Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.05.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. U S A TO D AY 72% Empire Rolling StoneLA Times BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams Víóluleikarinn Eyvind Kang og söng- konan Jessika Kenney halda tónleika í Mengi næstu þrjú kvöld, 24.-26. maí, og munu þau fara á dýptina í gegnum eigin tónlist sem er í senn huguð og ný, aldagömul og göldrótt, eins og segir í tilkynningu. „Tónlistarunnendum gefst nú sjaldgæft tækifæri til að hlýða í ná- vígi á hinn eftirsótta dúett Eyvinds Kangs, víóluleikara og tónskálds, og Jessiku Kenney, söngkonu og tón- skálds, í Mengi,“ segir þar og að hljóð- og tónheimur þeirra einkenn- ist af miklum frumleika og áhrifum frá ólíkum tónlistarhefðum heimsins sem þau hafi varið áratugum í að sökkva sér ofan í og rannsaka. Bæði starfa við hinn virta listaháskóla California Institute of the Arts og sem dúett hafa þau m.a. starfað með ljóðskáldinu Anne Carson og hljóm- sveitunum Sun City Girls, Sunn O))) og Animal Collective. Þau hafa einn- ig samið fyrir og komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og gefið út hljómplötur bæði í sameiningu og hvort í sínu lagi og einnig með öðrum flytjendum. Eyvind á íslenska móður og hefur unnið með og verið áhrifavaldur á listamanna á borð við Laurie And- erson, Bill Frisell og John Zorn og einnig hefur hann átt í samstarfi við Skúla Sverrisson í áratugi. Geta má þess að hann hefur unnið með og leikið inn á tónlist Hildar Guðnadótt- ur og þá meðal annars fyrir kvik- myndina Joker sem hún hlaut Ósk- arsverðlaun fyrir. Kenney er einna þekktust fyrir tónlist sína og söng í kvikmyndinni Midsommar í leikstjórn Ari Aster sem vakti mikla athygli árið 2019. Hún hóf feril sinn sem söngkona í pönkhljómsveitunum Cause, Ex Ni- hilo og ASVA og í framhaldi hóf hún sólóferil sem tónskáld og flytjandi. Hún hefur flutt tónlist Alvins Luci- ers og Jarrads Powels og komið fram með listamönnum og hljómsveitum á borð við Lori Goldston, Holland And- rews, Trimpin og Simone Forti and Wolves in the Throne Room, að því er fram kemur í tilkynningu. Eyvind og Kang segja frábært að vera komin aftur til Íslands og að þau hafi síðast komið hingað árið 2013 og þá komið fram með Sinfóníu- hljómsveit Íslands og kór. „Við erum ótrúlega spennt að koma fram í Mengi í fyrsta skipti því við finnum fyrir mjög miklum áhuga á alþjóða- vettvangi fyrir dagskránni þar. Svo er auðvitað yndislegt að fá tækifæri til að tengja aftur við vini og sam- starfsfólk sem við eigum hér,“ segja þau. Fara á dýptina Samstarf Eyvind Kang og Jessika Kenney halda þrenna tónleika. Sýning á 25 málverkum og mynd- listarbókinni Á meðan... eftir Jón Magnússon var opnuð á Kaffi Mokka fyrir helgi og er hún til styrktar starfi Unicef í Úkraínu og lýkur 7. júlí. „Hugmyndin kviknaði þegar ég sá fréttaljósmynd af látnu barni flóttamanna á strönd Grikklands. Ljósmyndin var í öllum fréttum og mér ofbauð. Ég sá rautt og hugsaði með mér, hvað get ég gert til að hjálpa? Þetta var fyrir fjórum árum. Þá ákvað ég að gera bók til styrktar Unicef og málverkin ættu að vera eftir fréttamynd- um af börnum frá stríðshrjáðum löndu,“ skrifar Jón m.a. um