Morgunblaðið - 24.05.2022, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.05.2022, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022 ✝ Guðrún Jacob- sen fæddist 30. október 1930. Hún lést á Skjóli 30. apr- íl 2022. Faðir hennar var Carl Anton Jacob- sen, f. 6. júní 1868, d. 1942, og móðir hennar var Þor- björg Aldís Björns- dóttir, f. 7. október 1893, d. 24. nóvem- ber 1957. Eiginmaður Guðrúnar var Karl Júlíusson, f. 26. apríl 1924, d. 19. október 1975. Þau skildu. Börn þeirra eru: Þröstur Júlíus Karlsson, f. 1. nóv- ember 1948, Sigrún Stella Karlsdóttir, f. 1. febrúar 1954, Harpa Karlsdóttir, f. 9. apríl 1961, og Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, f. 13. desember 1968. Útför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 24. maí 2022, klukkan 13. Dýpsta sælan og sorgin þunga, svífa hjóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf frá Hlöðum) Mamma var allt í senn, vinnu- söm, mjög listhneigð, bæði á penna og liti, „vélritaði“ öll sín bókarhandrit, smíðaði dúkku- hús. Einnig var hún ötull penni í Velvakanda Morgunblaðsins. Hún var náin móður sinni með- an hún var á lífi en amma Aldís fékk krabbamein og mamma reyndi allt til að létta henni þá þjáningu. Þær lögðu á sig langt og erfitt ferðalag til Lourdes í Frakklandi, þar sem von var á kraftaverkalækningu í lind sem sögð var hafa lækningarmátt. Þetta var síðasta vonin um lækningu. Flug til Kaupmanna- hafnar og svo lestarferðir í einn og hálfan sólarhring og hvorug talaði erlend tungumál. Þegar amma lést skrifaði mamma bók- ina Pílagrímsferð til Lourdes 1961. Ég man fyrst eftir mér á Víði- melnum í örlitlu þakíbúðarhús- næði og mamma að semja hand- rit við eldhúsborðið og ég gónandi á hana skella upp úr og tala upphátt, svo mikið lagðist hún í skrifin, þarna var hún að skrifa Alþýðuheimilið, skáldævi- sögu. Mamma málaði mjög sér- stakar figúratívar myndir. Hún rölti með mig á trésmíðaverk- stæði víðsvegar um borgina og keypti efni í ramma og viðarbúta til að mála á. Hún hélt nokkrar málverkasýningar, m.a. í Ás- mundarsal. Mamma og pabbi voru oft kokkar til sjós á Dísarfellinu og Hamrafellinu. Mamma skrifaði m.a. söguna Kokkur til sjós á Hamrafellinu. Hún átti það til að leita uppi dýrabúðir erlendis og bjarga þaðan ýmsum fuglateg- undum sem hún kom með heim. Mamma var í Þjóðleikhúskórn- um og fékk nokkur hlutverk gegnum söngröddina, m.a. í Ka- barett, Kátu ekkjunni og Leð- urblökunni. Það var gaman að fá að vera lausagangsbarn um allt Þjóðleikhúsið og sjá sýningarnar oft. Mamma var í Dómkórnum í mörg ár. Hún gekk í Pólýfón- kórinn undir stjórn Ingólfs Guð- brandssonar. Þar var mikið fé- lagsstarf og fengum við systur að fara til Ítalíu ásamt fleiri börnum kórfélaga, það er mitt minnisstæðasta ferðalag um æv- ina. Þetta var 1976 og flestir ekki komið upp í þotu. Ítalirnir grétu og hrópuðu BRAVÓ, eftir hverja tónleika. Á enn í dag vini frá þessari ferð. Mamma stundaði Sundhöllina nær út ævina, sá hana stinga sér af háa brettinu langt komin á á áttræðisaldur. Ótrúlegur kraftur í þessari konu, enda lifði hún nánast á því sem kallast ofur- fæði, oftast ný línuýsa, kálböggl- ar með