Morgunblaðið - 28.05.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022
Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur
og fyrrverandi alþingismaður,
gerði skattlagningu séreign-
arsparnaðar að umræðuefni í grein
í Morgunblaðinu á miðvikudag.
Benti hann á að tug-
þúsundir Íslendinga
hefðu efnt til sér-
eignarsparnaðar á
forsendu skattaf-
sláttar. Ýmis dæmi
væru um slíka af-
slætti, en þessi af-
sláttur væri frá-
brugðinn að því leyti að hann væri
stofn sérstakrar skattkröfu síðar.
- - -
Ólafur er ósáttur við að
séreignarsparnaðurinn sé
skattlagður eins og launatekjur því
að hann sé eign, og tekjur og eignir
séu sitthvað. Þá búi þeir sem séu
komnir yfir sextugt við ofsköttun
og hætt sé við að séreignarsparn-
aðurinn lendi í hæstu skattþrep-
unum.
- - -
Ríkisvaldið svarar því ugglaust
til að hér sé um að ræða frest-
un á skattlagningu. Sé ekki dreginn
af tekjunum þegar þær eru greidd-
ar út heldur þegar sparifjáreigand-
inn fær þær í hendur. Þá vaknar
vitaskuld spurningin hvernig vext-
irnir af inneigninni eru skatt-
lagðar.
- - -
Ólafur bendir réttilega á að und-
antekning frá þessari skatt-
lagningu sé gerð í einu tilfelli. Ráð-
stafa megi séreignarsparnaði
skattfrjálst inn á húsnæðislán. Það
hlýtur að teljast mismunun þegar
skattlagning veltur á því hvernig
peningunum er varið, hvort keypt
er húsnæði eða matur.
- - -
Ólafur spyr: „Þeir sem falla und-
ir ákvæði um íbúðarkaup
sleppa með öllu við skattinn. Á jafn-
ræðisreglan ekki við nema stund-
um?“
Ólafur Ísleifsson
Á jafnræðisregla
bara stundum við?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Farþegaskip sem margir þekkja
kom til Reykjavíkur í vikunni og
lagðist að Miðbakka í gömlu höfn-
inni. Þetta er Ocean Diamond sem
mörg undanfarin sumur hefur siglt
hringinn í kringum Ísland með er-
lenda ferðamenn.
Á heimasíðu Iceland ProCruises,
sem gerir skipið út, má sjá að í boði
eru sex ferðir í kringum Ísland og
tvær ferðir til Grænlands. Hring-
ferðirnar standa yfir í 10 daga.
Ocean Diamond mun koma við í
Stykkishólmi, á Ísafirði, Siglufirði,
Hrísey, Húsavík, Seyðisfirði, Djúpa-
vogi og í Vestmannaeyjum. Far-
gjaldið er frá 315 þúsund íslenskum
krónum upp í 470 þúsund fyrir
manninn, allt innifalið.
Farþegar koma til landsins í
gegnum Leifsstöð og farþegaskipti
verða í Reykjavík. Ocean Diamond
er 8.282 brúttótonn að stærð og get-
ur tekið 207 farþega og í áhöfn eru
144 manns. Í áhöfn eru að jafnaði
nokkrir Íslendingar, t.d. sem leið-
sögumenn. Áhersla er lögð á að gefa
farþegunum kost á að kynnast land-
inu, náttúrunni og íslenskri menn-
ingu. sisi@mbl.is
Demanturinn siglir
við Íslandsstrendur
- Farþegaskiptin verða í Reykjavík
Morgunblaðið/sisi
Miðbakki Ocean Diamond við bryggju og bíður þess að fara í fyrstu ferðina.
„Leikurinn kostar 2.690 fyrir þá sem
eru ekki með áskrift. Fólk sækir Vi-
aplay í símann, fartölvuna, spjald-
tölvuna eða sjónvarpið,“ sagði
Hjörvar Hafliðason, íþróttastjóri
Viaplay á Íslandi, í samtali við Morg-
unblaðið um leik Liverpool og Real
Madrid í úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í fótbolta.
Leikurinn hefst klukkan 19 og
geta íslenskir áhorfendur nálgast
leikinn í gegnum streymisveituna.
Viaplay verður með veglega dagskrá
í kringum leikinn.
„Hörður Magnússon og Heimir
Hallgrímsson eru í París og Rúrik
Gíslason og Kári Árnason verða í
stúdíó Viaplay í Reykjavík. Michael
Laudrup, fyrrverandi leikmaður
Real, kíkir á Heimi og Hörð og út-
sendingin byrjar 90 mínútum fyrir
leik. Þetta er lengra og ítarlegra en
hefur verið hjá okkur,“ sagði Hjörv-
ar. johanningi@mbl.is
Úrslit Meistaradeild-
arinnar ráðast í kvöld
AFP
Meistaradeildin Markahrókarnir Salah og Benzema mætast í París.