Morgunblaðið - 21.05.2022, Síða 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Vesturgata 15, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Vel staðsett 3ja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt bílskúr
í fjórbýlishúsi hús í gamla bænum í Keflavík.
Íbúð 89,2 m2 og bílskúr 20,9 m2
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali
s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali
s. 899 0555
Bjarni Fannar Bjarnason
Aðstoðamaður fasteignasala
s. 773 0397
Verð 45.000.000 Birt stærð 110,1 m2
„HVAÐ EF ÉG SEGÐI ÞÉR AÐ ÞAÐ ER
ENGIN RANNSÓKN Í GANGI – AÐ
ALLUR ÞESSI FARSI ER TIL ÞESS AÐ
ÉG TAKIST Á VIÐ ÓTTA MINN VIÐ
NAGDÝR?“
„HEFURÐU HEYRT MINNST Á BÓKINA
„HVERNIG Á AÐ SÝNAST HÁVAXNARI“?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta hann dekra
við þig í veikindunum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉGÆTLA AÐ REYNA AÐ
VERA JÁKVÆÐARI
STÍFLAN
BRAST!
NAMM!
FISKUR!
ÉG HELD AÐ ÞÚ HAFIR
GEFIÐ OF MIKIÐ Í
ÞJÓRFÉ!
EINHVER ÞARF AÐ HJÁLPA
ÞEIM AÐ KAUPA FLEIRI FÖT!
settur í Reykjanesbæ. Björg er gift
Sigurði Arnþórssyni frá Fáskrúðs-
firði, f. 3.3. 1943. Þau bjuggu lengi á
Djúpavogi en búa núna í Hafnarfirði.
Synir Kristins og Margrétar eru
Sveinn Logi Kristinsson, f. 9.2. 1999,
háskólanemi; Almar Daði Kristins-
son, f. 3.3. 2003, framhaldsskólanemi
í FVA, og Dagur Kári Kristinsson, f.
18.6. 2007, grunnskólanemi. Allir bú-
settir í foreldrahúsum.
Alsystir Kristins er Rósa Guðrún
Sveinsdóttir, f. 1.10. 1980, tónlistar-
maður og tónlistarkennari, býr í
Hafnarfirði. Hálfbræður Kristins
sammæðra eru Björn Sigurðsson, f.
29.9. 1962, grafískur hönnuður, býr í
Umeå í Svíþjóð, og Guðmundur Sig-
urðsson, f. 31.10. 1965, smiður hjá
Byggðasafninu í Görðum, býr á
Akranesi. Hálfsystkini Kristins,
samfeðra, eru Ingunn Sveinsdóttir,
f. 20.6. 1967, aðstoðarleikskólastjóri
á Garðaseli, býr á Akranesi; Hildur
Sveinsdóttir, f. 29.8. 1978, leikskóla-
liði, býr í Borgarnesi, Vésteinn
Sveinsson, f. 3.11. 1987, tölvunar-
fræðingur og verkefnastjóri hjá
Advania, býr í Reykjavík; Bergþóra
Sveinsdóttir, f. 12.6. 1991, tóm-
stunda- og félagsmálafræðingur, býr
í Reykjavík. Uppeldissystir Kristins
er Erla Ingvarsdóttir, f. 16.8. 1976,
kennari, býr í Danmörku.
Foreldrar Kristins: Gunnvör
Björnsdóttir, f. 8.11. 1942, d. 2.10.
2010, kennari, og Sveinn Kristins-
son, f. 4.9. 1946, kennari, fyrrverandi
skólastjóri og fyrrverandi bæjar-
fulltrúi á Akranesi, formaður Rauða
krossins á Íslandi 2014-2022, búsett-
ur á Akranesi.
Kristinn Hallur
Sveinsson
Guðrún Magnúsdóttir
húsfreyja í Aldarminni og á Tjarnargötu 47
Jón Sigurðsson
barnakennari og sláttumaður
í Aldarminni á Stokkseyri, bjó
síðar á Tjarnargötu 47
Guðríður Jónsdóttir
húsfreyja á Tjarnargötu 47
Björn Benediktsson
prentari, bjó á Tjarnargötu 47 í Reykjavík
Gunnvör Björnsdóttir
kennari á Akranesi
Ingunn Björnsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Benedikt Jóhannesson
verkamaður í Reykjavík
Anna Jónasdóttir
húsfreyja í Þaralátursfirði og Skjaldabjarnarvík
Anna Jakobína Guðjónsdóttir
húsfreyja á Seljanesi og Dröngum á
Ströndum, síðar verkakona í Bolungarvík
Kristinn Hallur Jónsson
sjómaður og bóndi á Seljanesi og Dröngum í
Árneshreppi, síðar verkamaður í Bolungarvík
Solveig Stefanía
Benjamínsdóttir
húsfreyja á Seljanesi
Jón Guðmundsson
bóndi á Seljanesi
Ætt Kristins Halls Sveinssonar
Sveinn Kristinsson
kennari, fv. skólastjóri,
bæjarfullrúi á Akranesi og
formaður Rauða krossins
Guðjón Kristjánsson
bóndi í Þaralátursfirði á
Hornströndum og í Skjalda-
bjarnarvík í Árneshreppi
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Vættur ill hér vera má.
Væna, litla barnið er.
Goð svo nefni helg og há.
Heiti þetta sauður ber.
Karlinn á Laugaveginum á þessa
lausn:
Ókind mörg má okkur hrjá.
Afa barn er kindin mín.
Helgar kindir í heiðni sá.
Hjarðir kinda er falleg sýn.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una svona:
Vættur þessi ókind er.
Eru kindur börnin smá.
Kindir goðin helgar hér.
Kindur sauði nefna má.
Þá er limra:
Skynsöm og sköpuð í kross
skylt á hún ekkert við hross,
kindur og kýr
né kattardýr
því hún er víst ein af oss.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Í morgun vísukorn ég kvað
og klóraði á minnisblað.
Í flýti þessi gáta ger
þó gæti vafist fyrir þér:
Hríðarél um hauður fer.
Hlaupaleikur þetta er.
Deila milli manna hörð.
Mikill eldur svíður jörð.
Jóhann S. Hannesson orti:
Það er eitt sem ég aldrei fæ skilið:
ef ég ætla að ganga upp þilið
losna iljarnar frá
og fæturnir ná
ekki að fylla að gagni upp í bilið.
Sigrún Haraldsdóttir orti:
Hún Björg var að bera út póst
og bogin hún rétt áfram dróst;
það var krefjandi streð
því konan var með
alveg svakaleg sílikonbrjóst.
Atgervisflótti eftir Hjálmar
Freysteinsson:
Í Fjallabyggð fátt er að ske,
á framkvæmdagleðinni er hlé.
Ýmist farlama dó
eða flutti út að sjó
allt fólk – nema hvort tveggja sé.
Bjarni Jónsson frá Gröf kvað um
„afturför“:
Öli hresstur ekki sést,
eins og prestur breyti,
nú er flest, sem fannst mér best,
farið að mestu leyti.
Úr Heilræðarímu Jóns Bjarna-
sonar á Presthólum:
Ef þú hæðir hryggan mann,
hefndar þó þú bíðir,
Guð hefur magt að hugga hann
en hrella þig um síðir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margt er kvikra kinda kyn