir umdeildri landfyll- ingu. Þá hafa komið verulegar at- hugasemdir varðandi hæð húsa í nágrenni við flugvöllinn en borgin hefur enn ekki svarað bréfi innviða- ráðuneytisins varðandi það mál. Það er ábyrgðarlaust að bjóða út bygg- ingarrétt í hverfi þar sem enn er óljóst hvað verður heimilt að byggja mikið. Borgin gæti skapað sér skaða- bótaskyldu með því að binda hendur sínar við þessar aðstæður og við því er hér varað.“ Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins, Vigdís Haukdóttir, lagði fram svo- hljóðandi bókun: „Borgarstjóri þver- brýtur alla samninga við ríkið hvað varðar flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Nú þegar rúmar 5 vikur eru í borgar- stjórnarkosningar þá er óskað eftir heimild til að bjóða til sölu bygging- arrétt í hinum svokallaða „nýja Skerjafirði“. Í samkomulagi ríkis og borgar fyrir tveimur árum fólst í raun ákveðið vopnahlé. Rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar skyldi tryggt meðan verið væri að kanna nýtt flug- vallarstæði í Hvassahrauni. Borgar- stjóri hefur hent gegnblautum stríðs- hanska í andlit ríkisins. Enda ætlar innviðaráðuneytið í hart við borgina vegna Skerjafjarðar. Það mætti halda að einhverjir séu um það bil búnir að missa vitið.“ Á fundinum var samþykkt að út- hluta Bjargi íbúðafélagi lóð og bygg- ingarrétti fyrir 95 íbúðir á 2-5 hæðum í fjórum húsum á lóð við Reginsnes 10 í nýja Skerjafirði. Heimilaður heild- arbyggingarréttur ofan- og neðan- jarðar er samtals 7.640 fermetrar. Þá samþykkti borgarráð að út- hluta Félagsstofnun stúdenta lóð og byggingarrétti fyrir 110 námsmanna- íbúðir á 3-5 hæðum á lóð við Otursnes 62 í nýja Skerjafirði. Heimilað heildarbyggingarmagn er 9.430 fer- metrar. Lóðir í boði í um- deildu íbúðahverfi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skerjafjörður Hið nýja byggingarland er áformað sunnan flugvallarins. Byggðin verður að hluta til reist á landfyllingum í óraskaðri fjörunni. 12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þrátt fyrir að aðeins séu nokkrir dag- ar í sveitarstjórn- arkosningar hefur lítið verið rætt um rekstur sveitar- félaganna. Þau hafa þanist út á síðustu misserum og árum, á sama tíma og almenni vinnu- markaðurinn hefur dregist sam- an. Þetta má sjá í nýrri saman- tekt Viðskiptaráðs þar sem fram kemur að stöðugildum hjá sveitarfélögunum hefur fjölgað um 1.900 á síðustu tveimur ár- um en fjölgunin á vinnumark- aðnum í heild hefur verið 900. Þessar tölur þýða að fjölgunin hjá sveitarfélögunum er 8,5% á sama tíma og samdráttur var á almenna vinnumarkaðnum. Þá hefur það gerst á tímabili núgildandi kjarasamninga að launahækkanir hjá sveitarfélög- unum hafa verið mun hærri, um 30%, en á almenna markaðnum, um 20%. Hækkanir hjá ríkinu eru þarna mitt á milli. Þetta hef- ur auðveldað sveitarfélögunum að soga til sín starfsfólk og al- menni markaðurinn á erfitt með að halda í starfsmenn sem sjá að hlutfallslega verður æ hagstæð- ara að starfa fyrir hið opinbera. Þessi óeðlilega þróun getur ekki gengið til lengdar. Það er almenni markaðurinn sem held- ur uppi starfsemi hins opinbera og þegar hið opinbera, einkum sveitarfélögin, hagar sér með þessum hætti er augljóst að í óefni stefnir. Þetta skýrir meðal annars allt of háa skatta, bæði hjá sveitarfélögunum og ríkinu, og þá staðreynd að sveitar- félögin taka sér flest hámarks- útsvar og nýta sér að auki hratt hækkandi húsnæðisverð til að auka tekjur sínar. Vandinn er líka sá að sveitar- félögin, einkum þó það lang- stærsta, Reykjavík, bera alla ábyrgð á að