lambahakki, bananar og epli ofan á brauðsneiðarnar, al- vöru mjólk, eigin jógúrt úr Kák- asusgerli, niðursoðin bláber í krukku frá Póllandi allan ársins hring og oft súr hvalur í eft- irrétt. Man ekki eftir því að mamma hafi fengið kvefpestir eða bakteríusýkingar yfir höfuð, hún kvaðst ekki vita hvernig höfuðverkur liti út! Enda sagði hún undir lokin: Ég verð aldrei veik, ég er skilin útundan! Hún tók aldrei bílpróf, enda var húm- orinn svolítið bundinn við það undir það síðasta, hún hafði skýringu á því: Ég væri löngu búin að drepa fjölda manns! Enda oft kölluð hraðlestin á vinnustað. Hún hvatti mig til að lesa góðar bækur og bóklestur var helsta dægradvölin. Mamma gaf mér Eyðimerkurblómið í jóla- gjöf 2004, áritaða eftir Waris Di- rie sem fæddist í Sómalíu árið 1965 og var 13 ára þegar hún flúði Sómalíu eftir að hafa verið seld í hjónaband. Mamma hafði mikið fyrir árituninni enda staldraði Waris stutt við á land- inu í tilefni bókarinnar og mamma talaði nánast ekki orð í erlendum tungumálum. Það var ein bók gefin út eftir mömmu á dönsku, Den lille mester. Við mamma trúum á aðra til- vist og sjáumst aftur. Meira á www.mbl.is/andlat Harpa Karlsdóttir. „Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig.“ Þetta er í ritningunni en það sem er mikilvægara fyrir mér, er að móðir mín fór með þessi orð yfir mér þegar kom að ferm- ingardegi mínum, Pálmasunnu- deginum, er við fermingarbörnin áttum að velja okkur setningu úr Biblíunni. Það átti eftir að reyna á þessi orð. Að standa undir þeim hefur verið mitt lífs- mottó og einnig hafa synir mínir fjórir og þrír stjúpsynir þurft að heyra þau trekk í trekk. Ef Guð getur treyst þér fyrir litlu, og þú framkvæmir eftir bestu getu, þá getur hann látið þér í té stærra og mikilvægara verkefni. Hér mætti nefna stjórnmálafólkið í voru landi, en það er vel við hæfi enda var mamma mjög pólitísk. Skoðunum sínum á pólitík og þjóðmálum hélt hún ekki útaf fyrir sig. Hún skrifaði reglulega í Velvakanda Morgunblaðsins. Í dag mætti kalla það Blogg. Mamma kenndi manni svo mikið og í gegnum hana hafa synir mínir og stjúpsynir fengið allan þann lærdóm. Ḿaður agar þann sem maður elskaŕ Þetta var við- kvæðið þegar manni fannst hún vera ansi ströng. Śkylduna fyrst, skemmta sér á eftiŕ Þegar manni var kennt að borga reikningana sína á undan öllu öðru, taka til í herberginu eða klára heimalærdóminn áður en manni var sleppt út í frelsið. Bókalestur var engin skylda, kom bara eðlilega með soðnu ýsunni og kartöflunum. Mamma kenndi manni margt um dýrin. Hún gaf fuglunum útí garði á veturna. Það gera margir og þykir ekkert spes en mamma arkaði endanna á milli bæjarmarka til þess að fá kjöt- sag og það tók mörg fótsporin og þunga byrði því aldrei keyrði mamma bíl. Śem betur fer lærði ég aldrei að keyra bíl, annars hefði ég líklega slasað sjálfa mig og aðra því ég er svo fljótfær!