Morgunblaðið - 21.05.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.05.2022, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 ✝ Vilmundur Þór (Villi) fæddist í Kvöldbliki á Rauf- arhöfn 26. júní 1945. Hann lést 2. maí 2022 á sjúkra- húsinu á Húsavík. Foreldrar Villa voru hjónin Hólm- fríður Friðgeirs- dóttir frá Odd- stöðum, f. 2.6. 1921, d. 5.7. 2018, og Jón- as Finnbogason frá Harðbak, f. 16.8. 1914, d. 9.5. 2009. Raufarhöfn í nokkur ár. Hinn 1. júní 2011 flutti Villi líka á Hvamm en áður hafði hann oft dvalið á Hvammi í stuttan tíma. Eins og annað ungt fólk á Rauf- arhöfn á þessum tíma vann Villi ýmis störf varðandi síld, svo sem á síldarplönum og í Síldarverk- smiðjunni. Árið 1968 tók faðir Villa við umboði Esso á Rauf- arhöfn og vann Villi þar við af- greiðslustörf meðan faðir hans rak Esso. Eftir það vann Villi nokkur ár í frystihúsinu á Rauf- arhöfn. Þá fór að bera meira á þeim andlega sjúkdómi sem hafði fylgt honum mestalla hans ævi og við það hætti hann að geta unnið. Útför Villa fer fram frá Rauf- arhafnarkirkju í dag, 21. maí 2022, og hefst klukkan 14. Systkini Villa eru stúlka óskírð, f. 5.2. 1942, d. 6.2. 1942, Valgeir, f. 27.2. 1950, og Gunnar Finnbogi, f. 6.4. 1956. Villi ólst upp á Raufarhöfn og bjó lengst af hjá for- eldrum sínum í Sunnuhvoli. Þegar foreldrar hans fluttu á Hvamm á Húsavík kringum 2007 bjó hann einn á Mig langar að minnast elsku- legs mágs míns í örfáum orðum. Villi mágur minn var einstak- lega ljúfur maður. Ég sá hann aldrei skipta skapi þrátt fyrir erf- iðleikana sem hann þurfti að glíma við nánast alla ævi. Hann stríddi við veikindi alveg frá barn- æsku og margir draumar gátu ekki ræst. Samt sem áður var stutt í húmorinn þegar sá gállinn var á honum. Villi var mjög minnugur á af- mælisdaga fjölskyldunnar og minnti móður sína á þá þegar hún var orðin háöldruð. Einnig mundi hann flest ef ekki öll Þ-bílnúmer á Raufarhöfn og í nálægum sveit- um. Þegar Villi var lítill, var hann kallaður Stáki af barnakennara sínum, en stáki er annað heiti yfir lítinn strák. Villi tók ástfóstri við þetta nafn og bíllinn hans var með þetta einkanúmer. Eftir að Villi hætti að keyra og var kominn með göngugrind, kallaði hann grindina Litla-Stáka. Síðustu árin naut hann ástúðar og umhyggju á Hvammi á Húsa- vík og erum við þakklát fyrir það. Blessuð sé minning Villa. Kristín Böðvarsdóttir. Elsku Villi frændi. Nú er víst komið að kveðjustund. Ég á margar góðar minningar af ynd- islegum samverustundum og þá sérstaklega á Raufarhöfn og í sæl- unni í Systraseli. Þú tókst alltaf vel á móti okkur bræðrabörnun- um, enda barngóður með ein- dæmum. Og þegar við fórum að koma með börnin okkar norður, fengu þau sömu góðu móttökurn- ar frá þér. Í minningunni stóðst þú alltaf fyrir utan í Sunnuhvoli að reykja vindilinn þinn þegar við renndum í hlað eftir langt ferða- lag. Stelpunum mínum fannst allt- af merkilegt hvernig þú mundir alla afmælisdaga og létu þig þylja upp afmælisdaga allra afkomenda ömmu og afa sem þú fórst létt með. Eins fannst mér alltaf merkilegt hvað þú mundir öll bíl- númer þegar ég var lítil. Það verð- ur skrýtið að koma ekki við hjá þér á Hvammi í komandi norðan- ferðum okkar fjölskyldunnar. Þrátt fyrir að lífið hafi ekki allt- af leikið við þig og þú hafir þurft að berjast við erfiðan sjúkdóm megnið af ævi þinni, varstu ótrú- lega góður og ljúfur við alla. Ég man ekki eftir að þú hafir hall- mælt nokkrum manni. Og þú náð- ir alltaf að halda í húmorinn. Ég er ótrúlega þakklát fyrir sam- veruna á Akureyri í fyrra þegar fjölskyldan kom saman til að fagna 100 ára afmæli Hollu ömmu. Þá lá svo vel á þér og við grenjuðum öll úr hlátri yfir göml- um sögum og eftirhermunum hans Nabba. Elsku Villi, ég veit að amma og afi taka vel á móti þér og amma verður án efa tilbúin að stjórnast aðeins í þér. Þangað til næst frændi. Sóley Valgeirsdóttir. Takk fyrir bréfin, elsku Villi frændi. Ég veit að við vorum stoltir hvor af öðrum. Það voru hundruð km milli okkar en þrátt fyrir það náðum við vel saman. Bréfin þýða meira núna enda mörg ár síðan, ég veit betur hvað þú varst að gera. Mikið þykir mér vænt um það núna á fullorðinsárum. Þegar við komum til Raufar- hafnar stóðst þú yfirleitt fyrir ut- an með vindilinn. Síðustu ár þegar ég hef komið í Sunnuhvol finnst mér vanta Villa í tröppunum að bíða eftir okkur eins og það hafi verið eitthvað merkilegt. Þú hefð- ir mögulega getað kennt pabba, litla bróður, að taka reykinn ofan í sig eins og í sögunni. Takk fyrir að taka svona vel á móti okkur á Hvammi. Síðasta sumar var sérstaklega minnis- stætt enda sagðir þú sögu eftir sögu og reyttir af þér brandarana. „Óðum steðjar að sá dagur, af- mælið þitt kemur senn.