Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á Íslandi er kórónu- veiran horfin úr huga flestra og tilfinn- ingin er sú að þeim kafla sé nú lokið og nýr kafli tekinn við. Sú er þó síður en svo raunin alls staðar. Í Kína er samfélagið víða rígfast í viðjum veirunnar og er ástandið verst í Sjanghaí. Miklar takmarkanir gilda einnig í Peking og hafa menn áhyggjur af að þar gæti skapast svipaður glundroði og í Sjanghaí. Ástandið er farið að hafa áhrif á efnahagslífið og við- skipti um allan heim því að flutningar eru í lamasessi. Við Sjanghaí sitja mörg hundruð gámaflutningaskip föst og það hefur áhrif um allan heim. Kínversk stjórnvöld hafa frá upphafi lagt áherslu á að hefta útbreiðslu kórónuveir- unnar með öllu. Þar sem hún skýtur upp kollinum er öllu skellt í lás þar til ekki eitt einasta tilfelli greinist lengur. Sjanghaí er ein helsta miðstöð útflutnings í Kína. Þar var gripið til harðra takmarkana snemma í apríl og 25 milljónum manna fyr- irskipað að halda sig heima. Borginni var skipt í tvennt og átti útgöngubannið að standa í átta daga. Það hef- ur hins vegar dregist á lang- inn. Þetta hefur skapað mikil vandræði og á mörgum heimilum nær fólk ekki að verða sér úti um mat því að það er í einangrun. Þetta veldur því einnig að erfitt er að reka fyrirtæki því að starfsfólkið kemst ekki til vinnu. Sum fyrirtæki hafa jafnvel tekið upp þá stefnu að láta starfsfólk sofa á vinnustaðnum til að halda framleiðslunni gangandi. Á þriðjudag tilkynntu borgaryfirvöld að takmark- inu um ekki eitt einasta til- felli hefði verið náð í öllum hverfum borgarinnar. Fyr- irvarinn var þó sá að ekkert tilfelli hefði greinst utan þeirra svæða sem væru í sóttkví. Þar búa milljónir manna, sem enn er fyrir- skipað að halda sig heimavið í einangrun. Af þeirri ástæðu var þess- um fréttum illa tekið á kín- verskum félagsmiðlum og fannst fólki yfirlýsingar stjórnvalda stangast á við veruleikann. Hefur meira að segja komið til mótmæla út af því hvað þessar hörðu aðgerðir hafa staðið lengi í borginni og rysk- ingum við yfir- völd. Einnig kom til mótmæla um liðna helgi við Peking- háskóla vegna óánægju námsmanna með hertar tak- markanir vegna veirunnar. Slíkir atburðir eru fátíðir í Kína og þarf mikið til að fólk sýni með þessum hætti að því sé nóg boðið. Þeir sem þurfa að flytja vörur frá Kína eru í miklum vanda. Ógerningur er að gera neinar áætlanir því að ekki er ljóst hvenær vara verður send af stað eða hve- nær hún muni berast. Tafir í skipaflutningum hafa fylgt kórónuveirunni nánast frá upphafi. Nú er hins vegar svo komið að vörur eru allt að þrisvar sinnum lengur á leiðinni frá Kína til Evrópu en þegar allt er með felldu. Þá geta þeir sem eru að flytja vörur frá Kína allt eins átt von á því að send- ingin þeirra verði skilin eftir á hafnarbakkanum því að keppinauturinn bauð betur, slík er samkeppnin. Það er helst að skipafélögin græði á öllu havaríinu. Ekki er komið í ljós hvaða áhrif útgöngubann og tak- markanir munu hafa á efna- hagslífið, en ljóst er að að- gerðir stjórnvalda munu valda samdrætti. Smásala hefur dregist saman, sala á bílum sömuleiðis og atvinnu- leysi eykst. Xi Jinping forseti Kína er í vanda. Stjórnvöld í Kína eru nú að reyna að hefta ómikronafbrigðið, sem smit- ast mjög auðveldlega. Það er hins vegar mun vægara en fyrri afbrigði og gefur því ekki sama tilefni til harðra aðgerða og forver- arnir. Aðgerðirnar eru svo harkalegar að hætt er við að þær kæfi atvinnulífið. Xi er því vandi á höndum. Það kann að vera erfitt fyrir hann pólitískt að snúa baki við þeirri hörðu stefnu að kæfa útbreiðslu veirunnar með öllu hvar sem hún kann að skjóta upp kollinum, en það getur verið dýrkeypt að gera það