Morgunblaðið - 11.05.2022, Page 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022
✝
Erna Margrét
Laugdal Ott-
ósdóttir fæddist 1.
apríl 1954 í Reykja-
vík. Hún lést á
hjartadeild Land-
spítalans síðasta
vetrardag, 20. apríl
2022.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ottó
Laugdal Ólafsson, f.
30. júní 1932, d. 26.
október 1995, og Jónína Sísí
Bender, f. 15. júlí 1935, d. 29.
apríl 2010. Systkini Ernu sam-
feðra eru: Gunnar Ottó Ottósson,
f. 20. júlí 1960, Jónas Hallgrímur
Ottósson, f. 28. mars 1966, Pétur
Ottósson, f. 11. júlí 1971 og Lena
Winqvist, f. 13. janúar 1974.
Systkini Ernu sammæðra eru:
María Haraldsdóttir Bender, f. 2.
september 1958, Róbert Hilmar
Níels Haraldsson, f. 5. október
1959 og Jakob Þór Haraldsson, f.
14. nóvember 1962.
Erna giftist Guðmari Weihe
Stefánssyni, f. 8. okt. 1952. Barn
d. 25. mars 1999, Tara Jelisha
Líndal Williams, f. 10. desember
2001 og Aran Leonard Líndal
Laufeyjarson, f. 31. júlí 2009.
Börn Ernu og Ólafs eru: 4) Guð-
rún Birna Laugdal Ólafsdóttir, f.
13. mars 1976. Börn hennar eru:
Goði Hrafn Falk, f. 27. desember
1994 og Ólafur Garðar Laugdal,
f. 20. ágúst 2010. 5) Bassi Ólafs-
son, f. 19. september 1983. Dóttir
Bassa er: Anja Sæberg Björns-
dóttir, f. 21. nóvember 2006. Eig-
inkona Bassa er: Erna Kristín
Stefánsdóttir, f. 23. mars 1991.
Börn þeirra eru: Leon Bassi
Bassason, f. 30. nóvember 2014,
Adam Bassi Bassason, f. 26. apríl
2022 og Emil Bassi Bassason, f.
26. apríl 2022.
Erna og Ólafur slitu sam-
vistir.
Sambýlismaður Ernu síðustu
20 ár var Gunnar Þorsteinsson,
f. 6. nóvember 1959, en Gunnar
lést 2. desember síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík í dag, 11. maí
2022, klukkan 15.
Ernu og Guðmars
er 1) Sísí Bender, f.
14. ágúst 1972.
Börn hennar eru:
Natalía Björns-
dóttir, f. 29. janúar
1993, Kaja Gunn-
arsdóttir, f. 12.
febrúar 2002 og
Alexa Bender, f. 31.
október 2010. Erna
og Guðmar skildu.
Erna hóf sambúð
með Ólafi Stefáni Þórarinssyni,
f. 17. feb. 1950. Börn Ólafs sem
Erna elskaði sem sín eigin eru: 2)
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir, f. 24.
júlí 1971. Eiginmaður hennar er:
Vignir Þór Stefánsson, f. 22.
september 1970. Börn þeirra
eru: Stefán Egill Vignisson, f. 24.
júlí 2005 og Jökull Freyr Vign-
isson, f. 8. desember 2010. 3)
Laufey Líndal Ólafsdóttir, f. 6.
september 1974. Börn hennar
eru: Maya Andrea Laufeyj-
ardóttir-Jules, f. 21. nóvember
1995, Jóna Isis Olivia Laufeyj-
ardóttir-Foster, f. 25. mars 1999,
Á þessum fyrstu sumardögum
ársins hafa margar ljúfsárar
minningar sótt á hugann eftir að
þau sorglegu tíðindi bárust mér
að systir mín, Erna Margrét, hefði
fallið frá á síðasta degi vetrar,
langt fyrir aldur fram. Atvikin
höguðu því þannig til að við Erna
ólumst ekki nema að litlu leyti upp
á sama heimili. Raunar kynntist
ég henni best eftir að hún varð
ung móðir á Suðurlandi. Þá heim-
sótti ég hana og Labba oft á Sel-
fossi og síðar í Glóru, býli tengda-
foreldra hennar rétt austur af
Selfossi. Margar bestu minningar
unglingsáranna eru bundnar
þessum heimsóknum. Erna var
höfðingi heim að sækja, og allt
hennar tengdafólk tók okkur opn-
um örmum. Erna nostraði við
okkur yngri systkini sín og sá til
þess að í húsum hennar og Labba
liði okkur ávallt eins og við værum
heima hjá okkur. Ekki spillti hve
góður og örlátur kokkur hún var.
