Morgunblaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 40
BOSS BÚÐIN KRINGLUNNI
Útskriftarsýning BA-
nema í arkitektúr,
hönnun og myndlist
frá Listaháskóla Ís-
lands verður opnuð í
dag, laugardag, kl. 14 á
Kjarvalsstöðum. Yfir-
skrift sýningarnnar er
verandi vera // Being
og stendur hún yfir til
29. maí. Listasafn
Reykjavíkur hefur í
tæplega 20 ár hýst út-
skriftarsýningu nem-
enda á BA-stigi í mynd-
listardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild LHÍ og má á
sýningunni sjá lokaverkefni 75 nemenda í myndlist,
grafískri hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönn-
un. Verkin eru á vef skólans sögð endurspegla áherslur,
nám, rannsóknir og listsköpun nemenda síðastliðin
þrjú ár. Sýningarstjórar eru Hildigunnur Birgisdóttir,
María Kristín Jónsdóttir og Sara Jónsdóttir.
Útskriftarsýning BA-nema opnuð
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Fram hafði naumlega betur gegn Val, 28:27, þegar liðin
áttust við í fyrsta leik úrslitaeinvígisins um Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik kvenna í Framhúsi í
gærkvöldi. »32
Fram vann nauman sigur á Val
í fyrsta leik úrslitaeinvígisins
ÍÞRÓTTIR MENNING
stelpunum og strákunum. Það hefur
nú tekist.“
Kjarni fólks hefur lagt mikið á
sig og það er segin saga að slíkt er
erfiðara þegar árangurinn á vell-
inum lætur á sér standa. Lárus seg-
ir að engu að síður hafi þessi hópur
utan vallar staðið þétt saman, sett
sér raunhæf markmið og gert það
sem hafi þurft að gera, hvort sem
það hafi verið að standa í fjáröflun,
undirbúa viðburði á Hlíðarenda,
stilla upp og taka til og svo fram-
vegis. „Síðan nýja íþróttahúsið var
byggt höfum við undirbúið yfir 80
veislur, staðið vaktina í þeim og
tekið til á eftir. Þessi innri félags-
starfsemi hefur mikið að segja en
allur stuðningur skiptir mjög miklu
máli.“
Lárus segir að félagsskapur sjálf-
boðaliðanna og vinskapurinn sé sér-
staklega góður. „Okkur finnst starf-
ið mjög skemmtilegt og gefandi og
það er einstök tilfinning að sjá
markmiðið raungerast, að vinna tit-
ilinn. Það er ekki sjálfgefið.“ Mark-
miðið í náinni framtíð sé samt að
vera áfram á meðal fjögurra bestu
liða landsins.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lárus Blöndal byrjaði að taka þátt í
félagsstarfi Vals sem stjórnarmaður
í körfuboltadeildinni 1990 og hefur
nú séð drauminn verða að veru-
leika, að fagna Íslandsmeistaratitl-
inum í efstu deild karla í körfu-
bolta. „Við áttum síðast möguleika
á þessu 1992 og þá var ég 27 ára
formaður deildarinnar,“ segir hann.
„Þá var núverandi formaður, Svali
Björgvinsson, leikmaður og við og
fleiri sjálfboðaliðar höfum unnið að
því síðan að láta drauminn rætast.“
Valsmenn urðu fyrst Íslands-
meistarar í körfubolta karla 1980,
síðan 1983 og í þriðja sinn í vikunni.
Lárus segir að hann hafi byrjað í
bakvarðasveitinni með mönnum
sem hafi horft til þess að vinna
titla. „Það var mikill hugur í mönn-
um.“
Eftir að hafa verið í námi og
vinnu erlendis sneri Lárus aftur á
Hlíðarenda 2004 og tók upp þráðinn
þar sem frá var horfið. Hann segir
að þá hafi markmiðið verið að halda
íþróttinni gangandi í félaginu og
koma meistaraflokksliðunum á góð-
an stað. „Það tók mörg ár.“ Hægt
og sígandi hafi orðið til blanda upp-
alinna stráka og leikmanna frá öðr-
um félögum. Sama vorið og liðið
vann sér sæti í efstu deild tapaði
það naumlega í undanúrslitum bik-
arsins fyrir KR, sem þá var besta
liðið. „Þá sáum við að við vorum
með lið sem átti ekki aðeins heima í
úrvalsdeild heldur hafði alla burði
til þess að berjast og festa sig í
sessi þar.“
Raunhæf markmið hverju sinni
Í kjölfarið hafi stoðirnar enn ver-
ið styrktar, bæði í kvenna- og
karlaflokki. Helena Sverrisdóttir
hafi verið lykillinn að yfirburðaliði
kvenna og ákveðin vatnaskil hafi
orðið með komu Pavels Ermol-
inskijs 2019 og síðan fleiri leik-
manna og þjálfara. Lárus leggur
samt áherslu á að árangurinn sé
ekki aðeins tveggja eða þriggja ára
verkefni að þakka heldur margra
ára þrotlausri vinnu sjálfboðaliða.
„Í uppbyggingunni settum við okk-
ur það markmið að vinna titil með
Sigur sjálfboðaliða
- Íslandsmeistaratitillinn árangur þrotlausrar vinnu í áratugi
- Skemmtilegt og gefandi starf í góðum vinahópi á Hlíðarenda
Morgunblaðið/Eggert
Á Hlíðarenda Lárus Blöndal með Íslandsmeistarabikarinn eftirsótta.