Morgunblaðið - 24.05.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 24.05.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022 Stóísk ró Hundurinn horfir rólegur út um bílgluggann, nýtur góða veðursins og lætur sér fátt um finnast þótt fólkið sé á þönum í kringum hann í sínu daglega amstri. Eggert Jóhannesson Ríkisstjórnir eru oft gagn- rýndar fyrir kosningafjárlög. Þá eru útgjöld aukin til vin- sælla verkefna skömmu fyrir kosningar. Klapp á bakið og allir glaðir. En hin hliðin á dæminu, sem er ekki jafn vin- sæl, er að afla tekna eða hag- ræða á móti. Sú hlið er skilin eftir fyrir næstu ríkisstjórn. Og fyrir komandi kynslóðir til að borga. Gagnrýni af þessu tagi er ekki bundin við Ísland. Hún er þekkt í flest- um lýðræðisríkjum. Ég man hins vegar ekki eftir því fyrr en nú, að ríkisstjórn hafi beinlínis gefið út stefnuyfirlýsingu í byrjun kjörtímabils um að hún ætli að halda áfram að safna skuldum og skilja allan vandann eftir í fangi næstu ríkisstjórnar. Það er erfitt að finna hliðstæðu af þessu tagi í öðrum vestrænum löndum. Finnist hún er það samanburður sem enginn ætti að stæra sig af. Þetta segir bara eina sögu – það er alvar- leg pólitísk kreppa í landinu. Endurtekin gagnrýni atvinnulífsins Fjármálareglur voru tímabundið felldar úr gildi vegna faraldursins. Ný fjármála- áætlun fram til ársins 2027 ber með sér að ríkisstjórnin ætlar ekki að innleiða þær á ný meðan hún situr. Um þetta segja Samtök atvinnulífsins í nýrri umsögn: „Er næstu ríkisstjórn þannig eftirlátið að takast á við þann vanda, sem hefur skapast í op- inberum fjármálum.“ Það sem meira er; þessi höfuð- samtök atvinnulífsins eru að end- urtaka þessa gagnrýni. Hún kom strax fram fyrir hálfu ári þegar ríkisstjórnin kynnti fyrstu fjár- málaáætlun þessa kjörtímabils. Og nú er hún ítrekuð. Þessa gagnrýni er ekki hægt að afgreiða sem eitthvert gjamm og gagg óvinveittra andstæðinga á Alþingi. Samt leggur fjármála- ráðherra ekki við hlustir og gefur atvinnulífinu bara langt nef. Hljóð og mynd fara ekki saman Samtök atvinnulífsins benda enn fremur á, að í fjármálaáætluninni heldur fjár- málaráðherra því fram að opinber fjármál sporni gegn verðbólgu og dragi úr spennu í hagkerfinu. Þau segja hins vegar að fyrir þessu séu ekki færð sannfærandi rök. Þetta er þungur áfellisdómur frá sam- tökum, sem vörðu miklum fjármunum í síð- ustu kosningum til að tryggja framhaldslíf ríkisstjórnarinnar. Bandalag háskólamanna nálgast fjár- málaáætlunina eðlilega frá öðru sjónarhorni en atvinnulífið og tekur ekki jafn sterkt til orða. En kjarninn í gagnrýni þess er sá sami. Þannig segja háskólamenn að rík- isstjórnin þurfi að gera grein fyrir langtíma- sjónarmiðum sínum um þróun samfélagsins og hvernig áætlanir hennar um útgjöld og tekjur ríma við þá framtíðarsýn. Þó að orða- lagið sé hógvært felst í því sama gagnrýni og hjá atvinnulífinu. Hljóð og mynd fara ekki saman. Í umsögn BHM er bent á að hallinn vegna heimsfaraldursins sé 500 milljarðar króna, en ríkisstjórnin ætli að tvöfalda þann halla fram til 2027. Bandalagið bendir á að engin stefna hefur verið mótuð um það hver eigi að bera þær byrðar. Nýjar ófjármagnaðar aðgerðir Fyrir skömmu ákvað ríkisstjórnin að hækka sumar bótagreiðslur til þess að vega upp á móti kjararýrnun verðbólgunnar. Það var fullkomlega eðlilegt. En fjármálaráð- herra ákvað að með öllu væri ástræðulaust að afla tekna fyrir þeim útgjöldum. Næsta ríkisstjórn á að leysa þann vanda. Danska krataríkisstjórnin kynnti svipuð áform á dögunum. Einn af stuðningsflokkum hennar setti henni aftur á móti stólinn fyrir dyrnar og sagði réttilega að ófjármögnuð út- gjöld kæmu niður á launafólki með vaxandi verðbólgu. Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins hreyfði sjónarmiðum af þessu tagi. Ekki einn einasti. Bandalag háskólamanna gerir það hins vegar í umsögn sinni um fjár- málaáætlunina. Sú staða hefur ekki komið upp áður í umræðum um ríkisfjármál. Samhljómur í gagnrýni Þessi dæmi sýna að kröfur um ábyrga rík- isfjármálastefnu koma jöfnum höndum frá launafólki og atvinnufyrirtækjum. Bandalag háskólamanna vill standa vörð um velferðarkerfið en Samtök atvinnulífsins vilja sjá meira svigrúm fyrir fyrirtækin. En hvor tveggja þessi samtök vita að það mun koma illa við fólk og fyrirtæki að bíða út kjörtímabilið með ábyrga fjármálastjórn. Þess vegna er ákveðinn samhljómur í gagnrýni þeirra. Fjármálaráðherra treystir næstu stjórn betur Fjármálaráðherra treystir greinilega næstu ríkisstjórn betur en þeirri sem nú sit- ur til þess að leysa vandann. Það er virðing- arvert sjónarmið og raunsætt. En pólitíska kreppan felst í því að fólkið í landinu og fyrirtækin geta ekki beðið í þrjú ár. Það er ekki ágreiningur milli ríkisstjórn- arflokkanna. Þeir virðast bara ekki ræða hvort möguleikar eru á samkomulagi þeirra á milli um ábyrga fjármálastjórn. Snerta ekki á málinu. Þegar svo er komið eiga þeir að við- urkenna úrræðaleysið fyrir þjóðinni og fela henni að stokka spilin upp á nýtt og leyfa trausti fjármálaráðherra á næstu ríkisstjórn að blómstra án frekari tafa. Stöðugleiki við ríkisstjórnarborðið þjónar litlum tilgangi ef hann dugar ekki til að stuðla að stöðugleika í þjóðarbúskapnum. Umsagnirnar um fjármálaáætlunina sýna að við erum þar. Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur » Fjármálaráðherra treystir greinilega næstu ríkis- stjórn betur en þeirri sem nú situr til þess að leysa vandann. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Næsta ríkisstjórn Höfundur er formaður Viðreisnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.