́ Það er ekki ólíklegt því mamma var ekki bara fljót- fær, enginn sem ég þekki gat gengið eins hratt og hún gerði. Ég man eftir mér á harðahlaup- um á eftir henni sem barn að reyna að halda í við hana. Hún var alltaf á hlaupum og ein- staklega frá á fæti enda einn frægasti jitterbug dansari Reykjavíkur, rétt eftir stríðs- árin. Mamma var alltaf á undan sínum tíma og í hörkuvetrar- gaddi þurftu villtu dýrin á kjarnmiklu fæði að halda. Flækingsköttunum gaf hún einnig. Þeir komu að eldhús- glugganum í kjallaranum, fengu volgt mjólkurbland og soðna ýsu, borðuðu en hvæstu og mamma sagði alltaf Ékki slá á höndina sem gefur þéŕ. Kett- irnir átu, fuglarnir kroppuðu og Tobba, hundurinn okkar sat á tröppunum og fylgdist með. Ég man sem barn hvað mér þótti þetta merkilegt. Hvernig tókst mömmu að ná þessari harm- óníu? Öll dýrin í hennar skógi náðu að verða vinir. Mamma var alltaf ströng. Hún agaði mann í uppeldinu en húmorinn var alltaf til staðar og stór þáttur í hennar karakt- er. Og gæska. Alltaf var hlegið, hátt og mikið og alltaf fann maður fyrir gæskunni. En það getur ekki hafa verið tekið út með sældinni að láta enda ná saman, ein og óstudd, amk í mínum uppvexti, með harðri verkamannavinnu en samt að sinna því sem veitti henni ham- ingju, listinni. Mamma var frábær dansari, hæsti sópran og spilaði snilld- arlega á munnhörpu. Hún mál- aði einnig, eftir hana eru mörg falleg verk. Rithöfundur var hún og gaf út smásögusöfn, Smáfólk sem var þýtt á dönsku, Den lille mester og einnig Gull- tárin, Pílagrímsför til Lourdes, sem er heimild um hennar för með móður sína þangað, sem þá var orðin heltekin af krabba- meini. Einnig Listamannsraun- ir ofl. Hún var mjög góður kokkur; vann sem kokkur á Hamrafellinu og öðrum stórum skipum en einnig minni togur- um. Dugnaðurinn var gengdar- laus. Ég sakna hennar. Við öll söknum hennar. Ég vil þakka starfsfólki Skjóls fyrir umönnun hennar. Þau eru öll svo yndisleg. Elsku móðir mín. Ég á þér allt að þakka. Hvíl í friði, þín dóttir, Meira á www.mbl.is./andlat Guðrún Glódís Gunnarsdóttir. Þegar ég hugsa til Guðrúnar, kemur hlátur fyrst í hug. Og bros. Það var stutt í hlátur og bros. Ekki að furða að eitt af hennar uppáhaldslögum var Smile eftir Charlie Chaplin sem var í miklu uppáhaldi hjá henni. Ég var svo heppinn að fá að vera hjá henni fyrstu átta mán- uðina eftir að ég flutti til Íslands á meðan ég var að koma okkur fyrir. Við fjölskyldan höfðum tekið þá ákvörðun að flytja „heim“. Konan mín var yngsta dóttir hennar. Þessir mánuðir eru falleg minning fyrir mig. Hún gat örlítið stautað sig áfram í ensku, ég minna í ís- lensku, en við skildum hvort annað nokkuð auðveldlega þó margt mjög fyndið hafi auðvitað komið fyrir. Oft er ég kom heim til hennar að kvöldi til eftir lang- an vinnudag og pottastund í Sundhöllinni beið mín steiktur fiskur a la Guðrún Jacobsen með kartöflum og lauk, algjört hnossgæti. Ég fékk að elda á sunnudögum. Þá fylgdist hún stundum með, fussaði og sveiaði yfir minni eldamennsku en borð- aði svo af bestu lyst. Er henni fannst eitthvað í sjónvarpinu á kvöldin höfða til mín sem Breta bankaði hún á herbergishurðina og skikkaði mig inn í stofu. Þar horfðum við saman á gamanþættina um Mrs. Brown og skellihlógum og einnig X Factor sem hún fylgdist með af gagnrýni og léttum húmor. Guðrún var mér afar kær, hin besta tengdamamma sem maður gæti eignast og hún var inn- blástur. Var réttsýn og hrein- skiptin. „Rétt