Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 11

Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Sumaryfirhafnir B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni laxdal.is Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Verð 22.980 E-listi Eyjalistans og H-listi Fyrir Heimaey skrifuðu í gærmorgun und- irsamkomulag um meirihlutasam- starf í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Flokkarnir tveir áttu einnig í meiri- hlutasamstarfi fyrir kosningar. Íris Róbertsdóttir heldur áfram sem bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Páll Magnússon, oddviti Fyrir Heimaey, verður forseti bæjar- stjórnar og Njáll Ragnarsson, odd- viti Eyjalistans, formaður bæjar- ráðs. Að sögn Páls Magnússonar voru allir sammála um að Íris, sem sat í þriðja sæti lista H-lista, skyldi halda áfram sem bæjarstjóri. „Þetta gekk hratt og örugglega fyrir sig í já- kvæðum anda,“ sagði hann um meirihlutaviðræðurnar. „Við erum mjög sátt við þetta. Þetta verður þá framhald af því góða og árangurs- ríka samstarfi sem verið hefur síð- ustu fjögur árin og felur í sér góð fyrirheit fyrir næstu fjögur.“ „Þetta er að mörgu leyti áfram- hald á þeirri stefnu sem við höfum rekið síðustu fjögur árin, þar sem áherslan er á fjölskyldu- og fræðslu- mál að miklu leyti og uppbyggingu innviða og þjónustu við íbúa Vest- mannaeyjabæjar,“ sagði Njáll Ragn- arsson við mbl.is. Um er að ræða fyrsta meirihluta- samstarfið sem samþykkt hefur ver- ið eftir sveitarstjórnarkosningarnar, ef frá eru talin þau sveitarfélög þar sem hreinn meirihluti náðist. Njáll segir að auðvitað hafi flokkarnir þurft að ræða ákveðin atriði en að áherslur flokkanna rími vel saman. „Við erum búin að vinna að þessari stefnu síðastliðin fjögur ár svo þetta var svolítið eins og að endurnýja hjú- skaparheitin. Við vorum ekki á nein- um byrjunarreit, við byggðum þetta á góðum grunni.“ Hann sagðist vera sáttur við verkaskiptinguna. „Við höfum unnið þetta mjög vel saman, Íris og okkar fulltrúar. Íris hefur að öllu leyti stað- ið sig vel sem bæjarstjóri. Við treyst- um henni fullkomlega til þess að halda því áfram.“ Skref í átt að gjaldfrjálum leikskóla Í málefnasamningi flokkanna seg- ir að þeir muni halda áfram fjárfest- ingu í innviðum samfélagsins í Heimaey. Ætla þeir að halda skóla- og fræðslumálum áfram í forgangi, t.a.m. með því að efla þjónustu í leik- og grunnskólum. Þá verða fyrstu skref að gjaldfrjálsum leikskóla tek- in í haust fyrir börn í Víkinni. Sömu- leiðis verða teknar upp heim- greiðslur vegna 12 til 16 mánaða barna sem ekki eru á leikskóla. Þá ætla flokkarnir að byggja þjón- ustuíbúðir fyrir eldra fólk sem og íbúðir fyrir 60 ára og eldri í sam- starfi við einkaaðila. Meirihlutinn í Vestmannaeyjum sér fyrir sér að þrýsta á ríkið um að staðið verði við loforð um bætta Landeyjahöfn, að flug milli lands og Eyja verði ríkisstyrkt o.s.frv. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Samstarf Helga Jóhanna Harðardóttir og Njáll Ragnarsson, bæjarfulltrúar E-lista, Íris Róbertsdóttir, Páll Magn- ússon og Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, fulltrúar H-lista, eftir að samningur um samstarf var undirritaður í gær. Meirihlutasamstarf endurnýjað í Eyjum - Eins og að endurnýja hjúskaparheitin, segir oddviti E-lista Klak – Icelandic Startups efndi til viðburðar í vikunni þar sem fulltrúar sprotafyrirtækja kynntu hvaða lausnir þeir sæju á því að hraða inn- leiðingu hringrásarhagkerfisins á Íslandi. Að sögn Andrésar Jakobs Guð- jónssonar, verkefnastjóra Klaks – Icelandic Startups, var húsfyllir í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þar sem fulltrúar sprotafyrirtækj- anna tóku þátt í svokölluðum Shark Tank en hver þeirra fékk þrjár mín- útur til að kynna hugmynd sína og þeir þurftu