verk sín og að Unicef hafi veitt honum aðgang að myndabanka sín- um. Eftir að hafa skoðað þúsundir ljósmynda hafi 25 orðið fyrir valinu og málverk eftir þeim farið í bókina Á meðan … með texta eftir skáldið Diddu Jónsdóttur. Verk til styrktar Unicef í Úkraínu Jón Magnússon Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýnir kammeróperuna Gretti eftir Þorkel Sigurbjörnsson í Hljómbjörgu, sal skólans á 2. hæð Ármúla 44, í kvöld kl. 19.30 og sýnir aftur annað kvöld á sama tíma. Að- eins verða þessar tvær sýningar. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann, tónlistarstjóri og hljómborðsleikari er Antonía Hevesi og Guðrún Dalía Salómónsdóttir sér um píanóleik. Samkvæmt upplýsingum frá skól- anum sviðsetur óperudeildin árlega óperu eða óperettu úr sígilda heim- inum, en í ár var brugðið út af þeim vana. Kammeróperuna Gretti samdi Þorkell á ensku upp úr texta Böðv- ars Guðmundssonar sem samdi upp- runalegan íslenskan texta. „Leik- stjóri sýningarinnar og tónlistar- stjóri hafa í samvinnu aðlagað þann texta tónlistinni og kappkostað að vera upprunalegum texta Böðvars trú í þeirri vinnu,“ segir í tilkynn- ingu og rifjað upp að enska útgáfan hafi árið 2004 verið sýnd í Bayreuth í Þýskalandi og síðar í Kanada, í leik- stjórn Sveins Einarssonar og undir tónlistarstjórn dr. Guðmundar Emilssonar. „Sýning Söngskóla Sig- urðar Demetz verður því frumsýn- ing verksins á Íslandi. Óperan Grettir segir söguna af Drómundi, bróður hetjunnar Grettis, sem hefur verið fangelsaður suður í Miklagarði en þar leitaði hann hefnda fyrir víg bróður síns. Óperan fjallar á gaman- saman hátt um það hvernig Dró- mundur nær að sleppa úr prísund- inni og hver örlög hans verða í kjölfar þess.“ Miða má panta gegn um netfangið: gunnar@songskoli.is. Íslandsfrumsýning á Gretti Ljósmynd/Gunnar Freyr Kammerópera Grettir segir söguna af Drómundi, bróður Grettis. Íslenski dansflokkurinn sýndi fjór- ar sýningar um nýliðna helgi á meginlandi Evrópu. Rómeó <3 Júl- ía eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur var sýnd í Bilbao á Spáni og sýndar voru tvær sýn- ingar í hinu þekkta leikhúsi Teatro Arriaga. Þá fór flokkurinn til Hannover í Þýskalandi og sýndi þar verkið No Tomorrow eftir Mar- gréti Bjarnadóttur og Ragnar Kjartansson. Sýndar voru tvær sýningar á listahátíðinni Kunst- FestSpiele í konunglega garðinum Herrenhausen, að því er segir í tölvupósti frá flokknum. Þar segir einnig að mikið hafi verið um sýn- ingarferðir hjá Íslenska dans- flokknum á vormánuðum og að í febrúar hafi hann farið til Noregs og sýnt þar barnadansverkið Dag- drauma eftir Ingu Maren Rúnars- dóttur. Í apríl var aftur farið til Noregs með Rómeó <3 Júlíu og sýnt í Osló og Sandnes. Íd mun halda áfram ferðalögum á næstu vikum og flytja AION eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Ómars- dóttur til Harstad í júní og koma fram á listahátíðinni Arctic Arts með Arctic Philharmonic Orc- hestra. Þá verður Black Marrow eftir Damien Jalet og Ernu sýnt í þjóðleikhúsinu í Mannheim í Þýska- landi. Dansflokkur á ferð og flugi Ljósmynd/Hörður Sveinsson Myndrænt Úr sýningu Íd á dansverkinu Rómeó <3 Júlía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.