Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022
Á 10 ára tímabili frá 2012-
2021 hafa verið stofnuð rúm-
lega 23 þúsund fyrirtæki á Ís-
landi.
Til viðbótar fjölgun fyrir-
tækja er rekstrarumhverfi
fyrirtækja orðið mun flóknara.
Opinbert eftirlit hefur aukist
mikið á tiltölulega stuttum
tíma, og því hafa fylgt tilheyr-
andi hótanir um sektir og við-
urlög af ýmsum toga. Aukið
álag bitnar á fagaðilum svo
sem bókhaldsstofum sem sjá
um að skila ýmsum gögnum
og eyðublöðum til hins op-
inbera fyrir viðskiptavini sína.
Peningaþvætti
Hæst ber eftirlit með pen-
ingaþvætti sem kallar á mik-
inn, kostnaðarsaman og tíma-
frekan undirbúning hjá
bókhaldsstofunum við að
koma upp réttum verkferlum
til að uppfylla skilyrði lag-
anna.
Tíminn til að sinna laga-
skyldu um peningaþvætti er
einfaldlega ekki fyrir hendi
hjá bókhaldsstofunum. Þetta
er hin blákalda staða sem
blasir við. Fleiri klukkustund-
um verður ekki bætt í sólar-
hringinn og vinna fram á kvöld
og um helgar gengur ekki til
lengri tíma. Starfsfólk bók-
haldsstofa þarf að huga að því
vandlega á hvaða tímabili/
dögum frí er tekið og hvenær
þarf að vera komið til baka úr
fríi svo hægt sé að standa skil
á gögnum til hins opinbera
kerfis innan þess tímaramma.
Þessu þarf að breyta og að
lágmarki leysa bókhaldsstof-
urnar undan eftirliti og skyldu
varðandi peningaþvætti og
láta gilda skoðun sem Rík-
isskattstjóri, fjármálastofn-
anir og jafnvel endurskoð-
endur hafa lagt vinnu í og
leggja þannig af þrí- eða fjór-
verknað. Peningaþvætti við-
skiptavina hefur ekki verið
vandamálið hjá bókhalds-
stofum. Kostnaðurinn við eft-
irlitið er verulega íþyngjandi
kostnaðarauki í rekstri þeirra
og ávinningurinn lítill.
Við vitum hverjar skyldur
okkar eru ef eitthvað grun-
samlegt er á ferðinni. Skatt-
yfirvöld framkvæma líka sjálf-
stæðar athuganir og eftirlit
sem gagnast má við eftirlit
með peningaþvætti.
Eftirlit með peningaþvætti
er einnig á borði fjármuna-
brotadeildar Lögreglustjór-
ans á höfuðborgarsvæðinu,
fjármálastofnana og endur-
skoðenda. Það sýnist því vera
óþarfi að íþyngja bókhalds-
stofum með því að verða hluti
af þessu mikla og víðtæka eft-
irliti með peningaþvætti.
Vinnuumhverfið
Álag og eða sektir frá Skatt-
inum ef tímamörkum er ekki
náð gera illt verra. Opinberir
eftirlitsaðilar gefa ekkert eftir
jafnvel þótt eigandi fyrirtækis
sé nánast á grafarbakkanum.
Það dugar ekki að bókhalds-
stofur hafa skilað nær öllum
gögnum áfallalaust í áratugi,
álagi og eða sektum er um-
svifalaust beitt á það sem ekki
náðist að skila.
Þrátt fyrir umtalsverða
fjölgun rekstraraðila hefur
starfsgildum hjá bókhalds-
þjónustum ekki fjölgað að
sama skapi. Það er mikið af vel
bókhaldsmenntuðu fólki, s.s.
viðskiptafræðingum, viður-
kenndum bókurum og þeim
sem hafa lokið námi í reikn-
ingsskilum og stefna á að fara
í endurskoðun en komast ekki
að í starfsþjálfun vegna álags
og tímaskorts innan veggja
bókhaldsstofa.
Afleiðingarnar af álaginu
eru fyrirsjáanlegar; aukin
veikindi, kulnun í starfi og
annað sem gæti leitt til flótta
úr stéttinni og hver á þá að sjá
um að skila gögnum til hins
opinbera?
Kvíðinn
Bókhaldsstofurnar eiga
fullt í fangi með að sinna dag-
legum störfum og mæta þeim
tímamörkum sem sett eru
vegna skila á hinum ýmsu op-
inberu gögnum. Þar má nefna
virðisaukaskattsuppgjör,
launatengd gjöld, skatt- og
rekstrarframtöl einstaklinga,
ársskil launamiða, skráningu
raunverulegra eigenda, verk-
takamiða, hlutafjármiða, árs-
reikninga fyrirtækja og skatt-
framtöl fyrirtækja svo fátt eitt
sé nefnt. Almenn veikindi eru
ekki í boði eða afsökun fyrir
því að skil dragist.
Að morgni er kvíðahnútur í
maganum; kemur eftirlitið í
heimsókn, fáum við milljóna-
sektir eða missum við við-
skiptavini ef við stöndum okk-
ur ekki, missum við réttindi
okkar í dag?
Eftir Þórunni Elsu
Bjarnadóttur, Ingu Jónu
Óskarsdóttur, Styrmi
Ólafsson, Jóhönnu Maríu
Einarsdóttur og Guðnýju
Hrund Karlsdóttur
Stjórn FBO Þórunn Elsa Bjarnadóttir, Inga Jóna Óskarsdóttir, Styrmir Ólafsson, Jóhanna
María Einarsdóttir og Guðný Hrund Karlsdóttir
» Peningaþvætti
viðskiptavina
hefur ekki verið
vandamálið hjá
bókhaldsstofum.
Þórunn Elsa er formaður, Inga
Jóna er varaformaður, Styrmir
er gjaldkeri, Jóhanna María er
meðstjórnandi og Guðný
Hrund ritari FBO. Þau eru í
stjórn Félags bókhaldsstofa.
info@fbo.is
Aukið álag á fagstétt
uppgjörsaðila
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir
stjórn Hrafnkels Karlssonar organista.
Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar
fyrir altari.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 13. Sr. Bolli
Pétur Bollason prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjólfsdótt-
ur djákna. Kór Áskirkju syngur, organ-
isti Bjartur Logi Guðnason. Heitt á
könnunni eftir messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Helgistund kl.
17. Davíð Sigurgeirsson annast tónlist
og leiðir söng.
Prestur er Kjartan Jónsson. Heitt á
könnunni á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Plokk/um-
hverfismessa í Bessastaðasókn. Mæt-
ing við Fógetatorg kl. 11 og fjaran geng-
in í átt að Bessastaðakirkju. Í lokin
verður öllum viðstöddum boðið upp á
létta hressingu undir kirkjuvegg.
Allir hjartanlega velkomnir, ekki síst
unga kynslóðin.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Djassmessa
kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjón-
ar. Björn Thoroddsen sér um tónlistina.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagskvöld
kl. 20 verður fyrsta kvöldmessa sum-
arsins. Félagar úr Kammerkór Bú-
staðakirkju leiða sönginn og Antonía
Hevesi spilar á flygilinn. Sr. Eva Björk
Valdimarsdóttir þjónar ásamt messu-
þjónum. Eftir messuna er messuþjóna-
kvöld sem er opið öllum. Örn Árnason
leikari mun tala um framsögu og við
hvetjum ykkur til að kynna ykkur
messuþjónastarf í Grensás- og Bú-
staðakirkju.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Karen Lind Ólafsdóttir. Org-
anisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir
ásamt félögum úr Karlakór Kópavogs.
Veitingar að messu lokinni.
Hjallakirkja kl. 17. Prestur er Páll Ágúst
Ólafsson. Matthías V. Baldursson
ásamt Rokkkórnum sér um tónlist.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur
organista. Meðhjálpari er Helga Björg
Gunnarsdóttir. Kaffisopi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Dr. Sigurvin Lár-
us Jónsson prestur leiðir stundina.
Hljómsveitin Mantra og sönghópurinn
við Tjörnina leiða sönginn undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar organista.
GLERÁRKIRKJA | Sunnudagurinn
29. maí kl. 11. Fermingarmessa. Sr.
Sindri Geir, Valmar Väljaots og Kór Gler-
árkirkju leiða stundina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudag-
inn 29. maí verður kaffihúsamessa kl.
