Morgunblaðið - 21.05.2022, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Þín upplifun
skiptir okkur máli
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Við tökum vel á móti þér
Fjölbreyttur og spennandi
matseðill þar sem allir
finna eitthvað við sitt hæfi
Skoðið matseðilinn á
finnssonbistro.is
60 ÁRA Anna Þóra fæddist 21. maí
1962 í Reykjavík. Hún ólst upp í Vest-
urbænum í Reykjavík og fór í Mela-
skóla og síðan í Hagaskóla. Að því
loknu lá leið hennar í Verslunarskóla
Íslands. Árið 1984 fór Anna til Ála-
borgar í Danmörku, þar sem hún lagði
stund á rekstrarverkfræði við Aalborg
Universitet Center og flutti aftur
heim til Íslands að útskrift lokinni.
Anna lagði um tíma stund á djákna-
nám og kennsluréttindanám, nám í
markaðs- og útflutningsfræði og
fleira, síðast í verkefnastjórnun og
leiðtogaþjálfun hjá Endurmenntun
HÍ.
Anna hefur unnið víða, meðal ann-
ars við fasteignaskráningu, matsstörf,
gerð og yfirferð eignaskiptayfirlýs-
inga og álagningu fasteignagjalda.
Hún starfar nú sem verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað. „Verkefnin eru
fjölbreytt og spennandi, meðal annars í tengslum við aðgengi fatlaðra og
lóðaúthlutun og svo er samstarfsfólkið frábært.“ Auk þess tekur Anna að sér
gerð og yfirferð eignaskiptayfirlýsinga og lauk nýverið prófi í svæðameðferð.
„Ég hef verið að fá fólk til mín í svæðameðferð, og einnig í andlitsnudd og
baknudd.“
Anna Þóra hefur sungið altrödd í Kammerkór Mosfellsbæjar um árabil.
„Líkamsræktin skipar stóran sess hjá mér núna. Ég hef einnig gaman af úti-
vist, geng á fjöll og finnst yndislegt að vera í sumarbústaðnum okkar við
Þingvallavatn. Auk þess finnst mér gaman að ferðast, bæði innan lands og
utan.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Önnu Þóru er Örn Arnarson, f. 1964,
byggingartæknifræðingur hjá Vektor. Sonur þeirra er Hannes Orri, f. 2001.
Anna er yngra barn hjónanna Gísla Teitssonar, f. 1928 í Reykjavík, d. 2000,
og Þóru Stefánsdóttur, f. 1933, d. 2021, frá Fagraskógi. Gísli var lengst af
framkvæmdastjóri Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík og Þóra var
bókasafnsfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Anna Þóra Gísladóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gerðu þér glögga grein fyrir tilfinn-
ingum þínum áður en þú lætur til skarar
skríða í vissu máli þó þú sért með hjartað í
buxunum. Börn koma mikið við sögu í dag.
20. apríl - 20. maí +
Naut Komið gæti til lítilsháttar ágreinings
við vin í dag. Ekki láta stoltið ráða för.
Haltu áfram að spara fyrir því sem þig
langar í.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu að finna einhverjar nýjar
leiðir svo þú getir fengið meiri tíma fyrir
áhugamál þín. Ekki láta berast með
straumnum, það er ekki þinn stíll.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er eins og einhver hafi gefið
þér vítamínsprautu, þú ert óstöðvandi. Þú
ferð inn á nýjar brautir í sumar sem munu
leiða þig í ný ævintýri.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er hætt við spennu í ástarsam-
bandi þínu næsta mánuðinn. Þó eitthvað
mistakist er engin ástæða til að gefast
upp.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Vinum þínum finnst þeir hafa verið
vanræktir af þér síðustu vikur. Gerðu eitt-
hvað í því. Komdu hreint fram og allt fellur
í ljúfa löð.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Gerðu aðeins það sem samviskan seg-
ir þér, því annars gæti farið illa. Vertu vand-
lát/ur í vinavali.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú gætir þurft að sætta þig
við málamiðlanir í dag. Dagurinn hentar því
vel til veisluhalda.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Óvænt tækifæri gefst til ferða-
laga. Stökktu af stað og þú munt ekki sjá
eftir því. Haltu samt fast um budduna.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Vinur reynir að sannfæra þig
um eitthvað í dag. Láttu ekki ýta þér út í
neitt, sem þú ert ekki handviss um að sé
gott fyrir þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Taktu ekki þátt í þrætumálum
af neinu tagi og láttu aðra um að finna
lausn á sínum málum. Kryddaðu hversdag-
inn með litlum breytingum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Gefðu þér tíma til að skyggnast
undir yfirborð hlutanna, aðeins þannig
færðu upplýsingar sem þú þarft til að
ákveða þig. Þú færð góðar fréttir af ætt-
ingja.
sveitarstjórnarkosningum og hlaut
kjör sem bæjarfulltrúi.
