Morgunblaðið - 28.05.2022, Page 24

Morgunblaðið - 28.05.2022, Page 24
BAKSVIÐ Kristján Jónsson kris@mbl.is V ið höfum helst litið til Evr- ópu og þá sérstaklega til Norðurlandanna. Hrað- vagnakerfi opnar í Álaborg í Danmörku á næsta ári og kerfið er einnig í undirbúningi í Stafangri í Noregi. Þessar borgir eru svipaðar að stærð og höfuðborgarsvæðið á Ís- landi. Okkur finnst við vera svo fá- menn en ef maður tekur höfuðborg- arsvæðið í heild sinni þá er það eins og meðalstór norræn borg,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, spurður til hvaða borga skipuleggjendur borgarlínu horfi. „Frakkar hafa mjög lengi verið framarlega í samgöngumálum í víð- um skilningi og þess vegna höfum við einnig skoðað hvað er að gerast þar á svæðum sem eru álíka fjölmenn og höfuðborgarsvæðið. Ég skoðaði kerfi í tveimur borgum í suðurhluta Frakk- lands í fyrra og kerfin þar voru mjög vel heppnuð. Það er mjög víða hægt að leita fyrirmynda.“ Ný tímalína í næstu viku Frakkar koma við sögu í undir- búningsvinnunni. „Fjölþjóðlegt hönnunarfyrirtæki er að störfum við að hanna fyrstu lot- una. Franska verkfræðifyrirtækið Artelia leiðir það í samstarfi við verk- fræðistofurnar MOE frá Danmörku og Hnit. Þess má geta að þessar er- lendu stofur hafa komið að svona verkefnum mjög víða.“ Samkvæmt núgildandi tíma- áætlunum þá eiga fyrstu vagnarnir að fara af stað í fyrsta lagi í lok árs 2025 en þessi áætlun er til endurskoð- unar. Ný tímalína verður líklega birt á næstu vikum. Áætlaður kostnaður við fyrstu lotu, og þá langstærstu, er um 19 milljarðar króna. Hún er tæp- lega 40% af heildarframkvæmdinni. Davíð bendir á að sumir leggirnir muni nýtast í einhverri mynd áður en borgarlínan verður tilbúin og nefnir Fossvogsbrúna sem dæmi. „Fyrsta lotan nær frá Höfða og niður í miðbæ. Heldur áfram frá mið- bænum yfir nýja Fossvogsbrú, yfir í Kársnes og Hamraborg. Þetta er mjög langt og er því ekki gert allt í einu. Framkvæmdum er skipt niður í leggi og hver leggur nýtist strætó þegar hann er tilbúinn og í ein- hverjum tilfellum gangandi og hjól- andi vegfarendum. Fossvogsbrúin er besta dæmið um þetta en nú er áætl- að að hún geti opnað árið 2024. Strætó getur þá byrjað að nota hana, ásamt gangandi og hjólandi vegfar- endum, þótt borgarlínan verði ekki tilbúin. Borgarlínan er hluti af sam- göngusáttmálanum sem er fimmtán ára verkefni. Í sáttmálanum eru sex lotur og sjöttu lotunni á að ljúka 2033.“ Fljótlegra á sérakgreinum Íslendingar þurfa að sníða sér stakk eftir vexti í samgöngumálunum að mati Davíðs. Höfuðborgarsvæðið sé of fjölmennt til að vera einungis með strætóferðir sem valkost. „Í stórum borgum eru neðan- jarðarlestir eða léttlestir en við erum of lítið borgarsvæði fyrir það. Við er- um hins vegar of fjölmennt svæði til að vera eingöngu með strætókerfi sem þræðir öll hverfi borgarinnar. Þessi hraðvagnakerfi eru á meg- instofnleiðum og flytja þá margt fólk eftir þeim. Þau eru fullkomin fyrir meðalstór svæði eins og höfuðborg- arsvæðið er. Ég veit ekki um neina borg í Evrópu sem leggur ekki megin- áherslu á fjölbreytta ferðamáta þegar kemur að því að takast á við tafir í umferðinni. Allar borgir í Evrópu eru að fara sömu