Minnist ég ótal matarboða hennar
sem voru ævinlega mikið tilhlökk-
unarefni. Ég á það ennþá til að
kjamsa á munnvatninu þegar mér
verður hugsað til veitinganna sem
hún galdraði aftur og aftur fram
handa okkur.
Á þessum árum vann Erna m.a.
á Sólheimum og á sambýli fyrir
þroskahamlaða einstaklinga á
Selfossi. Það var henni að þakka
að ég fékk sem ungur drengur að
kynnast öllu því brosmilda og ein-
læga fólki sem þar átti heima.
Alltaf fögnuðu þau manni jafn
innilega þegar maður kom í heim-
sókn. Unun var að sjá hvílíku ást-
fóstri íbúarnir tóku við hana Ernu
systur mína og hve alúðleg hún
var ævinlega við þá. Í þeim heim-
sóknum, sem teygðu sig yfir langt
árabil, var ég ákaflega stoltur af
stóru systur minni. Hún náði
snemma óvenju miklum þroska og
mannskilningi sem helgaðist vafa-
lítið af því hve ung hún tók að að-
stoða móður sína við uppeldi
systkina sinna.
Erna var sláandi lík móður
okkar en báðar þóttu einstaklega
glæsilegar. Þær geisluðu af innri
fegurð og hlýleika. Átti ég það til
að rugla þeim saman. Minnist ég
þess hve mér var eitt sinn brugðið
er ég kom í heimsókn til Ernu til
Vestmannaeyja með gamla Herj-
ólfi ásamt fósturbróður mínum,
illa haldinn af sjóveiki. Hafði ég þá
kvatt móður mína stuttu fyrr í
Reykjavík og gat nú ómögulega
skilið hvernig hún gæti verið kom-
in út í Eyjar á undan okkur til að
taka á móti okkur á bryggjunni.
Og ekki var síður skrýtið að sjá að
hún hafði yngst töluvert frá því að
ég sá hana fyrr um daginn í höf-
uðborginni.
Erna átti ekki áhyggjulausa
æsku frekar en við systkini henn-
ar. Mikil ábyrgð féll snemma í
hennar hlut sem hún axlaði af
festu og hugprýði. Á síðustu ára-
tugum lágu leiðir okkar í ólíkar
áttir og samskiptin urðu stopul.
Mátti Erna glíma við ýmsa erfið-
leika sem hún tókst á við af æðru-
leysi eftir því sem ég gat best séð.
Það var henni mikið gleðiefni að
sjá hóp barnabarna sinna stækka
jafnt og þétt á undanförnum ár-
um. Votta ég þeim og börnum
hennar mína innilegustu samúð.
Megi minning hennar lengi lifa.
Róbert H. Haraldsson.
Erna frænka okkar systra er
látin. Frétt um andlát Ernu kom
okkur á óvart, því hún var fyrir
stuttu að skrifa á facebook-síðu
mína í tilefni af 100 ára fæðing-
arafmæli föður okkar systra.
Pabbi Ernu, hann Ottó, var litli
bróðir hennar mömmu. Mjög kært
var alla tíð þeirra á milli.
Á æskuárum okkar tengdist
hún mjög fjölskyldu okkar. Í
næsta húsi í Vestmannaeyjum
bjuggu amma og afi okkar. Vegna
veikinda móður Ernu og fjarvista
föður sáu þau um uppeldi hennar.
Því voru mikil samskipti okkar á
milli. Ásta passaði Ernu en Gyða
var á svipuðum aldri þannig að
þær léku sér saman.
Þegar Erna var á unglingsárum
fór hún í heimavistarskóla en
dvaldi á heimili okkar í öllum frí-
um.
Um tíma bjó Erna í Neskaup-
stað hjá eldri bróður mömmu.
Einnig í Bjarkarlundi í Eyjum hjá
mági hennar mömmu og konu
hans.
Þegar við lítum til baka koma
margar minningar upp í hugann
frá æsku okkar í Eyjum. Erna var
einstaklega ljúf og hress. Gyða og
Erna léku sér mikið saman og áttu
góðar stundir.