Áhugamál Kristins eru tónlist,
fótbolti og ljósmyndun. „Mér finnst
gaman að fara á tónleika og svo hef
ég líka farið nokkrum sinnum út að
sjá Man. Utd. spila. Ég hef líka gam-
an af að fylgjast með ameríska fót-
boltanum en ég spilaði hann þegar
ég var skiptinemi. Með ljósmynd-
unina þá hef ég aðallega verið dug-
legur að safna tækjum en ekki haft
eins mikinn tíma til að nota þau. Ég
hef eiginlega meira gaman af því að
á lista Samfylkingarinnar í bæjar-
stjórnarkosningum á Akranesi.
Hann var í 4. sæti, en Samfylkingin
fékk þá tvo fulltrúa. Kristinn var þá
um tíma í stjórn Byggðasafnsins í
Görðum og aðalmaður í skóla- og frí-
stundaráði. Hann var aftur á lista
2018 og aftur í 4. sæti en þá fékk
Samfylkingin þrjá menn. Hann varð
aðalmaður eftir rúmt ár, þegar 2.
maður á lista hætti í bæjarstjórn.
Hann hefur verið formaður vel-
ferðar- og mannréttindaráðs þann
tíma. Kristinn var í 3. sæti í síðustu
K
ristinn Hallur Sveins-
son er fæddur 21. maí
1972 í Reykjavík og
bjó þar fyrsta árið.
Fjölskyldan flutti svo
á Klúkuskóla í Bjarnarfirði þegar
Kristinn var eins árs, en faðir hans
var skólastjóri þar. Þau fluttu svo á
Snæfellsnes í Laugargerðisskóla
þegar hann var 5 ára þar sem for-
eldrar hans fóru að kenna og faðir
hans varð seinna skólastjóri. Þau
fluttu síðan á Akranes 1981. Þar fór
Kristinn í Brekkubæjarskóla, síðan í
Fjölbrautaskóla Vesturlands og út-
skrifaðist þaðan um jólin 1992. Hann
fór sem skiptinemi til Wisconsin í
Bandaríkjunum veturinn 1990-91 á
vegum AFS.
„Ég varði sumrunum sem barn
norður í Árneshreppi, á Dröngum og
Seljanesi. Það voru jarðir sem afi og
amma, Kristinn Hallur og Anna Jak-
obína, áttu. Drangar eru hlunninda-
jörð, þar er reki og selur en mikil-
vægustu hlunnindin eru æðardúnn.
14 ára fór ég að vinna sumarvinnu
hjá EG í Bolungarvík og gerði það
næstu þrjú sumur.“
Kristinn hóf nám í landafræði við
Háskóla Íslands 1994. „Ég vann hjá
Löndun ehf. við uppskipun úr fiski-
skipum með skóla. Á sumrin vorum
við Margrét konan mín í vinnu aust-
ur á Djúpavogi, þar sem móðir henn-
ar og eiginmaður bjuggu. Hann var
yfirverkstjóri hjá Búlandstindi á
þeim tíma. Þar vann ég í fiski og var
tvö sumur á sjó á frystitogaranum
Sunnutindi.“
Eftir útskrift úr HÍ 1998 fór
Kristinn að vinna hjá Landmæl-
ingum Íslands. Hann fór í kennslu-
réttindanám við Háskólann á Akur-
eyri veturinn 1999 með vinnu og
útskrifaðist með kennararéttindi
vorið 2001. Hann kenndi einn vetur í
stundakennslu við Grundaskóla og
FVA meðfram vinnu hjá LMÍ.
Vorið 2002 bauðst honum vinna
hjá Loftmyndum í Reykjavík. „Ég
hef unnið þar síðan við ýmiskonar
vinnu við landfræðileg upplýsinga-
kerfi, kortagerð, loftmyndir og svo
framvegis. Við rekum til dæmis
vefinn map.is.“
Árið 2014 tók Kristinn fyrsta sæti
taka myndir af byggingum og mann-
lífi heldur en úti í náttúrunni.“
Fjölskylda
Eiginkona Kristins er Margrét
Rós Jósefsdóttir, f. 28.7. 1972, kenn-
ari. „Við kynntumst í sameiginlegri
útskriftarferð FVA og FG. Við
bjuggum í Reykjavík á háskóla-
árunum en höfum búið á Akranesi
síðan 1998.“ Foreldrar Margrétar
eru Björg Ólafsdóttir, f. 20.1. 1954,
frá Hafnarfirði, og Jósef Hólmgeirs-
son, f. 16.1. 1952, frá Keflavík, bú-
Kristinn Hallur Sveinsson, landfræðingur og bæjarfulltrúi 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Kristinn, Sveinn Logi, Dagur Kári, Almar Daði og Margrét.
Loftmyndir og ljósmyndun
Með vinafólki Efri röð frá vinstri: Kristinn, Valgarður, Grétar og Hrannar.
Neðri röð frá vinstri: Kristín, Margrét, Íris og Alda um jólin 2019. Ljósmyndarinn Kristinn Hallur.
Til hamingju með daginn