Morgunblaðið - 21.05.2022, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Ferðafélag Íslands | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S. 568 2533 | www.fi.is
Sumarleyfisferðir
Ferðafélags Íslands
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
A
ð fara til Færeyja og hitta
Miu og synda þar með
henni í sjónum er grilla
sem nokkrar innan okkar
hóps fengu í vetur þegar við vorum
einu sinni sem oftar að synda í sjón-
um hér við Íslandsstrendur. Við lét-
um verða af þessu núna í vor og
sjáum ekki eftir því,“ segir Gróa
Kristjánsdóttir sjósundskona en
hún er ein af þeim þrjátíu og einni
konu sem eru nýkomnar heim eftir
ævintýraferð til Færeyja þar sem
erindið var nokkurskonar píla-
grímsför, að heimsækja hina stór-
merku færeysku konu, Mariu á
Heygum, eða Miu, en hún er 98 ára
sjósundskona.
„Mia er alveg mögnuð kona og
okkar fyrirmynd. Hún var alveg til í
að taka á móti okkur, en hún býr
núna á hjúkrunarheimili í heimabæ
sínum Vestmanna, enda á hún að-
eins tvö ár í að verða hundrað ára.
Við þurftum aðeins að ganga á eftir
því að fá leyfi til að heimsækja hana
og synda með henni í sjónum. Þetta
er æðislegt hjúkrunarheimili sem
stendur rétt við sjóinn svo það eru
hæg heimatökin fyrir Miu að fara í
sitt sjósund, aðeins örstuttur göngu-
túr niður að sjó. Hún fer ennþá á
hverjum einasta degi í sjóinn, rétt
eins og hún hefur gert undanfarin
sextíu ár.“
Veik og gat ekkert borðað
Gróa segir að Mia hafi byrjað
að stunda sjósund í kjölfar þess að
hún eignaðist Rúnu, dóttur sína.
„Þá varð hún mjög illa haldin,
bæði andlega og líkamlega, væntan-
lega af því sem við köllum fæðingar-
þunglyndi í dag. Hún var rosalega
veik, gat ekki haldið á barninu eða
sinnt því og hún gat ekki matast og
léttist um mörg kíló. Maðurinn
hennar stakk upp á að hún færi að
stunda sjósund til að reyna að ná
heilsu á ný, og hún lét tilleiðast. Eft-
ir að hafa synt í sjónum daglega í
þrjá mánuði fór henni að líða betur.
Hún er afar þakklát hafinu að hafa
bjargað sér úr þessum erfiðleikum
og hún á í einstöku sambandi við
sjóinn, sem hún hefur baðað sig í
alla daga lífs síns síðan. Núna fær
hún ekki að fara ein í sjóinn, en
aðstoðarfólk á hjúkrunarheimilinu
fer alltaf með henni, til að gæta
fyllsta öryggis, enda Mia orðin há-
öldruð og er í þeirra umsjá. Okkur
fannst aðdáunarvert að sjá starfs-
fólkið styðja hana þar sem hún
þurfti að fara niður brattar tröppur
til að komast á bryggjuna og í sjó-
inn, og upp aftur. Þetta gerði Mia
eins og ekkert væri. Við lítum allar
upp til hennar og okkur fannst frá-
bært að fá að hitta þessa 98 ára
gömlu hetju, enda vorum við í raun
að hitta okkar helstu rokkstjörnu.
Hún knúsaði okkur allar og var með
tárin í augunum og jesúsaði sig í
bak og fyrir, hrærð yfir því að svona
margar konur frá Íslandi kæmu sér-
staklega til að heimsækja hana. Hún
sagðist ekki skilja í því að við vildum
hitta hana svona gamla, en við sögð-
um henni sannleikann, að við viljum
allar vera eins og hún þegar við
verðum gamlar,“ segir Gróa og bæt-
ir við að sannarlega þyrfti að koma
upp hér á Íslandi hjúkrunarheim-
ilum við sjávarsíðuna, rétt eins og
það sem Mia dvelur á, svo eldra fólk
hefði aðgengi að sjónum.
Leikum okkur í sjónum
Gróa segir að þær í íslenska
hópnum hafi í Færeyjaferðinni eign-
ast sjósundssystur og vinkonur í
Dyppeklubben Öldunni, sem er í
Miðvági.
