Morgunblaðið - 11.05.2022, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022
Umræða um breytingar í Reykjavík
er áhugaverð þar sem borgin er nú
þegar í miklum breytingafasa sem
íbúar munu m.a. verða varir við á
næsta kjörtímabili, segir Dagur B.
Eggertsson borgarastjóri í oddvi-
taumræðu Dagmála fyrir Reykja-
vík. Hann segir úthald og seiglu
nauðsynleg til að ná fram veigamikl-
um breytingum en tímabil óvissu
gæti tekið við ef ekki er skýr forysta
í borginni.
Aðrir efa að hann sé maðurinn til
að leiða breytingar eftir áratugaferil
í borgarstjórn. Hildur Björnsdóttir,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, segir fögur fyrirheit
ekki af skornum skammti hjá meiri-
hlutanum þótt kosningaloforðum
þeirra sé sjaldan fylgt eftir. Lengi
hafa sömu öfl stýrt borginni sem
hafi komið niður á rekstri hennar og
þörf sé á breytingum.
Eins og hjónaband
Ófremdarástand á húsnæðis-
markaði, snjómokstur í borginni,
stafræn þróun, mygla í Fossvogs-
skóla og mæting á borgarstjórnar-
fundi voru meðal þeirra málefna
sem voru til umræðu þegar oddvitar
framboðslista í Reykjavík tókust á í
oddvitaumræðu Dagmála.
Einar Þorsteinsson, oddviti
Framsóknarflokksins, tekur undir
orð Hildar um að nauðsynlegt sé að
bæta þjónustu við íbúa, mikilvægt
sé að ferskir vindar fái að blása. Þá
lagði hann mikla áherslu á mikil-
vægi þess að draga úr hatrömmum
átökum milli flokka í borgarstjórn
og skautaðri umræðu.
Sanna Magdalena Mörtudóttir,
oddviti Sósíalista, gerði stéttskipt-
ingu í íslensku samfélagi að umtals-
efni og skaut einnig föstum skotum
að meirihlutanum sem hún sagði
ekki vera vinstrisinnaðan. Taldi hún
veru Viðreisnar skipta þar sköpum.
„Ég sé ekkert vinstri við þennan
meirihluta.“
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri-
grænna, kvaðst ekki vera sammála
þessum ummælum þótt meirihlut-
inn hafi ekki getað fallist á tillögur
Sósíalista í ýmsum málum, til að
mynda húsnæðismálum. „Þetta er
bara eins og að vera í hjónabandi, þú
færð ekki allt sem þú vilt.“ Hún gaf
þó í skyn að mikill vilji væri fyrir
hendi meðal Vinstri-grænna að
vinna með Sósíalistaflokknum enda
væru oddvitar flokkanna á sömu
línu.
Kolbrún Baldursdóttir, oddviti
Flokks fólksins, tók einnig þátt í
þessari umræðu og kvaðst vilja taka
þátt í því samstarfi. „Við eigum að
vera saman, og Sanna,“ segir Kol-
brún og beinir orðum sínum að Líf.
Orðin endurtekin
Mæting Hildar á fundi borgar-
stjórnar hefur verið til umfjöllunar í
fjölmiðlum en nýlega var vakin at-
hygli á því að hún hefði ekki verið
viðstödd slíkan fund frá því í febrúar.
Alexandra Briem, borgarfulltrúi
Pírata og forseti borgarstjórnar,
bendir á að ekki hafi vafist fyrir öðr-
um borgarfulltrúum að mæta á fund-
ina í miðri kosningabaráttu. „Sem
forseti borgarstjórnar verð ég að
segja að mér finnst þetta ekki alveg
nógu gott.“
Hildur segir gagnrýnina ómak-
lega, ekki síst vegna þess að hún hafi
verið með eitt hæsta mætingarhlut-
fallið á fundina þegar allt kjörtíma-
bilið er skoðað. Þá segir hún um-
ræðuna endurspegla áherslumun
milli meiri- og minnihlutans og gaf í
skyn að litlu væri afkastað á fund-
unum, þeir væru fyrst og fremst um-
ræðuvettvangur.
„Pólitík núverandi meirihlutans
hefur falist svolítið í þessu; í löngum
fundum þar sem fólk skiptist á að
taka til máls og endurtaka hvert
annað og það gerist ekki neitt.“
Dags saknað í Kastljósi
Mygla í húsakynnum Fossvogs-
skóla og atburðarásin sem henni hef-
ur fylgt hefur verið eins og heit kart-
afla sem fáir í borgarstjórn vilja
kannast við að bera ábyrgð á.
Alexandra Briem segir málið
vissulega leiðinlegt en lýsir því jafn-
framt að borgin hafi brugðist við og
vandamálið hafi fyrst og fremst legið
í skorti á reglum um hvernig mæla
eigi myglu í húsum og hvernig
bregðast eigi við slíkum tilfellum.
Hildur gaf lítið fyrir þau svör og
sagði foreldra nemenda skólans hafa
talað fyrir daufum eyrum í mörg ár
áður en borgaryfirvöld tóku málið
föstum tökum, sem var þó ekki fyrr
en það var orðið að umfjöllunarefni
fjölmiðla.
Kastljósinu var síðar beint að
borgarstjóranum og viðbrögðum
hans en fjölmiðlar komu ítrekað að
tómum kofunum þegar óskað var
eftir viðtali við hann í tengslum við
mygluna í skólanum. Dagur þvertók
fyrir þær ásakanir og kvaðst hafa
svarað öllum símtölum sem hann
fékk.
Þá tók Einar Þorsteinsson til máls
en á þeim tíma sem umfjöllun um
mygluna í Fossvogsskóla fór sem
hæst var hann fréttamaður á Rík-
isútvarpinu.
„Ég man eftir því þegar ég var í
Kastljósinu að reyna að fá þig [Dag] í
viðtal um þetta mál, þá kom Þórdís
Lóa [oddviti Viðreisnar] í viðtal og
ég saknaði þín þá.“
Húsnæðismál í brennidepli
Mikil hækkun á fasteigna- og
leigumarkaði er eitt af þeim stóru
málum sem frambjóðendur standa
frammi fyrir. Oddvitar flokkanna
eru með misjafna sýn á hvernig
borgin hefur staðið sig í að koma til
Umbreyting eða stöðnun í boði
- Skautuð umræða í borgarstjórn runnið sitt skeið - Vinstri-græn sækjast eftir samstarfi við Sósíalista
- Leiguþak nauðsynlegt segir Miðflokkurinn - Sjálfstæðismenn vilja frysta fasteignagjöld
Morgunblaðið/Ágúst Ólíver
Borgarstjórnarkosningar Um helgina kemur í ljós hvort kjósendur í Reykjavík vilja halda sama meirihluta í
borginni undir forystu Dags B. Eggertssonar eða hvort ákall sé eftir breytingum í þeim efnum.
Oddvitar Ekki eru allir á sama máli um hvernig bregðast eigi við hækkun á fasteigna- og leigumarkaði. Flestir
virðast þó hlynntir því að hrinda af stað framkvæmdum á þeim lóðum sem búið er að skipuleggja.
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR