Morgunblaðið - 21.05.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.05.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 PORTÚGAL 9 DAGA FERÐ, FLUG, GISTING OG FARARSTJÓRN 29. MAÍ - 07. JÚNÍ CLUBE ALBUFEIRA 3* SUPERIOR ÍBÚÐ VERÐ FRÁ77.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN 07. - 14. JÚNÍ GRAND MUTHU FORTE 4* ÍBÚÐ MEÐ 1 SVEFNHERBERGI VERÐ FRÁ89.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS V IN S Æ LT BEINT F LUG BÁÐAR LEIÐIR 39.90 0 KR. TILBOÐTAKMARKAÐFRAMBOÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aldís Hafsteins- dóttir, fráfarandi sveitarstjóri í Hveragerði og formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, verður næsti sveitarstjóri í Hrunamanna- hreppi. „Niðurstöður kosninga í Hveragerði gerðu það að verkum að ég held ekki stöðu minni þar. Þau voru alveg ákveðin í því að bjóða mér þessa stöðu í Hrunamannahreppi og þegar ég var búin að skoða þetta og kynna mér þeirra stefnuskrá og málefni þá leist mér afskaplega vel á,“ segir Aldís við blaðamann Morgunblaðs- ins. „Auðvitað er leiðinlegt að vera að yfirgefa sveitarstjórnarmálin í Hveragerði en svona fóru kosning- arnar, þá taka bara við ný tækifæri og ný ævintýri.“ anton@mbl.is Aldís næsti sveit- arstjóri Hruna- mannahrepps Aldís Hafsteinsdóttir Kristján Jónsson kris@mbl.is „Við höfum verið að fylgjast með þróun á áburðarverði. Okkur sýnist það vera komið í jafnvægi í augna- blikinu. Það er hætt að hækka og ekki sjáanlegar neinar hækkanir á næstunni. Rétt er hins vegar að taka fram að í þessari miklu óvissu sem fylgir stríðsástandinu í Úkraínu er ekki gefið upp verð neitt fram í tím- ann. Verðið á áburði í Evrópu gildir kannski viku fram í tímann um þess- ar mundir. Mestu áhyggjurnar snúast um hvort við getum nálgast áburð á haustdögum en við erum að athuga hvort við þurfum að hafa meiri fyrir- hyggju í málinu og áburðurinn yrði þá fenginn fyrr til landsins,“ sagði Gunnar Þorgeirsson framkvæmda- stjóri Bændasamtakanna þegar Morgunblaðið spurði hann út í áburðarverð í gær. 25% hækkun eftir innrásina Guðmundur Svavarsson fram- kvæmdastjóri Reykjagarðs kannast einnig við þá stöðu að verð á aðföng- um fyrir kjúklingaræktina gildir nú bara í einhverja daga enda ekki hægt að gera áætlanir fram í tímann á meðan óvissan er allsráðandi í Úkraínu. „Heimsmarkaðsverð á fóðri og hráefnum hefur hækkað um 43% samkvæmt nýjustu upplýsingum sem ég hef. Þá þyrfti kjúklingur í raun að hækka um 20 til 25% út úr búð en fyrirtækin eru að mestu leyti að taka þetta á kassann. Við reynum að koma einhverjum verðhækkunum út en við þurfum einnig að sýna ábyrgð,“ segir Guðmundur og vísar þar til verðbólgunnar sem hefur vax- ið á Íslandi í framhaldi af aukinni verðbólgu víða erlendis. Guðmundur segir lítið hægt að gera annað en að bíða átekta og halda í bjartsýnina. „Það er svo sem lítið hægt að gera. Það hefur hægt á fóðurverðs- hækkunum og verðið hefur verið stöðugt síðustu vikurnar. En það hefur ekki farið niður aftur. Það skýrist líklega ekki fyrr en menn vita hvernig horfurnar verða varð- andi uppskeruna í haust. Við höfum keypt mest af okkar fóðri frá einum stærsta fóðurframleiðanda á Norð- urlöndunum og hann hefur alla vega tryggt okkur nægt magn á næst- unni.“ Óvissa varðandi næsta vetur Sigurður Máni Helguson, fram- kvæmdastjóri hjá Brauði og co, tek- ur undir að óvissan varðandi fram- boð og verð á hrávöru næsta vetur sé mikil. „Við erum langmest í lífrænt vott- uðu hráefni og hráefnisverð til okkar hefur verið 25-35% hærra en mark- aðsverðið á ólífrænu. Lífræna hrá- efnið hefur ekki hækkað eins mikið hlutfallslega að undanförnu. Við fáum allt okkar hveiti frá Ítalíu og reynum að gera samninga til alla vega eins árs í senn. En það er gríð- arleg óvissa varðandi næsta vetur. Maður gerir sér grein fyrir því að þegar einn markaður lokast þá leita menn á aðra markaði og því geta fylgt verðhækkanir. Önnur hrávara hefur hækkað eins og fræ, hnetur og sykur auk þess sem Úkraína er einn stærsti fram- leiðandi sólblómaolíu og hún hefur hækkað gríðarlega mikið. Þær hækkanir sem hafa átt sér stað hafa aðeins jafnað sig og gengishækkunin hjálpaði okkur Íslendingum aðeins. Maður veit ekkert hvað gerist árið 2023.“ Íslensk fyrirtæki finna fyrir verðhækkunum á hrávöru - Hærra orkuverð vegna stríðsátaka hefur margvísleg áhrif í álfunni Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Korn Matvælaframleiðsla hefur ekki farið varhluta af verðhækkunum. Andrés Magnússon andres@mbl.is Lítið miðaði í þreifingum milli borg- arstjórnarflokka um myndun meiri- hluta í gær. Líkt og aðra daga vik- unnar var nokkuð um fundi og símtöl, bæði milli flokka og innan þeirra, en fátt áþreifanlegt lá eftir þreifingarnar allar. Þrátt fyrir að fram hafi komið af hálfu Viðreisnar að ekki sé óhugs- andi að flokkurinn komi að meiri- hlutamyndun til hægri heldur hann fast í samflotið með Samfylkingu og Pírötum, sem flokkurinn hefur starf- að með í hinum fallna meirihluta. Sjálfstæðismenn hafa bundið nokkrar vonir við að Viðreisn láti til- leiðast í samstarf, enda þurfa þeir að óbreyttu að reiða sig á stuðning bæði Viðreisnar og Flokks fólksins til þess að geta myndað meirihluta með Framsókn. Viðmælendur blaðsins á vinstri vængnum segja hins vegar óhugs- andi að Viðreisn fari með Sjálfstæð- isflokki í meirihluta; hún muni frek- ar sitja í minnihluta en að leiða hann til valda í Reykjavík á ný. Sem vissu- lega gæti orðið raunin, því myndi Samfylking, Framsókn og Píratar 12 manna meirihluta væri Viðreisn í raun ofaukið við það borð. Morgunblaðið/Eggert Ráðhúsið Þrátt fyrir miklar umræður milli nær allra borgarstjórnarflokka og ótal samstarfsfleti hefur lítið þokast til eiginlegra meirihlutaviðræðna. Lítil hreyfing í þreif- ingum í Reykjavík Sjómaðurinn Haukur Sveinn Hauksson hefur að undanförnu veitt athygli dauðum súlum í Faxa- flóa, en þar hefur hann verið á strandveiðum. „Ég stunda strandveiðar þarna og ræ frá Hafnarfirði. Ég hef farið fjóra túra í Faxaflóa og séð dauðar súlur þarna í hvert einasta skipti. Stundum upp undir níu til tíu fljót- andi í sjónum,“ segir Haukur en aðrar fuglategundir virðast haga sér eins og þær eiga að sér. „Ég hef einnig séð súlur sem eru eitthvað slappar og ekki á flugi. Ég man ekki eftir að hafa séð þetta áður og aðrir fuglar virðast vera hressir. Þarna er til dæmis töluvert mikið um lunda og hann er hress,“ sagði Haukur Sveinn þegar Morg- unblaðið heyrði í honum hljóðið í gær. Súlan er sjófugl sem kunnugt er, stór og ljós. kris@mbl.is Dauðar súlur áber- andi í Faxaflóanum Íslendingar taka mest af áburði frá Noregi. Orkuverð í Evrópu hef- ur hækkað eftir innrás Rússa í Úkraínu og það hefur sín áhrif. „Orkuverðið í Evrópu hefur haft áhrif á verðhækkanir á áburði. Heilmikla orku þarf til að búa til áburð og stór hluti þessarar orku hefur verið drif- inn áfram af gasi. Til dæmis í Þýskalandi og að hluta til í Nor- egi. Nú er gasverðið í hæstu hæðum sem gerir það að verk- um að áburðurinn er orðinn svona dýr. Ég fagnaði því mjög þegar HS Orka, Kaupfélag Skag- firðinga og Fóðurblandan skrif- uðu undir viljayfirlýsingu um að kanna hvort fýsilegt sé að reisa Áburðarverksmiðju á Íslandi. Mesta gagnrýnin varðandi tilbúinn áburð er hversu mikil mengun fylgir. En mengunin er tilkomin vegna þess að gas er notað til að búa hann til. Þess vegna veltir maður fyrir sér hvort ekki sé hægt að búa til áburð á Íslandi með grænni orku,“ segir Gunnar Þorgeirs- son. kris@mbl.is Orkuverðið hefur áhrif VERÐBÓLGA Í EVRÓPU Gunnar Þorgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.