Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kjartan Smári Höskuldsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandssjóða, segir
búið að leigja út um helminginn af
skrifstofurýminu í Sjávarborg á
Kirkjusandi. Viðræður séu í gangi
um hinn helminginn.
Félagið 105 Miðborg byggir á
fjórum af níu reitum á Kirkjusandi.
Félagið er fagfjárfestasjóður í
rekstri og stýringu Íslandssjóða.
Það hefur selt allar íbúðirnar í fjöl-
býlishúsunum Stuðlaborg og Sól-
borg á Kirkjusandi, alls 129 íbúðir.
Sjávarborg er milli Stuðlaborgar og
gamla Íslandabankahússins sem
verður rifið.
Kjartan segir áhuga á Sjávarborg
hafa aukist mikið síðustu mánuði.
„Það hefur gengið vel að leigja út
húsið. Nú var verið að opna Heilsu-
gæsluna á Kirkjusandi í síðustu viku
en hún hét áður Heilsugæslustöðin í
Lágmúla. Auk þess verður glæsilegt
apótek á jarðhæð hússins. Nú er um
helmingur af húsinu í útleigu og við-
ræður í gangi um hinn helminginn.
Eins og gerist gjarnan á síðustu
metrunum hefur áhuginn glæðst
þegar framkvæmdum er að ljúka og
sjá má að húsið verður hið glæsileg-
asta. Húsið fór að taka á sig endan-
lega mynd upp úr áramótum og þar
sem það stendur á svo áberandi stað
miðsvæðis hefur verið hamagangur
síðan. Það er auðvitað lítið í boði af
nýju skrifstofuhúsnæði á góðum
stað í Reykjavík. Og við finnum að
mörg fyrirtæki hafa lengi verið föst í
eldra húsnæði og í einhverjum til-
vikum hafa jafnvel komið upp mál
sem tengjast raka, bílastæðamálum
o.s.frv. Þetta er greinilega eitthvað
sem vantaði inn í flóruna í borginni.“
Hótel kemur enn til greina
Fram kom í Morgunblaðinu í
fyrrasumar að 105 Miðborg hefði
óskað eftir því að breyta landnotkun
á F-reitnum á Kirkjusandi og auka
vægi íbúða á kostnað atvinnuhús-
næðis. Var m.a. vísað til dræmrar
eftirspurnar eftir
skrifstofuhús-
næði. Spurður
hvort markaður-
inn með atvinnu-
húsnæði hafi
glæðst mikið
undanfarið segir
Kjartan Smári að
hafa beri í huga
að Sjávarborgin
sé ekki stórt hús.
„Sjávarborgin er um sjö þúsund
fermetrar og einstakt hús hvað varð-
ar útsýni og sýnileika en atvinnu-
húsnæðið á F-reitnum, eins og það
var skipulagt, var um 20 þúsund fer-
metrar. Við horfðum þá fram á mikla
og stöðuga eftirspurn eftir íbúðum
en markaðurinn með skrifstofuhús-
næði er miklu þyngri og svifaseinni.
Það er ekki fyrr en Sjávarborgin er
nær fullbyggð sem áhuginn fer virki-
lega að taka við sér. Það er því ekki
líku saman að jafna en ef þessi áform
okkar ganga eftir verðum við enn
með leyfi til að byggja um 10 þúsund
fermetra skrifstofuturn við Sæbraut
á gömlu Strætó-lóðinni og er gert
ráð fyrir hóteli í þeirri byggingu.
Það er mjög spennandi að sjá hvern-
ig þau mál þróast. Miðað við bók-
unarstöðuna á hótelum í Reykjavík í
sumar teljum við líklegast að sú
bygging verði hótel. Markaður með
gistirými hefur líka breyst í Reykja-
vík. Margar af þeim íbúðum sem
leigðar voru út í skammtímaleigu til
ferðamanna hafa verið seldar og eru
komnar í langtímanotkun, samtímis
því sem íbúðaverð hefur hækkað svo
mikið að það mun aldrei borga sig að
kaupa íbúðir til að fara í Airbnb-út-
leigu.“
Sjö af hverjum tíu úr leigu
Er þetta varanleg breyting?
„Já, tvímælalaust. Þeir sem hafa
skoðað þennan markað telja að fleiri
en 70% af þeim íbúðum sem voru
keyptar til að leigja þær út á Airbnb
hafi verið seldar og séu komnar í
langtímanotkun … Þannig að
Airbnb-markaðurinn nú er miklu
minni en hann var fyrir aðeins
nokkrum árum,“ segir Kjartan.
Mikill áhugi frá áramótum
Á Kirkjusandi Frágangur utanhúss á Sjávarborg er á lokastigi.
- Hálf Sjávarborgin þegar í útleigu - Hnignun Airbnb skapar svigrúm fyrir hótel
Morgunblaðið/Eggert
Sjávarborg Handrið verður sett upp og útbúinn þakgarður fyrir starfsfólk.
Kjartan Smári
Höskuldsson
18 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
21. maí 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 132.54
Sterlingspund 164.64
Kanadadalur 103.41
Dönsk króna 18.744
Norsk króna 13.53
Sænsk króna 13.273
Svissn. franki 135.9
Japanskt jen 1.0375
SDR 177.63
Evra 139.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.2227
« Flest félög í
Kauphöllinni hækk-
uðu lítillega í gær
eftir róstusama
viku á hlutabréfa-
markaði þar sem
nær öll félög höfðu
lækkað nokkuð yfir
vikuna.
