Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022
Lengjudeild karla
Þór – Grindavík ........................................ 1:1
Afturelding – Selfoss................................ 1:1
Kórdrengir – KV ...................................... 2:0
Staðan:
Fylkir 3 2 1 0 9:4 7
Selfoss 3 2 1 0 6:4 7
Grótta 3 2 0 1 8:2 6
Fjölnir 3 2 0 1 9:6 6
Grindavík 3 1 2 0 5:2 5
Kórdrengir 3 1 1 1 3:2 4
Þór 3 1 1 1 3:5 4
HK 3 1 0 2 5:6 3
Vestri 2 1 0 1 2:5 3
Afturelding 3 0 2 1 2:4 2
KV 3 0 0 3 2:8 0
Þróttur V. 2 0 0 2 0:6 0
2. deild karla
Þróttur R. – ÍR ......................................... 2:1
Reynir S. – Ægir ...................................... 0:2
KFA – Völsungur ..................................... 1:1
Magni – Höttur/Huginn........................... 3:2
Staðan:
Völsungur 3 2 1 0 7:3 7
Ægir 3 2 1 0 3:0 7
Njarðvík 2 2 0 0 9:0 6
Haukar 2 2 0 0 2:0 6
Þróttur R. 3 2 0 1 4:5 6
ÍR 3 1 1 1 4:2 4
Magni 3 1 0 2 3:8 3
KF 2 0 2 0 2:2 2
KFA 3 0 2 1 3:4 2
Víkingur Ó. 2 0 1 1 1:3 1
Reynir S. 3 0 0 3 1:6 0
Höttur/Huginn 3 0 0 3 2:8 0
3. deild karla
KFG – KH................................................. 3:1
Augnablik – Víðir ..................................... 2:1
Elliði – Vængir Júpíters .......................... 0:1
Staðan:
Dalvík/Reynir 2 2 0 0 6:0 6
KFG 3 2 0 1 5:2 6
Víðir 3 2 0 1 4:3 6
Vængir Júpiters 3 2 0 1 3:3 6
Kári 2 1 1 0 4:1 4
Elliði 3 1 1 1 2:2 4
Augnablik 3 1 1 1 3:4 4
Kormákur/Hvöt 2 1 0 1 4:4 3
KFS 2 1 0 1 2:4 3
Sindri 2 0 1 1 2:3 1
ÍH 2 0 0 2 3:5 0
KH 3 0 0 3 1:8 0
Lengjudeild kvenna
Tindastóll – HK ........................................ 0:1
Fjölnir – Augnablik.................................. 1:2
Haukar – Fylkir........................................ 3:1
Staðan:
HK 3 3 0 0 8:3 9
Fjarð/Hött/Leikn. 2 2 0 0 8:1 6
FH 2 2 0 0 7:2 6
Víkingur R. 3 2 0 1 8:5 6
Tindastóll 3 2 0 1 3:1 6
Augnablik 3 1 0 2 4:6 3
Grindavík 3 1 0 2 2:5 3
Haukar 3 1 0 2 3:7 3
Fylkir 3 0 0 3 2:7 0
Fjölnir 3 0 0 3 4:12 0
Svíþjóð
Eskilstuna – Rosengård.......................... 0:3
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn fyr-
ir Rosengård.
Staða efstu liða:
Rosengård 10 7 3 0 25:8 24
Häcken 9 6 3 0 19:6 21
Linköping 9 6 1 2 15:7 19
Eskilstuna Utd. 10 6 1 3 14:11 19
Vittsjö 9 4 4 1 11:9 16
Kristianstad 9 4 3 2 17:10 15
Spánn
Real Madrid – Real Betis ........................ 0:0
Staða efstu liða, lokaumferð um helgina:
Real Madrid 38 26 8 4 80:31 86
Barcelona 37 21 10 6 68:36 73
Atlético Madrid 37 20 8 9 63:42 68
Sevilla 37 17 16 4 52:30 67
Real Betis 38 19 8 11 62:40 65
50$99(/:+0$
Frakkland
Aix – Istres ........................................... 39:29
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði fjög-
ur mörk fyrir Aix sem er í þriðja sæti þegar
fjórir leikir eru eftir.
B-deild:
Nice – Valence ..................................... 32:26
- Grétar Ari Guðjónsson varði 20 skot í
marki Nice sem endaði í fjórða sæti og fer í
umspil um sæti í efstu deild.
Þýskaland
B-deild:
Elbflorenz – Gummersbach ............... 30:29
- Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk
fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrm-
isson er frá vegna meiðsla. Guðjón Valur
Sigurðsson þjálfar liðið, sem hefur þegar
tryggt sér sigur í deildinni og sæti í efstu
deild þótt þrír leikir séu eftir.
