Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022
VINNINGASKRÁ
418 10092 22426 33989 45776 51780 61448 72588
559 10099 23272 34627 45778 51874 61578 72755
839 10423 23345 34671 46432 52027 61737 73278
1241 10432 23595 35012 46439 52547 62195 73629
1291 10515 24113 35315 46462 52712 62442 74013
2083 10797 24332 35501 46519 52950 62513 74318
2340 10866 24585 35879 46521 52973 63017 74513
2545 11172 24825 36026 46540 53364 63045 74529
2849 11688 25508 36040 46573 53431 63557 74779
3404 12868 25552 36212 46715 53451 63594 74843
3686 13225 25565 36445 46893 54125 63765 75020
3932 13232 25655 36586 46933 54351 64232 75240
3954 13403 25669 36892 47034 54372 64769 75324
4450 13605 25698 37197 47269 54664 65900 75383
4795 14693 26445 37278 47361 54686 66024 75424
5601 14770 26512 37599 47748 54987 66181 75723
5612 14950 26626 38288 47824 55016 66225 75770
6027 15302 28030 38769 47927 55208 66546 75885
6345 16993 28668 39587 48308 55239 66674 75989
6573 17035 28977 39937 48805 55666 66909 76197
6710 17212 29029 39992 49016 56739 67220 76218
6730 17258 29097 40327 49065 57027 67340 76561
6914 17268 29580 40762 49099 57316 67905 76687
7037 17871 29658 40874 49201 58144 68431 76742
7117 18494 29956 42103 49241 58361 68924 76958
7835 18556 30050 42167 49468 58485 68938 77076
8056 18676 30212 42321 49472 58540 68964 77566
8492 18763 30430 42766 49690 58557 69254 78414
8727 18801 30722 42816 49883 58711 69569 78439
8805 19127 30724 43243 50004 59074 70486 78648
8963 19221 30857 43713 50096 59592 70689 78982
9016 19290 30872 43796 50334 59945 71368
9162 20160 31119 44021 50721 60419 71778
9261 20595 31190 44558 51194 60878 71841
9271 20788 31543 44969 51445 61181 72360
9426 20912 31816 44986 51458 61243 72439
9772 21932 32616 45431 51644 61380 72509
485 11083 22178 35037 44376 51218 59278 70160
731 12305 24335 35219 44722 51629 59624 70435
1456 12584 24586 35397 44743 51632 59675 70979
2666 12959 25434 36633 45970 51880 59982 72119
3887 13235 26228 40490 47330 52271 64678 72629
5452 15407 28606 41462 47728 53484 65354 74219
5977 15872 28907 42159 48285 53591 65561 74924
6368 16282 30355 42353 48489 56719 65745 76308
7564 16681 31279 42429 48682 56769 65769 76744
7873 17307 31899 43636 50233 56900 68296
8942 17359 32532 43722 50532 58303 68545
10906 21225 34087 43836 50571 58353 69461
10921 21667 34297 43910 51109 58545 69574
Næstu útdrættir fara fram 2., 9., 16., 23. & 30. júní 2022
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
16062 17828 25145 31186 77879
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3305 29565 34269 48299 58673 68889
5517 30117 42092 51295 58747 69727
8407 31465 43161 57577 61198 70690
12158 33434 45533 58372 61279 74664
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 3 6 7 0
4. útdráttur 27. maí 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikil harðindi á Íslandi – svo lá við
hungursneyð meðal landsmanna –
kunna að hafa verið ein helsta ástæða
þess að Íslendingar gengu Hákoni
Hákonarsyni Noregskonungi á hönd
með gerð Gamla sáttmála árið 1262.
Þetta segir Skafti Ingimarsson, dokt-
or í sagnfræði við Háskóla Íslands, en
hann setti þessa tilgátu fram á Sögu-
þingi 2022, sem
haldið var á dög-
unum. Þar stóð
hann ásamt fleiri
fræðimönnum
fyrir málstofu
með yfirskriftinni
Frá goðaveldi til
konungsvalds: Af-
staða Íslendinga
til Noregskon-
ungs og stjórn-
málabarátta
Sturlungaaldar.
Fræðimenn hafa lengi haldið því
fram að ófriður Sturlungaaldar hafi
verið helsta ástæða þess að Íslend-
ingar gengust undir vald Hákonar
gamla Noregskonungs árið 1262.
Skafti telur málið ekki svona einfalt
eftir að hafa rannsakað Sturlunga
sögu og íslenska annála frá árunum
1258–1262. Þar komi fram að nær
samfelld fjögurra ára harðindi og
hallæri hafi ríkt í landinu árin áður en
sáttmálinn var samþykktur. Samn-
ingur Íslendinga við Norðmenn hafi
ekki hvað síst miðað að því að tryggja
landsmönnum nauðsynjar og lífs-
bjargir.
Skipaákvæðið þýðingarmikið
Skafti vekur athygli á svonefndu
skipaákvæði Gamla sáttmála, en þar
segir orðrétt: „Skulu sex skip ganga
af Noregi til Íslands tvö sumur hin
næstu, en þaðan í frá sem konungi og
hinum bestu bændum landsins þykir
hentast landinu.“
Skafti bendir á að skipaákvæðið sé
þýðingarmikið til að skilja aðdrag-
andann að gerð Gamla sáttmála.
Fræðimenn hafi ítrekað reynt að út-
skýra tilurð þess og tilgang og bent á
að annars vegar hafi íslenskum höfð-
ingjum frá fornu fari verið skylt að
tryggja landsmönnum aðflutninga á
útlendri vöru. Hins vegar hafi Nor-
egskonungur viljað ná yfirráðum yfir
Íslandsversluninni. Sigurður Nordal
hafi talið ákvæðið sýna að Íslend-
ingar hefðu verið háðir Norðmönnum
um aðflutninga og fleiri tekið í sama
streng. Önnur sjónarmið hafi þó kom-
ið fram, svo sem viðleitni til þess að
stemma stigu við fjölda Norðmanna
hér á landi.