Samband okkar Ernu var alla
tíð gott þótt það hefði verið strjálla
eftir að Erna flutti frá Eyjum.
Alltaf þegar við hittumst var gam-
an að ræða um gamla tíma. Þá var
hlegið og slegið á létta strengi.
Saman gengu Erna, Gyða og
Helga frænka í Aðventistaskólann
í Vestmannaeyjum, þaðan áttu
þær margar góðar minningar.
Fjölskylda okkar var alltaf of-
arlega í huga Ernu og hún leitaði
stundum til okkar t.d. þegar hún
kom með fólk frá sambýli þar sem
hún vann til Eyja. Þá bað hún okk-
ur liðsinnis til að skipuleggja ferð-
ina sem við gerðum.
Það skiptust á skin og skúrir í
lífi Ernu, en hún var rosalega
sterk og stóð alltaf upp og hélt
áfram.
Við systur sendum aðstandend-
um innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um góða frænku lif-
ir.
Ásta og Gyða
Arnmundsdætur.
Erna Margrét
Laugdal Ottósdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Ernu Margréti Laugdal
Ottósdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Alda fæddist á
Ísafirði 11. jan-
úar 1942. Hún lést á
Landakoti 24. apríl
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Jóhann-
esson sjómaður, f.
7. nóvember 1900,
d. 2. júlí 1973, og
Guðrún Guðmunds-
dóttir húsfreyja, f.
1. júlí 1906, d. 24.
janúar 1974. Systkini Öldu:
Valdheiður, f. 1929, d. 1990;
Þóra Jóhanna, f. 1931, d. 2013;
Sigurður Páll, f. 1933, d. 1950;
Kristján Guðbjörn, f. 1935, d.
2018; Eggert Jón, f. 1936, d.
2022; Sigurhjörtur, f. 1940, d.
1984; Rósamunda, f. 1942, d.
1942; Valdimar Magnús, f. 1945;
Baldur, f. 1947, d. 2016; Bragi, f.
1947, d. 2003.
Alda giftist hinn 9. september
20. febrúar 2007. Börn Lauf-
eyjar eru Sævar og Andri. 2)
Jón, f. 6. apríl 1971, maki Gígja
Gylfadóttir, f. 28. júlí 1965. Börn
Jóns eru Dagný Alda, f. 19. ágúst
2001, og Jón Bjartur, f. 11. júlí
2010. Börn Gígju eru Styrmir og
Sölvi. 3) Gunnhildur, f. 3. októ-
ber 1974, börn Aron Ingi, f. 5.
apríl 2001, og Daníel Orri, f. 2.
apríl 2005. 4) Linda, f. 15. apríl
1978, börn Davíð Már, f. 6. októ-
ber 2006, og Logi Freyr, f. 29.
september 2009.
Alda ólst upp á Ísafirði. Eftir
skólagöngu vann hún fisk-
vinnslustörf og við umönnun á
Ísafirði. Hún sinnti húsmóð-
urstörfum og eftir að börnin
urðu eldri vann hún við fisk-
vinnslu og síðar við umönnun í
Seljahlíð.
Alda verður jarðsungin frá
Lindakirkju í dag, 11. maí 2022,
og hefst athöfnin klukkan 13.
1967 á Ísafirði Leifi
Eiríkssyni, f. 23.
nóvember 1939, d.
28. ágúst 2021. For-
eldrar hans voru
Eiríkur Guðmunds-
son, f. 28. júní 1908,
d. 9. maí 1980, og
Herdís Ólöf Jóns-
dóttir, f. 11. ágúst
1912, d. 1. sept-
ember 1996.
Börn Öldu og
Leifs eru: 1) Eiríkur, f. 29. maí
1966, maki Laufey Vilmund-
ardóttir. Börn Eiríks eru: Leifur,
f. 11. desember 1989, barn Eirík-
ur Björn, f. 29. október 2010.
Eva Rut, f. 13. febrúar 1992,
maki Emil Freyr Guðmundsson,
börn þeirra Ævar Nói, f. 18.
september 2018, og Brynjar Áki,
f. 27. september 2020. Börn Ei-
ríks og Laufeyjar: Brynjar, f. 10.
júlí 2004, d. 10. júlí 2004, Birta, f.
