Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stjórnendur Gufu ehf., móður-
félags baðstaðarins Fontana á
Laugarvatni, hafa áhuga á að
stækka staðinn og breyta. Meðal
annars er vilji til að gera laug-
arnar náttúrulegar og jafnvel að
hafa eina úti í Laugarvatni.
Gufa hefur sótt um stækkun
byggingarlóðar til sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar, að tvöfalda kaup
á heitu vatni og um stækkun bíla-
stæða. Sigurður Rafn Hilmarsson
framkvæmdastjóri tekur fram að
áformin séu enn á frumstigi. „Við
höfum áhuga á að breyta staðnum
og stækka hann og tileinka okkur
nýja tæknimöguleika og fleira sem
við höfum ekki verið að nýta okkur
til þessa,“ segir hann.
Yrðu náttúrulegar laugar
Sigurður segir að áhugi sé á því
að breyta lögun lauganna. Tengja
þær náttúrunni meira en nú þegar
er, jafnvel að hafa eina laug úti í
sjálfu vatninu. Hugmyndin er að
gera laugarnar sem nú eru bland-
aðar með klór að náttúrulegum
laugum.
Hugmyndin er að stækka bún-
ingsaðstöðu. Meiri kröfur eru nú
gerðar til aðstöðu gesta en áður
var. Það yrði meðal annars gert
með því að lengja húsið í báða
enda. Einnig að byggja yfir garð-
inn sem er í miðju húsinu og skapa
þar kaffiaðstöðu.
„Það eru margar spennandi hug-
myndir í gangi og verður gaman
að sjá lokaútgáfuna,“ segir Sig-
urður. Hann segir að fram-
kvæmdir hafi ekki verið tímasettar
enda eigi eftir að ganga frá breyt-
ingu á deiliskipulagi, en sjálfur
hefði hann viljað hefja fram-
kvæmdir í haust eða fyrrihluta
vetrar.
Leitað að heitu vatni
Vegna stækkunarinnar þarf
Fontana að tvöfalda kaup sín á
heitu vatni. Ásta Stefánsdóttir
sveitarstjóri segir að vatnið úr
hvernum á Laugarvatni dugi nú-
verandi starfsemi og íbúum á
Laugarvatni en lítið umfram það.
Hún segir að til standi að gera
rannsóknarholur í sumar til að
finna stað til að bora vinnsluholu
til að virkja meira vatn.
Sveitarfélagið hefur tekið vel í
beiðni um stækkun á byggingarreit
og bílastæðum og verða gerðar til-
lögur að breytingu á deiliskipulagi
til að það geti orðið að veruleika.
Hlökkum til sumarsins
Laugarvatn Fontana er að koma
út úr erfiðum tímum, eins og önn-
ur fyrirtæki í ferðaþjónustu, en
Sigurður ber sig vel. „Það hefur
verið töluvert að gera að undan-
förnu, í hvataferðum og slíku, og
svo finnur maður hvernig aðsóknin
stigmagnast í maí. Við horfum
bjartsýn inn í vorið og hlökkum til
sumarsins. Bókunarstaðan er fín
og við erum afskaplega fegin að
vera komin inn í eitthvert venju-
legt ástand, vonandi,“ segir Sig-
urður Rafn.
Áforma baðlaug úti í Laugarvatni
- Fontana hefur
hug á að stækka bað-
laugar og aðra að-
stöðu á Laugarvatni
Morgunblaðið/Kristinn
Laugarvatn Gestir heilsulindarinnar Fontana njóta ylsins frá hvernum. Áform eru um að tengja laugarnar betur við vatnið og gera þær náttúrulegar.
Auka þarf fjárframlög ríkisins til
SÁÁ, þar sem fjárveitingar til sam-
takanna í ár eru um 300 milljónum
króna of lágar að mati Samtaka fyr-
irtækja í velferðarþjónustu (SFV).
Benda SFV á í umsögn við fjármála-
áætlun til ársins 2027 að afkastageta
Sjúkrahússins Vogs sé ekki fullnýtt
með samningum við ríkið. Á þessu
ári hafi eftirspurn eftir meðferð fyrir
45 ára og yngri aukist mjög. „SÁÁ fá
einungis greitt fyrir 90 sjúklinga í
lyfjameðferð við ópíóðafíkn en þeir
eru yfir 230 í meðferðinni í dag,“ seg-
ir í umsögn SFV
Einnig kemur fram að launakostn-
aður SÁÁ sé verulega íþyngjandi
bæði vegna kjarasamningsbundinna
hækkana og styttingar vinnuvikunn-
ar. „Þau hafa þurft að fjölga stöðu-
gildum á meðferðarsviði til að manna
lágmarksstarfsemi á vöktum þar
sem síðustu ár hafa þau rekið rekst-
urinn á lágmarksvinnuafli vegna úr-
eltra þjónustusamninga,“ segir enn-
fremur og bent er á að þörf sé á
auknu fjármagni til að geta haldið
starfsemi meðferðarúrræðisins á
Vík opinni yfir sumarorlofstíma
starfsfólks. Þá sé biðlisti eftir sál-
fræðiþjónustu fyrir börn 8-18 ára um
fjórir mánuðir og nauðsynlegt sé að
geta bætt við starfsfólki.
Uppfæra þarf fjármálaáætlun
Samtökin hvetja einnig til þess að
fjármálaáætlunin verði uppfærð með
tilliti til nýrra þjónustusamninga
sem ríkið hefur gert við hjúkrunar-
heimilin og þeirra fjárveitinga sem
ríkið hefur þar skuldbundið sig til. Í
áætluninni eins og hún er í dag er
gert ráð fyrir að framlög í rekstur
fari úr 65.608 milljónum kr. í 68.696
milljónir á fimm árum. Þessi hækkun
nemi um 0,9% á ári, sem sé tölu-
vert frá því að endurspegla kostnað
ríkisins vegna þessarar þjónustu.
Frá því að áætlunin var upphaf-
lega lögð fram hafa náðst þjónustu-
samningar milli ríkisins og hjúkrun-
arheimilanna sem feli í sér aukinn
kostnað á næstu árum sem ríkið hafi
skuldbundið sig til að greiða langt
umfram umrædda 0,9% árlegu
hækkun. Fram undan séu kjara-
samningar og verðbólga er mikil
þessa dagana. omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Vogur Launakostnaður SÁÁ er sagður vera verulega íþyngjandi.
SÁÁ þarf 300 millj.
viðbótarframlag
- Greitt fyrir 90 sjúklinga í lyfjameð-
ferð við ópíóðafíkn en þeir eru yfir 230Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
er til sölu
Tísku- og snyrtivöruverslunin hefur verið starfrækt í verslunarmiðstöðinni Glæsibæ
frá því hún tók til starfa árið 1970. Eigendum þykir tími til kominn að aðrir taki við
keflinu og vilja selja rekstur, birgðir og innanstokksmuni.
Auk snyrtivara selur verslunin fatnað og fylgihluti með áherslu á aldurshópinn 40+.
Hlutfall fatnaðar í sölu er um 50%. Í versluninni eru seld þekkt alþjóðleg
snyrtivörumerki s.s. Chanel, Lancome, Guerlain, Helena Rubenstein, Bioterm og
Bioeffect auk ilmvatna.
Verslunin er vel staðsett í rúmlega 100 fm. leiguhúsnæði. Stöðugildi eru að
jafnaði 2-3. Hentar vel einum eða fleiri einstaklingummeð áhuga á þessu sviði.
Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Bergþórsdóttir | Kontakt fyrirtækjaráðgjöf
brynhildur@kontakt.is | 868 8648