leið og við með því að leggja áherslu á almennings- samgöngur. Lykilatriðið varðandi borgarlín- una er að fólk mun komast hraðar um því hún verður á sérakgreinum. Þar af leiðandi muntu ekki sitja fastur í umferðinni eins og getur gerst hjá strætó í dag. Þessu mun því fylgja áreiðanleiki þar sem fólk veit nokk- urn veginn hversu lengi það verður á leiðinni. Gert er ráð fyrir að vagn- arnir komi á sjö og hálfrar mínútu fresti. Fólk á því ekki að þurfa að bíða nema í nokkrar mínútur.“ Dregur úr umferðaþunga Davíð segir ekki annað í kort- unum en að einkabíllinn verði algeng- asti ferðamátinn og því sé áríðandi að draga úr umferðaþunga. „Fólk notar þann ferðamáta sem hentar best hverju sinni. Miðað við spár og áætlanir verður einkabíllinn áfram langvinsælasti ferðamátinn. En með því að bjóða upp á almenn- ingssamgöngur sem eru áreiðanlegri, fljótari og þægilegri þá munu fleiri nýta sér þær. Reynslan sýnir það. Borgarlínan mun nýtast fleirum en þeim sem nota hana því þetta nýtist einnig þeim sem fyrst og fremst ætla að nota bílinn vegna þess að tafir í umferðinni verða minni en ella,“ segir Davíð. Borgarlína horfir til Ála- borgar og Stafangurs Ljósmynd/Betri samgöngur Borgarlína Úr kynningarefni vegna áætlana um borgarlínu. 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Innrás Vladimírs Pútíns Rúss- landsforseta á Úkraínu í febrúar hefur haft gríðarleg áhrif. Mest auðvitað á Úkraínu, en einnig á Rússland sjálft og þegar fram í sækir kunna afleið- ingar þeirrar sneypufarar að reynast varanlegri þar. Það er erf- itt að sjá málalyktir, sem eru Rússum eða Pútín hagfelldar. Hann hefur afhjúpað ótrúlegt dómgreindarleysi sitt, Rússlands- her hefur reynst vera ótrúlega lé- legur og Rússland ótrúlega ber- skjaldað fyrir efnahagslegum refsiaðgerðum. Auðmýkjandi ósigur og efnahagshrun virðist blasa við, en á þeim ber Pútín fulla ábyrgð. Áhrif innrásarinnar geta samt sem áður orðið sögulegri fyrir Vesturlönd. Öllum að óvörum varð innrásin til þess að þjappa Vestur- löndum saman gegn ófriðar- seggnum í Kreml, en leita þarf áratugi aftur til daga kalda stríðs- ins til þess að finna jafnórofa sam- stöðu Evrópuríkja með Bandaríkj- unum. Það er líka vert að horfa til flokkadrátta í Evrópu, því þar eru ríki ekki samstíga þótt þau standi saman. Í Vestur-Evrópu hafa Bretar tekið forystu í stuðningi við Úkraínu. Eystrasaltsríkin og Pólland búa að aldagamalli reynslu af nábýli og hernámi Rússa. Að svo stöddu virðist staða Pólverja hafa styrkst mest og rödd þeirra hefur öðlast mun meira gildi við háborð Evr- ópu. Aftur á móti hefur framganga bæði Frakka og Þjóðverja valdið vonbrigðum, jafnvel verið þeim til minnkunar. Þessi tvö forysturíki Evrópu hafa dregið lappirnar og engu líkara en all- ir lærdómar seinni heimsstyrjaldar- innar hafi gleymst, en friðarviðleitni þeirra lítið annað en aumkunar- verð friðþægingarstefna, þar sem Úkraínumönnum er ætlað að kaupa sér stundarfrið Rússa með landi. Það er ekki unnt að áfellast Selenskí Úkraínuforseta fyrir að bera þær tillögur saman við eftir- gjöf Súdetalanda til Þýskalands 1938. Engum dylst hver er Hitler og hverjir eru heiglar vorra daga. Það skiptir máli að Vesturlönd