Brim hækkaði
mest í gær, um
2,8%, sem dró
heldur úr lækkuninni dagana á undan
en félagið lækkaði um 1% yfir vikuna.
Brim hefur þó hækkað um 20% það
sem af er ári og stendur gengi bréfa í
félaginu nú í 93,5 kr. á hlut. Þá hækkaði
Icelandair um 1,7% í gær en lækkaði
um 3,6% yfir vikuna. Gengi bréfa í Ice-
landair er nú 1,67 kr. á hlut. Gengið var
um 2,3 kr. á hlut við upphafi átakanna í
Úkraínu, tók þá nokkra dýfu niður á við,
niður í 1,5 kr. á hlut, en náði að rétta úr
kútnum um miðjan apríl. Síðan þá hefur
gengi félagsins leitað aftur niður á við.
Eimskip hækkaði í gær um 1,2% og
stendur gengið nú í sléttum 500 kr. á
hlut, líkt og það gerði í upphafi þessa
árs. Gengi bréfa í Eimskip hefur lækkað
um 9% á einum mánuði.
Þrjú félög lækkuðu á aðalmarkaði í
gær. Hlutabréf Arion banka lækkuðu
um 1,3% og var velta með bréf í félag-
inu fyrir tæpan hálfan milljarð. Arion
hefur lækkað um 18,4% það sem af er
ári. Hagar lækkuðu um 0,7% og VÍS
lækkaði um 0,9%.
Eldrauð vika endaði á
grænu ljósi í Kauphöll
Brim hækkaði mest
félaga í gær.
STUTT
Horfa til gerðar kjarasamninga
Hún sagði það hluta af hinni sam-
félagslegu sátt að standa ekki bara
saman þegar á móti blæs heldur
einnig þegar betur gengur. Hún
hvatti í framhaldinu gesti Viðskipta-
þings til að hafa þetta í huga við gerð
komandi kjarasamninga í haust, og
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Eftir að hafa staðið saman í gegnum
faraldur í tvö ár, og nú í gegnum átök
í austurhluta Evrópu, þarf áfram að
sýna samstöðu nú þegar verðbólga
gengur yfir vestræna markaði og
kemur fram í hagtölum hér á landi.
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra á Viðskiptaþingi
Viðskiptaráðs, sem haldið var í gær
fyrir fullum sal gesta.
Katrín vék í máli sínu að þeirri
samstöðu sem ríkti meðal stjórn-
valda og atvinnulífsins meðan á
kórónuveirufaraldrinum stóð og
sagði að einn helsti lærdómurinn
sem draga mætti af því tímabili væri
sá að þegar á reyndi stæði þjóðin
saman. Það myndi þó áfram reyna á
samstöðu og vék hún í máli sínu að
nýrri áskorun; verðbólgunni.
„Verðbólgan nú er í senn afleiðing
heimsfaraldurs og styrjaldar sem
geisar í Evrópu og hvort tveggja hef-
ur mikil áhrif á framleiðslukeðjur
heimsins með tilheyrandi verð-
bólgu,“ sagði Katrín í ræðu sinni.
„Það skiptir máli að fyrirtæki sem
jafnvel hafa skilað góðum hagnaði
hugi að því hvernig þau geta nú axlað
ábyrgð og stutt íslenskt samfélag –
til dæmis með því að taka á sig hluta
verðhækkana í stað þess að velta
þeim beint út í verðlag og styðja
þannig við almenning í landinu sem
alltaf þarf að kaupa í matinn, sama
hvernig viðrar, og leggja sitt af
mörkum til að tryggja stöðugleika í
víðum skilningi.“
gæta hófst í launagreiðslum til
stjórnenda sem og arðgreiðslum.
„Þetta er ekki síst mikilvægt nú
þegar kjarasamningar eru fram und-
an. Ábyrgðin á stöðugleikanum verð-
ur ekki eingöngu lögð á herðar
launafólks, atvinnurekendur bera
þar þunga ábyrgð ásamt stjórnvöld-
um,“ sagði Katrín og bætti því við að
efnahagslegum stöðugleika yrði ekki
náð án þess að félagslegur stöðug-
leiki væri tryggður.
Hugi vel að starfsmannamálum
Ari Fenger, formaður Viðskipta-
ráðs, sagði í opnunarávarpi sínu að
atvinnurekendur þyrftu að huga vel
að starfsmannamálum næstu árin.
Yfirskrift Viðskiptaþings í ár var
Tímarnir breytast og vinnan með, og
fjallað var um þau vatnaskil sem nú
eiga sér stað á vinnumarkaði. Hann
sagði að það væri á ábyrgð stjórn-
enda fyrirtækja að taka mið af þeim
breytingum sem eru að eiga sér stað
og skapa gott starfsumhverfi. Hann
sagði jafnframt að starfsmenn
horfðu nú til fleiri þátta en launa og
tækju mið af álagi, sveigjanleika og
öðrum þáttum sem hafa mikla merk-
ingu í lífi fólks og að atvinnurekend-
ur þyrftu að taka tillit til þess.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þing Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði Viðskiptaþing. Þetta er í
fyrsta sinn í þrjú ár sem Viðskiptaþing er haldið með hefðbundnum hætti.
Launum verði stillt í hóf
- Forsætisráðherra segir atvinnulífið þurfa að leggja sitt af mörkum til að skapa
félagslegan stöðugleika - Viðskiptaþing einblínir á velferð starfsmanna