skal vera rétt,“ sagði hún oft og endurtekur konan mín það reglulega enda dóttir móður sinnar. Guðrún var mikill karakter, einstök og eft- irminnileg, hæfileikarík, vönd að sinni virðingu og einstaklega glæsileg kona langt fram eftir aldri. Guðrúnar er sárt saknað en minning hennar lifir. Ég er þakklátur fyrir mín kynni við hana og stundir með henni. Martin Gilpin. Elsku amma er farin, mik- ilvægi hlekkurinn okkar og fyr- irmynd í svo mörgu. Henni eig- um við að þakka gott kristilegt uppeldi, lærðum að vera snyrti- lega til fara, vel tilhöfð og vel máli farin. Hvort það hafi hald- ist er önnur saga. Litla rauða húsið á Bestó var félagsmiðstöðin sem allir gátu leitað til í blíðu og stríðu. Við vorum alltaf mjög velkomin sama hvað gekk á og alltaf fékk maður hlýjar móttökur og súkkulaðisnúð. Sunnudagar voru skemmtilegustu dagarnir, þá hittist frændfólkið og hló saman. Einu sinni ákváðu tveir litlir drengir, 7-9 ára, úr Hafnarfirði að halda í leiðangur til Reykja- víkur fótgangandi hafandi ekki hugmynd um vegalengdina né hvaða tíma það tæki. Gengu þeir af stað, hvorki með nesti né nýja skó, og létu engan vita af áætl- unum sínum. Seint og um síðir banka tveir grútskítugir pollar upp á hjá ömmu með spýtur og hjólkoppa í eftirdragi, alsælir og glorhungraðir. Svipurinn á ömmu gleymist aldrei, blanda af furðu og smá reiði sem endaði samt með skellihlátri. Mamman var látin vita og prakkararnir sendir heim í strætó. Þessi saga mun aldrei gleymast. Við barnabörnin hennar átt- um þarna öflugan bandamann og vin í öllu sem við gerðum og studdi hún okkur í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Alltaf samgladdist hún ef gekk vel og sýndi samúð ef gekk illa. Hún var alltaf góð við alla, fólk minnist hennar með hlýhug á þeim vinnustöðum sem hún vann og bjó síðustu árin. Kunn- um við starfsfólkinu á Skjóli innilegar þakkir fyrir umönnun hennar. Þar leið henni vel og var afar þakklát fyrir að fá kær- komið frí frá daglegu amstri eins og þrifum, þvotti og elda- mennsku. Þess má geta að hún þvoði gólfin á hnjánum, átti aldrei þvottavél heldur þvoði fötin í bala með grænsápu og útbjó allan heimilismat frá grunni. Henni var alltaf umhugað um hollan mat og hreyfingu og varð nánast aldrei misdægurt. Hún var sannkallað hörkutól með mjúkt hjarta og hlýjan faðm. Amma átti yndislegan hund, hana Tobbu, sem allir elskuðu og oft sátu þær saman „mæðg- urnar“ í eldhúsinu á Bestó, önn- ur söng óperu á meðan hin spangólaði með. Heyrðist þessi samsöngur um Þingholtin á góðum degi. Munnharpan var einnig oft dregin upp þegar gesti bar að garði ásamt spá- dómum í spil og bolla. Einnig var hún nösk að ráða drauma og var mjög forvitin um draum- farir okkar þegar okkur bar að garði. Gaman er að minnast á það að þegar hún var komin á Skjól þá spurði hún iðulega hverra manna við værum og trúði því aldrei hvað hún sjálf væri orðin gömul og skellihló þegar minnst var á aldur barnanna hennar og að hún ætti barnabörn, þá fékk hún hláturskast. Þegar fólk nær svo háum aldri fær það stundum elliglöp, sumir þjást en hún gerði það svo sannar- lega ekki og má eiginlega segja að hún hafi látist með bros á vör. Hún