Morgunblaðið - 21.05.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Eyþór Óskarsson, stýrimaður og
varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni,
frá Stykkishólmi varð á miðvikudag
annar Íslendinga til að útskrifast úr
skóla bandarísku strandgæslunnar,
US Coast Guard Academy. Eyþór
hefur undanfarin fjögur ár stundað
nám í stjórnun við skólann sem er í
New London í Connecticut-ríki, en
þaðan útskrifast verðandi stjórn-
endur bandarísku strandgæslunnar,
upplýsir Landhelgisgæsla Íslands.
Fyrir tilstuðlan Landhelgisgæsl-
unnar fékk Eyþór skólavist við
skólann árið 2018 og er hann einn
af níu erlendum nemendum sem út-
skrifuðust. Alls útskrifuðust 252
nemendur sem er mesti fjöldi í sögu
skólans.
Mikil hátíðarhöld fóru fram og
flugu björgunarþyrlur Strandgæsl-
unnar yfir svæðið til heiðurs nýjum
sjóliðsforingjum sem að gömlum sið
fleygðu húfum sínum á loft.
Fyrir 35 árum
Foreldrar Eyþórs, þau Helga
Sveinsdóttir og Óskar Eyþórsson,
voru viðstödd útskriftina. Þar voru
einnig Georg Kr. Lárusson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, og Ás-
grímur L. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs. Árið
1987, eða fyrir 35 árum, útskrifaðist
Ásgrímur fyrstur Íslendinga frá
skólanum en skólafélagi hans, Willi-
am Kelly aðstoðarflotaforingi,
stýrði útskriftinni. Kelly er nú
skólastjóri skólans.
Kamala Harris, varaforseti
Bandaríkjanna, og Karl Schultz,
flotaforingi og yfirmaður strand-
gæslunnar, ávörpuðu útskrift-
arnemana og fjölskyldur þeirra.
Bandaríska strandgæslan getur
rakið sögu sína til ársins 1790 en
skóli stofnunarinnar var stofnaður
árið 1876. Ríkar hefðir eru innan
skólans og má nefna að nemendum
er gert að sigla á seglskipi Strand-
gæslunnar USCGC Eagle. Skipið
hefur meðal annars komið nokkrum
sinnum við á Íslandi og hefur vakið
töluverða athygli enda er hæsta
mastrið 45 metrar.
Konum var fyrst hleypt í skólann
1976 og var fyrsti erlendi nemand-
inn, Miguel Sanchez frá Filipps-
eyjum, útskrifaður árið 1980.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Útskrift, f.v.: Ásgrímur L. Ásgrímsson, Óskar Eyþórsson, Eyþór Óskarsson, Helga Sveinsdóttir og Georg Lárusson.
Annar Íslendinga sem
útskrifast frá skólanum
- Eyþór Óskarsson lauk námi við Strandgæsluskólann
Ljósmynd/Coast Guard Academy
Nemendur Samkvæmt gamalli hefð köstuðu hinir útskrifuðu höttum sínum.
Vinna hefst á mánudag við lagn-
ingu nýs fjarskiptasæstrengs Far-
ice frá Hafnarvík í Þorlákshöfn til
Galway á Írlandi þaðan sem land-
strengur tekur við sem lagður verð-
ur til Dublin. Gert er ráð fyrir að
strengurinn verði, ef allt gengur
samkvæmt áætlun, tilbúinn til notk-
unar fyrir árslok.
Bandaríski strengjaframleiðand-
inn SubCom hefur framleitt streng-
inn og verður kapalskipið Durable
notað til að leggja hann en skipið
kom til Reykjavíkur í gærmorgun.
Farice ehf., félag í fullri eigu rík-
isins, hefur síðustu ár unnið að und-
irbúningi lagningar nýja strengsins
en með honum er nokkurn veginn
tryggt að landið verði aldrei sam-
bandslaust. Fyrir eru tveir fjar-
skiptastrengir, Farice 1, sem liggur
til Skotlands með tengingu við Fær-
eyjar, og Danice sem liggur til Dan-
merkur.
Nýr sæ-
strengur
til Írlands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Félagsmenn í VM, félagi vélstjóra og
málmtæknimanna, vilja leggja mikla
áherslu á aukinn kaupmátt launa í
næstu kjarasamningum á vinnu-
markaðinum og einnig leggja þeir
áherslu á að auka ráðstöfunartekjur
heimilanna. Þetta er meðal þess sem
fram kemur í viðhorfskönnun sem
VM gerði meðal félagsmanna á því
hvernig semja ætti í næstu kjara-
samningalotu en gildandi samningar
losna 1. nóvember. Niðurstöðurnar
eru birtar á vefsíðu VM.
Voru félagsmenn meðal annars
spurðir hverjar áherslurnar ættu að
vera varðandi launahækkanir við
gerð næstu samninga og voru svar-
endur beðnir um að raða í mikilvæg-
isröð þeim atriðum sem þeir vilja
leggja mesta áherslu á. Aukinn
kaupmáttur varð efst á listanum og
því næst komu áherslur á auknar
ráðstöfunartekjur, lága verðbólgu
og lága vexti. Valkostirnir um
áherslu á almenna hækkun allra
launa og hækkun lágmarkslauna
sérstaklega fengu mun lægri ein-
kunnir.
Þegar spurt var hvort föst krónu-
töluhækkun eða prósentuhækkun
skili betri ávinningi skiptust fé-
lagsmenn í þrjá hópa. Stærsti hóp-
urinn eða 36% sögðust vilja semja
um prósentuhækkun, 34% sögðust
vilja fasta krónutöluhækkun og 27%
vilja fara blandaða leið krónutölu-
hækkana og prósentuhækkana.
Einnig kom fram að 73,53% þeirra
sem tóku afstöðu segjast vera tilbúin
að fara í verkfall til að knýja á um
ásættanlegan kjarasamning.
Af þeim sem afstöðu tóku vilja
87,26% að lögð verði áhersla á að ein-
földuð verði stytting vinnuvikunnar
og að hámark dagvinnu verði 36 klst.
„86,55% af þeim sem svöruðu
sögðu að leggja ætti áherslu á þrí-
hliða samkomulag á milli launafólks,
atvinnurekanda og stjórnvalda til að
tryggja kaupmátt og stöðugleika.“
Leggja áherslu
á kaupmáttinn
- Mikill áhugi á þríhliða samkomulagi
Morgunblaðið/Golli
Við störf VM undirbýr kröfugerð.
Félagsmenn eru á fjórða þúsund.