Elsku mamma. Hversu sárt
það er að kveðja þig, hugurinn
hefur verið á fleygiferð og ótal
ljúfar minningar sprottið fram
hjá okkur systrum. Þú varst allt-
af boðin og búin að aðstoða og
hjálpa til, orðið nei var einfald-
lega ekki til í þínum orðaforða.
Við munum eftir að þegar við vor-
um að alast upp þá sagðir þú „við
sjáum til“ en aldrei nei.
Alla tíð hafðir þú hag okkar of-
ar þínum eigin og það breyttist
ekkert undir það síðasta hjá þér,
þegar þú sagðir „náðu þér í teppi,
Gunnhildur mín“ eða „fáðu stól
undir fæturna, Linda mín“. Þú
talaðir oft um það hin síðustu ár
hvað við værum heppnar að eiga
gott og náið systrasamband þar
sem þú misstir tvíburasystur
þína á fyrsta ári og hinar systur
þínar tvær svo miklu eldri en þú.
Þú varst mikil hannyrðakona
og allt handverk, sérstaklega
prjónar, lék í höndum þínum.
Fengum við og svo margir aðrir
að njóta fallegra verka þinna;
lopapeysur eftir þig sem allir í
þinni fjölskyldu eiga eru nú enn
dýrmætari en áður. Þú hafðir
mikla unun af barnabörnunum og
fannst gott að hafa þau í kringum
þig. Þér fannst nauðsynlegt að
hafa alltaf eitthvað á prjónunum
og oftar en ekki var það eitthvað
til þess að gleðja börn þín og
barnabörn.
Þar sem aðeins átta mánuðir
eru síðan pabbi kvaddi þessa
jarðvist vitum við að hann hefur
tekið vel á móti þér. Það er ljúft
að hugsa til þess að þið séuð sam-
an á ný. Við vitum að þú ert hjá
okkur og heldur áfram að leiða
okkur í gegn um lífið. Við viljum
þakka þér fyrir allar góðu stund-
irnar sem við áttum með þér.
Þínar dætur,
Gunnhildur og Linda.
Elsku mamma.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís H. Jónsdóttir)
Við kveðjum mömmu með
söknuði og biðjum góðan Guð að
vernda þig. Þín verður sárt sakn-
að, minning þín lifir.
Jón, Eiríkur og Leifsdætur.
Guðrún Alda Jónsdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Guðrúnu Öldu Jóns-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Jón Lárus
„Lalli“ Ingvason
fæddist á Seltjarn-
arnesi 25. mars
1954. Hann lést á
heimili sínu á Ak-
ureyri 2. maí 2022.
Foreldrar hans
voru Ingvi Jónsson,
f. 16. ágúst 1909, d.
6. janúar 1983,
verkamaður og
bóndi, og Elsa Lár-
usdóttir, f. 20. ágúst 1914 í Kan-
ada sem Else Andersen, d. 25.
ágúst 1982.
Jón starfaði lengst af við al-
menn verkamannastörf og sem
sjómaður. Einnig var hann á
tímabili rófubóndi. Jón hafði mik-
inn áhuga á andlegum málum og
var mikill listamaður.
Fyrri eiginkona Jóns var Kol-
brún Rósa Jónsdóttir, f. 8. apríl
1956, þau skildu.
Dóttir Jóns og Kolbrúnar er
Rannveig Elsa, f. 20. mars 1973.
Barnsfaðir Rannveigar er Hörður
Viðar Arnarson, f. 22. apríl 1972.
Saman eiga þau soninn Sigurð
Má, f. 3. júní 1992. Sambýliskona
Sigurðar er Alda Ýr Guðmunds-
dóttir, f. 18. sept. 1991, saman
eiga þau börnin Aþenu Vigdísi, f.
7. júní 2013, og Guðmund Rafn, f.
8. janúar 2017.
Eiginmaður Rannveigar er
Gunnar Arnar Andersen, f. 22.
mars 1956. Saman eiga þau syn-
ina Sigurmar Gunn-
ar, f. 15. ágúst 1996,
Davíð Óskar, f. 18.
júlí 1998, Brynjar
Darra, f. 6. okt.
2001, og Hilmar Eg-
il, f. 29. ágúst 2007.
Seinni eiginkona
Jóns var Gerður
Guðrún Þorvalds-
dóttir, f. 4. apríl
1960, þau skildu.