“ Þú mundir eftir afmælisdögum hjá öllum þínum nánustu. Vonandi tekur einhver það hlutverk að sér núna. Með allra bestu kveðju, Jónas og fjölskylda. Góða ferð kæri frændi. Ekkert varir að eilífu í enda- lausri hringrás lífsins. Þó að ég hefði valið að hafa þig hér hjá okk- ur aðeins lengur veit ég að þér verður afskaplega vel tekið á nýj- um stað. Þar sem eftir þér er beð- ið, þar sem öllum líður vel og allir fá að vera eins og þeir eru. Daginn sem þú kvaddir okkur kom fyrsta lambið á Hóli í heim- inn þetta sumarið. Lamb sem ég nefndi auðvitað Björk í höfuðið á kindinni þinni sem ég gat aldrei munað hvað hét, jafnvel þótt ég hafi heyrt söguna af kindum afa oftar en aðrar sögur. Ekkert okkar fær að ráða hversu mikinn tíma við fáum. Að- eins hvernig við nýtum hann og mínum tíma var a.m.k. vel varið með þér. Oftar en ekki þegar við þurftum á fersku lofti að halda. En einnig þegar við þurftum frí frá fólki eða mögulega gefa fólk- inu okkar frí frá mér. Frí sem mér þótti vænt um að fá að eiga í friði með þér. Endalok eins eru oft upphaf einhvers annars. Söknuðinum fylgir því falleg staðfesting á góð- um stundum. Megi gæfan fylgja þér, ávallt. Guðm. Axel. Vilmundur Þór Jónasson Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Við þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæra KJARTANS MOGENSEN, Norðurbrún 20, Reykjavík. Við færum sérstakar þakkir starfsfólki HERU-teymis Landspítala. Halldóra Ólafsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÍVAR S. ÞORSTEINSSON, Hryggjarseli 3, Reykjavík, verður kvaddur frá Seljakirkju föstudaginn 27. maí klukkan 13. Starfsfólki Eirar og Maríuhúss er þökkuð einstök aðhlynning. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Sesselja Þórðardóttir Þórður Ívarsson Þorbjörg Ólafsdóttir Eyþór Ívarsson Ásta Axelsdóttir Sóley Þórðardóttir Sesselja Þórðardóttir Saga Eyþórsdóttir Eydís Þula Eyþórsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGU EIRÍKSDÓTTUR, Austurvegi 51, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hand- og lyflækningadeildar HSU Selfossi fyrir góða umönnun. Bertha Sigurðardóttir Tryggvi Karl Magnússon Þórir Tryggvason Kristbjörg Sigtryggsdóttir Ómar Ingi Tryggvason Sædís Kristjánsdóttir Anna Rut Tryggvadóttir Sigurður Eyberg Guðlaugsson og barnabarnabörn Elsku hjartans sonur okkar, bróðir og barnabarn, ÓMAR ANDRÉS OTTÓSSON, Hedegaardsvej 11a, Kaupmannahöfn, varð bráðkvaddur sunnudaginn 8. maí vegna heilablæðingar. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju 31. maí klukkan 13. Sigurlína Andrésdóttir Snorri Valberg Egill Orri Valberg Auður Ísadóra Valberg Hreinn Ómar Sigtryggsson Kolbrún Þórisdóttir Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA AÐALSTEINSDÓTTIR, Kleppsvegi 62, lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 11. maí. Útför fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 25. maí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Magnús Magnússon Kristín H. Valdimarsdóttir Vilborg Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR, Aðalgötu 22, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki, mánudaginn 2. maí. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 25. maí klukkan 14. Magnús K. Friðfinnsson Steinunn Benediktsdóttir Margrét Friðfinnsdóttir Sigurbjörn Heiðdal Torfi Þór Friðfinnsson Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir Lárus I.B. Friðfinnsson Aldís Hafsteinsdóttir Hrefna Skarphéðinsdóttir Petrína Hjálmarsdóttir og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA S. JÓNASSONAR, Álandi 3, 108 Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu Laugarási fyrir góða umönnun. Jónas Bjarnason Una Björg Bjarnadóttir Bjarni Þór Bjarnason og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGDALENA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR frá Hrísdal, Snæfellsnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 16. maí. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 27. maí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Margrétar Oddsdóttur. Elías Oddsson Ingibjörg Svavarsdóttir Ólöf Björk Oddsdóttir Valdimar Jón Halldórsson Haukur Oddsson Margrét Gunnarsdóttir Jóhanna Oddsdóttir Jón Ólafur Sigurðsson Pétur Oddsson Sigurlín G. Pétursdóttir Sigurður Oddsson Birna Björk Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐLAUGS KETILS KETILSSONAR vélfræðings, Þjóðbraut 1, Akranesi. Sérstakar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Minningin lifir. Ingibjörg Rafnsdóttir Erna Björg Guðlaugsdóttir Hörður Sigurbjarnason Rafn Hafberg Guðlaugsson Lísa Sigríður Greipsson Birkir Guðlaugsson Sif Davíðsdóttir Katla Guðlaugsdóttir Ólafur Sævarsson afabörnin og langafabörnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.