svo að svara erfiðum spurningum tveggja „hákarla“, þeirra Margrétar Ormslev Ásgeirs- dóttur, fjárfestingarstjóra hjá Brunni Ventures, og Gests Péturs- sonar, eiganda Pyxis, um verkefnin. Einnig var hringborð þar sem Gísli Marteinn Baldursson fjölmiðla- maður ræddi við Guðlaug Þór Þórð- arson umhverfisráðherra, fjárfest- inn Bala Kamallakharan og Ragnheiði Magnúsdóttur sérfræð- ing um hringrásarhagkerfið. Andrés segir að í umræðunum hafi verið farið vítt og breitt í um- ræðu um grænvæðingu heimsins og hvernig megi hraða innleiðingu hringrásarhagkerfisins á Íslandi og stuðla að sjálfbæru samfélagi. Hann sagði að fulltrúar sprotafyrirtækj- anna hefðu fengið lof frá öllum í um- ræðunni og miklar vonir væru bundnar við frekari þróun á því sviði. Sprotafyrirtækin sem tóku þátt í hákarlabúrinu voru Snerpa Power, SideWind, Álvit, Ýmir, GreenBytes, Plogg-In og e1. Rætt um hringrásarhagkerfið Ljósmynd/Hari Sprotaumræður Margir fylgdust með viðburði á vegum Klaks – Icelandic Startup um hringrásarhagkerfið. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Land hefur rofnað á mörgum stöð- um í fjörunni við Vík í Mýrdal. Mikið rof er á flestum svæðum sem sér- fræðingur hjá Kötlusetri mældi og Kötlugarður hefur einnig skemmst mikið. Fjaran er víða orðin stutt og brött. Í skýrslu Jóhannesar Mar- teins Jóhannessonar til Mýrdals- hrepps sem Vegagerðin vitnar til í frétt á vef sínum er því haldið fram að rof af þessari stærðargráðu geti varla talist annað en náttúruhamfar- ir. Forsvarsmenn Mýrdalshrepps hafa lengi barist fyrir varanlegri úr- bótum á vörnum í fjörunni. Í til- kynningu sem sveitarstjórinn sendi íbúum í vikunni kemur fram að sjór- inn heldur áfram að nálgast hest- húsin austan við Vík, sjór er farinn að ganga þar upp á rofabörðin og valda enn frekara tjóni en orðið er. Þórdís Gísladóttir sveitarstjóri segir að það sé aðeins tímaspursmál hve- nær sjórinn nær til hesthúsanna. Sjórinn nálgast hesthúsin Veðuraðstæður hafa verið óhag- stæðar í vetur, með slæmum vestan- áttum. Bæði hefur land rofnað mikið og sandur fokið yfir Víkurþorp til óþæginda fyrir íbúa. „Sandfangarar eru það eina sem dugar. Við höfum lengi barist fyrir því að fá tvo sandfangara til við- bótar, annan við hesthúsin og hinn við Kötlugarðinn. Menn áttu þó ekki von á því að rofið héldi jafn lengi áfram fram í vorið og raun hefur orðið á, því enn er að klípast þarna af. Við höfum verið að óska eftir því að sérfræðingar Vegagerðarinnar komi til að skoða aðstæður, ræða við húseigendur og koma með tillögur um það hvað hægt sé að gera,“ segir Einar Freyr Elínarson, oddviti Mýr- dalshrepps. Einn sandfangari á áætlun Vegagerðin byggði sandfangara 2011 og annan 2018. Í frétt á vef Vegagerðarinnar kemur fram að þeir verji núverandi byggð fyrir rofi. Annar sandfangarinn hafi safnað miklum sandi en hinn litlum. Vegagerðin stefnir að því að hækka flóðvarnargarð sem liggur meðfram öllu þorpinu og byggður var fyrir aldamót. Garðurinn verði hækkaður um 50-70 sentimetra á þeim svæðum sem flætt hefur yfir, til að minnka hættuna á flóði á landi. Nýr sandfangari sem verja á hest- húsin verður settur inn á samgöngu- áætlun á næstunni. Umræða er í gangi um aðrar lausnir, að því er fram kemur hjá Vegagerðinni, en stofnunin hefur ekki talið nauðsyn- legt að ganga lengra en þetta í bili. Það þýðir að bið verður á því að fjórði sandfangarinn verði byggður. „Við erum hörð á því að hann þurfi að koma. Það er orðið stutt í þjóð- veginn og Vegagerðin verður að verja hann,“ segir Einar Freyr. Farið fram á tvo sandfangara - Rofið við Vík heldur áfram - Flóð- varnargarðurinn verður hækkaður Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Vík Sjórinn hefur náð í heyrúll- urnar og nálgast hesthúsin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.