„Við erum svo heppnar að ein í
okkar hópi er sendikvinna Færeyja
á Íslandi, hún Halla Noldøe
Poulsen, en við í íslenska hópnum
höfum allar verið saman frá því í
haust á sjósundsnámskeiði sem
heitir Glaðari þú, og leitt er af Guð-
rúnu Tinnu og Margréti Leifs. Þetta
er fyrst og fremst leikjanámskeið
fyrir fullorðna, til að efla andann
ekki síður en kroppinn. Við syntum
til dæmis ekkert mikið í vetur, held-
ur fórum fyrst og fremst saman í
sjóinn til að kæla, hafa gaman og
leika okkur. Við lærðum færeyskan
barnasöng sem við sungum síðan
alls staðar þar sem við komum í
Færeyjum og syngjum reyndar enn,
söngur þessi heitir Omma Ludvig.
Við dönsum líka alltaf að loknu sjó-
sundi okkar á laugardögum og mjög
oft líka á hinum dögunum,“ segir
Gróa og bætir við að nú séu þær í
hópnum á ævintýranámskeiði hjá
Tinnu og Margréti sem felst m.a. í
því að þær fara í sjóinn næstum alls
staðar annars staðar en í Nauthóls-
vík.
„Tinna og Margrét eru þannig
að kynna okkur alla þá staði á Stór-
Reykjavíkursvæðinu þar sem hægt
er að fara í sjóinn, en þeir eru þó
nokkrir.“
Fóru allsberar í sjóinn
Gróa segist hafa þekkt töluvert
margar þeirra kvenna fyrir sem hún
byrjaði með á námskeiðinu Glaðari
þú, enda hafði hún stundað sjósund
áður.
„Nú erum við allar búnar að
kynnast vel og stemningin í hópnum
er gríðarlega góð, við erum orðnar
enn nánari og tengdari eftir Fær-
eyjaferðina. Það var alveg ótrúlega
gaman hjá okkur í þessari ferð, við
sungum, dönsuðum og trölluðum og
gerðum ýmislegt sem við gerum
ekki venjulega. Til dæmis fórum við
allsberar í sjóinn, við köllum það
danska daga að fara klæðalaus á
kjötinu í hafið. Þetta er einstök og
alveg geggjuð upplifun, ég hef einu
sinni gert þetta á Íslandi og það
þurfti ekki mikið til að fá mig í þetta
aftur,“ segir Gróa og hlær.
Fram undan hjá þessum sam-
henta og káta hópi sjósundskvenna
er m.a. að fara í sjónvarpsupptökur,
en erlend sjónvarpsstöð kemur
brátt til Íslands til að taka upp
þætti um hamingjusömustu og
óhamingjusömustu þjóðir heims.
„Sá sem stjórnar og tekur upp
þessa þætti er Rainn Wilson, en
hann var meðal annars einn af leik-
arunum í sjónvarpsþáttunum Office.
Hann hafði samband við okkar for-
ystukonur, Tinnu og Margréti, og
vildi fá að filma okkur sjósundskon-
urnar til að hafa innslag um okkur
með í þessari mynd um Íslendinga,
sem eru jú meðal hamingjusömustu
þjóða í heimi. Kannski af því svo
margir stunda sjósund, hver veit, en
það hefur aukist gríðarlega undan-
farið að Íslendingar syndi í sjónum.“
Mia og Gróa Gróa prjónaði vettlinga handa Miu og færði
henni. Þeir eru með íslenska og færeyska fánanum.
Kjarnakona Mia er einstök. Hér kemur hún upp úr sjón-
um eftir að hafa farið í hann með íslensku konunum.
Glaðari þú Kvennahópurinn góði og sjósundskonurnar íslensku, geislandi
kátar á bryggju í Færeyjum, en ferðin sú var einstaklega vel heppnuð.
Mia er rokkstjarnan okkar
Hópur íslenskra sjó-
sundskvenna lagði land
undir fót til að heim-
sækja hina stórmerku
færeysku konu, Mariu á
Heygum, eða Miu, en
hún er 98 ára og syndir
enn í sjónum hvern ein-
asta dag en það hefur
hún gert í sextíu ár.
Kvennakraftur Þær eru samhentar íslensku konurnar sem heimsóttu Miu, hér eru þær á Laynasandi á leið í sjóinn í Færeyjum.
Glöð Mia og aðstoðarkona á leið í
sjóinn, íslensku konurnar að baki.