Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 32
• Sérferð fyrir eldri borgara
og flogið með Icelandair
• Mjög áhugaverðar skoðunarferðir
alla daga þ.m.t. til Brattahlíðar
• Allur matur og gisting innifalin í verði
• Íslensk fararstjórn og mikil upplifun
Stórkostlegt land
að heimsækja!
Grænland
Verð
325.000
mann í tvíbýli*
*aukagjald fyrir einbýli
kr. 37.900
Narsarsuaq
20.-23. ágúst
4 dagar/3 nætur
Allar nánari upplýsingar á
www.ferdaskrifstofaeldriborgar.is
Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
eða í símum 783-9300/01
Joshua Barone, rýnir The New York Times, fer fögrum
orðum um frammistöðu Dísellu Lárusdóttur í óperunni
Akhnaten eftir Philips Glass, sem tekin hefur verið aft-
ur til sýninga hjá Metropolitan-óperunni í framhaldi af
Grammy-verðlaununum sem upp-
takan á óperunni hlaut nýverið,
en óperan var fyrst sýnd hjá
Metropolitan árið 2019.
Barone bendir á að þótt Glass
votti í óperum sínum merkum
karlmönnum, sem höfðu afger-
andi áhrif á heiminn, virðingu
sína, dragi uppfærslan fram að
völdin felist raunverulega hjá
konum. Nefnir hann í því sam-
hengi hversu „ógnvekjandi og
kraftmikil“ Tye drottning, móðir
Akhnaten, verði í túlkun
Dísellu. Akhnaten verður
sýnd hjá Metropolitan
til 10. júní.
Kraftmikil í hlutverki sínu sem Tye
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Ljóst er að minnst fjóra leiki þarf til að útkljá einvígi
Fram og Vals um Íslandsmeistaratitil kvenna í hand-
knattleik. Valur vann annan leik liðanna á Hlíðarenda í
gærkvöldi eftir æsispennandi baráttu, 27:26, en Fram
vann fyrsta leikinn 28:27. Þriðja viðureignin fer fram í
Safamýri á fimmtudagskvöldið. »27
Valur jafnaði í einvíginu gegn Fram
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Spennandi og leyndardómsfullur
kafli hefst í ferðamálasögu Íslands
þegar fyrirlestrarými í sögukjallara
um Vestur-Íslendinginn sir William
Stephenson verður formlega opnað í
kjallara verslunarinnar Kirsuberja-
trésins á Vesturgötu 4 í Reykjavík
klukkan 13.30 í dag. Þar verður jafn-
framt ráðgátuherbergi eða flótta-
herbergi og verður það tekið í notk-
un síðar á árinu eða á næsta ári. „Við
segjum sögu sir Williams Stephen-
sons, þess manns af íslenskum ætt-
um sem líklega hafði mestu áhrif á
gang seinni heimsstyrjaldarinnar,“
segir Hugi Hreiðarsson. „Saga hans
er ákaflega stórbrotin, svo ekki sé
meira sagt.“
Stephenson var iðnjöfur og millj-
ónamæringur. Hann stjórnaði
njósnastarfsemi Breta í Bandaríkj-
unum í seinni heimsstyrjöldinni. Rit-
höfundurinn Ian Fleming var á með-
al starfsmanna hans en bækur
Flemings og síðar kvikmyndir, sem
gerðar voru eftir þeim um James
Bond, eru þekktar um heiminn.
Fleming skrifaði fyrir 60 árum að
Stephenson væri hinn sanni James
Bond.
Langur undirbúningur
Bræðurnir Bogi Auðarson og Hugi
Hreiðarsson hafa unnið að gerð
sögukjallarans frá 2014. Þá hafði
Bogi farið í flóttaherbergi (e. Escape
Room) í Amsterdam og þeir ákváðu
að búa til slíkt. Í þess konar her-
bergjum er fólk læst inni og þarf að
finna lausnir til þess að komast út.
Um svipað leyti voru þættir Egils
Helgasonar um Vesturfarana sýndir
í Ríkissjónvarpinu og þá heilluðust
bræðurnir af vesturíslenska njósna-
foringjanum. „Við byrjuðum að
kynna okkur sögu hans og eftir því
sem við köfuðum dýpra, þeim mun
áhugasamari urðum við,“ segir Hugi.
Þeir hafi meðal annars farið til
Winnipeg í Kanada, þar sem Steph-
enson ólst upp, og til Bermúda, þar
sem hann bjó síðustu 30 árin. Eins
hafi þeir sótt söfn í London, Toronto
og New York til að afla sér frekari
upplýsinga. „Við skynjuðum hvað
sagan var djúp og stór en samt svo
mikið ósögð og leyndardómsfull að
við gátum ekki sleppt henni frá okk-
ur.“
Eftir að hafa safnað heimildum
víða, meðal annars hjá ættingjum
Stephensons og kanadískum rithöf-
undi sem hefur skrifað tvær bækur
um Vestur-Íslendinginn, hafa bræð-
urnir sett saman rúmlega klukku-
stundar langa dagskrá um fyrirmynd
James Bonds. „Við tvinnum sögu
hans við sögu Ians Flemings og að
okkar mati væri James Bond jafnvel
ekki til ef vinskapur hefði ekki verið
þeirra á milli. Saga hins sanna James
Bonds verður nú sögð í Reykjavík.“
Bræðurnir fengu Tony Correia,
náinn vin Stephensons frá Bermúda,
til að opna kjallarann og hafa sett
upp vefsíðuna www.truespy.is, þar
sem eru miklar upplýsingar um sir
William Stephenson, auk þess sem
panta má miða á fyrirlestra á síð-
unni. Til að byrja með verður einn
fyrirlestur klukkan 16 alla virka
daga en Hugi segir að þeim verði
fjölgað í takt við eftirspurn. „Hægt
er að velja um fyrirlestur á íslensku
eða ensku, en helsti markhópur okk-
ar eru erlendir gestir þessa lands.“
Hinn sanni James
Bond í Reykjavík
- Sögukjallari opnaður um sir William Stephenson
Morgunblaðið/Eggert
Leyndardómurinn Við innganginn Bogi Auðarson, Tony Correia og Hugi
Hreiðarsson opna sögukjallarann í miðbæ Reykjavíkur í dag.
Hetja William Stephenson var heiðraður fyrir frammistöðu sína í fyrri
heimsstyrjöldinni og stjórnaði njósnum Breta vestra í þeirri seinni.