Noregur
Undanúrslit, þriðji leikur:
Drammen – Arendal ........................... 38:30
- Óskar Ólafsson skoraði fjögur mörk fyr-
ir Drammen sem minnkaði muninn í einvíg-
inu í 2:1. Sigurvegari þess mætir Elverum í
úrslitaeinvíginu.
.$0-!)49,
Í SAFAMÝRI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Handknattleiksstórveldin Fram og
Valur buðu upp á mikla skemmtun
og enn meiri spennu í fyrsta leik lið-
anna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts
kvenna í handbolta í Safamýri í gær-
kvöldi. Fram vann að lokum með
minnsta mun, 28:27.
Nokkur taugaspenna gerði vart
við sig í upphafi leiks hjá báðum lið-
um og var staðan eftir rúmar tíu
mínútur 2:2. Eftir það opnaðist leik-
urinn og var hann stútfullur af hröð-
um og skemmtilegum, en þó stund-
um mistækum, handbolta.
Karen Knútsdóttir átti magnaðan
leik fyrir Fram, skoraði níu mörk og
lagði upp heilan helling á liðsfélaga
sína. Hún sýndi hvers vegna hún er
talin ein besta handboltakona Ís-
lands síðasta áratug. Þá átti Krist-
rún Steinþórsdóttir mjög góða
spretti. Það ber að hrósa stemning-
unni í liði Fram. Stórir persónu-
leikar á borð við Steinunni Björns-
dóttur og Emmu Olsson gera
íþróttina skemmtilegri.
Sara fór á kostum
Valur gat helst þakkað Söru Sif
Helgadóttur í markinu að sigurinn
var ekki stærri, en hún varði 20 skot.
Sara er í mun stærra hlutverki hjá
Val núna þar sem Saga Sif Gísladótt-
ir er ólétt og ekki með.
Valskonur eiga hins vegar mikið
inni hjá leikmönnum eins og Theu
Imani Sturludóttur, sem var með
mjög dapra skotnýtingu, Mariam
Eradze og Hildigunni Einarsdóttur
sem náðu sér ekki almennilega á
strik. Þær eru allar landsliðskonur
og geta miklu betur.
Valskonur voru marki yfir og með
boltann þegar um tíu mínútur voru
eftir en þá kom óðagot í liðið og virt-
ist markmiðið vera að skora tvö
mörk í hverri sókn. Framarar eru
með of gott lið til að láta bjóða sér
slíkt tvisvar og þrjú eldsnögg mörk í
röð gerðu það að verkum að Fram
var aftur komið yfir. Það reyndist
andlegt högg fyrir Valskonur, þar
sem þær voru búnar að elta allan
leikinn og loksins komnar yfir. Var
kaflinn vendipunktur.
Annars gefur einvígið afar góð
fyrirheit og er um tvö langbestu lið
landsins að ræða. Valskonur eiga
mikið inni en á sama tíma voru
Framarar ekki kampakátir með
frammistöðuna, þrátt fyrir sigurinn.
Byrjunin
gefur afar
góð fyrirheit
- Fram vann Val með minnsta mun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öflug Línumaðurinn Steinunn Björnsdóttir, landsliðskona í handknattleik,
skoraði fjögur mörk fyrir Fram í sigrinum nauma í gærkvöldi.
Selfossliðinu mistókst að komast
eitt á topp 1. deildar karla í knatt-
spyrnu, Lengjudeildarinnar, þegar
liðið sótti Aftureldingu heim í
Mosfellsbæinn í gærkvöldi. Ingvi
Rafn Óskarsson kom Selfossi yfir
þegar rúmur stundarfjórðungur
lifði leiks en Ýmir Halldórsson
jafnaði metin fyrir Mosfellinga
skömmu fyrir leikslok og tryggði
þannig 1:1-jafntefli. Selfoss fór þar
með upp að hlið Fylkis þar sem
bæði lið eru með sjö stig eftir þrjá
leiki en Árbæingar með betri
markatölu.
Ekki var síður dramatík á Akur-
eyri þegar Grindavík heimsótti
Þór. Dagur Ingi Hammer Gunn-
arsson hafði komið Grindavík yfir í
fyrri hálfleik en Suður-Kóreubúinn
Je-Wook Woo jafnaði metin í upp-
bótartíma og sá þannig til þess að
leiknum lauk með 1:1-jafntefli.
Kórdrengir unnu þá sinn fyrsta
sigur í deildinni, 2:0, þegar liðið
mætti KV í Safamýrinni. Þórir
Rafn Þórisson skoraði bæði mörk
Kórdrengja, það fyrra eftir um
stundarfjórðungs leik og það síð-
ara í upphafi síðari hálfleiks.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Jafnt Hart var barist á Akureyri þegar Þór tók á móti Grindavík í 1. deild-
inni í gær. Þórsarar náðu að knýja fram jafntefli með marki á ögurstundu.
