Morgunblaðið - 21.05.2022, Page 36

Morgunblaðið - 21.05.2022, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2022 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Norska hljómsveitin Wardruna heldur sína fyrstu tónleika hér á landi í Eldborgarsal Hörpu 26. maí. Segir um sveitina á miðasöluvefnum Tix.is að hún vinni út frá sögulegri tónlist víkingaaldar, leiki á forn hljóðfæri og sæki yrkisefni í bók- menntaarf á borð við eddukvæði. Af þeim hljóðfærum sem liðsmenn sveitarinnar leika á má nefna stórar trommur með hreindýraskinni og geitahorn. Hljómsveitina skipa í dag þau Einar Selvik, Lindy-Fay Hella, Arne Sandvoll, Eilif Gundersen, HC Dalgaard og John Stenersen og var sveitin stofnuð árið 2003 af þeim Sel- vik, Hella og Gahl en sá síðastnefndi er ekki lengur í henni. Selvik er forsprakki Wardruna, syngur og leikur á hin ýmsu hljóð- færi, m.a. svokallaða taglhörpu og geitarhorn og hann er líka lagasmið- ur hljómsveitarinnar. Fornnorrænn hljómur Blaðamaður sló á þráðinn til Selvik og barst talið fyrst að nafni sveitarinnar sem útleggja mætti á íslensku sem verndara rúnanna eða eitthvað í þá veru. Selvik bendir á að rúnir geti hvort heldur verið hið forna form skrifleturs eða leyndar- mál, þekking eða galdur. Fyrstu þrjár breiðskífur Ward- runa bera enda titlana Runaljod, þ.e. Rúnaljóð, og undirtitlana Gap var Ginnunga, Yggdrasil og Ragnarok. Selvik segir að á þeim hafi verið lagður grunnurinn að þessum hljóð- heimi Wardruna, hinum forn- norræna sem oft er kenndur við vík- inga þó þeir hafi aðeins verið hluti þeirra karlmanna sem þá voru uppi sem voru flestir friðsamir bændur. Selvik er beðinn um að lýsa tónlist Wardruna fyrir þeim lesendum sem þekkja ekki til hennar og segir hann sposkur að ekki sé hlaupið að því. Wardruna hafi að vissu leyti búið til sína eigin tegund eða grein tónlistar og í stuttu máli skapi hljómsveitin eitthvað nýtt úr því sem orðið er ævafornt. „Hljóðfæraskipanina má rekja aftur til steinaldar, brons- aldar, víkingaaldar, miðalda og nútímans, jafnvel samtímans,“ útskýrir Selvik. Tjáningin sé nú- tímaleg en tæknin, tólin og tónteg- undirnar séu það ekki. „Þetta snýst ekki um að endurskapa tónlist frá ákveðnum tíma eða tímabili,“ heldur Selvik áfram en segir engu að síður mikilvægt að byggja á traustum grunni, bæði í tón- og textasmíðum. Hann segir vissulega margt óþekkt og óvíst hvað varðar tónlist- ina sem leikin var hér í norðrinu fyrir þúsund árum og rúmlega það. „Þetta er eins og risavaxið púsluspil og maður verður að hafa góða yfir- sýn yfir sögulegar heimildir,“ segir Selvik. Hann nálgist efnið bæði eins og fræðimaður og skapandi og til- raunaglaður listamaður. Tónlist við þætti og tölvuleik Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvaðan þessi áhugi Selviks komi á tónlist og menningu forfeðranna og segist hann sem ungur drengur hafa drukkið þetta í sig. Selvik er fæddur 1979 og hóf árið 2000 að leika á trommur í norsku svart- málmssveitinni Gorgoroth auk þess að hafa leikið og leika enn í fleiri sveitum. Hann segir áhugann þó alltaf hafa verið stil staðar fyrir því að stofna hljómsveit og flytja tónlist sem byggðist meira á hinum fornu, norrænu