ekki ef lækningin er skaðlegri en meinið. Og það eru ekki bara Kínverjar sem súpa seyðið af því, held- ur hefur það áhrif um allan heim og er Ísland ekki und- anskilið. Harðar aðgerðir gegn kórónuveirunni í Kína valda töfum í skipaflutningum um allan heim og farið er að bera á mót- mælum heima fyrir} Veiruvandi Kína Þ úsundir Íslendinga eru nú á biðlist- um eftir bráðum aðgerðum. Í þeim hópi er fólk sem er svo sár- kvalið að hver einasti dagur er þjáning. Svona hefur ástandið verið árum saman og versnar ef eitthvað er frá ári til árs. Á hverju ári fjárfestir hið opinbera 30 millj- arða í nýsköpun í gegnum nýsköpunarsjóði og endurgreiðslu á tekjuskatti vegna rannsókna og þróunar. Þessir fjármunir skipta sköpum fyrir lítil og stór fyrirtæki, hvort sem það er til að styrkja reksturinn fyrsta rekstrarárið eða til að draga úr kostnaði við flóknar og dýr- ar rannsóknir. En það er ekki nóg að tala um nýsköpun eða setja fjármagn í nýsköpun, heldur verðum við að tryggja að samfélagið innleiði nýsköpun. Þar gætum við staðið okk- ur miklu betur. Ég hef að undanförnu rætt við fjöldann allan af frum- kvöðlum sem eru í ýmiss konar nýsköpun tengdri heil- brigðisþjónustu. Frumkvöðlar sem vilja nota hugvit og nýsköpun til að efla heilbrigðiskerfið með hagkvæmum hætti. Á sama tíma og mörg þessara fyrirtækja ná góð- um árangri á erlendri grundu lenda þau á ósýnilegum vegg hins opinbera hér á landi. Eitt þeirra er Kerecis sem framleiðir sáraroð til að græða sár hraðar en eldri lausnir. Fyrirtækið selur vörur sínar um allan heim en þegar kemur að innanlandsmarkaði eru fáir hvatar til að nýta þessa lausn. Það skýtur skökku við þegar við sem samfélag ákveðum að fjárfesta í nýsköpun en nýtum svo ekki þær lausnir sem verða til fyrir okkar eigin kerfi. Við megum engan tíma missa því spár um vöxt Landspítalans fram til ársins 2040 sýna að vegna öldrunar þjóðarinnar mun kostn- aður aukast um 90% ef ekkert verður að gert. Greining McKinsey-fyrirtækisins sýnir hins vegar að ef reksturinn er lagaður með staf- rænum lausnum og nýsköpun þá muni þessi gríðarlega aukning þjónustu ekki leiða til nema 30% hækkunar heildarkostnaðar árið 2040. Lykillinn að því að halda kostnaði í lág- marki er hugvitið. Hugvitið getur þannig sparað Landspítalanum nærri 50 milljarða, á hverju einasta ári. Til að þetta geti orðið að veruleika hef ég ákveðið að styrkja sérstaklega innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu og þar með aukna skilvirkni og bætta þjónustu. Það verð- ur gert með því að frumkvöðla- og sprota- fyrirtæki í nýsköpun geti sótt um stuðning, en styrkveitingin er háð því skilyrði að fyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðis- þjónustu sem skuldbinda sig til að innleiða þá nýsköpun sem styrkur er sóttur um í. Veittir verða allt að 10 m.kr styrkir til einstakra verkefna sem hafi það markmið að teknar séu í notkun nýjar vörur, ný þjónusta eða nýjar hugbúnaðarlausnir sem geta bætt þjónustu og aukið hagkvæmni í rekstri. Sérstök áhersla verður lögð á að styðja við samstarf opinberra aðila og einkaaðila um land allt. Markmiðið er skýrt: við eigum að nota nýsköpun til að bæta heilbrigðisþjónustuna. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Nýsköpun til betri heilbrigðisþjónustu Höfundur er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is N etárásum fer fjölgandi og fjárhagslegt tjón sem af þeim hlýst getur verið geysilega mikið, að ótöld- um þeim skaða sem verður vegna taps á gögnum og stöðvun á vinnslu. Í fyrra bárust netöryggissveitinni CERT-IS tæplega 600 tilkynningar um netöryggisatvik af ýmsum toga, rösklega tvöfalt fleiri en á árinu á undan þegar þau voru 266. 