Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022
„VIÐ SKULUM EKKI RÍFAST YFIR ÞVÍ
HVER ÁTTI HUGMYNDINA FYRR EN VIÐ
VITUM HVORT ÞETTA VIRKAR EÐA EKKI.“
„ÉG SÉ EKKI UM AÐ BÓKA TÍMANA. ÉG SÉ
BARA UM AÐ KLIPPA HÁR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... athafnir, ekki orð.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NÆST ER „LÁTBRAGÐSLEIKUR
ÓSÝNILEGA MANNSINS“
OG TÍMINN ER
ÚTRUNNINN…
ÉG HATA
ÞENNAN
LEIK
ÉG HEF VERIÐ
MEÐ AND-
ÞYNGSLI
SÍÐAN ÉG
KOM HEIM ÚR
FERÐINNI UM
HITABELTIS-
SKÓGANA!
KANNSKI
NÁÐIR
ÞÚ ÞÉR Í
EITTHVAÐ.
KÍKJUM Á
ÞETTA!
stjóri, búsettur í Búdapest í Ung-
verjalandi, maki: Hrafnhildur Sig-
urðardóttir framkvæmdastjóri.
Börn: Guðrún Elísabet, f. 1991,
Haukur, f. 1995, og Hjalti Unnar, f.
2001, og 2) Ásta Garðarsdóttir, f.
24.10. 1964, kennari, búsett í Nay í
Frakklandi, maki: Lucien Fréchede
kennari. Börn: Victor, f. 2003, og Eva
Marín, f. 2005. Sonur Garðars með
Hrafnhildi Georgsdóttur er 3) Georg
Garðarsson, f. 18.12. 1972, forritari
og fitness-dómari, búsettur í Reykja-
vík, börn: Kristjana, f. 2000, Alex-
ander, f. 2003, Kári, f. 2007, og Axel,
f. 2009. Börn Garðars og Ragnhildar
eru 4) Helga Garðarsdóttir, f. 12.8.
1975, dósent í faraldslyfjafræði, bú-
sett í Utrecht í Hollandi, maki:
Mattijs Eggink lyfjafræðingur.
Börn: Gunnar Hendrik, f. 2007, og
Andri Garðar, f. 2010; 5) Jón Ágúst
Garðarsson, f. 7.2. 1980, fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík,
maki: Jóhanna Gylfadóttir fjármála-
stjóri. Börn: Aníta Eik, f. 2004, Gylfi
Ágúst, f.2010, Garðar Ágúst, f. 2013,
og 6) Garðar Jóhann Garðarsson, f.
23.3. 1987, starfsmaður í gagna-
tæknideild, búsettur í Utrecht.
Systkini Garðars eru Ólafur Er-
lendsson, f. 22.6. 1943, fyrrverandi
leigubílstjóri, búsettur í Reykjavík;
Sævar Erlendsson, f. 1.4. 1946, fyrr-
verandi leigubílstjóri, búsettur í
Reykjavík; Þuríður Erlendsdóttir, f.
11.11. 1947, fyrrverandi verslunar-
kona, búsett í Reykjavík; Hannes
Erlendsson, f. 21.12. 1949, blikk-
smíðameistari, búsettur í Reykjavík;
Erlendur Erlendsson, f. 25.12. 1950,
blikksmíðameistari, búsettur í
Reykjavík; Guðjón Erlendsson,
f.14.6. 1952, blikksmiður, búsettur í
Reykjavík; Ragnheiður Erlends-
dóttir, f. 19.9. 1957, húsmóðir, búsett
í Reykjavík; Jóhanna Erlendsdóttir,
f. 29.7. 1960, verslunarkona, búsett í
Reykjavík; Sigurrós Erlendsdóttir, f.
12.2. 1962, skrifstofustjóri, búsett í
Reykjavík; Jón Erlendsson, f. 25.9.
1953, forstjóri, búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Garðars voru hjónin
Erlendur Jónsson Erlendsson, f.
5.10. 1917, d. 4.6. 1996, leigubílstjóri,
og Sigríður Hannesdóttir, f. 5.8.
1921, d. 20.1. 2016, húsmóðir. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Garðar
Erlendsson
Borghildur Benjamínsdóttir
húsfreyja í Skíðsholtum
Jóhann Kristján Sigurðsson
bóndi í Skíðsholtum
Sigurrós Jóhannsdóttir
húsfreyja í Skíðsholtum
Hannes Gíslason
bóndi í Skíðsholtum á Mýrum
Sigríður Hannesdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Hallfríður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Múlaseli og víðar
Gísli Jónsson
bóndi í Múlaseli og víðar á Mýrum
Þuríður Ólafsdóttir
húsfreyja í Hallgeirsey
Einar Sigurðsson
bóndi í Hallgeirsey í A-Landeyjum
Jóhanna Einarsdóttir
húsfreyja á Giljum
Erlendur Jónsson
bóndi og trésmiður á Giljum í Hvolhreppi, Rang.
Margrét Árnadóttir
húsfreyja á Arngeirsstöðum
Jón Erlendsson
bóndi og rennismiður á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð
Ætt Garðars Erlendssonar
Erlendur Jónsson Erlendsson
leigubílstjóri í Reykjavík
Ingólfur Ómar gaukaði að mér
þessum vísum:
Sléttubönd um vorið
Seður lýði glóey góð
glæðir tíðin þorið.
Kveður þíðan ástaróð
yndisblíða vorið
Og hér er oddhenda. Ingólfur
Ómar tekur fram, að hringahrund
sé gömul kenning.
Vísa slungin léttir lund
leiðum drunga eyðir.
Gleðiþrungin hringahrund
hali unga seiðir.
Á Boðnarmiði fer Friðrik Stein-
grímsson með frétt á RÚV: „Segja
farþega græna í framan eftir ferð
með Sæfara og skora á þingmenn
að koma í siglingu.“
Ferjan þykir fráleitt væn
ég fælni lýðsins kenni,
það verða bara vinstri græn
sem vilja far með henni.
Fyrirsögn í Vísi var: „Musk sagð-
ur hafa berað sig við flugfreyjur“.
Kristján H. Theódórsson orti:
Margt á flibbann fellur kusk,
það fréttamaður hleraði.
Að háreistur þótti herra Musk,
hann er djásn sitt beraði.
Kári Erik Halldórsson orti á laug-
ardag „Morgunvísu að norðan“:
Gráta ský að morgni mjög
mínar rúður lemja.
Þessi skondnu skúra lög
skaparinn var að semja.
Hallmundur Guðmundsson dró
upp „Sjálfsmynd“:
Ég brosvöðva byrjað’ að þjálfa,
svo brosti á gemsanum ’sjálfa’.
En brosið það brást
því ’barasta’ sást;
- mynd af bölvuðum bjálfa.
Og hér sækir Hallmundur í vís-
nabinginn „Sumarljóðið“ að gefnu
tilefni.
Mér löngum þykir ljúft að spá
og labba um á blettinum.
Í morgunlabbinu leit ég á;
leifarnar frá kettinum.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
stuðlafall:
Kvæðin þjálu kæta sálu mína,
en vín á skál og vinamál
á vegi hálum reynast tál.
Magnús Halldórsson yrkir:
Það var geigur í garginu’ og köllunum
þegar gamanið hæst stóð á pöllunum
Er féll yfir húmið,
þau fóru’ undir rúmið.
Og fundu hann Jón á Völlunum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Grímseyjarferjan og
vinstri græn