Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.
U S A TO D AY
89%
92%
81%
Total Film
Radio Times
Empire Rolling StoneLA Times
Colin Firth – Matthew Macfadyen – Kelly Macdonald
THE LEGACY CONTINUES
72%
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
J
ussi Adler-Olsen les samfélag-
ið og tíðarandann vel og
speglar vel mannlífið og þá
sérstaklega það sem að af-
brotum snýr í frábærum spennusög-
um sínum. Natríumklóríð hittir alger-
lega í mark og er þörf lesning, því þó
um skáldsögu sé að ræða er hún
einkar trúverðug og
lýsir að mörgu leyti
ríkjandi stöðu vel.
Náttúruhamfarir,
kórónuveirufarald-
ur, trúmál, minni-
hlutahópar, flótta-
fólk, fordómar, svik,
slys, ofbeldi, lim-
lestingar, morð,
blóðpeningar, hrottar, illska, reiði,
hatur, hefnd og refsing eru lýsandi
orð um efni bókarinnar. Jussi Adler-
Olsen er á tánum, gerir sér mat úr
helstu málum líðandi stundar og fær-
ir svo vel í spennusagnaformið að
varla verður betur gert.
Boðskapurinn leynir sér ekki og
tvöfeldnin ríður ekki við einteyming.
Svo virðist sem meira máli skipti að
knésetja leiðtoga deildar Q, lögreglu-
teymisins sem aldrei sefur og ann sér
ekki hvíldar, ekki einu sinni á jólum,
fyrr en málin leysast, heldur en að
taka á fjöldamorðingjum, sem ganga
lausir. Staðreyndir og saklaus uns
sekt er sönnuð á ekki heima, þar sem
hjarðhegðun ræður ríkjum, heldur
skiptir öllu að úthrópa menn, svipta
þá ærunni og þess vegna lífinu.
Afbrot eru framin í Guðs nafni með
skírskotun til Sódómu og Gómorru og
vísun í helstu hrotta sögunnar. Þjálf-
un í kvennaklúbbi, svokölluðu systra-
teymi, til að taka á djöflunum er eins
og verknaðurinn réttlætt með því að
konurnar séu sendiboðar Guðs, út-
valdar „í herferð gegn illri háttsemi“
(s. 119).
Siðblindan á sér engin takmörk. Í
þessari vitskertu veröld eru líka sak-
leysingar, sem eiga sér einskis ills
von, en verða fyrir barðinu á baráttu-
konum í stríði gegn illu eðli.
Natríumklóríð er yfirgripsmikil
spennusaga. Stungið er á mörgum
kýlum í vitskertum heimi og stutt er í
refsivöndinn en eins og þekkt er í
raunheimi er steinum gjarnan kastað
úr glerhúsi.
Morgunblaðið/Kristinn
Jussi Adler-Olsen Hann „er á tánum, gerir sér mat úr helstu málum líðandi
stundar og færir svo vel í spennusagnaformið að varla verður betur gert“.
Steinum kastað
úr glerhúsi
Reyfari
Natríumklóríð bbbbb
Eftir Jussi Adler-Olsen.
Jón St. Kristjánsson þýddi.
Vaka-Helgafell 2022. Kilja. 453 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR» Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran
og Hrönn Þráinsdóttir píanóleik-
ari komu í hádeginu í gær fram á tón-
leikum í röðinni Kúnstpásu í Norður-
ljósum Hörpu. Yfirskrift tónleikanna,
sem voru á vegum Íslensku óper-
unnar, var „Ástin nærir og særir“ og
fluttu þær stöllur bæði valdar óperu-
aríur og sönglög. Þar á meðal hljóm-
uðu aría Despinu eftir Mozart, aðrar
eftir Poulenc og Anouilh, og „Í fjar-
lægð“ eftir Karl Ó. Runólfsson.
Morgunblaðið/Eggert
Flytjendurnir Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari á sviðinu í Norðurljósasalnum.
Í Hörpu Ása Áskelsdóttir og Guðfinna Agnarsdóttir. Mættu Rut Jóhannsdóttir og Lárus Ingólfsson.
Gestir Theodóra Þorsteinsdóttir og Thor Aspelund.
Jóna og Hrönn komu fram á Kúnstpásu í Hörpu gær