sögum, hljóðfærum og menningu. Selvik byrjaði að spila á trommur átta ára og lærði í framhaldi á fleiri hljóðfæri og fór að semja lög. Hann segist njóta þess betur að flytja eig- in tónlist en annarra en auk þess að semja fyrir Wardruna hefur hann samið tónlist fyrir sjónvarpsþætti og tölvuleiki, meðal annars hina þekktu þætti Vikings og tölvuleikinn Assassin’s Creed: Valhalla. Svo virðist sem vinsældir víkinga- sagna hafi vaxið mikið hin síðustu ár, ef litið er til fyrrnefndra þátta til dæmis og nú síðast kvikmyndarinn- ar The Northman sem byggð er að miklu leyti á Amlóðasögu. Selvik er spurður að því hvað hann telji heilla fólk við þetta tímabil norrænnar sögu og segir hann ástæðurnar líklega nokkrar. Áhug- inn hafi löngum verið mikill enda sé þessi forni heimur framandi okkur nútímamönnum og spennandi. „Þetta er býsna sérstök menning og ég held að það sé vaxandi þörf núna á heimsvísu fyrir að tengjast nátt- úrunni og umhverfinu. Ég held að því sé eðlilegt að líta aftur til trúar- bragða sem byggð voru á náttúr- unni,“ segir Selvik. Ekki rokktónleikar –Hvernig eru tónleikar með Wardruna, eru þeir mjög leikrænir eða gjörningslegir? „Ég myndi ekki segja það, við erum frekar mínimalísk, að ákveðnu leyti, og þeir eru ekki líkir rokktón- leikum,“ svarar Selvik. Wardruna reyni að skapa þannig andrúmsloft að fólk tengi við tónlistina. „Tónlist- in fjallar mikið um náttúruna, ólíkar hliðar á henni og líka mannlegu eðli, þó svo hún sé í þessum norrænu um- búðum,“ útskýrir hann. Grunnhug- myndin sé þó alltaf tímalaus og alþjóðleg. Selvik leikur á þrjú til fjögur hljóðfæri á tónleikum, auk þess að syngja og það sama má segja um flesta aðra í hljómsveitinni. Tvær konur eru í henni, Lindy-Fay Hella fyrrnefnd og nýverið bættist við söngkonan Katrine Stenbekk. Wardruna kemur nú í fyrsta sinn fram á Íslandi en Selvik hefur haldið nokkra sólótónleika í Norræna hús- inu. Hann segist virkilega spenntur fyrir því að koma fram í Eldborg sem sé einkar glæsilegur tónleika- salur. „Við erum mjög heppin að hafa fengið að spila í mörgum af fegurstu tónleikasölum heims,“ seg- ir hann að lokum. Frekari fróðleik um Wardruna má finna á vef hljómsveitarinnar á slóð- inni wardruna.com. Byggt á fornum grunni - Wardruna kemur fram í Eldborg - Tónlist og textar byggðir á fornri menningu - „Tónlistin fjallar mikið um náttúruna, ólíkar hliðar á henni og líka mannlegu eðli,“ segir Einar Selvik Ljósmynd/Kim Öhrling Íslandsvinir Wardruna með Einar Selvik fyrir miðju, auðþekkjanlegan af síðu og fléttuðu skeggi sínu. Lúðrasveit Reykjavíkur var stofn- uð 7. júlí árið 1922 og verður því 100 ára nú í júlí. Er hún elsta starfandi hljómsveit landsins og mun á afmælisárinu líta yfir far- inn veg og leggja áherslu á íslenska tónlist sem tengist sveit- inni og félögum hennar. Hljóm- sveitin heldur fyrri afmælis- tónleika sína í dag, laugardag, í salnum Kaldalóni í Hörpu kl. 17. Verða á þeim leikin gömul og góð íslensk lúðrasveitarverk og sígild íslensk sönglög og dægurlög í lúðrasveitarútsetningu, að því er segir í tilkynningu. Þar verða verk eftir Pál Pampichler Pálsson, Jón Múla Árnason, Oddgeir Krist- jánsson, Árna Björnsson, Karl O. Runólfsson, Sigfús Einarsson, Pál Ísólfsson, Sveinbjörn Sveinbjörns- son og Sigvalda Kaldalóns. Stjórn- andi sveitarinnar er Lárus Hall- dór Grímsson. Miðasala fer fram á vefnum Harpa.is og í miðasölu Hörpu. Á tónleikum Lúðrasveit Reykjavíkur undir stjórn Lárusar H. Grímssonar. Lúðrasveitin fagnar 100 ára afmæli Tvær sýningar verða opnaðar í Ásmundarsal í dag milli kl. 14 og 17. Annars vegar sýnir Brák Jóns- dóttir sýninguna Dýpra / Deeper og hins vegar opnar Pamela Angela sýn- inguna Mellem himelen og haven. Um sýninguna Dýpra segir að þar kanni Brák snertifleti blætis- menningar og garðyrkju, manns og náttúru, sársauka og unaðar. Í þeim tilgangi að nálgast náttúruna á hátt sem ögrar hefðbundnum hug- myndum um hvernig menning og náttúra mætast. Sýningin byggist á rannsókn listamannsins á sambandi líkama og gróðurs. Innsetning Angelu byggist á tveimur ólíkum einingum; skúlptúr og tónflutningi. „Skúlptúrinn er spil- anlegt hljóðfæri búið til úr bílhurð sem gefur rými til að túlka tónlistina eftir að hún hefur verið stöðvuð. Ferðalag bílhurðarinnar frá rusla- haug í Danmörku til bílakirkjugarðs á Íslandi fær viðkomu í Ásmund- arsal,“ segir í tilkynningu. Um hljóð- færasmíði sá Henrik Sandberg Ballowitz. Aðgangur er ókeypis. Tvöföld sýn- ingaropnun Brák Jónsdóttir Stórsveit Reykjavíkur leiðir börn og fjölskyldur inn í sumarið með sveifluballi í samstarfi við Sveiflu- stöðina í Flóa Hörpu í dag kl. 16. „Stórsveitin lagði til rausnar- legar útsetningar og upptökur á laginu „Aukavinna“ eftir Jón Múla fyrir Tónstýrið í Hljóðhimnum. Tónstýrið gerir okkur kleift að sigla um tónlistarinnar höf. Við get- um tekið stefnuna á latínsveiflu, New Orleans-djass og aðrar stílteg- undir og heyrt hvernig laglínan breytist á hverjum stað. Á ballinu tekur Stórsveitin gesti með sér í þetta dillandi tónlistarferðalag og dansarar halda örnámskeið í ein- földum danssporum sem allir geta lært. Eiríkur Rafn Stefánsson stjórnar sveitinni og Bragi Árnason leiðir danskennsluna fyrir hönd Sveiflustöðvarinnar,“ segir í til- kynningu. Aðgangur er ókeypis. Sveifluball Stórsveitar Ball Stórsveit Reykjavíkur í Hörpu. Vortónleikar Kórs Hallgríms- kirkju og Bar- okkbandsins Brákar eru haldnir í Hall- grímskirkju á morgun, sunnu- dag, kl. 17. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason, ein- söngvari er Hallveig Rúnarsdóttir og einleikari Elfa Rún Kristins- dóttir. Björn Steinar Sólbergsson spilar með á orgel. Efnisskráin samanstendur af þremur verkum eftir Joseph Haydn, þ.e. Salve Regina, fiðlukonsert í A- dúr og Orgelmessu í B-dúr. „Verkin heyrast ekki oft á Íslandi og því ein- stakt tækifæri að hlýða á þau í með- förum þessa frábæra tónlistarfólks,“ segir í tilkynningu skipuleggjenda. Kór Hallgrímskirkju var stofn- aður haustið 2021. „Ásamt áhuga á íslenskri kórtónlist leggur kórinn kapp á að flytja eldri tónlist í upp- runaflutningi og er það því mikið gleðiefni að fá Barokkbandið Brák til samstarfs. Stefnt er að öðrum tónleikum með þeim á fyrsta sunnu- degi í aðventu, haustið 2022, þar sem fluttar verða barokkkantötur fyrir aðventutímann.“ Haydn flutt- ur að vori Hallveig Rúnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.