Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 28.05.2022, Qupperneq 41
sæti og fer í umspil um að fara upp. _ Stúlknalandslið Íslands, U18 ára, fer á HM í handbolta í þessum ald- ursflokki í sumar en það fer fram í Norður-Makedóníu dagana 30. júlí til 10. ágúst. Ísland var fyrsta varaþjóð inn á mótið eftir að hafa endað í öðru sæti í sínum riðli í undankeppni mótsins og verður nú á meðal þeirra sextán liða sem spila um heims- meistaratitilinn. _ Jónatan Ingi Jónsson, fyrrverandi leikmaður FH, er í liði umferðarinnar í 8. umferð norsku B-deildarinnar í knattspyrnu hjá fréttastofu NTB eftir frammistöðu sína í 3:1 sigri Sogndal á Stjördals Blink fyrr í vikunni. Jón- atan skoraði þar eitt marka liðsins. _ Ólafía Þór- unn Krist- insdóttir lék fyrsta hring á Mithra Belgian Ladies Open golfmótinu í Belgíu í gær á 72 höggum, pari vallarins, en mótið er lið- ur í Evr- ópumótaröð kvenna. Ólafía er í 27.- 39. sæti af 126 keppendum, þremur höggum frá öðru sætinu og sex höggum á eftir Linn Grant frá Sví- þjóð sem lék langbest allra á 66 höggum. Um þriggja daga mót er að ræða og annar hringur af þremur er leikinn í dag. _ Knattspyrnumarkvörðurinn Fraser Forster er á leið frá Southampton til Tottenham þegar samningur hans við Southampton rennur út í lok júní. Samkvæmt BBC hefur hann þegar gengist undir læknisskoðun hjá Tott- enham. Forster, sem er 34 ára og hefur leikið sex landsleiki fyrir Eng- lands hönd á að leysa Pierluigi Collini af sem varamarkvörður liðsins og vera til taks fyrir fyrirliðanna og franska landsliðsmarkvörðinn Hugo Lloris. _ Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús átti erfiðan annan hring á Scottish Challenge-mótinu á Áskorendamótaröð Evrópu í golfi í gær. Haraldur var í toppbaráttu eftir glæsilegan fyrsta hring á fimmtudag en hann náði sér ekki á strik í gær og var að lokum heppinn að kom- ast í gegnum nið- urskurðinn. Hann er í 55. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Haraldur lék hring- inn á 77 höggum, sex höggum yfir pari. Hann lék fyrsta hringinn á 66 höggum og er því á samanlagt einu höggi yfir pari. Haraldur fékk þrjá tvö- falda skolla, einn skolla og einn fugl á holunum 18. Þá er Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr leik. Hann lék hringina tvo á 72 og 75 höggum og lauk leik á fimm höggum yfir pari og í 110. sæti. Þriðji hringurinn verður leikinn í dag. ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022 Valur og ÍBV mætast í fjórða leik úrslitanna á Íslands- móti karla í handbolta í Vestmannaeyjum klukkan 16 í dag. Einvígið til þessa hefur ver- ið ótrúleg skemmtun og vonandi fáum við meira af því sama. Einvígið er að einhverju leyti hið fullkomna úr- slitaeinvígi. Valsmenn eru heilt yfir með betra lið en aldrei má afskrifa Eyjamenn í einvígi sem þessu. Þegar úrslitakeppnisand- inn nær til Vestmannaeyja fer liðið í ham sem fá önnur lið ráða við. Stuðningsmenn ÍBV eru magnaðir og stemningin sem myndast í Vestmannaeyjum í kringum úrslitaleiki er engri lík. Valsmenn hefðu getað feng- ið „þægilegra“ einvígi í úrslitum en ég er handviss um að enginn hjá Val myndi skipta út glímunni við Vestmannaeyjar fyrir annan andstæðing. Glæsilegt lið Valsmanna á móti mjög góðu liði ÍBV sem er með allar Vestmannaeyjar á bakinu er úrslitaeinvígi eins og við viljum hafa þau. Liðin hafa skipst á heimasigrum til þessa og síðustu tveir leikir verið ótrú- lega spennandi og skemmtilegir. Mikið hefur verið rætt og ritað um hörkuna í úrslitaeinvíg- inu til þessa, en svona vilja flestir hafa þetta. Þessir leikir koma blóðinu af stað. Einhverjir sérfræðingar hafa talað um of mikla hörku og aðrir um að leik- menn ÍBV hafi hreinlega verið grófir í fyrsta leik. Undirritaður ræddi við leikmenn beggja liða eftir fyrsta leik. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, notaði orðið æðislegt þegar talið barst að hörkunni í leiknum og Róbert Sigurðarson hjá ÍBV brosti út að eyrum þegar harka Eyjamanna var umræðuefni. Svona viljum við hafa úrslitakeppnina. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is HANDKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur karla: Eyjar: ÍBV – Valur (1:2) ........................ L16 _ Valur er Íslandsmeistari með sigri, ann- ars verður oddaleikur á Hlíðarenda á mánudagskvöld. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Selfoss Classic, afmælismót Frjálsíþrótta- sambands Íslands, fer fram á Selfossvelli í dag frá kl. 12 til 16. Keppt er í kringlukasti karla, sleggjukasti karla og kvenna, há- stökki kvenna, 100 m hlaupi karla og kvenna, langstökki karla og kvenna, 1.500 m hlaupi karla og 200 m hlaupi karla. KNATTSPYRNA Mjólkurbikar kvenna, 16 liða úrslit: Akranes: ÍA – KR................................... L13 Kaplakriki: FH – Stjarnan .................... L14 Þórsvöllur: Þór/KA – Haukar ............... L14 Selfoss: Selfoss – Afturelding........... L16.30 Sauðárkrókur: Tindastóll – Valur......... L17 Reyðarfjörður: FHL – Breiðablik.... S14.30 Keflavík: Keflavík – ÍBV ........................ S15 Besta deild karla: Safamýri: Fram – Valur ......................... S16 Víkin: Víkingur R. – KA .................... S16.30 Garðabær: Stjarnan – ÍBV..................... S17 Akranes: ÍA – Keflavík........................... S17 Breiðholt: Leiknir R. – Breiðablik ... S19.15 Kaplakriki: FH – KR......................... S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Grindavík: Grindavík – Fylkir............... L14 Seltjarnarnes: Grótta – KV ................... L14 Ísafjörður: Vestri – Þór ......................... L14 2. deild karla: Fellavöllur: Höttur/Hug. – Víkingur Ó L13 ÍR-völlur: ÍR – Magni ............................ L14 Þorlákshöfn: Ægir – KFA ..................... L14 Dalvík: KF – Þróttur R ......................... L16 Húsavík: Völsungur – Haukar............... S16 3. deild karla: Höfn: Sindri – Kormákur/Hvöt............. L13 Grafarvogur: Vængir Júpíters – KFG . L14 Garður: Víðir – KFS............................... L15 Akranes: Kári – Dalvík/Reynir ........ L15.30 UM HELGINA! af Ólympíuleikunum í Tókýó, Sim- on Pettersen og Norðmaðurinn Sven Skagestad á mótinu en Vé- steinn þjálfar þá báða. Bandaríkja- maðurinn Sam Mattis, sem varð áttundi í Tókýó, mætir einnig til leiks, sem og Íslandsmethafinn Guðni Valur Guðnason. Vésteinn á sjálfur vallarmetið Vallarmetið í kringlukasti á Sel- fossvelli er 67,64 metrar og það á Vésteinn sjálfur, síðan 31. maí 1989 og var kastið lengi Íslands- metið í greininni. Guðni sló það með því að kasta 69,35 metra fyrir tveimur árum. Vésteinn á ekki von á öðru en að vallarmetið verði slegið í dag. „Daniel er í mjög góðu formi og getur kastað mjög langt þessa dag- ana, það fer auðvitað aðeins eftir aðstæðum, en ég held að þetta geti orðið mjög gott. Ef aðstæður eru góðar og hann á góðan dag, þá kastar hann yfir 70 metra, sem er heimsklassa árangur. Ég vona að vallarmetið fjúki. Þetta var mjög langt kast fyrir mig á sínum tíma og að ná því hérna á heimavelli fannst mér mjög gaman. Ef metið fellur, þá ertu með mjög góðan ár- angur, þeir eru þarna nokkrir sem gætu náð þessu. Daniel er bestur af þeim en Sam Mattis kastaði 68,69 fyrir fimm dögum, þannig að hann er í toppformi. Þetta er sterkasta kringlukastsmót sem haldið hefur verið hér á landi,“ sagði Vésteinn að lokum. Kringlukastskeppnin er há- punktur Selfoss Classic en einnig má búast við sterkri sleggjukasts- keppni, þar sem sterkir Svíar keppa við Íslandsmethafana Hilm- ar Örn Jónsson og Elísabetu Rut Rúnarsdóttur. Þá mætir Naomi Sedney frá Hollandi í 100 m hlaup- ið en hún var í gullsveit Hollands í boðhlaupi á EM 2016. „Vona að vallarmetið fjúki“ - Nokkrir af bestu kringlukösturum heims keppa á Selfoss Classic í dag Ljósmynd/Guðmundur Karl Selfoss Vésteinn, Guðni Valur, Petterson, Ståhl, Skagestad og Freyr Ólafs- son, formaður FRÍ, á blaðamannafundi í miðbæ Selfoss í gær. FRJÁLSAR Guðmundur Karl sport@mbl.is „Fyrir mig er þetta mjög stórt. Ég er auðvitað Selfyssingur og heima er alltaf hér. Það er bara beint frá hjartanu. Að geta haldið þetta mót hér á Selfossi er stórkostlegt og ég ber mikið þakklæti í brjósti, að þetta geti orðið að veruleika.