Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 25 Verð 439.000,-
L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,-
Í heimsókn emírsins Tamims bin
Hamads Al-Thanis til Madríd á
Spáni á miðvikudaginn styrktu þjóð-
irnar viðskiptasambönd sín, en
Spánverjar leita nú eins og aðrar
Evrópuþjóðir allra leiða til að
minnka þörfina á eldsneyti frá Rúss-
landi. Heimsóknin, sem stóð yfir í
tvo daga, er sú fyrsta sem emírinn í
Katar kemur til Spánar, en hann tók
við völdum 2013. Undirritaðir voru
tólf samningar um málefni tengd
viðskiptum, menntun, vísindum og
heilbrigðismálum, var sagt í tilkynn-
ingu frá spænska ríkinu í dag.
Katar samþykkti að auka fjárfest-
ingar á Spáni um 4,75 milljarða evra
á næstu árum að því er haft var eftir
spænska forsætisráðherranum,
Pedro Sanchez, og er það þreföldun
á fjárfestingum landsins hingað til.
Enginn nákvæmur tímarammi var
gefinn fyrir fjárfestingunum né til
hvaða atvinnuvega væri litið. Áður
hefur Katar fjárfest í fluggeiranum,
í byggingar-, orku- og samskipta-
iðnaðinum á Spáni.
„Í ljósi ástandsins í Úkraínu er
þessi styrking á sambandi Spánar
og Katars mikilvæg, ekki eingöngu
vegna fjárfestinga í landinu heldur
líka til að tryggja eldsneytisöryggi,“
segir í tilkynningu frá spænskum
stjórnvöldum.
Katar er einn af þremur stærstu
útflutningsaðilum fljótandi jarðgass
(LNG) í heiminum og á Spáni er
landið fimmti stærsti seljandi elds-
neytis í landinu, en nú er áætlað að
auka þann hlut talsvert.
Frá Madríd fer emírinn Tamim
bin Hamad Al-Thani til Þýskalands,
Bretlands, Slóveníu og Sviss.
Seinna á árinu verður Heims-
meistarakeppni karla í knattspyrnu
haldin í Katar.
Spánn eykur við-
skipti við Katar
- Fjárfestingar og eldsneytisöryggi
AFP/Pierre-Philippe Marcou
Madríd Við upphaf heimsóknar em-
írsins á Spáni á miðvikudag.
Sýrlenskur maður er grunaður um
að hafa stungið eiginkonu sína svo
og danskan mann með hnífi í gær í
litlu rólegu þorpi í Numedal-héraði í
suðausturhluta Noregs. Þetta er
haft eftir norsku lögreglunni. Fyrst
var talið að maðurinn hefði valið sér
fórnarlömb af handahófi en síðar
upplýsti lögregla að konan væri eig-
inkona hans. Vitni lýstu aðkomunni
á slysstað þannig að konan hefði leg-
ið í stórum blóðpolli.
Atvikið varð nálægt strætóstöð í
Nore, þorpi þar sem færri en þrjú
þúsund manns búa. Árásarmaðurinn
var handtekinn á staðnum og flogið
var með fórnarlömbin á spítala, en
eiginkonan var lífshættulega særð.
Danski maðurinn var með minni
áverka, en ekki er vitað um tengsl
hans við árásarmanninn. Árásar-
maðurinn særðist einnig en þurfti
ekki að fara á sjúkrahús, sagði lög-
reglumaðurinn Tom Richard Jensen
við norska fjölmiðla.
Ekkert var gefið upp um ástæður
árásarinnar, en sjónvarpsstöðin TV2
sagði að árásarmaðurinn hefði sætt
rannsókn vegna ásakana um heim-
ilisofbeldi í nóvember á síðasta ári.
Eiginkonan hafði fengið nálgunar-
bann gegn honum, sem hafði verið
virt fram að deginum í gær.
Rútubílstjóri og framhaldsskóla-
nemar náðu að halda manninum
niðri áður en lögregla, sjúkrabílar og
sjúkraþyrlur komu á vettvang.
Íbúar á svæðinu voru mjög slegnir
vegna árásarinnar.
Stakk eig-
inkonuna
með hnífi
- Árásarmaðurinn
var í nálgunarbanni
AFP/NTB/ Lise Åserud
Nore Lögreglan komin á vettvang.
„Frelsun Lýðveldis fólksins í Lu-
hansk er á lokametrunum,“ sagði
varnarmálaráðherra Rússlands,
Sergei Sjoigu, í gær. Að sögn hér-
aðsstjóra Luhansk hafa a.m.k. tólf
látið lífið og fjörutíu særst í árásun-
um í Severodonetsk. Volodímír Sel-
enskí forseti Úkraínu segir að Don-
bass-hérað sé nú „eins og helvíti á
jörðu“.
Sjö særðust í loftárás á nýlega
uppgert menningarhús í borginni
Lozova á Karkív-svæðinu seinni-
partinn í gær og þar af var 11 ára
barn skrifaði Selenskí á Telegram og
sagði Rússa nú andstæðinga menn-
ingar, menntunar og mannúðar.
Maríupol er á valdi Rússa eftir að
tæplega tvö þúsund úkraínskir her-
menn gáfust upp í Azovstal-stálverk-
smiðjunni í borginni eftir nærri
þriggja mánaða varnarbaráttu.
„Í lok ársins verða tólf nýjar her-
deildir og herstöðvar komnar í gagn-
ið í vesturhluta Rússlands,“ sagði
Sjoigu á fundi í gær, en Rússar eru
að bregðast við yfirvofandi stækkun
NATO. Einnig tilkynntu Rússar að
skrúfað yrði fyrir gasleiðslurnar til
Finnlands í dag.
Lögfræðingur rússneska her-
mannsins Vadíms Sjisjimaríns baðst
vægðar fyrir skjólstæðing sinn og
sagði í gær að hann væri ekki sekur
um morð að yfirlögðu ráði. Sækjend-
ur í málinu fara fram á lífstíðarfang-
elsi.
Þjóðverjar hafna öllum hugmynd-
um um að Evrópusambandið taki
sameiginlegt lán til að takast á við
uppbyggingu í Úkraínu eftir að mál-
ið var borið upp á fundi G7-ríkjanna.
Gerhard Schröder fyrrverandi
Þýskalandskanslari var á fimmtudag
sviptur öllum fríðindum fyrrverandi
kanslara því hann hafi neitað að
segja sig frá stjórnarsetu í tveimur
rússneskum orkufyrirtækjum. Í gær
sagði hann sig frá stjórnarsetu olíu-
risans Rosneft, en hann á að taka
sæti í stjórn Gazprom í júní.
doraosk@mbl.is
„Donbass eins og helvíti á jörðu“
- Rússar að ná Donbass - Tólf nýjar herstöðvar Rússa - Sjö særðir í loftárás í
Lozova - Skrúfað fyrir gas til Finna - Schröder segir sig úr stjórn Rosneft
Litlir drengir leika sér á bát í Diyala-héraði í
Írak í gær. Annar drengjanna heldur á árinni en
hinn hoppar af bátnum og niður á þurra jörð þar
sem Hamrine-vatnið var en er nú nánast horfið
eftir mikla þurrka. Hamrine-vatn er mikilvægt
fyrir fólkið í Diyala-héraði, ekki síst bændur, því
þar hafa þeir fengið allt að 80% af vatninu sem
þeir nota fyrir landbúnað héraðsins. Vatnið, sem
er manngert, var upphaflega búið til árið 1981.
AFP/Ahmad Al-Rubaye
Drengir að leik á botni Hamrine-vatns í Írak