11. Sr. Magnús Erlingsson þjónar. Kór
Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti
er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11
sunnudag. Guðspjall dagsins fjallar um
heilagan anda, hjálparann. Við syngj-
um sálma og gengið verður til altaris.
Séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar
ásamt messuþjónum. Kirkjukór Grens-
áskirkju leiðir sönginn ásamt Ástu Har-
aldsdóttur organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Sunnudag kl. 11. Helgistund, kaffi og
súkkulaði. Prestur er Leifur Ragnar,
Hrönn Helgadóttir og Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Sighvatur Karlsson
þjónar. Organisti er Guðmundur Sig-
urðsson og forsöngvari er Þórunn Vala
Valdimarsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnu-
daginn 29. maí verður messa kl. 17 í
umsjón sr. Páls Ágústs. Matti sax leiðir
tónlistina ásamt Rokkkór Íslands.
Klukkan 11 sama dag er messa í Digra-
neskirkju.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Messu-
þjónar aðstoða. Félagar í Kór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Steinar
Logi Helgason. Ensk messa kl. 14.
Prestur er Bjarni Þór Bjarnason. Tón-
leikar kl. 17. The Georgia Boy Choir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Service. Translation
into English. Samkoma á ensku kl. 14.
English speaking service. Samkoma á
spænsku kl. 16. Reuniónes en esp-
añol.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð |
Lundur. Íslensk fermingarguðsþjón-
usta í Klosterkyrkan í Lundi laugardag-
inn 28. maí kl. 14. Fermd verða: Adam
Leví Guðmundsson, Grímur Árnason,
María Lind Gylfadóttir og Nóel Bjarka-
son. Organisti er Larsåke Sjöstedt og
prestur er Ágúst Einarsson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma kl. 13 með lofgjörð og fyr-
irbænum. Friðrik Schram prédikar.
Kaffi að samverustund lokinni.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson sóknar-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja
undir stjórn Lenku Mátéová, kantors
kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa með
skírn kl. 11. Kórinn Góðir grannar syng-
ur við messuna undir stjórn Egils Gunn-
arssonar. Sr. Bolli Pétur Bollason þjón-
ar. Vormarkaður kvenfélagsins þennan
dag.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11.
Kór Laugarneskirkju og Elísabet Þórð-
ardóttir organisti. Sr. Davíð Þór Jóns-
son þjónar fyrir altari og prédikar. Pré-
dikunarefni: Sérstakir staðir í helvíti.
Messukaffi í safnaðarheimilinu á eftir.
Samvera og (vonandi fjörugar) sam-
ræður.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson leiðir stundina ásamt
sunnudagaskólakennurum. Guðsþjón-
usta kl. 20. Kór Lindakirkju leiðir lof-
gjörð undir stjórn Óskars Einarssonar.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjón-
ar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr kór Neskirkju syngja og leiða söng
undir stjórn Steingríms Þórhallssonar
organista. Prestur er Steinunn Arnþrúð-
ur Björnsdóttir. Hressing á Torginu eftir
messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð-
vík | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari og
félagar úr kirkjukórnum leiða söng und-
ir stjórn Stefáns H. Kristinssonar.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédik-
ar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti er Tómas Guðni
Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslu-
morgunn kl. 10. Sálfræði og trú í dags-
ins önn. Dr. Sigurður Júlíus Grétarss-
son prófessor talar. Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Bjarni Þór þjónar. Bjartur Logi
Guðnason er organisti. Eygló Rúnars-
dóttir leiðir safnaðarsönginn. Kaffiveit-
ingar. Þriðjudag kl. 14 er stund fyrir
eldri bæjarbúa. Anna Valdimarsdóttir
sálfræðingur spjallar um lífið og til-
veruna. Sönghópur af Skólabraut syng-
ur. Ókeypis kaffiveitingar. Fólk skrái sig
til þátttöku í síma 899-6979. Kyrrðar-
stund miðvikudag kl. 12.
STRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Kór Þorláks- og Hjallakirkju leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Esterar
Ólafsdóttur. Sr. Sigríður Munda Jóns-
dóttir þjónar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Kyrrðarbæna-
messa kl. 11. Kyrrð, birta og von mun
einkenna messu þessa sunnudags en
það er árleg kyrrðarbænamessa.
Kirkjukór Vídalínskirkju mun leiða
söngva undir stjórn Jóhanns Baldvins-
sonar organista og heiðurslistamans
Garðabæjar. Sr. Henning Emil Magnús-
son þjónar ásamt Bylgju Dís Gunnars-
dóttur sem leitt hefur kyrrðarbæna-
starfið í Vídalínskirkju undanfarin fjögur
ár.
Messur á morgun
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
✝
Kristjana Krist-
jónsdóttir fædd-
ist 26. desember
1934 á Ytri Bug í
Fróðárhreppi. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
23. maí 2022. For-
eldrar hennar voru
Jóhanna Oktavía
Kristjánsdóttir og
Kristjón Jónsson.
Systkini hennar
voru: 1) Sigurður, f. 5. ágúst 1929,
d. 4. júlí 2019. 2) Björn Markús
Leo, f. 28. nóvember
1930, d. 1. júlí 1989.
3) Þórdís, f. 30. jan-
úar 1932. 4) Guð-
mundur Kristján, f.
11. ágúst 1933. 5)
Einar, f. 22. desem-
ber 1936. 6) Elín, f.
8. maí 1938, d. 1995.
7) Ingibjörg f. 22.
október 1939. 8) Úlf-
ar, f. 3. maí 1941, d.
9. september 1985.
9) Sigurvin, f. 9. september 1944.
Kristjana giftist 26. desember
1964 Steini Jóhanni Randverssyni,
f. 8. ágúst 1936. Foreldrar hans
voru Randver Richter Kristjánsson
og Gyða Gunnarsdóttir.
Börn þeirra eru: 1) Guðlaug Jó-
hanna, f. 29. maí 1956, maki henn-
ar er Guðmundur Gísli Egilsson,
þau eiga 3 börn, 13 barnabörn og 2
barnabarnabörn. 2) Leidy Karen f.
21. nóvember 1957, maki hennar
er Jóhann Magni Sverrisson, þau
eiga 3 börn og 7 barnabörn. 3)
Randver Agnar, f. 19. júní 1960,
maki hans er Kristín Ingibjörg
Rögnvaldsdóttir, þau eiga 2 börn
og 7 barnabörn. 4) Ragnheiður
Guðmunda, f. 15. júní 1964, maki
hennar er Gunnar Björn Gíslason,
þau eiga 2 börn og 1 barnabarn.
Útför Kristjönu verður gerð frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 28. maí
2022, og hefst athöfnin klukkan 14.
Mín yndislega tengdamamma,
Kristjana Kristjónsdóttir, lést á
hjúkrunarheimilinu Eir 23. maí.
Jana, eins og hún var kölluð,
þurfti eins og svo margar sjó-
mannskonur ein að sjá um börn og
bú, aldrei heyrði maður hana samt
kvarta.
Þessi fíngerða kona var mikill
kvenskörungur, allt lék í höndum
hennar, sama hvort það voru
hannyrðir eða eitthvað sem þurfti
að lagfæra innanhúss. Hún var
kona ekki margra orða en kærleik-
urinn leyndi sér ekki. Hún hugsaði
vel um fjölskylduna, var alltaf boð-
in og búin að rétta hjálparhönd ef
með þurfti.
Ég hefði ekki getað fengið betri
tengdamömmu sem stóð alltaf með
mér sama á hverju gekk, verð ég
henni alla tíð þakklát fyrir það.
Elsku Jana, ég veit að þið Steini
eigið eftir að dansa saman í Sum-
arlandinu.
Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að
segja
að sumarið líður allt of fljótt.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Kristín I. Rögnvaldsdóttir.
Kristjana
Kristjónsdóttir
✝
Ágúst Sæ-
björnsson,
smiður, fæddist á
Búðareyri í Reyð-
arfirði þann 5. apríl
1928. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Hulduhlíð þann 5.
maí 2022. Foreldrar
hans voru Sæbjörn
Vigfússon, f. 17.
nóv. 1896 á Stef-
ánsstöðum, Valla-
nessókn, S-Múl, d. 9. feb. 1982 og
Svanborg Björnsdóttir, f. 1. maí
1894 í Borgargerði, S-Múl, d. 5.
jún. 1975. Systkini Ágústar eru
Sigríður, f. 16. nóv. 1924 á Búð-
areyri, d. 8. maí 2017, maður
hennar Gunnar Ingvar Ísdal Þor-
steinsson, f. 8. ágúst 1924, d. 2.
feb. 2007. Hildur, f. 5. des. 1933 á
Búðareyri, maður hennar Einþór
Jóhannsson, f. 17. feb. 1930, d.
15. mar. 2005. Einnig ólst upp á
heimilinu Dorothy Senior, f. 11.
mar. 1942, d. 14. jún. 2020, eig-
inmaður Gísli Garðarson, f. 21.
apr. 1945.
Ágúst kvæntist Sigríði Sigurð-
ardóttir frá Reyðarfirði, f. 24.
sept. 1933 en þau slitu sam-
Aron Máni og Bjartur Már. Börn
Sigurðar og Hörpu: Ágúst Már,
maki hans Marta Rún Þórð-
ardóttir, börn þeirra eru Urður,
Hildur og Sigurður. Gunnar
Darri, maki hans Anna Freyja
Guðmundsdóttir, sonur þeirra er
Alexander. 4) Steinar, f. 12. des.
1963, maki hans Jenný Heim-
isdóttir, f. 28. sep. 1985. Börn
Steinars og Jónínu Guðmunds-
dóttir eru Telma Sif, maki hennar
Esjar Már Guðmundsson, börn
þeirra Amelía Sif og óskírð dóttir.
Sæbjörn Rafn.
Á uppvaxtarárum sínum á
Reyðarfirði vann Ágúst hin ýmsu
störf, svo sem við kúasmölun, sem
léttadrengur í veitingaskála setu-
liðsmanna á stríðsárunum, hjá
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli,
í keyrslu fyrir Vegagerðina og
KHB og við smíðar. Ágúst tók að
sér hin ýmsu smíðaverk í gegnum
árin á Reyðarfirði og samhliða
vinnu byggði hann sér verkstæði.
Seinna meir bættust góðir menn í
hópinn. Verkstæðið hlaut nafnið
Tréverk sem síðar varð að Trév-
angi og er enn starfrækt í dag.
Síðustu árin bjó Ágúst í Hulduhlíð
á Eskifirði Ágúst verður jarðsung-
inn frá Reyðarfjarðarkirkju í dag,
28. maí 2022, klukkan 13. Hlekkur
á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
vistum. Sigríður er
dóttir Sigurðar
Magnúsar Sveins-
sonar, f. 23. feb. 1905
á Öxnalæk í Ölfusi,
d. 25. des. 1985, og
Bjargar Rannveigar
Bóasdóttur, f. 15.
feb. 1911 á Búð-
areyri, d. 9. maí
1999. Börn Ágústar
og Sigríðar eru: 1)
Björg Rannveig, f. 7.
okt. 1953. Sonur Bjargar og Karls
Rafnssonar er Ágúst Karl, eig-
inkona Hildur Sunna Pálmadóttir,
börn þeirra Ari Björgvin og Lára
Heiðrún. 2) Karin Sædís, f. 29. sep.
1956. Börn Karinar og Sigurðar
Sigurðssonar eru Sigurður Magn-
ús, eiginkona Sandra Sif Mort-
hens, dætur þeirra eru Kristín Sæ-
dís, Karítas og Lilja. Alma,
eiginmaður Guðni Dagur Krist-
jánsson, sonur þeirra er Magnús
Dagur. 3) Sigurður, f. 11. júl. 1960,
maki hans er Harpa Hrönn Gunn-
arsdóttir, f. 22. jan. 1963. Dóttir
Hörpu og fósturdóttir Sigurðar er
Eydís Hrönn Gunnlaugsdóttir,
eiginmaður Birgir Eiríksson, börn
þeirra Embla Sól, Hugrún Birta,
Jæja afi, merkilegt nokk ert
þú farinn yfir móðuna miklu. Af
einhverjum ástæðum hélt ég að
þessi dagur kæmi aldrei, líklega
vegna þess að þú varst ætíð
kletturinn sem hægt var að stóla
á, klettar hverfa ekki svo auð-
veldlega. Ég minnist tímanna í
eldhúsinu í morgnana, fórum á
Ágúst Sæbjörnsson