Kólnaði um allan heim
Sjónarhorn Skafta er annað en
fræðimenn hafa beitt hingað til við
rannsóknir á tilurð og tilgangi Gamla
sáttmála, en hann nálgast viðfangs-
efnið þverfaglega, frá sjónarhóli eld-
fjalla-, loftslags- og sagnfræði. Skafti
segir að flest bendi til þess að harð-
indin á Íslandi hafi stafað af kólnandi
veðurfari um allan heim í kjölfar
Samalas-eldgossins á eyjunni Lom-
bok í Indónesíu árið 1257, en gosið er
eitt öflugasta sprengigos sem orðið
hefur á jörðinni frá lokum ísaldar.
Gosið, sem er vel þekkt meðal jarð-
vísindamanna, gjöreyddi allri byggð á
Lombok. Gosmökkurinn náði 43 kíló-
metra hæð og skildi eftir sig sex sinn-
um sjö kílómetra breiða og 800 metra
djúpa öskju þar sem Samalas stóð áð-
ur. Gosið þeytti gríðarlegu magni af
ösku og brennisteinsgasi upp í heið-
hvolfið. Þar mynduðu gosefnin móðu
af brennisteinssýru, sem náði að lok-
um umhverfis jörðina. Móðan end-
urkastaði hitageislum sólar. Afleið-
ingin var svokallaður eldfjallavetur,
það er kólnandi veðurfar um allan
heim í nokkur ár. Þetta sjáist með
greiningu á efnamælingum í jökulís
frá borkjörnum úr jöklum á Græn-
landi og Suðurskautslandinu. Áratug-
ir eru síðan vísindamenn greindu
fyrst ummerki eldgossins í bor-
kjörnum úr Grænlandsjökli.
Skafti bendir á að samfélaglegar
afleiðingar Samalas-eldgossins komi
fram í miðaldatextum, bæði á meg-
inlandi Evrópu og á Íslandi. Evr-
ópskar miðaldaheimildir frá Frakk-
landi og Englandi greini frá
óvenjulegum litabreytingum í and-
rúmsloftinu og veðurfari, kulda-
stormum, stórrigningum og upp-
skerubresti sumarið 1258, sem leiddi
af sér hungursneyð í Englandi, en
þúsundir Lundúnabúa urðu hungrinu
að bráð þetta sama ár. Ástandið hafi
verið svipað á Íslandi. Þannig greini
Sturlunga saga og annálar frá mikl-
um harðindum vorið 1258 og mann-
felli af völdum sóttar í Húnavatns-
sýslu. Harðindin hafi haldið áfram
árið 1259, en þá greini annálar frá því
að snjóað hafi fyrir Lárentíusar-
messu, það er fyrir 10. ágúst. Vet-
urinn 1260–1261 hafi síðan keyrt um
þverbak, en þá greini Sturlunga saga
frá því að bændur hafi skorið fé sitt
mjög niður og að alls greini fimm
annálar frá því að hafís hafi legið um-
hverfis landið þá um vorið, það er ári
áður en Gamli sáttmáli var undirrit-
aður. Legið hafi við hungursneyð.
Túlka atburðarás upp á nýtt
Skafti ítrekar að ef fræðimenn fall-
ist á tilgátuna þá breyti hún í grund-
vallaratriðum sýn á Gamla sáttmála
og aðstæðum á Íslandi við samþykkt
hans. Túlka þurfi atburðarásina hér á
landi í aðdraganda sáttmálans upp á
nýtt. Í grófum dráttum hafi hún verið
á þá leið að Hákon konungur knúði æ
fastar á um að Gissur Þorvaldsson
jarl efndi heit sín við konung og legði
skatt á landsmenn, en á sama tíma
hafi Gissur reynt að draga málið á
langinn, enda vitað að það var ómögu-
legt að fá Íslendinga til að fallast á
skattgjaldið fyrr en betur áraði.
Fulltrúar konungs hér á landi hafi
þrengt kosti jarls smám saman, uns
hann átti engrar undankomu auðið.
Útkoman hafi orðið sú að Gissur jarl
lét samþykkja sáttmálann á Alþingi
árið 1262. Með því hafi hann tryggt
sín eigin völd í landinu og réttindi og
hagsmuni Íslendinga eins vel og kost-
ur var, rétt eins og jarli bar að gera
sem æðsta embættismanni konungs á
Íslandi. Þetta sé mikilvægt að hafa í
huga, þegar fjallað sé um skipa-
ákvæði sáttmálans. Eitt helsta mark-
mið þess hafði verið bregðast við
tímabundnu neyðarástandi sem skap-
ast hafði í landinu vegna harðind-
anna. Íslendingar hafi verið hjálp-
arþurfi í harðindum og hallæri sem af
þeim leiddi.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Torfbær Þekking og skilningur á fortíðinni breytist stöðugt í krafti rannsókna, sem gjarnan eru þverfaglegar og
viðteknar söguskoðanir þróast með umræðu. Myndin er af hlöðnum veggjum og torfþaki í Glaumbæ í Skagafirði.
Hungur og harðindi í
móðu mikils öskugoss
- Samið við Noregskonung í nauðvörn? - Ný kenning um
tilurð Gamla sáttmála árið 1262 - Sjónarmið á Söguþingi
Skafti
Ingimarsson
AFP
Indónesía Eldgos nú í vor. Áhrif
hamfara geta verið á heimsvísu.
Vantar þig pípara?
FINNA.is