ekki er nóg byggt af nýju húsnæði og þar með að húsnæðisverð hækkar úr öllu hófi. Meirihlutanum í Reykjavík virðist ætla að takast að tala sig frá þessu, annars vegar með þeirri fjarstæðu að óhagstætt sé að brjóta nýtt land undir byggð og hins vegar með því að veita „vilyrði“ fyrir fjölda nýrra bygginga. Þannig er því enn einu sinni lofað að brettar verði upp ermar að kosningum lokn- um þó að athafnaleysi og skort- stefna hafi verið rekin árum saman. Þessi skortstefna er ekki að- eins vandamál þeirra sem finna ekki íbúðir á hófstilltu verði, hún er líka stór hluti af efna- hagsvanda þjóðarinnar. Síðasta mæling Hagstofunnar á verð- bólgunni sýndi að hún var 7,2% og mátti rekja yfir þriðjung mánaðarhækkunar til húsnæðis. Þessi viðbótarverðbólga sem stafar af húsnæðishækkunum skrifast að stærstum hluta á skortstefnu meirihlutans í Reykjavík. Þrýstingur á verðbólguna stafar líka af mikilli inn- lendri eftirspurn sem skýrist af hröð- um launahækk- unum, sem eins og sjá af samanburði á hækkunum hjá sveitarfélögunum og al- menna markaðnum stafar að drjúgum hluta af aðhaldsleysi sveitarfélaganna. Þar ber Reykjavíkurborg einnig mesta ábyrgð því að hún leiðir sveit- arfélögin í þessum efnum og sýndi ístöðuleysi í síðustu samn- ingum. Það kann að vera til vin- sælda fallið á meðan á því stend- ur, en afleiðingarnar birtast nú í hærri verðbólgu en ella sem bitnar fyrst og fremst á almenn- ingi. Við þessar hækkanir launa hefur nú bæst hagvaxtarauki, sem atvinnulífið þarf að bera þrátt fyrir að hafa ekki jafnað sig á áhrifum kórónuveiru- faraldursins, sem sést meðal annars á því að landsframleiðsla á mann í ár verður líklega 4% undir því sem hún var þegar lífskjarasamningarnir voru gerðir. Þá kemur fram í Peningamálum að hagvaxt- araukinn veldur því að uppsafn- aður hagvöxtur á þessu ári og því næsta verður 1½% minni en hann hefði verið án hagvaxt- araukans og að auki eykur hag- vaxtaraukinn verðbólguþrýst- inginn, sem Seðlabankinn segist þurfa að bregðast við með „því að herða á taumhaldi peninga- stefnunnar“, sem þýðir hærri vexti. Innlendur verðbólguþrýst- ingur er því mikill og að stórum hluta má rekja hann til sveitar- félaganna, fyrst og fremst þó til stefnu meirihlutans í Reykjavík. Við þetta bætast svo hækkanir erlendis, eins og sjá má á verð- bólgutölum ytra og umfjöllun þar um erfiðleika um aðföng, og vaxtahækkanir, sem er þriðji stóri þátturinn í verðbólgunni hér á landi. Hann er utan við það sem Íslendingar geta haft áhrif á en þeir geta ráðið við hina tvo. Það er hægt að stór- auka framboð á húsnæði í Reykjavík ef stjórnvöld í Reykjavík standa ekki gegn því eins og þau hafa gert árum sam- an og það er hægt að gera kjara- samninga sem fela ekki í sér margfalt meiri hækkanir en í nágrannalöndunum og eru í samræmi við framleiðnivöxt í atvinnulífinu. Sveitarfélögin vega þungt í þjóðarbúskapnum og þess vegna eru vonbrigði hve margir frambjóðendur, einkum í stærsta sveitarfélaginu, leggja litla áherslu á það hlutverk sitt að sýna ábyrgð með því meðal annars að halda uppi eðlilegu framboði af húsnæði og að gæta hófs þegar kemur að útgjöldum sveitarfélagsins. Kjósendur ættu þó að hafa þessi atriði í huga. Sveitarfélögin, einkum Reykjavík, hafa líka áhrif á verðbólguþróunina} Verðbólga og kosningar Þ au stefnumál sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur sett á odd- inn fyrir sveitarstjórnarkosningar á laugardaginn næsta eiga erindi í öllum sveitarfélögum. Hvort sem það er stærsta sveitarfélag landsins, Reykja- víkurborg, eða þau minni. Sama