Morgunblaðið - 24.05.2022, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.05.2022, Qupperneq 19
Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2022 Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkar- tilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát Minningar- greinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein og æviágrip. Þjónustu- skrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendur við fráfall ástvina. Fyrir 35 árum hafði Ásgeir J. Guð- mundsson samband við mig varðandi húsgagnahönnun. Hann kom svo ásamt starfsmanni á teiknistofu mína þar sem við tókum varfærn- islega pólana hvor á öðrum og hann bar upp erindið sem varðaði hönnun skilrúma fyrir skrifstofur. Mér leist vel á verkefnið, hófst handa og úr varð ágætt skilrúm. Það kom fljótt í ljós að við unnum vel saman og Ásgeir bað mig að skoða ýmislegt í framleiðslunni en mér hentaði ekki að vinna þannig að einstökum hlutum og lagði til að við þróuðum heila línu skrif- stofuhúsgagna samkvæmt ýtr- ustu kröfum þeirra tíma. Í línunni skyldu vera öll húsgögn sem til skrifstofuhalds þyrfti. Þetta varð úr og í undirbúningi fyrir verk- efnið fórum við Ásgeir m.a. til út- landa, ýmist á sýningar eða til að- ilja sem ég hafði sambönd við, til að kynnast skrifstofuumhverfi og húsgagnaframleiðslu í Evrópu. Á þessum ferðum lærðum við mikið og lögðum á ráðin um nýju vör- una. Okkur leið vel saman, rædd- um um heima og geima, snæddum góðan mat, dönsuðum uppi á borðum á grískum veitingastað í London og urðum vinir fyrir lífs- tíð. Á þá vináttu bar aldrei skugga. Til að gera langa sögu stutta; húsgagnalínan varð að veruleika, vörunúmerin urðu mörg hundruð, auglýsingagögnin voru stórglæsileg og vörurnar seldust vel, svo þetta gekk upp. Þetta var risaverkefni og upphaf- ið að því ég hannaði áfram hús- gögn fyrir fyrirtæki Ásgeirs í rúm tuttugu ár. Sérstakur eiginleiki Ásgeirs var að hann treysti samstarfsfólki sínu. Draumur hvers hönnuðar Ásgeir Guðmundsson ✝ Ásgeir J. Guð- mundsson fæddist 9. febrúar 1935. Hann lést 10. maí 2022. Útför Ásgeirs fór fram 19. maí 2022. hlýtur að vera að vinna með slíkum manni, að finna að honum er treyst jafnvel þó lausnin sem lögð er fyrir virðist stinga í stúf við gildandi hefðir. Minn draumur rættist í samstarf- inu við Ásgeir og það lifir ætíð með mér setningin hans: „Ef þú telur að þetta eigi að vera svona, Sturla minn, þá reynum við það.“ Hún gaf ungum hönnuði byr undir báða vængi til að taka óhindrað flugið. Ásgeir skildi að í framsækinni vöruþróun þarf að fara á vit hins óþekkta, treysta á innsæi hvers og eins og styrk heildarinnar. Hann skildi að stundum þarf að hugsa allt upp á nýtt. Hann skildi að hönnun og handverk heyra saman en líka að það þarf að vanda til svo að úr verði eitthvað nýtt og spennandi. Þetta sést vel þegar litið er yfir feril Ásgeirs í húsgagnafram- leiðslu, húsbyggingum og hverju því sem hann kom að. Ég held að við Ásgeir höfum strax í upphafi samstarfs okkar gert okkur grein fyrir að við þyrftum að gæta þess að skilja alltaf sáttir frá málum sem vörð- uðu verkefni og okkur varð sjald- an sundurorða. Þegar þurfti að reka á eftir mér, sem kom oft fyr- ir, þá gerði hann það af nærgætni en af festu. Hann átti auðvelt með að skilja á milli vinnu og vináttu, í vinnunni vann maður verkin sín en í vináttunni skemmti maður sér saman. Það kom að því að leiðir okkar í vinnu skildi en við hættum aldrei að hittast og eiga góða stund saman yfir smörre- brauði á Jómfrúnni. Að lokum þökkum við Steinunn fyrir ógleymanlegar stundir sem við áttum með Ásgeiri, Maju og fjöl- skyldu þeirra sem við sendum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Sturla Már Jónsson, húsgagna- og innanhússarkitekt. Þegar ég réðst til Rafmangsveitu Reykjavíkur sem starfsmannastjóri 1988 var mér ljóst að sterk menning var meðal starfsmanna með góðum stuðningi fyrirtækis- ins. Gróðursetningar á Úlfljóts- vatni, rekstur félagsheimilis og sumarhúsa, sumarferðir fyrrver- andi starfsmanna og útgáfa starfsmannablaðsins Línunnar, en þar var Guðmundur Egilsson ritstjóri. Hann lagði sig fram um að eiga viðtöl við starfsmenn og halda uppi sögu fyrirtækisins, sem hann unni mjög. Vegna þessa mikla áhuga á sögutengdu efni og áhuga hans hafði hann ásamt nokkrum samstarfsmönn- um sínum passað upp á að henda ekki gömlum verkfærum, áhöld- um, gömlum skrifstofubúnaði og fleiru. Safn hafði orðið til í ár- anna rás, sem þessir menn höfðu lagt til hliðar í þeirri von að minjasafn yrði að veruleika. Minjasafnið varð til 1990 við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal, Guðmundur Knútur Egilsson ✝ Guðmundur Knútur Eg- ilsson fæddist 15. október 1928. Hann lést 29. apríl 2022. Guðmundur var jarðsunginn 13. maí 2022. gegnt gömlu Elliða- árstöðinni, þar sem Reykvíkingum var séð fyrir raforku frá árinu 1921. Þeg- ar safnið tók til starfa var því eink- um ætlað að gera sögu rafvæðingar höfuðborgarsvæðis- ins skil, en með stofnun Orkuveitu Reykjavíkur árið 1999 var ákveðið að safnið skyldi einnig fjalla um sögu vatns- og hitaveitumála. Minjasafnið var í senn byggðasögusafn og eitt fárra tækniminjasafna landsins. Þarna hafði draumur Guðmund- ar Egilssonar ræst. Með áhuga og dugnaði lagði hann mikið til þessa safns, sem var því miður lokað 2010, en þá var Guðmund- ur hættur störfum við safnið og kominn á önnur mið við skrán- ingu sögu ættar sinnar. Kynni mín af Guðmundi Egilssyni voru þannig að hann gat verið glett- inn þótt stutt væri í alvöruna. Hann hafði alltaf næg verkefni hvort sem var innan eða utan sinnar vinnu. Þá bar hann ávallt hag fjölskyldu sinnar fyrir brjósti. Blessuð sé minning Guð- mundar Egilssonar. Guðjón Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.