Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Vélar fyrir
atvinnumenn &
handverksfólk
Yfir 40 ára frábær
reynsla á Íslandi
Opið virka daga 9-18
laugardaga 11-17
Slípivél
BTS800
Verð 49.980
Súluborvél DP16
Verð 64.840
Smergill
BG150
Verð 24.960
Fræsari HF50
Verð 89.800
Spónsuga
Woova3
Verð 99.800
Borðsög HS80
Verð 39.980
Iðnaðarsuga
DC100
Verð 34.390
Slípivél
OSM600
Verð 72.890
Slípivél
BTS700
Verð 32.320
Vefverslun brynja.is
Slípivél
OSM100
Verð 53.180
Tifsög
Deco-flex
Verð 56.110
Hefill HMS1080
Verð 145.950
Tifsög SD1600
Verð 33.500
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Bandsög Basa1
Verð 64.760
Bútsög HM80L
Verð 29.190
Kæra nýkjörna
borgarstjórn.
Í burðarliðnum er
hjá öllum flokkum í
borgarstjórn Reykja-
víkur, að undanskild-
um einum þeirra,
Vinstri-grænum,
myndun nýs starf-
hæfs meirihluta. Ég
vil við þau tímamót
minna á okkur íbúana
í miðbænum sem lifum
við ærandi hávaða um
hverja einustu helgi.
Við sem stöndum að
baki hópnum Kjósum
hávaðann burt viljum
koma þeim skýru
skilaboðum inn í
meirihlutaviðræður
flokkanna að gera
bragarbót og bregð-
ast, með viðeigandi að-
gerðum, við þessum
mikla hávaða, sem spillir friðhelgi
einkalífs íbúanna, hótelgesta og
annarra sem svefnstað eiga í mið-
bænum.
Það þurfa allir að hvílast, kæru
borgarfulltrúar, og þar er enginn
undanskilinn. Dagur B. Eggerts-
son, fráfarandi borgarstjóri, var
þátttakandi í svefnráðstefnu fyrir
kosningar í Hörpu. Þar talaði hann
um mikilvægi þess að lengja svefn-
tíma fólks á öllum aldri. Ég geri
mér því vonir um að hann, ásamt
öðrum oddvitum flokkanna, taki
þetta mikilvæga mál upp á næsta
stig og bregðist við án allra tafa.
Þá vil ég að lokum vekja athygli
ykkar borgarfulltrúa á ályktun að-
alfundar Íbúasamtaka miðborgar
Reykjavíkur (ÍMR), sem líta
ónæðið vegna veitinga- og
skemmtistaða í miðbænum alvar-
legum augum.
Aðalfundurinn skoraði á borg-
arstjórn að verja rétt íbúanna til
þess að hafa svefnfrið um nætur,
en samkvæmt 4. grein
lögreglusamþykktar fyrir Reykja-
víkurborg er bannað að hafast
nokkuð að sem veldur ónæði eða
raskar næturró manna.
Heima á að vera best að hvílast.
Eftir Matthildi
Skúladóttur
Matthildur Skúladóttir
» Það þurfa allir að
hvílast, kæru borg-
arfulltrúar, og þar er
enginn undanskilinn.
Höfundur er íbúi í miðbænum.
matta@internet.is
Ærandi hávaði í miðri borg
Eitt af því sem veiru-
faraldurinn hafði áhrif
á er eitt elsta meðferð-
arúrræði landsins,
Foreldrahús, sem að-
stoðar fjölskyldur í
vanda. Sérhæfing okk-
ar eru börn og ungling-
ar með tilfinninga-
vanda, hegðunarvanda,
áhættuhegðun, fikt,
neyslu og fjölskyldur
þeirra.
Í fjölmiðlum síðustu misseri hafa
átakamiklar sögur verið sagðar af
ungu fólki þar sem skólinn brást, fé-
lagsþjónustan og samfélagið í heild.
Fátækt, basl og aðskilnaður við for-
eldra, ofbeldi af öllu tagi, vanræksla
og misnotkun á áfengi sem öðrum
vímuefnum – er gömul saga og ný.
Foreldrahús býr yfir mikilli fag-
þekkingu á sínu sviði, áralangri
reynslu og fagmennsku og er með öll
tæki og tól til að grípa
inn í vanda áður en hann
verður of mikill. Það
eina sem okkur vantar
er fjármagn til að halda
áfram okkar góða starfi.
Við höfum aldrei verið á
pari við aðrar stofnanir
sem meðhöndla skjól-
stæðinga sem eru eldri
en okkar. Þetta er nokk-
uð sem við ekki skiljum.
Því börnin eru svo dýr-
mæt.
Við sem samfélag
verðum að fara að um-
gangast börn út frá því virði sem þau
fæðast með og eiga að halda allt þar
til þau verða fullorðin. En það gerum
við ekki. Tilkynningar til barnavernd-
ar á árinu 2021 voru 13.264. Flestar
tilkynningar eru um vanrækslu á
börnum eða 5.614 talsins. Tilkynnt
var ofbeldi á börnum 3.827 sinnum og
um áhættuhegðun barna alls 3.714 til-
kynningar. Þetta eru málefnin sem
við erum sérfræðingar í.
Ef við hugsum til baka, í kjarna
þeirra sagna sem nú eru að koma
fram í dagsljósið þar sem börn upp-
lifðu úrræðaleysi og voru föst í þeim
hræðilegu aðstæðum sem þau tjá sig
um í dag, þá getum við spurt okkur í
dag: Hvað ætli það verði mörg börn
sem tjá sig um kórónuveirutímann
eftir einn eða tvo áratugi á sama hátt
þar sem sinnuleysi umhverfisins og
miklum tilfinningavanda var ekki
sinnt?
Við í Foreldrahúsi höfum tekið á
móti foreldrum og börnum þeirra í 36
þessi ár. Niðurbrotnum foreldrum
sem eru að bugast, börnum og ung-
lingum í tilfinningavanda, hegð-
unarvanda, áhættuhegðun sem og
vímuefnavanda. Á þessum 36 árum
hafa þúsundir nýtt sér þjónustu okk-
ar í Foreldrahúsi. Á síðasta ári voru
komur til okkar 3.242.
Árferðið núna eftir faraldurinn er
ekkert sérstaklega gott. Okkar við-
kvæmustu einstaklingar og fjöl-
skyldur hafa ekki komið vel út úr
þessum tíma. Það er lífsspursmál fyr-
ir framtíðina í þessu litla samfélagi að
börnin okkar fái sem best atlæti og
stuðning, að þau fái uppeldisskilyrði
við hæfi og verði fullgildir meðlimir
samfélagsins.
Það er algjör óþarfi og ekki í lagi að
við missum einn einstakling í örorku
vegna tilfinningavanda og óleystra
mála barnæskunnar, vegna brott-
hvarfs úr námi eða vegna afbrota sem
verða vegna stuðningsleysis.
Við erum með heilbrigðiskerfi í dag
sem styður við þessa einstaklinga
þegar þeir eru komnir það langt í úr-
ræðaleysinu að þeir lenda á spítala,
hjá lögreglunni og fyrir dómstóla. Af
hverju styður ríkisstjórnin ekki betur
við forvarnastarf Foreldrahúss? Við
erum alls staðar sett aftast í röðina og
það er alls ekki hagkvæmt fyrir rík-
isreksturinn að bregðast svona seint
við börnum í vanda.
Í Foreldrahúsi hefur aldrei mátt
neitt út af bera í rekstri samtakanna,
því við höfum aldrei fengið stuðning
stjórnvalda, líkt og önnur sambærileg
úrræði hafa fengið. Því spyr ég ríkis-
stjórnina:
Af hverju stendur skrifað á blaði að
börnin í landinu eigi að ganga fyrir?
Hljóð og mynd verða að fara saman.
Það er ekki nóg að segja hlutina, við
þurfum líka að gera þá!
Ég hvet forsætisráðherra, fjár-
málaráðherra, heilbrigðisráðherra og
barnamálaráðherra til að skoða mála-
skrá sína og færa Foreldrahús efst á
dagsplanið. Tryggja okkur fjármagn
fyrir áframhaldandi rekstri og gera
þetta strax! Við megum engan tíma
missa.
Því ef við verndum ekki börnin –
hvar lenda þau þá?
Eftir Berglindi
Gunnarsd.
Strandberg
Berglind Gunnarsd.
Strandberg
»Eitt af því sem veiru-
faraldurinn hafði
áhrif á er eitt elsta með-
ferðarúrræði landsins,
Foreldrahús, sem að-
stoðar fjölskyldur í
vanda.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Foreldrahúss.
berglind@foreldrahus.is
Eitt elsta meðferðarúrræði landsins þarf hjálp