Dóttir Jóns og
Gerðar er Jóhanna, f. 8. apríl
1977. Unnusti Jóhönnu var Árni
Ragnar Árnason, f. 7. sept. 1972,
d. 21. maí 2009, þau slitu sam-
vistir. Saman áttu þau soninn
Elmar Frey Heiðdal, f. 25. júlí
1997. Sambýliskona Elmars er
Sara Dröfn Jörgensen, f. 15. jan-
úar 1998.
Eiginmaður Jóhönnu er Gunn-
ar Brynjólfsson, f. 15. júlí 1968.
Saman eiga þau soninn Svein-
björn Ara, f. 3. júlí 2006.
Sonur Jóns og Gerðar er Ingvi
Hrannar, f. 31. des. 1986. Sam-
býliskona hans var Sandra Dís
Leifsdóttir, f. 21. maí 1988, þau
slitu samvistir. Saman eiga þau
börnin Andra Má, f. 29. júní 2009,
og Viktoríu Mist, f. 8. mars 2011.
Sambýliskona Jóns var Anna
Carla Örlygsdóttir, f. 10. sept.
1945, d. 8. júlí 2016.
Útför hans fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 11. maí
2022, klukkan 13.
Fáein minningarorð um fyrr-
verandi tengdason minn til nokk-
urra ára, sem lést 2. maí 2022, ég
efa ekki að úr því sem komið var
væri hann ánægður með þessa
dagsetningu, hún var alveg í
hans anda. Þessar línur verða
eins og hann kom mér fyrir sjón-
ir þessi ár sem við vorum tengd,
en þótt hagir hans breyttust þá
voru alltaf tengsl á milli. Hver
var hann, hvaðan kom hann,
bæði Íslendingur og Dani en
meiri íslenskumaður enda alinn
upp að mestu eða öllu leyti hér á
landi. Hann brallaði margt um
ævina og var dugnaðarforkur og
gekk í öll verk ef því var til að
dreifa.
Hann hafði gaman af allri
ræktun og ræktaði ýmislegt eins
og rófur sem hann var með tölu-
vert af um tíma og kartöflur. Ég
myndi segja að hann hefði getað
orðið góður bóndi á því sviði, en
var ekki hrifinn af kúm eða kind-
um, en elskaði hunda. En það eru
ekki allir eins. Hann hafði margt
til brunns að bera annað. Við vor-
um ekki alltaf sammála en gátum
unnið úr því, er við vorum saman
að verki, við sögðum okkar mein-
ingu og síðan var haldið áfram.
Meðal annars máluðum við tvö
þök á húsum og þá varð ágrein-
ingur þegar stiginn fór af stað en
það var þyngdarmunurinn á okk-
ur sem orsakaði það. Hann var
dugnaðarforkur og ekki fínn með
sig, hann var bóngóður á meðan
heilsan var í lagi. Eitt var það
sem maður var hissa á, hvað
hann var listfengur. Hann málaði
svo flottar myndir bæði eftir fyr-
irmyndum og frá grunni. Það eru
til mörg málverk eftir hann og
svo var hann góður kokkur. Hon-
um var margt til lista lagt.
Seinni hluta ævinnar hugsaði
hann mikið um andleg málefni og
ég held að það hafi hjálpað hon-
um mikið.
Ég hitti hann stuttu fyrir and-
látið, sem betur fer, ég hefði ekki
viljað missa af þeirri stund, hún
var mjög góð. Svo þakka ég fyrir
það sem við höfðum saman að
sælda um dagana og sendi sam-
úðarkveðjur til aðstandenda.
Hanna.
Jón Lárus Ingvason
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR VILHJÁLMS,
Hornbrekkuvegi 5, Ólafsfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 7. maí. Útförin fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn 16. maí
klukkan 14.
Gísli Kristinsson Ragnhildur Vestmann
Sigurður Kristinsson Þorgerður Jósepsdóttir
Íris Hrönn Kristinsdóttir Ingvar Karl Þorsteinsson
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HILDUR PÁLÍNA HERMANNSDÓTTIR
frá Flatey á Skjálfanda,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
2. maí. Útför fer fram frá Húsavíkurkirkju
mánudaginn 16. maí klukkan 14.
Sigurveig Ingunn Emilsdóttir Marinó Grétar Scheving
Hulda Emilsdóttir Hafliði Þórsson
Hermann Unnsteinn Emilss. Heiða Rós Jónasdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn