Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 35

Morgunblaðið - 21.05.2022, Side 35
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég naut þess virkilega að fylgjast með Eurovisi- on í ár, meira en nokkru sinni fyrr í raun, og ég er að reyna að komast til botns í þessu máli. Er þetta aldurinn? Einkanlega tókst úrslitakvöldinu að skríða inn fyrir skinnið. Það var nefnilega stígandi í keppninni. Ég fer venjulega með hangandi haus inn í hana, nenni þessu varla en „neyðist“ venjulega til að horfa á undan- keppnina hér heima og undanúrslitin úti, sökum vinnu minnar. Og leiðist það reyndar aldrei, þegar á hólminn er komið, en er svona temmi- lega kaldur getum við sagt. En annað gildir með aðalúrslitakvöldið og ég er svona að reyna að skilja af hverju í gegn- um þessi skrif. Fyrir það fyrsta vorum við fjöl- skyldan hjá vinafjölskyldu og kvöldið var rólegt. Tvær fjölskyldur sem þekkjast vel, engin ofsa- drykkja, engin læti eða at. Börnin orðin stór, það þarf ekki að hlaupa á eftir þeim og þau voru auk þess lítt áhugasöm um keppnina. Fullorðna fólkið hins vegar afar spennt og þessi gamal- kunni fiðringur til staðar er klukkan sló sjö og Eurovision-temað fór að spilast. Eurovision-kvöld eru skemmtileg og sam- eina margt. Samveru, sem er mikilvægast, en svo er áhorfið á keppnina jafnan mjög virkt. Það er hlegið, skipst á skoðunum og það er þessi endapunktur og þessi keppnisveruleiki sem heldur manni þægilega á tánum. Sem afþreying er þetta fullkomið form. Og spennan er þrískipt. Fyrst fáum við lögin, svo koma atkvæði dóm- nefnda og þá áhorfenda. Allt skemmtir þetta óskaplega. Einn af eðlislægum eiginleikum popptónlistar (og einn af mörgum sem gera hana að snilld) er líka sá að lögin eru stutt þannig að manni leiðist aldrei þófið. Lagið drep- leiðinlegt? Hinkraðu bara í tvær. Ég er hugsi yfir sigri Úkraínu. Fólk talaði um samúðaratkvæði. Og að í „venjulegu árferði“ hefði Úkraína líklega ekki sigrað. Ég held að þetta sé rétt. Upp að vissu marki. Mér fannst lagið gott. Elska þessa samtvinnun þjóðlaga- tónlistarinnar en fannst breikið og rappið dulítið kjánalegt og yfir síðasta söludag. Ég vil stilla Hvað ertu, Eurovision? fram kenningu. Snýst tónlist ekki fyrst og síðast um áhrif hennar á viðtakendur? Og þarna voru menn, í miðju stríði (og á leið þangað út aftur) að syngja harmrænan gleðisöng sem maður get- ur rétt ímyndað sér að spretti upp úr mjög svo raunverulegum aðstæðum. Þetta stuðlaði að sigri Úkraínu. Er hægt að rjúfa á óhjákvæmileg tengsl afþreyingar og pólitíkur? Er hægt að taka tónlistina út fyrir sviga? Maður spyr sig. Annað sem hreif mig óskaplega var framlag Serbíu. Hér höfum við svo gott sem hreint „listapopp“, dægurlag sem gjörning og með þráðbein tengsl í „avant-garde“ hugmyndir. Á sviði Eurovision! Ég hugsaði um listamenn eins og Laurie Anderson þegar ég nam þetta. Og lagið var afar vinsælt hjá almenningi, eitthvað sem fær mig til að klóra mér enn harðar í kolli. Tölum því næst aðeins um Stóra-Bretland. Ég viðurkenni að Sam „wicked!“ Ryder heillaði mig upp úr skónum. Má maður vona að Bretar séu loksins búnir að fatta Eurovision? Að málið sé ekki að mæta til leiks með nefið upp í loft og með hangandi hendi, nema hvort tveggja sé, heldur að umfaðma kjarna keppninnar að fullu eins og hin löndin myndast við að gera? Mér fannst sá andi stafa frá Ryder blessuðum. Annað sem kom mér á óvart. Á úrslitunum var ég farinn að elska kynnana (sérstaklega Mika), var orðinn skotinn í Martin Österdahl og fannst stemningin í Græna herberginu svo dásamlega innileg og nærandi. Ég var í álögum. Hámarksvirkni afþreyingar, hlýtur að vera. Búinn að gleyma mér, algerlega, í nokkra tíma. Eitt að lokum, eitthvað sem veldur mér áhyggjum. Þrátt fyrir þessar mæringar mínar er keppni þessi bundin í eðli dægurmenning- arinnar. Það er verið að leika tveimur skjöldum. Þrátt fyrir samfélagslegt gildi hennar, sem er ríkt, þá eru þetta um leið skyndibitar, yfirborð. Eða hvað? Mér finnst ég hálfgerður loddari að vera að skrifa svona í einhverjum æsingi og svo verð ég búinn að gleyma öllum þessum lögum í næstu viku. Biðjið fyrir mér! » Á úrslitunum var ég farinn að elska kynnana (sérstak- lega Mika), var orðinn skotinn í Martin Österdahl og fannst stemningin í Græna herberginu svo dásamlega innileg og nær- andi. Ég var í álögum. Söngvakeppnin í ár sendi pistil- ritara um víðan andlegan völl, þar sem hugleiðingar um þetta merkilega dægurmenningar- fyrirbæri heltóku hann. Sigurvegarar Var sigur Úkraínu verðskuldaður? MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. U S A TO D AY 72% Empire Rolling StoneLA Times BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams Hljómsveita- keppnin Wacken Metal Battle (WMB) fer fram í kvöld á Húrra í Reykjavík. Sjö sveitir munu þar leiða saman hesta sína og alþjóðleg dóm- nefnd, ásamt áhorfendum, vel- ur eina úr og mun sú koma fram fyrir Íslands hönd á Wacken Open Air í Þýskalandi í sumar og taka þátt í lokakeppni WMB ásamt sveit- um frá 29 löndum. Sérstakir gestir á Húrra í kvöld verða hljómsveit- irnar Misþyrming og Morpholith og hefur sú síðarnefnda leik kl. 19.30. Hljómsveitirnar sjö sem keppa í WMB eru Devine Defilement, For- smán, Holdris, Krownest, Merkúr, Múr og Vögel. Þorsteinn Kolbeins- son skipuleggur WMB hér á landi. Keppt í málmi Þorsteinn Kolbeinsson Gríski tónlistar- maðurinn og tónskáldið Van- gelis er látinn, 79 ára að aldri. Vangelis átti að baki marga stór- kostlega tón- smíðina við kvik- myndir á borð við Chariots of Fire og Blade Runner og var m.a. þekktur fyrir notkun sína á hljóð- gervlum. Vangelis hét réttu nafni Evángelos Odysséas Papath- anassíou og hlaut hann Óskars- verðlaun árið 1981 fyrir tónlist sína við Chariots of Fire þar sem píanóleikur rann fullkomlega sam- an við hljóðgervla. Aðallag mynd- arinnar náði fyrsta sæti á banda- ríska lagalistanum og platan með tónlistinni við myndina toppsæti plötulistans. Vangelis hóf feril sinn í poppi og lék á hljómborð í poppsveit. Hann fór síðar að semja tónlist við grísk- ar kvikmyndir og flutti til Parísar þar sem hann stofnaði proggsveit- ina Aphrodites Child sem náði nokkrum vinsældum. Af öðrum afrekum hans á sviði kvikmynda má nefna tónlistina við Missing, The Bounty og Bitter Moon. Vangelis látinn Vangelis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.