Misstu niður forystu
HK tyllti sér á topp 1. deildar
kvenna í knattspyrnu, Lengju-
deildarinnar, með því að vinna
1:0-sigur á Tindastóli á Sauðár-
króksvelli í gærkvöldi. Ísabella
Aradóttir skoraði sigurmark leiks-
ins í fyrri hálfleik. HK er með
fullt hús stiga, níu stig, á toppnum
þegar liðið hefur leikið þrjá leiki.
Fylkir tapaði hins vegar sínum
þriðja leik í röð í gærkvöldi þegar
liðið laut í lægra haldi fyrir Hauk-
um á Ásvöllum, 1:3. Vienna
Behnke kom Fylki yfir gegn sín-
um gömlu félögum en Keri Birk-
enhead skoraði tvívegis fyrir
leikhlé og Þórey Eyþórsdóttir inn-
siglaði svo sigurinn í síðari hálf-
leik. Þetta var fyrsti sigur Hauka í
deildinni en Fylkir er án stiga í
næstneðsta sæti.
Fjölnir fékk þá Augnablik í
heimsókn í Grafarvoginn. Sara
Montoro kom Fjölni yfir í fyrri
hálfleik en Júlía Baldvinsdóttir og
Díana Guðmundsdóttir sneru tafl-
inu við í síðari hálfleik og tryggðu
fyrsta deildarsigur Augnabliks á
tímabilinu, 2:1. Fjölnir er á botni
deildarinnar án stiga.
HK-ingar á toppinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grafarvogur Augnablik vann sinn fyrsta sigur í 1. deildinni þegar liðið
heimsótti Fjölni í Grafarvoginn í gær. Fjölnir er hins vegar áfram án stiga.
_ Þýska knattspyrnufélagið Borussia
Dortmund hefur sagt knattspyrnu-
stjóranum Marco Rose upp störfum
en hann tók við liðinu sumarið 2021.
Dortmund endaði í öðru sæti þýsku 1.
deildarinnar, átta stigum á eftir Bay-
ern München.
_ Varnarmennirnir öflugu John Ston-
es og Kyle Walker verða væntanlega
báðir með Manchester City gegn
Aston Villa í lokaumferð ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu á morgun
en þeir hafa verið frá keppni undan-
farið vegna
meiðsla. City verð-
ur meistari annað
árið í röð og í
fjórða sinn á fimm
árum ef liðinu
tekst að sigra
Aston Villa á
heimavelli.
_ Ef City misstígur sig gegn Steven
Gerrard og hans mönnum í Aston Villa
á Liverpool möguleika á að tryggja sér
meistaratitilinn með því að sigra Wolv-
es á heimavelli. Manchester City er
með 90 stig og Liverpool 89 fyrir síð-
ustu umferðina. Fallbaráttan ræðst
líka á morgun en Burnley og Leeds eru
með 35 stig hvort, Burnley mætir
Newcastle og Leeds mætir Brentford,
og annað liðanna fellur ásamt Watford
og Norwich.
_ Anna María Friðgeirsdóttir, einn
reyndasti leikmaður Selfossliðsins í
knattspyrnu undanfarin ár, er vænt-
anleg aftur eftir meiðsli og hefur skrif-
að undir nýjan samning um að leika
með liðinu út þetta tímabil. Anna
María hefur verið frá keppni vegna
meiðsla í vetur og vor en hún á leikja-
met Selfyssinga í efstu deild, sem er
135 leikir, og hún hefur verið fyrirliði
liðsins síðustu ár.
_ Boston Celtics jafnaði einvígi sitt
við Miami Heat í úrslitum Austurdeild-
arinnar í NBA-körfuboltanum í Banda-
ríkjunum með 127:102-útisigri í fyrri-
nótt. Staðan eftir tvo leiki er 1:1 en
báðir leikir hafa
farið fram í Miami.
Jayson Tatum
skoraði 27 stig fyr-
ir Boston og Mar-
cus Smart gerði
24 stig, tók níu
fráköst og gaf 12
stoðsendingar.
Jaylen Brown
skoraði einnig 24 stig. Hjá Miami var
Jimmy Butler í sérflokki með 29 stig.
Fjóra sigra þarf til að komast í loka-
úrslitin. Sigurliðið úr þessu einvígi
mætir annaðhvort Golden State Warri-
ors eða Dallas Mavericks í úrslitum.
_ Knattspyrnukonan Arndís Snjólaug
Ingvarsdóttir leikur ekki meira með
Keflavík á leiktíðinni þar sem hún á
Eitt
ogannað