Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Fimmtudaginn 2. júní 2022 kl. 16:30
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík
Ársfundur
SL lífeyrissjóðs 2022
1. Fundur settur
2. Skýrsla stjórnar
3. Gerð grein fyrir ársreikningi
4. Tryggingafræðileg úttekt
5. Breytingar á samþykktum
6. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
7. Önnur mál
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Reykjavík 25.04.2022
Stjórn SL lífeyrissjóðs
DAGSKRÁ
Traustur
lífeyrissjóður
Trygg framtíð
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Nú eru ekki nema tvær vikur í að
laxveiðitímabilið hefjist. Að vanda
hafa breytingar orðið á umsjón og
leigu nokkurra veiðiáa og ein er sú
að Rafn Valur Alfreðsson hefur tek-
ið við sem sölustjóri Norðurár í
Borgarfirði af Einari Sigfússyni sem
sá um sölu leyfa frá árinu 2013, þeg-
ar samningi Stangaveiðifélags
Reykjavíkur um ána lauk. Norðurá
er ein af bestu og þekktustu veiðiám
landsins og í henni fjölmargir gjöf-
ulir og sérlega fallegir veiðistaðir.
En Rafn er aldeilis ekki ókunngur
fögrum, gjöfulum veiðiám því síð-
ustu 13 ár hefur hann verið leigutaki
hinnar margbrotnu Miðfjarðarár.
Og vinna hans við þá gæðaá hefur
heldur betur vakið athygli því veiðin
jókst til muna eftir að hann tók við.
„Ég skrifaði undir samninginn um
leiguna á Miðfjarðará í ágúst 2008,
korteri fyrir hrun,“ segir Rafn um
upphaf ævintýris hans í Miðfirði.
„Og það hefur gengið frábærlega,
að öllu leyti,“ segir hann um tíma
sinn þar. „Á þessum tíma hefur
meðalveiðin tæplega þrefaldast, frá
því sem hún var á 25 ára tímabili þar
áður. Meðan enn var verið að maðka
og drepa, með engan kvóta, þá var
meðalveiðin ekki nema um 1.150 lax-
ar á sumri. Síðan ég tók við er
meðalveiðin tæplega 3.000 laxar.“
– Hverju þakkarðu það?
„Auðvitað veiða-og-sleppa, fyrst
og fremst. Svo er frábær hópur leið-
sögumanna alltaf við ána, menn sem
þekkja ána gríðarlega vel, og yfir
níutíu prósent veiðimanna veiða með
leiðsögumanni. Það hjálpar til við að
halda álaginu ásættanlegu á veiði-
staði, mikið er veitt með litlum flug-
um og gengið varlega um veiði-
staðina.“
„Brilljant samtenging“
– En hvers vegna sóttistu eftir
Norðurá, að bæta henni við hjá þér?
„Norðurá hefur lengi verið í sigt-
inu hjá mér,“ svarar Rafn. „Ég hef
lengi sagt að einhver flottasta veiði-
tvenna sem hægt væri að bjóða lax-
veiðimönnum upp á væri að veiða
Norðurá og Miðfjarðará. Um níutíu
prósent af kúnnunum okkar í Mið-
firði eru útlendingar sem koma til
veiða í þrjá til sex daga, og land-
fræðilega og veiðilega þá er þetta
brilljant samtenging. Við erum þeg-
ar með töluvert af veiðimönnum sem
koma í sumar að veiða báðar árnar.
Og hefðum við skrifað undir fyrr í
fyrra, þá hefði ég haft enn betra
tækifæri til að kynna Norðurá fyrir
enn fleirum af fastakúnnum mínum í
Miðfirði. Margir þeirra þekkja ekki
Norðurá – þótt þeir aki alltaf með-
fram henni á leið norður.“
Norðurá enn undirverðlögð
„Ég lagði mikla vinnu í að reyna
að ná Norðurá og það tókst. Ég held
að ég hafi sannfært stjórn veiði-
félagsins um að ég væri góður kost-
ur í verkið. Og áin er strax mjög vel
seld fyrir sumarið. Ég held að hún
hafi sjaldan verið jafn vel bókuð, og
líklegast aldrei á jafn góðu verði og
nú. En mér finnst hún samt enn vera
undirverðlögð í samanburði við
margar nágrannaárnar.“
Rafn segir að þótt talsvert verði af
erlendum veiðimönnum í Norðurá
þá veiði líka margir Íslendingar ána
enda sterk hefð fyrir því. Þá henti
áin að mörgu leyti vel fyrir fyrirt-
ækjamarkaðinn. Rafn hefur ætíð
haft sterka nærveru við Miðfjarðará
sem staðarhaldari en þeirri stöðu
mun Brynjar Hreggviðsson gegna
við Norðurá.
Þekkir hana ekki neitt
Ákveðnar breytingar verða gerð-
ar í sumar á því veiðifyrirkomulagi
sem tíðkast hefur í Norðurá mörg
undanfarin ár. Svokallað Munaðar-
nessvæði verður ekki lengur selt sér
fyrri hluta sumars heldur verður
aðalveiðisvæðið lengt þangað niður
eftir. Þá verður hætt að selja stangir
á Flóðatanga og verður það frísvæði
fyrir veiðimenn. „Þar var veitt á
maðk og spún alveg fram á síðasta
ár og nú var tekin ákvörðun um að
hætta því. Nú er því í fyrsta skipti
hægt að segja að aðeins sé veitt með
flugu í Norðurá, á öllum svæðum,“
segir Rafn. Efri hluti árinnar, kall-
aður Norðurá II, verður eins og áð-
ur seldur sér frá 6. júní til 1. sept-
ember, þrjár stangir með húsi í
sjálfsmennsku.
– Þekkirðu Norðurá vel?
„Nei, ég þekki ekki hana ekki
neitt,“ svarar Rafn hlæjandi. „Ég
hef veitt ána þrisvar í júní. Ég hef
leitað mér upplýsinga hjá fólki sem
þekkir ána vel og svo fer sumarið
núna í að læra á hana, og á rekst-
urinn og starfsemina. Landeigendur
vissu að þeir væru ekki að fá mann
sem þekkti ána út og inn heldur
treysta þeir mér til að selja vöruna.
Og reka þetta.
Ég er búinn að kaupa mér stöng í
þremur hollum í sumar, í opnun,
með félögum mínum í lok júní og í
Norðurá II í ágúst. Og hlakka til!“
Norðurá lengi verið í sigtinu
- Rafn Valur Alfreðsson hefur tekið við sölu veiðileyfa og umsjón Norðurár - Vissar breytingar
- Á þeim 13 árum sem Rafn hefur verið leigutaki Miðfjarðarár hefur meðalveiðin nær þrefaldast
Morgunblaðið/Einar Falur
Glíma Breskur veiðimaður togast á við öflugan lax við Myrkhyl, einn af mörgum rómuðum veiðistöðum Norðurár.
Bolti Rafn Valur með stórlax sem hann veiddi í Miðfjarðará. Nú þarf hann
að fara að læra á og veiða Norðurá og segir að komandi sumar fari í það.