Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Sláttur Grasið er víða farið að spretta vel. Þótt enn sé eitthvað í að sláttur hefjist í sveitum er byrjað að slá gras á grænum svæðum í Reykjavík, þar á meðal hólinn við Stýrimannaskólann. Kristinn Magnússon Að fylgjast með kosningabaráttunni í Reykjavík var eins og að horfa á barna- leikrit. Leikskólinn var aðalumræðuefnið, menn gerðu sér mikl- ar vonir um fjölgun leikskólaplássa. Þess- ar vonir munu upp- fyllast í haust, ef borgarstjórnin finnur einhvers staðar fé og sumarið verður vel notað til að gera við myglublettina í leikskól- unum. Þá fjölgar leikskólaplássum til muna. Fjármálin settu borgarstjóra í dauðafæri fyrir minnihlutaflokk- ana, en þeim tókst ekki að notfæra sér það. Reykjavík skuldar 400 milljarða, en Dagur komst upp með að benda á önnur sveitarfélög sem skulda meira á mann. Mun- urinn er að vísu sá að flest þeirra geta borgað sínar skuldir, en Reykjavík getur það ekki. Því veldur viðvarandi taprekstur sem mun halda áfram, því borgin er með 2.000 stöðugildum of mikið á launaskrá miðað við það sem fjárhagurinn þolir. Svona fjárhagur er dauði hvers sveitarfé- lags. Skuldasúpan vindur upp á sig með síhækkandi fjár- magnskostnaði, bara nýjasta vaxtahækk- unin mun kosta Reykjavík 4-8 millj- arða á ári. Peninga- leysið þvælist fyrir í nauðsynlegum fram- kvæmdum og viðhaldi. Lögin gera ráð fyrir að sveitarstjórnarráðu- neytið setji fjárhaldsstjórn yfir slík byggðarlög og slíkt hefur verið gert. Nýjasta dæmið er Reykja- nesbær, en þar var skuldasúpunni komið fyrir hjá fjármálastofn- unum. En það virkar ekki í Reykjavík. Fjármálastofnanir landsins taka ekki á sig 400-500 milljarða nema ríkisábyrgðasjóður komi til við- bótar, og þá situr hann að endingu uppi með súpuna. Það borgar eng- inn af ríkistryggðum lánum nema einstaklingar með eignir. Ríkið gæti að vísu hirt Orkuveituna upp í skuldirnar og bætt henni við RA- RIK. En það er ekki betri kostur. Forsvarsmenn ríkissjóðs veigra sér því við að setja Reykjavík á hausinn eins og þeir ættu að vera búnir að gera. Bitinn er of stór fyr- ir ríkissjóð og Reykjavík skákar í því skjóli. Eina gróðafyrirtæki Reykjavík- ur er lóðabraskið, þ.e. að fá land fyrir nánast ekkert og selja síðan byggingarréttinn fyrir um 5 mkr. á hverja íbúð sem á landinu er byggð, fyrir utan aðrar tekjur sem borgin fær af byggingarstarfsemi. Menn sjá hvað það þýðir í pen- ingum ef byggja á 2.000 íbúðir á ári í Reykjavík. Keldnalandið er gott byggingarland, það tekur ekki langan tíma að finna út að það borgar sig fyrir Reykjavík að eyða einhverjum milljörðum í að byrja „pínulítið“ á borgarlínu ef Keldna- landið fæst í staðinn. Fyrsta lota borgarlínu af fimm stefnir á Keldnalandið svo þetta gæti geng- ið eftir. Borgarstjóri heldur því dauðahaldi í borgarlínuna þótt allir viti að hún er glópafjárfesting sem aldrei mun koma. En áður en það komst upp var ríkið búið að lofa 50 milljörðum króna upp í línuna, sem er verðmæti landsins á Keldum. Landið mun auka veltufé borgar- sjóðs um að minnsta kosti þrefalda þá upphæð, en það tekur Reykja- vík mörg ár að ná því inn í kass- ann. Vandamál borgarstjóra er því að losna við borgarlínuna án þess að missa Keldnalandið. Liður í þessu er að nú tala gömlu meiri- hlutaflokkarnir ekki um borgar- línu, heldur samgöngusáttmálann. Það tal ber að skilja þannig að þeir vilji fá helgunarsvæði Miklubraut- arinnar sem byggingarland til við- bótar við Keldnalandið og ná sér þar í viðbótarlóðasölu. Þar að auki vill borgarstjóri koma almannasamgöngum í Reykjavík alfarið yfir á ríkið. Vegagerðin er þegar að hanna borgarlínu og ætlar að klára það í haust. Betri samgöngur ohf. eiga að byggja hana og afhenda Strætó bs., en að snúa því við er ekki mikil breyting, þá taka Betri samgöngur ohf. við rekstri Strætó bs. og fá í staðinn leyfi til að leggja á nýjan skatt; tafagjöld, sem munu nema um 30.000 kr. á bíl í borginni á ári. Það mun koma sér vel fyrir borg- arstjóra að hafa góðan framsókn- armann sér við hlið í samningunum við ríkið um þetta. Borgarstjóri mun fá Framsókn til að lappa upp á meirihlutann í Reykjavík, hann er slyngur pólitíkus þótt hann sé ekki góður framkvæmdastjóri. Þetta hefði mátt ræða í kosn- ingabaráttunni, en hún kom aldrei nálægt jörðinni, svo ekkert af þessu var rætt. Með svona brölti komast menn hjá því að „missa“ fjármál Reykjavíkur upp á yfir- borðið, a.m.k. um tíma, en það var- ir ekki lengi. Ríkið þarf að fara að gera upp við sig hvenær á að taka á gjaldþroti höfuðborgarinnar og hvernig. Eftir Jónas Elíasson » Ótrúleg úrslit í Reykjavík, meiri- hlutinn féll og minni- hlutinn minnkaði, fram- sóknarmenn fylltu í skarðið og reyna núna að finna út hver ætlunin var. Jónas Elíasson Höfundur er verkfræðiprófessor. jonaseliassonhi@gmail.com Vegferð Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.