Morgunblaðið - 28.05.2022, Side 20

Morgunblaðið - 28.05.2022, Side 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Myndavélin hefur jafnan verið gluggi minn á tilveruna,“ segir Guð- jón Guðmundsson, vélvirki á Akra- nesi. „Nærsýni hefur alltaf fylgt mér og gleraugu hafa ekki bætt mér þá fötlun að öllu leyti. Þegar ég hins veg- ar horfi á heiminn í gegnum linsuna, stækkar allt og verður skýrt. Ef til vill hefur myndasmíðin því alltaf ver- ið ómeðvitað viðbragð mitt við að- stæðum lífsins.“ Kassafilma og útkoman ferköntuð Stundum er sagt að daufur sé dellulaus maður. Öllum sé mikilvægt að eiga sér eitthvað til dundurs og af- þreyingar þegar skyldustörfum og daglegu starfi sleppir. Líf og yndi Guðjóns Skagamanns er að taka ljósmyndir og jafnhliða safnar hann gömlum myndavélum. Slíkar eru í hundraðavís í hillunum í tómstundaherbergi Guðjóns á heimili hans við Suðurgötu á Akanesi. Nærri lætur að nú sé kompan full og því veltir Guðjón fyrir sér hvort finna mega varanlegan samanstað fyrir safnið og gera fólki sýnilegt. „Eins og algengt var í gamla daga fékk ég fyrstu myndavél í ferming- argjöf. Þetta var Kodak Instamatic; lítil og nett vél sem sett var í 35 milli- metra kassafilma og skilaði af sér fer- köntuðum myndum. Fyrr á árum voru myndavélar fokdýrar og sú var raunin með þessa. Fyrir utan að græjur þessa tíma voru óttalegt rusl miðað við stafrænar myndvélar dags- ins í dag. Slíkar skila alveg ótrúlega góðum myndum sem svo má alltaf vinna áfram og gera enn betri með tölvuvinnslu. Hið eina sem gamla vél- ar skila betur en þær nýju eru svart- hvítar myndir, teknar á filmu. Slíkar myndir hafa oft alveg ótrúlegan sjarma.“ Canon til daglegs brúks Myndavélarnar sem Guðjón hefur átt um dagana eru orðnar margar. Misjafnar eins og gengur, en fáar þó betri en Canon A1. Slíka hafði hann til daglegs brúks í mörg ár og líkaði vel. Sú er nú stássgripur í mynda- vélasafninu sem Guðjón byrjaði að draga til fyrir um 35 árum. Söfnun þessi gekk rólega framan af, en meiri skriður komst á mál þegar stundir fram liðu. Nú eru í safninu alls konar vélar af ýmsum gerðum; svo sem Olympus, Minolta, Konica, Nikon. Einnig Pentax og Leica. Í safni Guðjóns eru sömuleiðis nokkar myndavélar af gerðinni Zenit; framleidddar í hinu rauða Rússlandi, endur fyrir löngu. Slíkar vélar voru algengar á Íslandi fyrr á tíð sem kann að koma til vegna margvíslegra vöru- og viðskipta milli Sovétmanna og Ís- lendinga. Í austrið var frá Íslandi seld meðal annars síld og ullarvörur, en á móti komu til dæmis bílar og lausavarningur ýmiss konar; mynda- vélar þar með taldar. „Zenit voru fínar vélar, en fólki gekk reyndar misjafnlega að láta ljósop og hraða virka saman. En myndirnar voru góðar, að svo miklu leyti sem myndavélin skipti máli. Mestu skiptir að ljósmyndarinn hafi næmt auga og staðsetji sig rétt í um- hverfinu. Slíkt er formúla að góðri mynd.“ Guðjóni hafa áskotnast mynda- vélar eftir ýmsum leiðum. Söfnun hans hefur spurst út og ýmsir því gaukað að honum vélum. Allmargar komu til dæmis frá Friðþjófi Helga- syni, Akurnesingi og atvinnu- ljósmyndara til áratuga. Einnig hefur Guðjón á nytjamörkuðum eða sam- bærilegum stöðum keypt myndavélar – og þá líka flöss, linsur, ljósmæla og annað gott. Yfirleitt hefur þetta feng- ist fyrir slikk, því í veröld fjöldafram- leiðslu er flest forgengilegt og gamalt dót er sjaldnast verðmikið. Ýmissa góðra grasa kennir í vinnu- Maður með margar myndavélar - Einstakt safn á Akranesi - Um 500 myndavélar og fylgihlutir - Horft á heiminn í gegnum linsuna - Canon, Konica, Pentax og Leica - Sovésk Zenit - Ljósmyndarinn hafi auga fyrir umhverfi sínu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Myndasmiður Guðjón Guðmundsson með gamla Canon-vél og sterka að- dráttarlinsu sem dugar til að flytja fjöll eins og oft þarf í myndatökum. Safn Myndavélarnar í safni Guðjóns eru margar, ólíkar og frá ýmsum tímum. Framfarirnar eru miklar og vélarnar æ betri, þótt auga og næmi myndasmiðs ráði alltaf mestu um hver útkoman verður. Ljósmynd/Guðjón Guðmundsson Skipaskagi Myndefnin eru mörg á Akranesi og umhverfið er fallegt, svo sem á sumarkvöldum þegar horft er á sólsetrið á Faxaflóa af Breiðinni. herbergi Guðjóns sem safnar til dæmis hljóðfærum og bjórmottum. Í öndvegi eru þó myndavélarnar sem hann ætlar nú að merkja og skrá, eft- ir því sem upplýsingar liggja fyrir. Allt slíkt auki gildi safnsins, verði það gert almenningi aðgengilegt. Þar hafi ýmsum hugmyndum verið velt upp, án þess að málin hafi þokast eitthvað lengra. Söfn eigi að vera full af drasli „Söfn í dag eru sum hver orðin eins og tölvuleikur og stafræn veröld. Ég er mátulega spenntur fyrir slíku og finnst að söfn eigi að vera full af drasli, svo ég orði þetta skýrt. Mér er að minnsta kosti ekki sama hvað verður um myndavélarnar mínar; sem allar eiga sína sögu þar sem í hnotskurn sést tækni og framfarir,“ segir Guðjón sem í dag notar sjálfur nýjustu gerðirnar af Canon R. Hann sést oft á rölti um göturnar á Akra- nesi með myndavélina; þá gjarnan á Neðri-Skaga þar sem myndefnin eru mörg og teikningin í umhverfinu sterk. Garðatorg 6 | sími 551 5021 | vefverslun | aprilskor.is 18.990.- strigaskór

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.