hvort sveitar- félög takast á við uppbyggingu innviða, skulda- stöðu, fjölgun eða fækkun íbúa, þá þurfa sjónarmið VG að vera við borðið. Þessi sjón- armið eru annars vegar félagslegt réttlæti, jöfnuður og kvenfrelsi. Hins vegar eru það grænu sjónarmiðin, loftslagsmál, náttúruvernd í heimabyggð, úrgangsmál og fleira. Húsnæðismál brenna á öllum Við þurfum að ganga lengra í því að minnka húsnæðisbyrði á mið- og lágtekjufólki. Hlutfall þeirra í lægsta tekjufimmtungi, sem búa við íþyngjandi heimiliskostnað, hefur lækkað um tíu af hundraði síðustu fimm ár samkvæmt Hagstofunni. Þetta hlutfall er ennþá of hátt til að vera ásættanlegt. Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill að enginn þurfi að greiða meira en þriðjung af ráðstöfunartekjum í húsnæðiskostnað. Það markmið mun ekki nást ef uppbygging húsnæðis verður alfarið í höndum markaðarins. Til þess að jöfnuður ríki þarf jöfnuður að vera á dagskrá í sveitarstjórn. Við í VG viljum tryggja óhagn- aðardrifnum leigufélögum lóðir og þannig styðja við upp- byggingu á leigufélögum á félagslegum forsendum. Með því að ganga lengra í að byggja upp heilbrigðari fasteigna- markað verður betur tryggt að allir íbúar hafi jöfn tækifæri. Þannig þarf einnig að vinna að því að bæta hag barnafjölskyldna. En samkvæmt gögnum Hagstofunnar hefur staða barnafjölskyldna á húsnæðismarkaði ekki batnað að sama marki og staða annarra. Til þess að bæta þeirra hag er mikilvægt að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóla. En einnig að stíga skref í átt að gjaldfrjálsum skólamáltíðum og leikskóla. Í þeim efnum þarf að forgangsraða í þágu þeirra sem hafa minnstar tekjur og þurfa þannig mest á aðstoð að halda. Með þeim hætti göng- um við lengra í því að skapa jöfnuð. Sveitarfélög og loftslagsmál Næsta kjörtímabil er afgerandi í því hvort íslenskt samfélag nær markmiðum sínum í loftslagsmálum. Sveitarfélög geta haft mikið um það að segja með ákvörðunum sínum um uppbyggingu almenningssamgangna, reglusetningu í deilihagkerfinu og skipulagsmálum. Með því að draga úr umferð drögum við úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Með því að byggja hverfi upp sem „15 mínútna“ hverfi og styrkja almenningssamgöngur sláum við tvær flugur í einu höggi. Við drögum úr umferð og þannig útblæstri gróðurhúsalofttegunda en drögum líka úr kostnaði al- mennings við samgöngur. En kostnaður við samgöngur er meira íþyngjandi fyrir lægri tekjuhópa en þá hærri. Setjum X við V á laugardaginn, kjósum með jöfnuði og bættum hag almennings. Svandís Svavarsdóttir Pistill VG á alltaf erindi Höfundur er matvælaráðherra. svandis.svavarsdottir@mar.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen „Aðilar eru sammála um að tryggt verði rekstraröryggi á Reykjavíkurflugvelli á meðan undirbúningi og gerð nýs flug- vallar stendur, þar með talið eðlilegt viðhald og endurnýjun mannvirkja í samræmi við ákvæði gildandi samgönguáætl- unar Alþingis. Miðað verði við að Reykjavíkurflugvöllur geti áfram þjónað innanlandsflugi á fullnægjandi hátt þar til nýr flugvöllur er tilbúinn til notk- unar.“ Svo segir orðrétt í sam- komulagi ríkisins og Reykjavík- urborgar frá 28. nóvember 2019, þar sem fjallað var um leit að nýju flugvallarstæði á suð- vesturhorni landsins. Var sjón- um aðallega beint að Hvassa- hrauni. Samkomulagið undirrituðu Sigurður Ingi Jó- hannsson, þá samgöngu- ráðherra, og Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri. Öryggi vallar verði tryggt SAMKOMULAG FRÁ 2019

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.