var þekkt fyrir góðan húmor og frásagnargleði. Hún sagði frá með svo mikilli inn- lifun að við sáum sögurnar ljós- lifandi fyrir okkur. Hélt hún þessum eiginleika sínum alveg fram í andlátið. Við munum sakna og minn- ast þín með hlýhug. Sigurgyða, Ingólfur og Guðrún. Elsku Guðrún amma er látin. Dýrmætar minningarnar streyma fram í hugann. Amma var sérstök kona eins og allir vita sem voru svo heppnir að vera á hennar vegi. Hún var sterkur persónuleiki og ákveð- in, en umhyggja, góðvild og ör- læti voru í mínum huga hennar aðalsmerki. Amma var sérlega glæsileg, með mikla reisn og fór aldrei út úr húsi nema vel tilhöfð, með hárlagningu og farða. Hún hafði ríka kímnigáfu og fallegum hlátri hennar mun ég aldrei gleyma. Við áttum það sameig- inlegt að elska dönsku sjón- varpsþættina Klovn og kryfja þá til mergjar yfir rjúkandi kaffibolla og hlæja og flissa út í það óendanlega. Hlátur, gleði, dans og tónlist einkenndi litla rauða húsið hennar og þar var gestrisnin slík að engum gleym- ist sem sóttu hana heim. Ef svo vildi til að amma væri ekki heima þegar við komum þá var lykillinn alltaf undir mottunni. Amma var ung í hugsun og fasi og verður alltaf síung minn- ingu minni. Það var svo gott að deila með henni gleði jafnt sem sorgum og stundum var hægt að dobbla hana til þess að spá inn í framtíðina með spáspil- unum sínum – spáin reyndist alltaf björt, tækifærin og æv- intýrin rétt handan við hornið. Alltaf rættist spáin. Um leið og ég þakka ömmu fyrir alla hennar elsku læt ég fylgja lítið ljóð sem hún kenndi mér sem barni og söng fyrir okkur allar götur síðan. Sól úti, sól inni, sól í hjarta, sól í sinni, sól og gleði í sálu minni. Góða ferð elsku amma inn í fegurðina, kærleikann og góða veðrið! Þín elskandi, Júlía Björgvinsdóttir. Guðrún Jacobsen Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, HALLA PÁLMADÓTTIR, Kambaseli 77, Reykjavík, lést fimmtudaginn 19. maí á líknardeild LSH,þar sem hún naut stórkostlegrar hlýju og umönnunar starfsfólks. Útförin verður auglýst síðar. Sigurður G. Símonarson Ásgeir Sigurðsson Dragana Anic Hjördís Sigurðardóttir Ingvar Sigurðsson Birna Kristinsdóttir og barnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁGÚST SÆBJÖRNSSON, áður til heimilis á Holtagötu 1, Reyðarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði fimmtudaginn 5. maí. Jarðsungið verður frá Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 28. maí klukkan 13. Athöfnin verður í streymi sem nálgast má á facebook-síðu Reyðarfjarðarkirkju. Einnig má nálgast streymi á mbl.is/andlat. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hulduhlíðar fyrir einstaka umönnun. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Fyrir hönd aðstandenda, Björg Ágústsdóttir Karin Ágústsdóttir Sigurður Ágústsson Steinar Ágústsson Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, SVEINN RÚNAR BENEDIKTSSON, Blönduhlíð 30, Reykjavík, lést föstudaginn 20. maí. Útför fer fram miðvikudaginn 1. júní klukkan 13 frá Háteigskirkju. Margrét Björnsdóttir Gerður María Sveinsdóttir Guðrún Marta Sveinsdóttir Ragnhildur Margrét Sveinsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.