Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022 LJÓSMYNDA SAMKEPPNI 200 mílna og Morgunblaðsins Við leitum að fallegum, hrika- legum, mögnuðum og öðruvísi ljósmyndum af sjónum eða við sjóinn. Sendu okkur mynd og þú gætir unnið 50.000 kr. gjafabréf og fengið myndina þína á forsíðuna á Sjómannadagsblaði 200 mílna í ár. Við verðlaunum þrjár myndir: 1.sæti – 50.000 kr. gjafabréf á Finnsson Bistro og forsíðumynd 200mílna 12. júní 2.sæti – 30.000 kr. gjafabréf á Finnsson Bistro 3.sæti – 20.000 kr. gjafabréf á Finnsson Bistro Skilafrestur er til og með 3. júní. Taktu þátt og sendu okkur myndir á 200milur@mbl.is „ÞETTA ÆTTI AÐ VERÐA ÁHUGAVERT. ÉG HEF ALDREI FARIÐ Á STEFNUMÓT MEÐ MÓDELI ÁÐUR.“ „ÓKEI! STATTU KYRR SVONA OG ÉG SKAL FÆRA SPJALDIÐ YFIR Á VEGGINN Á MÓTI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að taka saman sjálfu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann RISARÓBÓTINN MINN MUN SIGRA MEÐ MÉR HEIMINN! ÉG ÞARF BARA AÐ KVEIKJA Á HONUM ÍGOR, FARÐU OG KAUPTU 12.000 AA RAFHLÖÐUR! JÁ, HERRA! HALLÓ, HALLÓ, HALLÓ, HALLÓ! ER ÞETTA ÞAÐ EINA SEM ÞÚ KANNT? KANNT ÞÚ AÐ FLJÚGA? ÉG HELD AÐ HEIMURINN SÉ ÖRUGGUR vorum ekki viss um í hvorn hópinn við ættum að flokka okkur! Þarna hitti ég ensk hjón sem stunduðu jóga. Eftir heimspekilegar umræður spurði kon- an: „Hverju mundir þú breyta ef þú gætir endurtekið líf þitt?“ „Engu,“ svaraði ég eftir umhugsun. „Þá ertu hamingjusamur,“ fastréð konan. Fjölskylda Eiginkona Jóns er Kristín Steins- dóttir, f. 11.3. 1946, rithöfundur. For- eldrar Kristínar voru hjónin Steinn Stefánsson, f. 11.7. 1908, d. 1.8. 1991, skólastjóri á Seyðisfirði og Arnþrúður Ingólfsdóttir, f. 14.8. 1916, d. 25.6. 1964, talsímakona og húsmóðir. Börn þeirra eru Steinn Arnar f. 1.6. 1973, hugbúnaðararkitekt í Columbus, Ohio; Eiríkur f. 12.2. 1977, landsrétt- ardómari og prófessor við HÍ, og Sig- ríður Víðis f. 20.11. 1979, þróunar- og átakafræðingur. Barnabörnin eru 11. Systkini Jóns eru Hildur Hálfdan- ardóttir, f. 22.2. 1931, fv. skrifstofu- stjóri, Hadda Hálfdanardóttir f. 12.6. 1935, húsmóðir og Jakob Hálfdanar- son, f. 1.1. 1942, tæknifræðingur, öll bús. á höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar Jóns voru Hálfdan Ei- ríksson, f. 24.6. 1901, d. 28.5. 1981, kaupmaður í Kjöti og fiski og síðar starfsmaður Skattstofu Reykjavíkur, og Þórný Jónsdóttir, f. 27.4. 1904, d. 7.12. 1955, kaupmaður og húsmóðir. Jón missti móður sína átta ára gamall. Tveimur árum síðar kvæntist Hálfdan aftur. Stjúpa Jóns var Margrét G. Björnsson, f. 14.11. 1917, d. 2.7. 1996, verslunarmaður. Hún kom með tvö börn sín á heimilið. Stjúpsystkini Jóns eru Guðmundur Karl Sveinsson, f. 12.6. 1941, d. 1.1. 1989, skrifstofu- maður og Margrét Sveinsdóttir, f. 3.4. 1947, skrifstofukona. Móðursystir Jóns, Sigríður Víðis Jónsdóttir, f. 15.4. 1897, d. 10.11. 1991, sýslumannsfrú, fluttist til Akraness frá Húsavík orðin ekkja 1985 og varð amman í húsinu. Jón Hálfdanarson Guðríður Eiríksdóttir húsfreyja í Kollstaðagerði, f. á Hafursá, fórst í snjóflóðinu á Seyðisfirði 1885 Sigurður Guttormsson bóndi í Kollstaðagerði á Völlum, S-Múl. Halldóra Sigurðardóttir húsfreyja á Þverá, í Reykjavík og Hafnarfirði Jón „Þveræingur“ Jónsson bóndi á Þverá og bókhaldari í Reykjavík Þórný Jónsdóttir byggði upp með manni sínum verslunina „Kjöt og fiskur“ og húsmóðir í Reykjavík Herdís Ásmundsdóttir húsfreyja á Þverá, frá Stóru-Völlum í Bárðardal Jón Jóakimsson kirkjubóndi og hreppstjóri á Þverá í Laxárdal Petrína Kristína Pétursdóttir Jónssonar Þorsteinssonar ættföður Reykjahlíðarættarinnar, húsfreyja á Grímsstöðum Jakob Hálfdanarson bóndi á Grímsstöðum í Mývatnssveit og fyrsti kaupstjóri Kaupfélags Þingeyinga Jakobína Jakobsdóttir kennslukona og einstæð móðir eftir skilnað, lengst á Eyrarbakka Eiríkur Þorbergsson ljósmyndari og trésmiður á Húsavík, flutti til Kanada 1910 Sigríður Andrésdóttir húsfreyja í Syðri-Tungu, frá Bakka á Tjörnesi Þorbergur Eiríksson bóndi í Syðri-Tungu á Tjörnesi Ætt Jóns Hálfdanarsonar Hálfdan Eiríksson kaupmaður og eigandi verslunarinnar „Kjöt og fiskur“ í Reykjavík Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Hríðarél um hauður fer. Hlaupaleikur þetta er. Deila milli manna hörð. Mikill eldur svíður jörð. Guðrún B. á þessa lausn: Bálviðri? Nei, sjó og sand og sitja og troða bál í leik, en reglur hleypa í bál og brand og bál af neista úr lambasteik. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Hríðarbál um hauður fer. Hlaupaleikur bálið er. Bál er deila býsna hörð. Bálsins logi svíður jörð. Þá er limra: Hún Dómhildur digur er og daglega í ræktina fer, þá er nú best, ef hún bálreið sést að biðja fyrir sér. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Regnið drýpur hægt og hljótt, hylja loftið næturský, að mér hafa svipir sótt, í svefni barst mér gáta ný: Einstakling ég nefni nú. Í náttúrunni má það sjá. Finnst á hesti, kind og kú. Krummi líka flíka má. Helgi R. Einarsson var að lesa blöðin, D.Þ. og V.G., og þá varð þessi til: Í Víti mun V-græna sá vondi nú að sér hæna, eða er merkur ágætur klerkur upp í vindinn að spræna? Þetta kallar fram í hugann stök- una „Bjartsýni“ eftir Jón Bjarnason frá Garðsvík: Þegar ég loksins frelsi fæ, – úr fangelsi lífs er öllum smokrað – í Himnaríki ég háttum næ, á hinum staðnum er fullt – og lokað. Hér yrkir Jón um verðbólguna: Þeir sem heimta hækkað kaup held ég að því keppi að moka sandi í lekan laup líkt og þeir á Kleppi. „Skrýtið það“ undrar Jón: Ég hef reynt og reyni enn, rýr þó virðist forðinn að stundum hafa heimskir menn hitt á réttu orðin. Þórarinn í Kílakoti yrkir um æskuást: Minningar um æskuást ævi langa geymast, einkanlega ef hún brást, en æskubrekin gleymast. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hríðarél um hauður fer

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.