Morgunblaðið - 21.05.2022, Page 33

Morgunblaðið - 21.05.2022, Page 33
von á barni. Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkinga, staðfesti tíðindin í viðtali við Vísi. Arndís lék fjóra fyrstu leiki Keflavíkur á leiktíðinni og hefur alls spilað 148 deildarleiki með liðinu og skorað í þeim tíu mörk. Hún á 29 leiki að baki í efstu deild. _ Körfuknattleikssamband Evrópu, FIBA Europe, tilkynnti í gær að Rúss- um hefði verið vísað úr lokakeppni Evrópumóts karla sem fer fram í Tékk- landi, Georgíu, Ítalíu og Þýskalandi í september, vegna innrásarinnar í Úkraínu. Svartfjallaland tekur sæti Rússa í keppninni. Þá hefur liðum Rússlands og Hvíta-Rússlands verið vísað úr Evrópumótum í öllum aldurs- flokkum næsta árið, og þá fá löndin ekki að senda lið í Evrópumót fé- lagsliða keppnis- tímabilið 2022- 2023. _ Guðrún Brá Björgvinsdóttir missti naumlega af því að komast í gegnum niður- skurðinn á Jabra Ladies-golfmótinu í Evian í Frakklandi í gær. Guðrún stóð lengi vel að vígi en gekk illa á seinni hluta annars hrings- ins og endaði á samtals átta höggum yfir pari eftir tvo daga, á 150 höggum samanlagt. Hún var einu höggi frá því að komast áfram og endaði í 63.-72. sæti. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á samtals fjórtán höggum yfir pari og endaði í 100.-103. sæti af 132 kepp- endum en þetta var hennar fyrsta mót erlendis í tvö ár. _ Arnar Daði Arnarsson hefur látið af störfum sem aðalþjálfari karlaliðs Gróttu í handknattleik. Tilkynnti hann tíðindin á facebooksíðu sinni í gær. Arnar Daði tók við Gróttu fyrir þremur árum og stýrði liðinu upp úr næstefstu deild í fyrstu tilraun. Undanfarin tvö ár hefur hann svo haldið Gróttu uppi í úr- valsdeild og gott betur enda liðið hárs- breidd frá því að komast í úrslita- keppnina á liðnu tímabili. _ Bandaríkjamaðurinn Will Zalatoris leiddi með einu höggi þegar öðrum hring á PGA-meistaramótinu í golfi í Tulsa var senn að ljúka er Morgun- blaðið fór í prent- un í gær. Zalatoris var þá búinn að leika á átta högg- um undir pari, einu höggi á und- an Sílebúanum Mito Pereira. _ Vivianne Mie- dema, hinn mikli markahrókur enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal og hol- lenska landsliðsins, hefur skrifað und- ir nýjan eins árs samning við Lundúna- félagið. Samningur Miedema við félagið var að renna út í sumar en hún ákvað að halda kyrru fyrir. Miedema kom frá Bayern München sumarið 2017 og hefur skorað 117 mörk í 144 leikjum í öllum keppnum fyrir Arsenal. ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Árið er 1983. Mánudags- kvöldið 21. mars. Laugardals- höllin er tæplega átján ára gam- alt glæsilegt íþróttamannvirki og þar fer fram síðasti leikur úrvals- deildar karla í körfubolta. Hreinn úrslitaleikur tveggja efstu lið- anna, Vals og Keflavíkur. Leikurinn er ekki spilaður í íþróttahúsi Hagaskóla eins og heimaleikir Reykjavíkurliðanna voru yfirleitt á þessum árum. Nú dugar ekki annað en sjálf Höllin. Bakvörður dagsins er 22 ára, á sínum öðrum vetri í starfi sem íþróttafréttamaður, og þetta er ein af stóru og eftirminnilegu stundunum frá þessum tíma. Liðin eru með 28 stig hvort og langefst í sex liða úrvalsdeild þar sem leikin var fjórföld umferð. Úrslitakeppnin hefur ekki verið fundin upp og heldur ekki þriggja stiga karfan. Hún var lögleidd hjá FIBA ári síðar. Keflavík er nýliði í deildinni og hefur komið gríðarlega á óvart. Þar eru tvítugir strákar, Jón Kr. Gíslason og Axel Nikulás- son í aðalhlutverkum ásamt landsliðsmarkverðinum í fót- bolta, Þorsteini Bjarnasyni, hin- um bandaríska Brad Miley og Birni Víkingi Skúlasyni. Valsliðið skipa bandaríski miðherjinn og þjálfarinn Tim Dwyer, framherjarnir Torfi Magn- ússon fyrirliði og Kristján Ágústsson frá Stykkishólmi og bakverðirnir Ríkharður Hrafn- kelsson, annar Hólmari, og Jón Steingrímsson. Mest lítið er um innáskiptingar og sömu fimm inn á nær allan tímann hjá báðum liðum. Valur hefur betur, 88:87, eftir gríðarlega dramatík og tvo um- deilda dóma á lokasekúndunum. Aðaldómari leiksins neitar að ræða þá við fjölmiðla. Valur lyftir Íslandsbikarnum. Það gerðu Valsmenn loksins á ný síðasta miðvikudagskvöld, 39 árum síð- ar. Til hamingju með það! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Landsliðsfólkið Kristófer Acox og Dagný Lísa Davíðsdóttir voru í gær kjörin besta körfuboltafólk ársins af fyrirliðum, þjálfurum og forráða- mönnum úrvalsdeildanna í körfu- bolta, Subway-deildanna. Kristófer var lykilmaður og fyrirliði Vals sem varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti í 39 ár og Dagný átti glæsilegt tímabil með deildarmeisturum Fjölnis. Kristófer hefur nú hlotið viðurkenn- inguna í þrígang en Dagný var að ljúka sínu fyrsta tímabili í efstu deild. „Maður er enn þá að ná sér nið- ur,“ sagði Kristófer um Íslands- meistaratitil Vals í samtali við Morgunblaðið eftir verðlauna- afhendinguna. „Ég á enn þá erfitt með að sofna og svo vaknar maður eldsnemma og er glaðvakandi. Mað- ur er ánægður með að þetta sé búið og það er geggjað að hafa unnið,“ bætti hann við. Kristófer er mjög sáttur við eigin frammistöðu og kom viðurkenningin honum ekki endilega á óvart. „Mér fannst ég vera, þótt ég segi sjálfur frá, yfirburðaleikmaður og þá sér- staklega fyrir áramót. Það hægðist aðeins á mér eftir áramót. Deildin er mjög sterk og margir frábærir leik- menn en það er mikill heiður að taka við þessum verðlaunum. Þetta er í þriðja sinn hjá mér og ég er mjög stoltur.“ Ein erfiðasta serían Valur vann Tindastól í oddaleik á heimavelli eftir magnað úrslita- einvígi, þar sem var hart barist frá fyrstu sekúndu í fyrsta leik. Krist- ófer viðurkennir að einvígið hafi tek- ið á, bæði á líkama og sál. „Þetta tók rosalega á og ég var að hugsa í leik fjögur hvað ég væri tilbúinn til að þetta yrði bara búið. Þá gæti maður loksins létt aðeins af sér og losnað við kvíðann og stressið en það er partur af þessu. Þetta var erfitt lík- amlega og andlega og ein erfiðasta sería sem ég hef spilað á mínum ferli og það gerir það tíu sinnum sætara að ná í sigurinn,“ sagði framherjinn, sem fagnaði að sjálfsögðu vel í leiks- lok. „Það var rosalegur fögnuður enda fyrsti titillinn í 39 ár og það var mik- ið af ánægðum Valsmönnum á Hlíð- arenda. Við fögnuðum almennilega og við höldum áfram að fagna í kvöld og næstu daga,“ sagði Krist- ófer. Getum verið rosalega stoltar Dagný Lísa kvaðst stolt af nýliðnu tímabili er hún ræddi við Morgun- blaðið. Fjölnir varð deildarmeistari í fyrsta skipti, fór í undanúrslit í bikar og háði spennandi einvígi við verð- andi meistara Njarðvíkur í undan- úrslitum Íslandsmótsins. „Tímabilið í heild er eitthvað sem við getum verið rosalega stoltar af,“ sagði Dagný. Hún skrifaði á dög- unum undir nýjan samning við Fjölni og hún vill taka næsta skref með félaginu. „Okkur gekk mjög vel framan af, þótt það hafi tekið smátíma að púsla okkur saman. Við vitum hvað við getum gert og það var svekkjandi að klára ekki úrslitakeppnina. Á sama tíma getum við verið stoltar af því sem við áorkuðum í deildinni. Við er- um stoltar af deildarmeistaratitl- inum og hann sýnir hvað okkur gekk vel í allan vetur. Það eru hinsvegar síðustu leikirnir í blálokin sem skipta máli. Þar sjáum við muninn á góðum liðum og enn betri liðum, þegar pressan er komin. Það er eitt- hvað sem við viljum bæta fyrir næsta ár og gera enn betur,“ sagði landsliðskonan. Hún er heilt yfir ánægð með eigin frammistöðu í vetur. Meiðsli komu hinsvegar í veg fyrir að hún næði fram sínu allra besta í úrslitakeppn- inni. „Ég er ótrúlega sátt við hvern- ig gekk hjá mér í vetur. Mér finnst ég samt eiga inni og vonandi næ ég að knýja það fram á næsta ári. Ég reyni að nýta sumarið í að bæta það sem ég vil bæta. Við sjáum hvernig það gengur og hvort skrokkurinn verði góður. Undir lokin á tímabilinu var ég aðeins að glíma við meiðsli og það hafði einhver áhrif á frammi- stöðuna í úrslitakeppninni,“ sagði Dagný Lísa Davíðsdóttir. Enn þá erfitt að sofna og ég vakna eldsnemma - Dagný kjörin best á fyrsta ári í efstu deild - Úrslitaeinvígið tók verulega á Morgunblaðið/Eggert Best Kristófer Acox og Dagný Lísa Davíðsdóttir með viðurkenningar sínar sem voru afhentar í hádeginu í gær. Júlíana Sveinsdóttir, varnarmaður ÍBV, var besti leikmaðurinn í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Júlíana átti góðan leik í vörn ÍBV og fékk 2 M fyrir frammistöðu sína hjá blaðinu, en hún skoraði jafnframt sigurmark Eyjakvenna í óvæntum sigri þeirra á Breiðabliki á Kópavogsvellinum. Samantha Leshnak, markvörður Keflvíkinga, og Danielle Marcano, framherji Þróttar, eru báðar valdar í lið umferðarinnar í þriðja skipti á tímabilinu. Úrvalsliðið má sjá hér að ofan en þar eru jafnframt fimm leik- menn valdir í annað skipti. 5. umferð í Bestu deild kvenna 2022 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-3-3 Samantha Leshnak Keflavík Elín Helena Karlsdóttir Keflavík Haley Thomas ÍBVElísa Viðarsdóttir Valur Júlíana Sveinsdóttir ÍBV Jasmín Erla Ingadóttir Stjarnan Katla Tryggvadóttir Þróttur Danielle Marcano Þróttur Olga Sevcova ÍBV Elín Metta Jensen Valur Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir Valur 2 2 2 2 23 3 Júlíana best í fimmtu umferð KNATTSPYRNA Besta deild karla: Meistaravellir: KR – Leiknir R............. L16 Hásteinsvöllur: ÍBV – ÍA....................... L16 Dalvík: KA – Stjarnan............................ L16 Keflavík: Keflavík – FH ......................... S17 Kópavogur: Breiðablik – Fram......... S19.15 Hlíðarendi: Valur – Víkingur R ........ S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Vogar. Þróttur V. – Vestri ..................... L14 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Fjarðabyggðarhöll: FHL – FH............. L12 2. deild karla: Ásvellir: Haukar – KF ........................... L14 Ólafsvík: Víkingur Ó. – Njarðvík .......... L14 3. deild karla: Dalvík: Dalvík/Reynir – ÍH ................... L12 Týsvöllur: KFS – Sindri......................... L13 Sauðárkr.: Kormákur/Hvöt – Kári ....... L14 HANDKNATTLEIKUR Annar úrslitaleikur karla: Eyjar: ÍBV – Valur (0:1)......................... S16 UM HELGINA! Belgía/Holland 16-liða úrslit, fyrri leikur: Landstede – Antwerp Giants............. 79:89 - Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor- aði 20 stig og tók sex fráköst á 37 mínútum fyrir Landstede. Spánn B-deild: Castello – Gipuzkoa.................... 92:93 (frl.) - Ægir Þór Steinarsson skoraði 20 stig, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar á 32 mínútum fyrir Gipuzkoa. Gipuzkoa end- aði í 11. sæti og missti þar með af sæti í um- spili um laust sæti í efstu deild. 086&(9,/*"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.