Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022
30 ÁRA Einar er Reykvíkingur,
ólst upp í Vesturbænum en býr í
Laugardalnum. Hann er bifvéla-
virki hjá Suzuki-umboðinu.
Áhugamál Einars eru bílar og
bjór. „Ég brugga mikið sjálfur og
er mest fyrir IPA og bragðsterka
bjóra.“
FJÖLSKYLDA Einar er í sam-
búð með Ingu Dóru Hlíðdal Magn-
úsdóttur, f. 1992, leikskólakennara
í Ársól. Sonur þeirra er Fenrir
Hrafn, f. 2021. Foreldrar Einars
eru Eínborg Jóhanna Þorsteins-
dóttir, f. 1960, saumakona og text-
ílhönnuður, og Valgarður Ár-
mannsson, f. 1958, vélstjóri. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Einar Ármann Valgarðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú gætir hitt fyrir manneskju sem
heillar þig algerlega upp úr skónum í dag.
Reyndu að temja þér ráðkænsku og hátt-
vísi í samtölum við maka og nána vini.
20. apríl - 20. maí +
Naut Vinur segir eða gerir eitthvað sem
kemur þér verulega á óvart. Vertu á varð-
bergi gagnvart skyndihugdettum í inn-
kaupum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er engin ástæða til að gefast
upp þótt leiðin að takmarkinu virðist löng
og þyrnum stráð. Hertu upp hugann því
sókn er besta vörnin.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Einhverjar breytingar eru fram
undan svo vertu opinn fyrir því sem koma
skal. Starf þitt krefst sérstaklega mikils af
þér og svo mun verða enn um stund.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Láttu ekki einhverja smámuni ná helj-
artökum á þér. Reyndu að forðast átök á
næstu vikum og koma auga á þinn þátt í
því sem aflaga fer í samskiptum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Láttu þér ekki bregða þótt einhver
vilji létta þér lífið hvort heldur það er fjár-
hagslega eða á annan hátt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Mundu að þú þarft á hvíld og afslöpp-
un að halda um þessar mundir. Leyfðu öðr-
um að njóta sín og þá munu hlutirnir ganga
vel fyrir sig.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Taktu það ekki nærri þér þótt
þér takist ekki að gera svo öllum líki.
Mundu að virða sjálfsákvörðunarrétt ann-
arra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Meiriháttar breytingar liggja í
loftinu svo þú þarft að undirbúa þig vel.
Hafðu þetta í huga þegar þú gengur fram á
vettvangi dagsins.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú ættir að leita ráða hjá góðum
vini varðandi krefjandi verkefni, sem þér
hefur verið falið, en stendur aðeins í þér.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Hlutirnir ganga ekki sérstaklega
smurt í dag. Nú er þín stund komin því eftir
því er beðið að þú segir hug þinn og fylkir
fólki á bak við þig.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur verið einn á báti of lengi
og ættir að finna þér félagsskap við fyrsta
tækifæri. Kynntu þér þá kosti sem í boði
eru og mundu að ekki er allt gull sem glóir.
fyrir hann. Um þekkingu leituðum við
til Noregs. Stærsti hluthafi Spalar
varð Grundartangahöfn. Því hefur oft
verið haldið á lofti að Hvalfjarðar-
göngin sýni mátt hins frjálsa framtaks
en við sem sátum í stjórn vorum í raun
fulltrúar fyrirtækja og stofnana í eigu
ríkis og sveitarfélaga. En þeir sem
lánuðu fé til framkvæmdanna höfðu
enga aðra tryggingu en gat undir
Hvalfjörð og tekjustrauminn af því.
Jón var bæjarfulltrúi á Akranesi
1990-1994. „Þá buðu tvær ágætar kon-
ur mér til sín, Ingibjörg og Steinunn,
og spurðu hvort ég styddi ekki konur.
Ég játaði því og tók sæti á eftir þeim á
lista Framsóknar. Kosningabaráttan
gekk vel og við fengum flest atkvæði
allra flokka.“
Alvarleg viðvörun
„Á þessum tíma fannst mér ég geta
allt, ég gaf ekkert eftir í vinnunni og
svo bættust öll önnur umsvif við eftir
vinnutíma. Á Jónsmessunótt gengum
við Kristín upp á Akrafjall og veltum
okkur nakin upp úr dögginni. Síðan
flaug ég til Noregs á erfiða fundi.
Heimkominn að gera allt klárt fyrir
sumarfrí með fjölskyldunni fékk ég
heilablæðingu. Ég lá í rúminu í tvær
vikur á Landspítalanum og horfði út í
sólina. Eftir rannsóknir fannst ekkert.
Blóðnasir í heilaberki var ef til vill sú
greining sem komst næst. Ég slapp
óskaddaður fyrir horn en þetta var
viðvörun sem ég tók alvarlega. Við
næstu kosningar hætti ég allri stjórn-
málaþátttöku og uppgötvaði aftur frí-
tíma. Ég sinnti fjölskyldunni betur og
barnsgrát. En börnin áttu góða móð-
ur. Ég hef bætt þetta að einhverju
leyti upp þegar við höfum passað
barnabörnin,“ bætir Jón við hálf-
skömmustulega. „Að halda á litlu
barni í fanginu, finna frá því hitann og
anda að sér ilminum. Það er núvitund.
Á Grundartanga unnum við að því
að auka álag á ofnunum og bæta efnis-
og orkunýtingu. Það gekk vel og verð
á afurðunum fór hækkandi. Þegar
best lét var önnur hver króna sem
kom í kassann hreinn ágóði. En svo
kom bakslagið þegar járntjaldið
hrundi. Þá flæddu yfir markaðinn
málmar eins og kísiljárn sem áður
voru notaðir heima fyrir og verðið féll
um helming. Þá þurftum við að segja
upp fólki. Það var erfitt, bæði fyrir þá
sem fóru og eins fyrir þá sem eftir
sátu. En krafa um hagvöxt þýðir í
raun að hver og einn þarf að afkasta
meira á hverju ári. Annars verða
menn undir í samkeppninni.
Ég gekk fljótlega í Rótarýklúbb
Akraness og Kristín í kirkjukórinn.
Þannig kynntumst við heimafólki og
festum rætur. Einn félaginn kom að
máli við mig og sagði að lýðræðið
gengi ekki upp nema fólk legði meira
á sig en að kjósa. Þá settist ég í skóla-
nefnd Fjölbrautaskólans og í stjórn
Grundartangahafnar. Í skólanefnd
fengum við öll sveitarfélög á Vestur-
landi til að koma að rekstri skólans.
Það styrkti hann og heimavist og ný
kennsluhús risu.
Ég sat í fyrstu stjórn Spalar en það
fyrirtæki var stofnað til að komast
undir Hvalfjörð í stað þess að keyra
J
ón Grétar Hálfdanarson
fæddist 29. maí 1947 á Þórs-
götu 17 í Reykjavík. Hann á
því 75 ára afmæli á morgun.
Hann gekk í Miðbæjarskól-
ann, Landsprófið í Vonarstræti og tók
stúdentspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1967. Þá fór hann til Þýska-
lands í nám í eðlisfræði, lauk diplóma-
prófi 1972 við Háskólann í Göttingen
og doktorsprófi 1975. Þar vann hann
þrjú ár við kennslu og rannsóknar-
störf en réð sig síðan 1978 til Íslenska
járnblendifélagsins sem var að reisa
kísiljárnverksmiðju á Grundartanga.
Fyrirtækið var í eigu íslenska ríkisins
og Elkem.
„Kristín kona mín kom til mín 1972
og í Þýskalandi eignuðust við tvo syni,
Stein Arnar og Eirík. Eftir sex ár
sendum við búslóðina til Íslands, sett-
um drengina í Volvo-skutbíl og ókum
frá Göttingen til Norður-Noregs. Við
vorum nokkra mánuði þarna norður
frá en þar átti Elkem verksmiðju.
Þetta var fyrsta góða sumarið í ellefu
ár, sögðu heimamenn. Um haustið ók-
um við suður til Kristiansand og ég
var við rannsóknamiðstöð Elkem.
„Við fluttumst á Akranes eftir jól,“
heldur Jón áfram. Þar fæddist okkur
dóttir síðla árs, Sigríður Víðis. Svo það
var í nógu að snúast. Það eru ekki allir
sem fá slíkt tækifæri, að taka þátt í að
koma af stað nýrri verksmiðju. Ég
naut þess. Ég hét þá forstöðumaður
rannsókna. Á minni könnu var gæða-
eftirlit og þróunarstarf. Þegar síminn
hringdi að næturlagi spratt ég upp
eins og fjöður en vaknaði ekki við
fór að ganga á fjöll. En ég lærði mikið
í bæjarstjórn og gerði vonandi eitt-
hvert gagn á móti. Úr níu manna bæj-
arstjórn urðu seinna þrír þingmenn
og þar af tveir ráðherrar. Þótt ég
græddi á því að draga mig í hlé,
missti þjóðin mikils,“ bætir Jón kím-
inn við.
„Síðan hætti ég á Grundartanga.
Þá voru börnin flogin úr hreiðri og við
flutt til Reykjavíkur. Fyrsta daginn
var sól. Ég gekk niður á Austurvöll
og settist á bekk og fann hvernig
frelsistilfinningin flæddi um líkam-
ann. Síðan hef ég ekki sinnt fastri
vinnu. Ég kenndi eðlisfræði uppi í
Háskóla og vann sem ráðgjafi í þeim
iðnaði sem ég kom úr. Þau verkefni
sem reyndu mest á var að keyra upp
stóra rafbogaofna eftir gagngerar
endurbætur sem gerðar eru á um
áratugs fresti. Þá er mikið undir að
vel takist til. Þetta var vinna fyrir El-
kem hér heima, í Noregi og Kanada.“
Jón var efnilegur skákmaður sem
barn og unglingur. „Ég sinnti skák-
inni ekki af nógu mikilli alúð. Æfingin
skapar meistarann en aukaæfingin
stórmeistarann! En skákin gaf mér
mikið, sérstaklega þegar ég var
lengst frá henni. Þá nýttist grunnur
hennar við að leysa önnur vandamál.
Í skák hefur þú alla möguleikana fyr-
ir framan þig, það er ekkert falið. Að
vinna rétt úr stöðunni er undir þér
komið. En auðvitað máttu heldur ekki
gleyma að hinum megin við borðið
situr andstæðingur!
Við Kristín fórum í vor til Madeira,
eyju elskenda og eftirlaunaþega. Við
Jón Hálfdanarson eðlisfræðingur – 75 ára
Sumarfrí Jón og Kristín með börnum, tengdabörnum og barnabörnum á Spáni í júlí 2019.
Þá ertu hamingjusamur
Á brúðkaupsdegi 29.12. 1972.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Fenrir Hrafn Hlíðdal
Einarsson fæddist 23. ágúst 2021 kl.
9.47 í Reykjavík. Hann vó 2.974 g og
var 49 cm langur. Foreldrar hans eru
Einar Ármann Valgarðsson og Inga
Dóra Hlíðdal Magnúsdóttir.
Nýr borgari
101.9
AKUREYRI
89.5
HÖFUÐB.SV.
Retro895.is
ÞÚ SMELLIR
FINGRUM Í TAKT
MEÐ RETRÓ
‘70,‘80 OG ‘90 STÖÐIN