40 milljarða tjón á ári Í nýútkomnu ársyfirliti CERT- IS fyrir síðasta ár kemur fram að þegar gert er ráð fyrir að um 1,5% af vergri landsframleiðslu hér á landi tapist vegna netglæpa, jafngildi það um 40 milljörðum á ári. Sú fjárhæð gæti orðið enn hærri á þessu ári, því samkvæmt Guðmundi Arnari Sigmundssyni, forstöðumanni CERT-IS, hefur þróunin, það sem af er þessu ári, verið svipuð og á síðasta ári. „Það er stígandi vöxtur í flestum flokkum mismunandi tegunda árása,“ segir hann í samtali við Morg- unblaðið um tilkynningarnar frá síð- ustu áramótum. Netöryggissveitin hefur ekki skynjaranet til að fylgjast með net- umferðinni, heldur byggjast upplýs- ingarnar á tilkynningum sem henni berast um atvik sem varða netöryggi. Segir í ársskýrslunni að líklega megi rekja gríðarlega fjölgun tilkynninga í fyrra til tveggja þátta. „Annars vegar almennrar fjölgunar á atvikum tengdum netöryggi í heiminum og hins vegar þess að fyrirtæki og stofn- anir eru duglegri en áður um að til- kynna um atvik sem verða í þeirra kerfum.“ Fjölgun hefur orðið í öllum tegundum netárása Öllum tegundum netárása hefur fjölgað merkjanlega. Í fyrra var áberandi að tilkynningum fjölgaði mest vegna svindls á netinu, m.a. um svonefndar vefveiðar. Þá er reynt að safna viðkvæmum upplýsingum, svo sem um kortanúmer og lykilorð, með því að villa á sér heimildir, t.d. í gegn- um tölvupóst eða með eftirmynd af þekktri síðu. Tilkynnt var um 446 slík atvik í fyrra. Álagsárásir (DDoS), sem trufla aðgang að þjónustu yfir netið, hafa þróast síðustu ár í að verða sér- sniðnar að fórnarlambinu hverju sinni, að því er fram kemur á árs- yfirlitinu. Bent er á að alþjóðlegar rannsóknir sýni að allt að 60% smærri fyrirtækja sem verða fyrir netárás hætti starfsemi innan sex mánaða frá því að árásin var gerð. „Því fylgir einnig áfall, andlegt álag og streita að verða fyrir netárás, sem þarf að vinna úr,“ segir á yfirlitinu. CERT-IS birtir einnig fjölmargar ábendingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að auka eigið netöryggi. Þar skiptir m.a alla máli að verja að- ganga sína með lykilorði. Þetta má gera með því að nota lykilorðabanka fyrir allar síður og þjónustuleiðir á einum öruggum stað, sem mikilvægt er síðan að verja með fjölþátta auð- kenningu. Starfsemi CERT-IS stórefldist í fyrra í kjölfar nýrrar löggjafar. Mannafli sveitarinnar hefur rúmlega tvöfaldast og hafa m.a. sviðshópar verið virkjaðir fyrir fjármálainnviði, fjarskiptainnviði og orkuinnviði. En nauðsynleg uppbygging er talin taka a.m.k. þrjú ár. Fram kemur á yfirliti CERT-IS að skv. mati Alþjóða- fjarskiptasambandsins eru Íslend- ingar í fararbroddi þjóða heims í notkun á net- og upplýsingatækni en netöryggismálum sé hins vegar ábótavant. Tilraunir til netárása færast sífellt í vöxt Ógn Óvissustig almannavarna var í fyrsta skipti virkjað vegna netógnar í fyrra þegar í ljós kom mjög alvarlegur veikleiki í kóðasafninu Log4j. Ógnir við netöryggi » CERT-IS fékk fjölda til- kynninga í fyrra um aðgang að upplýsingum eftir ólöglegum leiðum, gagnatap og gagna- leka. » Í 16 tilvikum var um inn- brot að ræða í tölvukerfi hjá heimanotendum, fyrirtækjum eða rekstraraðilum. » Tilkynningar bárust um alls tíu árangurslausar tilraunir til að taka yfir tölvukerfi fórn- arlamba. » 16 tilkynningar bárust um spillikóða, þar sem tölvuveirur og annar kóði er notaður til að eyðileggja eða ná stjórn á tölvukerfum. » Tvö stór mál komu upp á síðasta ári, þ.e. svonefndar DDoS árásir á fjármálageirann og Log4j veikleikinn. » Sex atvik komu til kasta CERT-IS vegna þess sem flokk- að er sem níðingsefni, s.s. ein- elti, áreitni, eltihrellni, barna- níðsefni og upphafning ofbeldis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.