Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins.
Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum
keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast
tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að
leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar
– tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10.00-17.30
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Brotthvarf fólks á aldrinum 18 til 24
ára úr námi er hið næst mesta hér á
landi meðal Evrópuþjóða. Þetta
kemur fram í nýbirtum samanburði
Eurostat, hagstofu Evrópusam-
bandsins, á brotthvarfi fólks á aldr-
inum 18 til 24 ára úr námi og starfs-
þjálfun, sem nær til 30 Evrópulanda.
Aðeins Rúmenía nær hærra á list-
anum en Íslendingar en þar er hlut-
fall þeirra sem horfið hafa úr námi af
heildarfjölda fólks á þessum aldri
15,3%. Annað hæsta hlutfallið er á
Íslandi þar sem það var 14,4% í fyrra
samkvæmt samanburði Eurostat.
Meðaltalið í löndum Evrópusam-
bandsins er 9,7%.
Hlutfallið er einnig hátt á Spáni
(13,3%), Ítalíu (12,7%), Noregi
(12,3%) Búlgaríu (12,2%) og Þýska-
landi (11,8%).
Minnkar jafnt og þétt
Í langflestum Evrópulöndum hef-
ur brotthvarf úr námi og starfsþjálf-
un minnkað jafnt og þétt á umliðnum
áratug. Á Íslandi var brottfallið í
þessum aldurshópi 22,6% á árinu
2010 og hefur því dregið töluvert úr
því á seinustu tíu árum en er engu að
síður enn mjög hátt í fjölþjóðlegum
samanburði eins og fyrr segir.
Lönd Evrópusambandsins hafa
sett sér það að markmiði að hlutfall
þeirra sem hverfa frá námi og starfs-
þjálfun ungir að árum verði komið
undir 9% á árinu 2030 og hafa 16
ESB-þjóðir þegar náð því marki.
Lægst er brotthvarfið í Króatíu
(2%), Slóveníu, Grikklandi og á Ír-
landi (3%).
Karlar í þessum árgöngum eru lík-
legri en konur til að hverfa úr námi í
nær öllum löndunum sem saman-
burðurinn nær til en ungar konur
hurfu í mun minna mæli úr námi eða
starfsþjálfun en ungir karla í fyrra í
flestum Evrópulöndum. Á Íslandi er
mikill munur á kynjunum sam-
kvæmt þessum samanburði eins og
fram hefur komið í mörgum rann-
sóknum á umliðnum áru. Á seinasta
ári var brotthvarf meðal karla 18 til
24 ára úr námi og starfsþjálfun á Ís-
landi 19,6% samkvæmt tölum Euro-
stat en hlutfallið meðal kvenna var
8,9%. Hlutfallið hefur þó lækkað hjá
báðum kynjum á Íslandi á umliðnum
áratug en það var 26% meðal karla
fyrir tíu árum síðan og 19% meðal
kvenna á þessum aldri.
Þessar niðurstöður eru í sam-
ræmi við fyrri niðurstöður rann-
sókna á brotthvarfi úr námi. Í rann-
sókn á félagslegri og efnahagslegri
stöðu og brotthvarfi úr framhalds-
skólum, sem kynnt var á málþingi
Velferðarvaktarinnar fyrr á þessu
ári, kom til að mynda fram að þriðj-
ungur fólks á aldrinum 20-24 ára á
Íslandi hafði eingöngu lokið grunn-
skólanámi á árinu 2019 samkvæmt
tölum Eurostat. Var það þá einnig
annað hæsta hlutfallið í Evrópu það
árið.
Þar kom einnig fram, eins og
greint hefur verið frá hér í blaðinu,
að staða foreldra og viðhorf þeirra til
menntunar ráða miklu um hvort
börn þeirra ljúki framhaldsskóla-
námi eða hverfi frá því. Einnig hafi
efnaleg staða fjölskyldu nemanda
talsverð áhrif á námsgengið en fé-
lagsleg staða vegur þyngra en fleiri
þættir hafa líka áhrif.
Brottfallið næstmest á Íslandi
- Á Íslandi var brotthvarf úr námi og starfsþjálfun 18 til 24 ára 14,4% í fyrra samkvæmt samanburði
Eurostat - Mikill kynjamunur - Hlutfall brotthvarfs yfir tíu prósentum í 13 af 30 Evrópulöndum
Brottfall í Evrópu
» Brotthvarf 18 til 24 ára úr
námi hefur minnkað hér á landi
á seinustu árum.
» Árið 2019 var hlutfallið
17,9% á Íslandi en það var
komið í 14,4% í fyrra sam-
kvæmt Eurostat.
» Meðaltalshlutfall þeirra sem
hurfu úr námi í löndum Evr-
ópusambandsins fór fyrst nið-
ur fyrir 10% á árinu 2020.
» Í 13 af 30 Evrópulöndum var
hlutfall 18 til 24 ára sem voru
hvorki í námi né starfsþjálfun
yfir 10% af heildarfjölda í
þessum árgöngum.
» Á öðrum Norðurlöndum var
brotthvarf í fyrra 9,8% í Dan-
mörku, 8,2% í Finnlandi, 8,4%
í Svíþjóð og 12,3% í Noregi.Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nemendur Dregið hefur úr brotthvarfi 18-24 ára úr námi. Í 17 af 30 löndum er hlutfallið undir tíu prósentum.