“ Þetta sagði Vésteinn Haf- steinsson, þjálfari Daniel Ståhl, heims- og ólympíumeistarans í kringlukasti, við Morgunblaðið á Selfossi í gær. Ståhl er meðal keppenda á Selfoss Classic, 75 ára afmælismóti Frjálsíþrótta- sambands Íslands, sem verður haldið á Selfossvelli í dag. „Þetta er búið að standa til í mörg ár og svo kom þetta upp núna á afmælisárinu og líka af því að þessi árangur náðist á síðasta ári, gull og silfur á Ólympíu- leikunum í Tókýó, sem er líklega toppurinn á mínum ferli. Þannig að undanfarið hálft ár höfum við verið að vinna að þessu með frjáls- íþróttasambandinu og deildinni á Selfossi,“ sagði Vésteinn. Auk Ståhl keppa silfurmaðurinn Þróttur úr Reykjavík varð í gær- kvöldi fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Mjólkurbik- ars kvenna í fótbolta með 2:1- heimasigri á Víkingi. Þróttur er í öðru sæti í Bestu deildinni og Vík- ingur í þriðja sæti í Lengjudeild- inni, 1. deild. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Katla Tryggvadóttir Þrótti yf- ir en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Sigdís Eva Bárðardóttir. Sæunn Björnsdóttir skoraði hins vegar sigurmarkið á 75. mínútu og þar við sat. Þróttur fór alla leið í úr- slit keppninnar á síðustu leiktíð en tapaði að lokum fyrir Breiðabliki, 0:4. Sextán liða úrslitin halda áfram í dag með fimm leikjum. Einn úrvals- deildarslagur fer fram er Selfoss og Afturelding mætast á Selfossi. Þá leikur Valur, topplið Bestu deild- arinnar, við Tindastól úr 1. deild á Skagafirði og Þór/KA mætir Hauk- um úr 1. deild á Akureyri. Loks mætast FH úr 1. deild og Stjarnan í Kaplakrika og ÍA úr 1. deild fær KR úr úrvalsdeildinni í heimsókn. Morgunblaðið/Eggert Fyrirliði Dagbjört Ingvarsdóttir, fyrirliði Víkings, í baráttunni við Freyju Karin Þorvarðardóttur, framherja Þróttar, í Laugardalnum í gærkvöldi. Þróttarar fyrstir áfram Selfoss er komið upp í toppsæti Lengjudeildar karla í fótbolta, 1. deild, eftir 4:0-stórsigur á nýliðum Þróttar frá Vogum á heimavelli í gærkvöldi. Selfoss hefur komið skemmtilega á óvart í byrjun móts, unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum og enn ekki beðið ósigur. Spánverjinn Gonzalo Zamorano hefur farið vel af stað með Selfossi og gerði framherjinn tvö fyrstu mörkin. Hann er kominn með fjög- ur mörk í fjórum deildarleikjum í sumar en hann lék með ÍBV í fyrra. Fyrirliðinn Gary Martin bætti við þriðja markinu og hinn 17 ára gamli Alexander Clive Njarðarson gerði fjórða markið í lokin í sínum fyrsta deildarleik í meistaraflokki. Nýliðar Þróttar hafa átt erfitt uppdráttar og er liðið aðeins með eitt stig. HK upp um fjögur sæti Þá vann HK sinn annan deild- arleik á tímabilinu er liðið lagði Aftureldingu í Kórnum, 2:0. Stefán Ingi Sigurðarson, sem skoraði tvö mörk í bikarnum gegn Gróttu á dögunum, gerði fyrra markið í lok fyrri hálfleiks og Valgeir Val- geirsson bætti við öðru markinu á 77. mínútu. HK fór upp í sex stig og í fimmta sætið með sigrinum en Afturelding er enn án sigurs og aðeins með tvö stig. Fjölnir er í þriðja sæti með sjö stig eftir 1:1-jafntefli á heimavelli gegn Kórdrengjum. Reynir Har- aldsson, sem kom til Fjölnis frá ÍR fyrir þessa leiktíð, skoraði fyrsta markið í lok fyrri hálfleiks en Þór- ir Rafn Þórisson jafnaði fyrir Kór- drengi á lokamínútunni og þar við sat. Kórdrengir eru með einn sig- ur, tvö jafntefli og eitt tap og í sjö- unda sæti með fimm stig. Fjögur mörk og Sel- fyssingar á toppinn Morgunblaðið/Eggert Mark Stefán Ingi Sigurðarson gerði fyrra mark HK í Kórnum í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.