stilli saman strengi sína í við- brögðum við yfirgangssemi Pút- íns, en eins og sænski alþjóða- sérfræðingurinn Anders Åslund rekur í nýrri grein í tímaritinu Foreign Affairs skiptir ekki minna máli að þau búi sig undir eftirleik- inn, hvort sem Pútín festir sig í sessi eða hrökklast frá eftir ósigur og efnahagshrun. Haldi hann velli þurfi að viðhalda refisaðgerðum á Rússland uns síðasti rússneski hermaðurinn yfirgefur Úkraínu og samið hefur verið um stríðs- skaðabætur. Vesturveldin þurfi hins vegar að vera tilbúin með endurreisnaráætlun fyrir Úkra- ínu, sem feli bæði í sér efnahags- aðstoð og viðskiptaaðgang. Fari Pútín frá er líklegt að í Rússlandi taki við upplausn um einhvern tíma, en takist að koma á sæmi- legri lýðræðisskipan í landinu stendur það upp á Vesturlönd að smíða Marshall-áætlun fyrir Rússa, sem var vanrækt við fall kommúnismans 1991. Þá mun reynslan frá endurreisn Úkraínu vafalaust koma í góðar þarfir. Auðmýkjandi ósigur og efnahagshrun virðist blasa við Rússum} Stríð og friður Það er ekkert nýtt við að klerkar hafi skoðanir á þjóð- málum, láti þær í ljósi, taki þátt í stjórnmálastarfi og séu jafnvel kjörnir á þing. Við því amast enginn, enda sjálfsögð borg- araréttindi. Það er þó rétt líkt og Jesús benti á að gjalda keisaranum og Guði sitt í hvoru lagi. Það þætti óþolandi ef ráðherrar messuðu yf- ir landsmönnum, segðu kirkjunni fyrir verkum eða létu trúarkenn- ingar stýra stjórnarathöfnum sín- um. Eins á að þurfa mikið til svo einstakir prestar þjóðkirkjunnar, sem hefur sérstaka stöðu umfram aðrar kirkjudeildir, blandi sér í stjórnmálaumræðu á trúarlegum forsendum. Það er óvenjulegt og ber vott um ójafnvægi þegar sókn- arprestur fordæmir ríkisstjórn Íslands sem fasistastjórn sem drýgi glæpi gegn mannúð, en það er samt innan marka heitrar þjóð- málaumræðu. En þegar prestur tekur til máls og útdeilir vistarverum í helvíti, segir stjórnvöld sek sem syndina, úthrópar fólk sem farísea og höggorma (trúaðir vita við hvern þar er átt), sem selt hafi sálu sína, þá er hann að tala úr prédikunarstólnum. Þær trúarlegu for- dæmingar vígðs sál- nahirðis ganga í hug- um kristinna bannfæringu næst. Orð sr. Davíðs Þórs Jónssonar í Laugarnes- kirkju voru ekki aðeins mælt í hugaræsingu eða trúarofsa, held- ur báru með sér að vera skrifuð og sögð af yfirlögðu ráði ef ekki vel yfirveguðu. Á sumu hefur hann beðist afsökunar og jafnvel dregið til baka, en jafnan bætt í um annað um leið. Þar hefur hvergi örlað á þeim kærleika eða fyrirgefningu sem Kristur boðar. Hversu einlægar eða trúverðugar verða fyrirbænir prestsins fyrir altari í sunnudagsmessu, þar sem hann biður ríkisstjórn og löggjaf- arþingi blessunar eftir fyrri böl- bænir? Agnes M. Sigurðardóttir, bisk- up Íslands, hefur veitt sr. Davíð Þór tiltal þar sem ummælin stangist á við siðareglur presta, sem hann virðist þó ekki hafa tek- ið mjög til sín. En það er mis- skilningur hjá biskupi að þetta sé innanhússmál kirkjunnar. Það er samfélag kristinna í þjóðkirkj- unni, sem þarf að meðtaka útskýr- ingar, iðrun og afsökunarbeiðni. Misskilningur hjá biskupi að um sé að ræða innanhússmál kirkjunnar} Bölbænir úr stólnum Þ að er sérstakur staður í helvíti fyr- ir fólk sem velur að vera hlutlaust á tímum siðferðislegra átaka. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki öðrum konum. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem misnotar börn. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem stelur sannleik- anum. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir rauð- vínsglös sem passa ekki í uppþvottavél. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir manneskj- una sem fann upp á því að skrifa ógeðslega langan inngang að öllum uppskriftum á net- inu. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem snýr út úr orðum annarra. Fólk hefur gripið til þessa orðatiltækis við ýmis tækifæri. Sum alvarlegri en önnur. Nýjasta dæmi þess að það sé gripið til þessa orðatiltækis, tengist því að það á að senda til baka vel rúmlega 200 umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hvers vegna er tilefni til þess að grípa til þessara orða við það tilefni? Á árunum 1956-2019 tóku Íslendingar á móti 778 manns sem kvótaflóttafólki. Í tölfræði Útlendingastofn- unar kemur fram að þar að auki hafa 1745 manns hafa fengið alþjóðlega vernd frá árinu 2015. Það sem af er árinu 2022 hafa 1050 manns bæst við þá tölu, aðallega vegna stríðsins í Úkraínu. Þetta eru tæplega 4000 flótta- menn sem hafa fengið aðsetur á Íslandi frá árinu 1956. Í mesta lagi 1% af þjóðinni, og rúmur fjórðungur af því bara út af stríðinu í Úkraínu. Stefna stjórnvalda í útlendingamálum er höfnunarstefna, svo lengi sem þau komast upp með það. Svo mikið er augljóst miðað við töl- urnar hér að ofan. Stríð í Evrópu? Þá er ekkert mál að taka við fjölda flóttafólks. Stríð utan Evrópu? Senda fólkið til baka. Þessi stefna verður enn augljósari þegar umsóknir um al- þjóðlega vernd frá Venesúela eru skoðaðar. Ár- ið 2019 voru samtals 157 umsóknir þaðan og engri var hafnað. Á sama tíma var öllum 22 um- sóknunum frá Úkraínu hafnað. Þá er ágætt að minnast þess að þegar úkraínska fótboltaliðið kom hingað til Ísland árið 2017 til þess að keppa, þá var Úkraína skráð á lista yfir örugg lönd – fyrir utan héruðin Donetsk, Luhansk og Krím. Á árunum 2015-2021 sóttu 87 frá Úkraínu um alþjóðlega vernd á Íslandi. 12 fengu vernd. Hér hafa ráðamenn beðið okkur um að skoða tölurnar. Já, þær tala sínu máli. Ef litið er til áranna 2015-2021, þá tók Grikkland við rúmlega 100 þúsund flóttamönnum á meðan Ísland tók á móti tæplega 2000. Grikkir eru um þrítugfalt fleiri en Íslendingar sem þýðir að þeir hafa tekið á móti um helmingi fleiri flóttamönnum en við. Það lítur því út fyrir að það sé viðeigandi tilefni til þess að grípa til vel valinna orða gagnvart stjórnvöldum í þessum málaflokki. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Helvítisvist Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Á dögunum var léttlestakerfi tekið í notkun í Óðinsvéum í Danmörku. Leiðin er 14,5 kílómetrar. Framkvæmdin tók 14 ár og kostaði um 67 millj- arða íslenskra króna. Til samanburðar er kostnaðaráætlun fyrir borgar- línu um 50 milljarðar og samgöngusáttmálinn er liðlega 15 ár. Kostaði 67 milljarða LÉTTLESTAKERFI TEKIÐ Í NOTKUN Í ÓÐINSVÉUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.